Morgunblaðið - 27.10.1988, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 27.10.1988, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1988 ■ JÓNAS Hallgrímsson, Húsvíkingur og leikmaður Leift- urs í knattspymu, er mikill veiði- maður. Hann hefur nú þegar veitt 326 ijúpur í sex veiðiferðum sem þykir ótrúlega gott. Á sunnudaginn fór hann til ijúpna en fann til t öðrum fætinum um miðjan daginn. Hann hélt þó veiðiferðinni áfraip^ . og kom með 60 ijúpur heim. Hann fór svo í læknisskoðun og þá kom í ljós að hann var ökklabrotinn. Jónas verður því að sitja heima næstu vikur en hefur a.m.k. nóg að borða! ■ SIR Athur Gold, sem hefur barist gegn lyfjaneyslu í íþróttum, var í gær kjörinn formaður bresku ólympíunefndarinnar. Gold, sem er 71 árs, tekur við af Charles Pal- mer sem hefur verið formaður nefndarinnar síðan 1983. ■ MÁGKONUKNAR Florence Griffith Joyner og Jackie Joyn- er-Kersee þykja líklegastar til að fá Jesse Owens verðlaunin í ár. Joyner-Kersee hefur reyndar fengið verðlaunin tvö undanfarin ár og gæti jafnað met Edwin Mos- es, en hann hefur þrisvar hlotið þessa viðurkenningu. Aðrir sem til- nefndir hafa verið eru : Carl Lew- is, Joe DeLoach, Roger Kingdom, Andre Phillips, Butch Reynolds, Steve Lewis og Louise Ritter. Slavko Bamblr ■ FORMSATRIÐI fyrir leikinn settu íslensku stúlkumar út af lag- inu. Vegabréf þeirra voru nákvæm- lega skoðuð, nafn, mynd og kyn. Sem venja er var búið að ákveða með búninga og átti íslenska liðið að vera í albláum búningum, en það gríska í hvltum. Gríáku stúlkumar mættu hins vegar bláar til leiks, en urðu að sjálfsögðu að skipta. Þá var sett út á staðsetningu aug- lýsinga á búningunum, ■ BAMBIR, þjálfari stúlknanna, hefur oft vakið athygli fyrir fram- komu sína á bekknum, þar sem hann hefur látið vel í sér heyra. í gærkvöldi var hann hins vegar kveðinn í kútinn — af gríska þjálfar- anum, sem lét öllum illum látum. ■ MEÐAN & leiknum stóð glumdi kammertónlist í eyrum við- staddra. Nokkrir krakkar mættu með hljóðfæri sín og spiluðu án afláts — nokkuð sem íslenska liðið hafði ekki upplifað. ■ ÍSLENSKI hópurinn er allt annað en ánægður með hótelaðstöð- una og bar fram kvörtun í gær vegna lítilla herbergja — vildi fara á betri stað. Um annað er hins veg- ar ekki að ræða í Dreux, en þegar liðið kom á hótelið í gærkvöldi eftir leikinn gegn Grikkjum, var tekið á móti fararstjórunum og nuddara með stórum og fögrum blómvönd- um! ■ ÍSLENSKA liðið situr hjá í kvöld og ætlar að nota daginn til að breyta um umhverfi og fara í skoðunarferð. Annað kvöld leikur það gegn því spænska, sem hefur tapað í síðustu fjórum innbyrðis viðureignum. ■ FRAKKLAND vann Portú- gal 22:13 (13:5) í hinum leiknum í a-riðli í gærkvöldi. Spánn sat hjá. Rautt spjald á 2. mínútu Tíu leikmenn Anderlecht töpuðu tyrir Mechelen ANDERLECHT tapaöi fyrri leik sínum gegn Mechelen í upp- gjöri belgísku liðanna Evrópu- keppni bikarhafa í gœr, 1:0. Það voru reyndar aðeins tíu leikmenn Anderlecht sem léku lengst af því Steffen Keski var vikið af leikvelli á 2. mínútu fyrir að slá frá sér. Þetta hafði að sjálfsgöðu slæm áhrif á leik Anderlecht og Mechelen sótti mun meira. Það var þó ekki fyrr en á 88. mínútu að sigur- markið kom. Leikurinn.sem fór fram á heima- velli Mechelen, þótti reyndar nokkuð slakur og mjög harður. Mechelen sótti stíft en án árangurs allt þar til tvær mínútur voru til leiksloka. Þá tókst Wilmots að tryggja Mechelen sigur. Anderlehct átti aðeins tvö færi í leiknum. í fyrra skiptið komst Am- ór Guðjohnsen í gegnum vöm Mec- helen en náði ekki að skjóta. Amór fór svo útaf á 70. mínútu vegna meiðsla, eftir góðan leik. Frá Bjama Markússyni ÍBelgíu Það var einnig rautt spjald á lof er Brugge sigraði Mónakó fr Frakklandi, 1:0. Marcel Dip var vih ið af leikvelli rétt fyrir leikslok e það var M’buyu sem skoraði sigui mark Bmgge á fyrstu mínútu síðai hálfleiks. Liege gekk einnig mjög vel o; sigraði Benfíca, 2:1. Það var reynd ar Chalana sem náði forystunr fyrir Benfíca úr vítaspymu á 47 mínútu en Varga jafnaði tíu mínút um síðar. Á 68. mínútu gerði Mal basa svo sigurmark Liege beint ú aukaspymu. „Hræddur umað vöðvisé slftinii" - sagði Amór Guð- johnsen, sem varð að fara af leikvelli „ÉG er hræddur um að vöðví f hægra lærinu sé slitinn eða jafnvel rifinn. Ég sit hér á ísmolum," sagði Arnór Guðjohnsen í stuttu spjalli við Morgunblaðið f gærkvöldi. Amór varð að fara af leikvelli á 75. mínútu. „Ég gat ekki gengið," sagði Amór, sem mun fara í læknisskoðun á fostudags- Amór Guðjohnsen meiddist f gærkvöidi. Reuter morgun. „Ef vöðvinn er slitinn þá mun ég verða frá keppni í fjór- ar vikur.“ „Það var mjög svekkjandi að tapa leiknum gegn Mechelen. Við misstum leikmann af leikvelli eft- ir aðeins tvær mínútur og síðan skoruðu leikmenn sigur- markið þegar aðeins tvær mfn. vom til leiksloka," sagði Arnór. Öruggt gegn Gríkkjum Stúlkurnar unnu með þrettán marka mun, 24:11, í Dreux í gærkvöldi „STELPURNAR voru tauga- óstyrkar og fátt gekk upp í byrj- un, en yfirburðirnir komu ber- lega í Ijós f seinni hálfleik," sagði Helga Magnúsdóttir, annar fararstjóri fslenska kvennalandsliðsins í hand- knattleik, við Morgunblaðið eftir fyrsta leik c-keppninnar í Frakklandi í gærkvöldi. Þá vann ísland Grikkland 24:11 í a-riðli eftir að hafa verið fimm mörk- um yfir í hálfleik, 11:6. ÍÞRÚflIR FOLK Fyrir fram var gert ráð fyrir auðveldum sigri enda hefur Grikkland ekki sterku liði á að skipa. íslenska liðið lét samt utan- aðkomandi atriði hafa of mikil áhrif á sig og fór illa með mörg góð marktækifæri, einkum í fyrri hálf- leik. „Einbeitnin var ekki til staðar og sérstaklega gekk illa maður gegn markmanni," sagði Helga. Leikurinn small hins vegar sam- an hjá liðinu eftir hlé og 13 marka sigur var síst of stór. Helga sagði að gríska liðið léki frumstæðan handbolta „og þær voru grófar, en skoruðu allt of mörg mörk. Hins vegar er ólíklegt að leikurinn telji, því 25% reglan gildir og sennilegt er að gríska lið- ið vermi botnsætið í riðlinum án stiga, þegar upp verður staðið,“ sagði Helga. Vamarleikur íslenska liðsins var mjög góður lengst af, en markvarsl- an hefur oft verið betri. Kolbrún Jóhannsdóttir varði fimm skot, en Halla Geirsdóttir þijú. Mörk íslands: Margrét Theodórsdóttir 6/4, Ama Steinsen 6, Guðríður Guðjónsdóttir 4/1, Svava Baldvinsdóttir 2, Rut Baldurs- dóttir 2, Guðný Gunnsteinsdóttir 2, Katrfn Friðriksen 1, Ema Lúðvíksdóttir 1, Erla Rafns- dóttir 1. Dómaramir vom tökkneskir og dæmdu vel, flautuðu mikið og visuðu leikmönnum óspart útaf I tvser mlnútur. Eria skorar Erla Rafnsdóttir | sést hér stökkva inn ] í vítateig og skora | eina mark sitt gegn | Grikklandi i gær- kvöldi í Dreux í í Frakklandi. HANDKNATTLEIKUR / C-KEPPNI KVENNA I FRAKKLANDI BELGIA / EVRÓPUKEPPNIN í KNATTSPYRNU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.