Morgunblaðið - 27.10.1988, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1988
15
Eflaust er nokkuð til í þessu í mörg-
um greinum en það á alls ekki við
um fiskvinnsluna, aðalframleiðslu-
grein landsbyggðar. Það má, með
hliðsjón af sögu margra undanfar-
inna ára, segja að allur kostnaður
sem lagður hefur verið í hagræð-
ingu í rekstri sé tapað fé og má
nánast saka forráðamenn fyrirtækj-
anna um heimsku að leggja í slíkt,
oftast fyrir lánsfé. Sagan sýnir
nefnilega, að ekki eru þessir menn
fyrr búnir að hagræða þannig að
rekstur verður t.d. 5% hagkvæmari
að meðaltali, en sérfræðingar Þjóð-
hagsstofnunar setjast sveittir við
að reikna t.d. hvað raungengi megi
nú hækka. Innan fárra vikna til
mánaða á föstu gengi eru kostnað-
arhækkanir innanlands svo búnar
að sjá til þess að rekstur fískvinnsl-
unnar er aftur kominn niður á og
niður fyrir núllið og nýju hagræð-
ingarlánin auka enn á greiðsluvand-
ann.
Grundvallarspumingin, og sú
sem skiptir sköpum varðandi raun-
verulega byggðastefnu til lengri
tíma, er þannig sáraeinföld. Hún
snýst einvörðungu um að skapa
framleiðslufyrirtækjum í iðnaði og
sjávarútvegi skilyrði til arðsemi og
þannig möguleika á að greiða niður
skuldir og bjóða starfsfólki sínu
sambærileg eða betri kjör en tíðkast
t.d. í verslunar- og þjónustugrein-
um. Svo ekki sé nú minnst á mögu-
leika framleiðslufyrirtækja til að
keppa um ávöxtun sparifjár lands-
manna í formi hlutabréfa.
Menn verða að átta sig á því að
gróði og góð kjör í verslun og þjón-
ustu og tap og lág laun í iðnaði og
fiskvinnslu eru alls ekki náttúru-
lögmál heldur beinlínis tilkomin
vegna stjómvaldsaðgerða. Og
auðvitað er einnig hægt að breyta
hlutföllunum framleiðslugreinunum
í hag með nýjum stjómvaldsaðgerð-
ur, ef vilji er fyrir hendi. En þar
stendur hnífurinn í kúnni. Virðist
sama hvaða flokkar fara með stjóm,
þrýstihópar sem vilja halda núver-
andi fyrirkomulagi óbreyttu virðast
alltaf hafa betur, e.t.v. fyrst og
fremst vegna nálægðar við stjóm-
völd og þar með möguleikum á að
kynna sín hagsmunamál reglulega.
Þessu til stuðnings má minna á að
Þorsteinn Pálsson þurftí að fara
til Vestflarða til að skilja að fisk-
vinnslan þar var að stöðvast.
Frelsi í viðskiptum hefur verið
að aukast mikið á síðustu árum og
sýnist sitt hveijum um ágæti frjáls
markaðar fyrir okkar litla hag-
kerfí. Hinu hefur minna verið hald-
ið á lofti að frelsi þetta á fyrst og
fremst við innflutnings-, verslunar-
og þjónustugreinar auk peninga-
markaðar innanlands. Fijálsræðið
er eflaust að mörgu leyti til bóta,
hvetur til hagkvæmni í innkaupum
og rekstri en gefur jafnframt mögu-
leika á að koma kostnaðarhækkun-
um strax út í verðlagið. Útflutn-
ings- og samkeppnisiðngreinum
hefur á sama tíma verið haldið í
haftaskrúfstykki í nafni verðjöftiun-
arsjóða og fastgengisstefnu og þau
fyrirtæki þannig í raun haft sáralít-
il áhrif á endanlegt verð sinnar
framleiðslu heldur verið skammtað-
ur afgangurinn af gjaldeyrissköpun
sinni þegar hinir hafa fengið sitt.
Niðurstaða mín er sú að stjóm-
völd, hveiju nafni sem þau neftiast,
ráði af ofangreindum ástæðum
aldrei við gjaldeyrismálin svo rétt-
látt sé og því eigi Alþingi að stíga
síðasta stóra skrefið í að koma á
raunverulegu viðskiptafrelsi með
því að stofna gjaldeyrismarkað þar
sem framleiðendur gjaldeyris geta
selt hann hæstbjóðanda. Séu fisk-
og grænmetismarkaðir sem velta
fáeinum milljónum færir um að
starfa eftir markaðslögmálum um
framboð og eftirspum ætti gjald-
eyrismarkaður sem veltir tugmillj-
örðum að geta það einnig.
Allavega hlýtur hver maður að
sjá að þetta kerfí, að miða gengis-
skráningu við að fiskvinnslan sé
rekin „á núllinu" (í góðæri?) er
gengið sér til húðar. Til að sjá
hversu fáránlegt er að miða slíkar
þjóðhagsstærðir við afkomu einnar
framleiðsluatvinnugreinar má snúa
dæminu við og spyija: Hvers vegna
ekki að breyta til og miða gengis-
skráningu við að heildverslunin sé
rekin á núlli um tíma. Velta hennar
er svipuð og útflutningsins.
Sú leið sem farin hefur verið
undanfarin ár með taprekstri fram-
leiðslufyrirtækjanna og „redding-
um“ fyrir hom með nýjum lánum,
skuldbreytingum og ölmusustyrkj-
um til að halda framleiðslunni
gangandi, (m.a. gegnum Byggða-
stofnun) hefur dæmt sig sjálf: Kjör
launafólks á landsbyggðinni em
mun lakari en á Reykjavíkursvæð-
inu og fólki heldur áfram að fækka.
Samdráttaraðgerðir, hvort sem
þær em í nafni tapreksturs eða
hagræðingar, og ölmusur em nefni-
lega helstu hvatar þess að bæði
stjómendur og starfsfólk missi
trúna á framtíð fyrirtækisins, sína
eigin og e.t.v byggðarlagsins. Þann-
ig em þeir menn hættulegastir
raunvemlegri byggðastefnu sem
segja sem svo: „Auðvitað viljum við
að mest allt landið sé í byggð, þó
það kosti heilmikið."
Raunvemleg byggðastefna er
fyrst og fremst fólgin í því að gera
framleiðslufyrirtækjum kleift að
skila hagnaði með góðum rekstri
og þannig gera þeim mögulegt að
auka eigið fé og minnka skuldir,
keppa um sparifé landsmanna í
formi hlutaQár og keppa um hrá-
efni og hæft starfsfólk með betri
kjömm.
Lykilatriði:
1) Styrkir (ölmusur) hættulegir.
2) Stjómvöld ófær um réttláta
gengisskráningu.
3) Framleiðniaukning í fisk-
vinnslu heimskuleg.
4) Framboð þjónustu skiptir litlu
um búferlaflutninga, launa-
kjör em ráðandi.
Höfundur er heilaugæslulæknir.
yelkMd
gardeur
> y i lauyaiu
Udutttu
VERSLUN v/NESVEG. SELTJARNARNESl
Stakir jakkar - blaser
einlitir
Pils - einlit, munstruð
Buxnapils
Síðbuxur
100% ull
ull/terelene
100% bómull
Tískuvara - gæðavara
Opid daglega 9-18
laugardaga 10-16
ísfísksölur erlendis:
Lágt verð vegna
mikils framboðs
Lægsta verð fyrir karfa síðan í júlí
LÁGT VERÐ hefur fengist fyrir
óunninn fisk á mörkuðunum í
Vestur-Þýskalandi og Bretlandi
í þessari viku vegna mikils fram-
boðs að undanfórnu, að sögn
Vilhjálms Vilhjálmssonar full-
trúa hjá Landssambandi
íslenskra útvegsmanna. Viðey
RE seldi 249 tonn fyrir 12,4 mil(j-
ónir króna í Bremerhaven á
mánudaginn. Skipið fékk 53,40
króna meðalverð fyrir ufsa og
48,22 króna meðalverð fyrir
karfa sem er lægsta meðalverð
sem fengist hefúr fyrir karfa í
Vestur-Þýskalandi síðan f júlf
síðastliðnum, að sögn Vilhjálms.
Álftafell SU seldi 77 tonn fyrir
5,6 milljónir króna í Hull í Bret-
landi á mánudaginn og fékk 77,30
króna meðalverð fyrir þorsk og
74,57 króna meðalverð fyrir ýsu.
Una í Garði GK seldi 57 tonn fyrir
2,3 milljónir króna í Grimsby í Bret-
landi á mánudaginn. Skipið fékk
58,99 króna meðalverð fyrir þorsk,
41,43 króna meðalverð fyrir ýsu
og 35,68 króna meðalverð fyrir
kola. Þrymur BA seldi 66 tonn fyr-
ir 4,5 milljónir króna í Grimsby í
gær, þriðjudag, og fékk 67,29
króna meðalverð fyrir þorsk, 75,31
krónu meðalverð fýrir ýsu og 71,48
króna meðalverð fyrir kola.
NAMSMENN
ATHUGIÐ!
Ný hraðvirk, létt og
handhæg TA
Tríumph-Adler skrif-
stofurítvél á verði
skólaritvélar.
Umbofismenn um land allt:
Bókabúð Keflavíkur, Keflavlk, Bókabúfi Olivers Steins
Hafnarfiröi, Bókabúflin Gríma, Garflabæ, Grifill, Reykjavik,
Hans Arnason, Reykjavík, Jón Bjarnason, Akureyri,
Kaupf. V-Húnvetninga, Hvammstanga, Kaupf. A-Skaftf.,
Hornafirði, M.M. búðin, Selfossi, PC tölvan, Akranesi,
Penninn, Reykjavík, Rás s.f„ Þorlákshöfn, Stuðull s.f„
Sauflárkróki, Sameind, Reykjavík, Skrifvélin, Reykjavík,
Traust, Egilsstöðum.
Sendum í póstkröfu
• Prenthraði 13 slög/sek
• ”Lift off” leiðréttingar-
búnaður fyrir hvern staf eða
orð.
• 120 stafa leiðréttingarminni
• Sjálfvirk: miðjustilling
undirstrikun
feitletrun
• Handfang og lok.
auk ýmissa annarra kosta sem
prýða eiga ritvél morgun-
dagsins.
Komdu við hjá okkur eða
hringdu og fáðu frekari
upplýsingar.
Einar J. Skúlason hf.
Grensásvegi 10, sími 686933
28.078 augljós