Morgunblaðið - 27.10.1988, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1988
H
maconde
formen
MAOE IN PpftTUGAL
Glæsileg herraföt
Vörumerkiðtryggir
gæði og bestusnið
Macondeverksmiðjurnar eru meðal stærstu
karlmannafataverksmiðja í Evrópu og stærstar í
Portúgal. Við bjóðum lægsta Evrópu-markaðsverð.
Karlmannaföt kr. 3.995,- til kr. 9.900,-
jakkar kr. 4.995,-
Terylenefrakkar kuldafóðraðir kr.
4.760,- úlpur kr. 2.240,- og 3.400,-
terlynebuxur kr. 1.195,- 1.595,- 1.695,-
1.795,- og 1.995,-
Andrés, Skólavörðustíg 22, sími 18250.
ÍS.............. . iw'ifto
Útsölustaðir:
Reykjavík:
Sparta-Laugavegi 49
Útilíf-Glæsibæ
Hummel-Ármúla
Hummel-Eiðlstorgi
Bikarinn-Skólavörfiustíg 14
Misty-Laugavegi
Sportbær-Hraunbæ 102c
Landið:
Sportbúð-Óskars Keflavík
Sporthúsið-Akureyri
Sporthlaðan-lsafirði
Dansstudio Alice-Akureyri
Óðinn-Akrane8i
Stykkishólmsapótek
Stykkishólmi
Heiidsöludreifing:
sportvöruþjónustan
Eikjuvogi 29-104 Reykjavík - Sími 687084.
Allt
Austur-þýskt postulín
á hagstæðu verði
Matarstell fyrir sex
Kaffistell fyrir sex
Könnur
kr. 2.750
kr. 1.568
kr. 78
KAUPFÉLÖGIN
UM LAND ALLT
35. þing BSRB
Forsetakjör speglar
vilja tfl breytinga
FORSETAKJÖR var sá möndull sem 35. þing- BSRB snerist öðru
fremur um, að mati þeirra þingfulltrúa sem Morgunblaðið ræddi
við. Þinginu lauk síðastliðinn fóstudag. Valið stóð á milli þriggja.
í samtölum við bæði frambjóðendur og einstaka þingfulltrúa kom
fram, að tveir frambjóðenda voru álitnir fuUtrúar lítt eða ekki
breyttrar stefnu í störfúm samtakanna og áherslu í málflutn-
ingi. Ogmundur Jónasson var hins vegar talinn boða breytingar.
Á sjötta tug mála var lagður fyrir þingið. Flest hlutu málin
góðar undirtektir og voru samþykkt sem ályktanir með Utlum
eða engum breytingum.
Báðir mótframbjóðendur Ög-
mundar, Guðrún Ámadóttir og Örl-
ygur Geirsson, sögðu eftir forseta-
kjörið, að fólkið hefði viljað breyt-
ingar og fengið þær. Ögmundur
hefur sjálfur sagt, að ekki verði
neinar byltingar í starfí BSRB, en
áherslum breytt. Hann hyggst nýta
krafta einstaklinga og einstakra
félaga innan sambandsins í ríkari
mæli en verið hefur og af samtölum
við hann má ráða, að hann hyggist
nýta fjölmiðla meira en samtökin
hafa gert til þess að koma sjónar-
miðum þeirra á framfæri.
Fyrsta verkeíhið
Ögmundur sagði í samtali við
Morgunblaðið eftir kosninguna að
biýnasta verkefnið framundan væri
að beijast fyrir endurheimt samn-
ingsréttarins. Þá kvað hann það
vera ljóst, að forsetaembætti BSRB
væri fullt starf og því hlyti hann
að láta af störfum hjá Sjónvarpinu
á meðan hann gegnir forsetaemb-
ættinu.
Ný stjóm BSRB kemur saman í
næstu viku og á þá að fara yfír
niðurstöður þingsins og ákveða
hvemig á þeim málum verður hald-
ið. „Við emm að bretta upp ermam-
ar og skoða vandlega okkar stöðu,
bæði inn á við og út á við,“ sagði
Ögmundur á öðmm starfsdegi
sínum sem forseti BSRB.
Ný forusta
Allmikil umskipti urðu í foryst-
unni í kosningunum. Forseti og
báðir varaforsetar em nýtt fólk í
þeim stöðum. Af 16 meðstjómend-
um em tíu nýir. 1. varaforseti BSRB
var kjörinn Haraldur Hannesson,
2. varaforseti Ragnhildur Guð-
mundsdóttir. Þau vom sjálfkjörin.
Kosið var hins vegar um meðstjóm-
endur, þar sem tillögur komu um
þijá til viðbótar þeim 16, sem kjör-
nefnd hafði tilnefnt. Allir sem kjör-
nefnd tilnefndi náðu kjöri. Af þeim
hlutu þrír atkvæði allra þingfull-
trúa, 208 talsins. 11 hlutu nieira
en 200 atkvæði og lægst fengu
meðstjómendur 132 atkvæði.
Tími Kristjáns
Á 35. þingi BSRB vom liðin 28
ár frá því að síðast var kjörinn for-
seti samtakanna. Kristján Thorlac-
ius hefur gegnt forsetaembættinu
allan þann tíma. Fyrirfram var búist
við, að Kristján gæfí ekki kost á
sér nú, en hann tilkynnti það ekki
fyrr en við þingsetninguna. Á þess-
um 28 ámm hafa miklar breytingar
gerst á högum og kjömm opinberra
starfsmanna. Þær stærstu em
samningsrétturinn, sem fékkst í
áföngum, síðast til fulls með verk-
fallsrétti fyrir tólf ámm. BSRB
hefur staðið í miklum framkvæmd-
um á síðari árum. Nefna má mikla
byggð orlofshúsa og hlutdeild í
skrifstofuhúsnæðinu að Grettisgötu
89 í Reykjavík.
Áfall
En þessi tími hefur ekki liðið
áfallalaust. Líklega er stærsta áfall-
ið fyrir BSRB útganga kennara,
eins stærsta hópsins innan samtak-
anna, fyrir tveimur árum. Á þinginu
í síðustu viku mátti heyra á sumum
fulltrúum sem studdu Ögmund í
forsetalgörinu, að ein helsta ástæða
þeirra stuðnings væri sú, að hann
væri líklegastur frambjóðendanna
til að geta tekið á ný upp eðlileg
samskipti við kennarana. Sumir
gerðu sér jafnvel vonir um að kenn-
arar gengju á ný í BSRB. Þegar
BSRB klofnaði, kennarar gengu út,
gerðist það ekki í sátt og sam-
lyndi. Stjóm BSRB tregðaðist við
að veita kennuranum lausn. Út-
ganga þeirra var ekki einungis sið-
ferðilegt áfall fyrir forystu samtak-
anna, hún var einnig fjárhagsleg
blóðtaka. Kennarar voru einn
stærsti hópurinn innan BSRB og
félagsgjöld þeirra vógu því þungt.
Þeir áttu allmörg orlofshús og til
að kóróna sárindin: Þeir áttu - og
eiga enn - stóran hluta í skrifstofu-
byggingunni á Grettisgötunni og
em því sambýlingar við BSRB.
Samvinna
Hér verður ekki dæmt um hvort
ný stjóm BSRB er líkleg til að
stofna til sátta við kennara með
endurkomu þeirra í huga. Hún hef-
ur enga ályktun þingsins að baki
sér í því efni að styðjast við og
spuming hvort stjómin vill ríða á
vaðið. Hitt er ljóst af orðum nýkjör-
ins forseta BSRB, að hann vill
aukna samvinnu einstakra félaga
opinberra starfsmanna sem og ann-
ars launafólks og slíkt gerist auðvit-
að ekki nema sæmilegt samkomu-
lag sé á milli manna.
Hvers vegna sigraði
Ögmundur?
Það verður að teljast líklegt, af
orðum allmargra þingfulltrúa að
dæma, að nokkur atriði hafi öðmm
fremur spilað saman og fært Ög-
mundi sigur í kosningunum. í fyrsta
lagi það, að hann átti engan þátt
í missættinu við kennarana og er
talinn líklegur til að geta hafíð sam-
skipti við félög þeirra ósnortinn af
sárindum fyrri tíma. í öðm lagi
boðaði hann breytingar. Þótt ekki
væri fýllilega ljóst í hveiju þær
ættu að felast, talaði hann um
breyttar áherslur, aukið vægi ein-
staklinga og félaga, aukin sam-
skipti og samstarf félaga launa-
fólks. í þriðja lagi var hann þekktur
af störfum sínum hjá Sjónvarpinu,
bæði af starfí sínu sem fréttamaður
og af félagsstörfum. í flórða lagi
er ímjmd Ögmundar önnur en
keppinauta hans, hann er fremur
fulltrúi nýrra tíma og nýrra baráttu-
aðferða, á meðan keppinautamir
þóttu draga um of dám af liðinni
tíð. Að líkindum hefur það einnig
haft sín áhrif, að forustan þumbað-
ist við að taka inn tvö af fjórum
nýjum félögum í upphafi þingsins,
fóstmr og meinatækna.
Þá kann fleira að koma til að
Ögmundur var kjörinn. Það er
flokka- og fýlkingaskipting á þing-
inu. Margir höfðu á orði í samtölum
við blaðamann, að óvenju lítil áhrif
væm á þingið frá hinni hefðbundnu
flokkapólitík. Önnur pólitík var þar
meira áberandi og skipti fulltrúum
í flokka sem síðan gátu skarast.
Þar vom annars vegar ríkisstarfs-
menn og hins vegar bæjarstarfs-
menn, einnig skiptust fulltrúar að
nokkm eftir starfsgreinum, búsetu
og aldri. Rétt áður en kjör forseta
átti að hefjast gengu bæjarstarfs-
menn afsíðis og réðu ráðum sínum.
Það munu hafa verið um 60 fulltrú-
ar og munar um færri atkvæði.
Spyija má: Var það tilviljun að
Ögmundur náði kjöri í fyrstu at-
rennu, þvert ofan í það sem búist
hafði verið við, og síðan að Harald-
ur Hannesson formaður Starfs-
mannafélags Reykjavíkurborgar
var kjörinn 1. varaforseti? Kannski
em þama engin tengsl á milli, en
Spurt á BSRB þingi
Helgi Kristinsson
Ragnhildur Guðmundsdóttir
„Mjög ánægður“
„Nýir siðir“
„Ég er mjög ánægður," sagði Helgi
Kristinsson. „Það hljóta alltaf að
koma inn ný viðhorf með nýjum
mönnum, það segir sig sjálft," sagði
hann aðspurður um hvort hann teldi
kjör Ögmundar hafa breytingar í
för með sér. Helgi kvaðst ekki vera
reiðubúinn til að segja fyrir um
hveijar breytingamar yrðu. „Ég
held að reynslan verði að segja til
um það.“
„Mér líst mjög vel á Ögmund,"
sagði Ragnhildur Guðmundsdóttir.
Hún kvaðst búast við breytingum
í starfí BSRB með nýjum form-
anni. „Að sjálfsögðu koma alltaf
nýir siðir með nýjum hermm og ég
vænti þess að þetta verði okkur
öllum til góðs og að gott samstarf
náist með okkur öllum hér.“