Morgunblaðið - 27.10.1988, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1988
Sigrún og Selma með
tónleika á Akureyri
ÞÆR Sigrún Eðvaldsdóttir fiðlu-
leikari og Selma Guðmundsdóttir
píanóleikari halda tónleika á sal
Menntaskólans á Akureyri í kvöld.
Tónleikarnir eru á vegum Tónlist-
arfélags Akureyrar og heQast
klukkan 20.30. A efnisskránni eru
verk eftir Wolfgang Amadeus
Mozart, Sigurð Garðarsson,
Claude Debussy og Pablo de Sar-
asate.
Sigrún er aðeins tæplega tvítug
að aldri. Hún hóf nám í fiðluleik fímm
ára gömul og lauk einleikaraprófi frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík ellefu
árum síðar. Hún lauk burtfararprófí
frá Curtis Institute of Music í Philad-
elphia í Bandaríkjunum síðastliðið vor
og kennir nú við New World School
of the Arts í Miami á Flórída.
Sigrún hefur margoft komið fram
á tónleikum bæði hér og erlendis,
einnig á sérstökum tónlistarhátíðum.
Má þar nefna Marlboro-festival í
Vermont í Bandaríkjunum, Biennal
ungra norrænna einleikara og Tón-
listarhátíð Norðurlanda. I nóvember
1987 hlaut Sigrún 2. verðlaun í Leop-
old Mozart fiðlukeppninni fyrir unga
fiðluleikara, sem haldin var í Augs-
burg í Þýskalandi og í júní 1988 hlaut
hún 1. verðlaun í Carl Nielsen fiðlu-
keppninni, sem haldin var í þriðja
sinn í Óðinsvéum í Danmörku. Sigrún
hefur nýlokið við hljóðritun á Poemi
eftir Hafliða Hallgrímsson, sem kem-
ur út á hljómdiski innan skamms á
vegum íslenskrar tónverkamiðstöðv-
ar.
Selma lauk einleikaraprófi frá Tón-
listarskólanum í Reykjavík, þar sem
aðalkennarí hennar var Ámi Kristj-
ánsson. Hún stundaði framhaldsnám
hjá Hans Leygraf, fyrst við Mozarte-
um í Salzburg, síðan við Staatliche
Hochschule fiir Musik und Theater í
Hannover. Selma hefur sótt nám-
skeið í píanóleik, meðal annars hjá
Frantisek Rauch í Prag og Pierre
Sancan í Nice. Fyrstu opinberu tón-
leikar Selmu voru hjá Tónlistarfélag-
inu í Reykjavík 1977. Síðan hefur
hún margsinnis komið fram sem ein-
leikari og í samleik, bæði á íslandi,
í Svíþjóð og í Bandaríkjunum. Sl.
vetur lék hún píanókonsert eftir
Khatsaturian á tvennum tónleikum
með Sinfóníuhijómsveit íslands og á
tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar
í Þrándheimi. Fyrir stuttu hélt hún
einleikstónleika í París, skömmu eftir
að hún lék á þrennum tónleikum með
Sigrúnu Eðvaldsdóttur í Þýskalandi.
Norðurljós hf.:
Greiðslu-
stöðvun í
tvo mánuði
NORÐURLJÓS hf. á Akureyri
heftir fengið greiðslustöðvun í
tvo mánuði, frá 20. október að
telja. Fyrirtækið rekur verslun á
Furuvöllum 13 og viðgerðar-
verkstæði á Óseyri 6.
Á næstunni liggur fyrir könnun
á eignum, skuldum og útistandandi
kröfum fyrirtækisins og mun Bene-
dikt Ólafsson héraðsdómslögmaður
hafa umsjón með því verki. Fyrir-
tækið er í eigu nokkurra hluthafa.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Alfreð Almarsson og Kolbeinn Sigurbjörsson markaðsftilltrúar halda
hér á akrýl-peysunni sem starfsmaður Álafoss keypti úti i Banda-
rikjunum og er framleidd hjá bandaríska fyrirtækinu London Fog.
„London Fog“ stælir
íslenskar ullarpeysur
„EINN af sölumönnunum okkar
var á ferð I New York í sumar
og þóttist kannast við peysu í
einni búðinni. Þar var þá komin
eftirlíking af einni af Álafoss-
peysunum okkar — sama hönn-
un og sama munstur," sagði
Alfreð Almarsson, markaðsfúll-
trúi hjá Álafossi, í samtali við
Morgunblaðið.
„Vissulega er það ánægjulegt
að vita til þess að svo þekkt fyrir-
tæki sjái ástæðu til að líkja eftir
íslenskri framleiðslu. Það er ljósi
punkturinn í málinu," sagði Alfreð.
Fyrirtækið sem um ræðir er
bandarískt og heitir London Fog.
Peysa þessi var hinsvegar ekki úr
ull, heldur var hún pijónuð úr
gerviefninu akrýl og kostar jafn-
mikið út úr búð í Bandaríkjunum
eins og ullarpeysur Álafoss kosta
í heiidsölu, þetta 35 til 40 dali, að
sögn Alfreðs.
Morgunblaðið/Vigdís Kjartansdóttir
Tröllin komu niður úr fjöllunum og skemmtu viðstöddum.
Grenivíkurskóli:
Myndlist, leiklist o g mat
argerðarlist á listahátíð
Grenivík.
NEMENDUR og kennarar
Grenivíkurskóla héldu mikla
listahátíð um síðustu helgi við
fádæma fögnuð viðstaddra. Á
dagskrá hátíðarinnar var
myndlist, leiklist og matar-
gerðarlist. Hingað til hafa
nemendur Grenivikurskóla
ekki haft myndlistarkennslu í
skójanum. Því var ákveðið að
fá Om Inga myndlistarmann
frá Akureyri til að koma til
Grenivíkur og kenna nemend-
um skólans myndlist í tvær
vikur. Þar með var allt komið
á annan endann í skólanum,
að sögn skólastjórans, Björns
Ingólfssonar.
Bömin voru meira og minna í
skólanum alla daga fram á kvöld
og nætur, en skólatöskumar
sínar máttu þau geyma heima.
Foreldramir skildu ekki neitt í
neinu og mikil leynd hvíldi yfir
öllu. Nemendur gáJfu út kvöldblað
með hinum ýmsu fróðleiksmolum
og þar kom meðal annars fram
að eitthvað skemmtilegt myndi
gerast í skólanum fyrsta vetrar-
dag, Annað var ekki látið uppi.
Síðasta sumardag var haldin
skrúðganga frá skólahúsinu. í
broddi fylkingar var bifreið af
gerðinni Land Rover sem bömin
höfðu málað í öllum regnbogans
litum og í kjölfarið fylgdi halaróf-
an skrautlega máluð á eftir.
Gengið var um götur þorpsins
og að frystihúsi Kaldbaks og
endað var við versiun KEA þar
sem boðið var upp á kex og
Svala. Á laugardag, fyrsta vetr-
ardag, hófst síðan aðalhátíðin og
Sýnishorn af listaverkum krakkanna í Grenivikurskóla.
þá kom svo sannarlega í ljós
hvað nemendumir höfðu aðhafst
undangengnar tvær vikur.
Klukkan 15.30 setti skólastjór-
inn, Bjöm Ingólfsson, listahátí-
ðina sem samanstóð af myndlist,
leiklist og matargerðarlist. Af-
hjúpuð voru sjö verk, sem nem-
endur höfðu málað á veggi skól-
ans og sýndar voru teikningar
eftir nemendur og kennara. Því
næst var haldið í samkomusal
skólans þar sem allir snæddu
þríréttaða máltíð og nemendur
gengu um beina og sýndu leiklist
og dans á meðan á borðhaldi stóð.
Nýtt heimsmet var sett þar sem
matreiddur var heimsins stærsti
sláturkeppur með sveskjum, en
keppurinn vó um tíu kíló. Var
hann snæddur með öllu tilheyr-
andi, rófustöppu og kartöflumús.
Er matarveislunni lauk var haldið
út undir bert loft og þar haldin
heilmikil brenna. Alls kyns púk-
ar, grýlur og fleiri kynjaverur
komu aðvífandi niður úr nær-
liggjandi fjöllum.
Þessi listahátíð Grenivíkur-
skóla verður lengi í minnum höfð.
Margir nemendanna eru upp-
rennandi myndlistarmenn, enn
aðrir mjög hæfir leikarar og
dansarar svo ekki sé nú talað um
kokkana. í Grenivíkurskóla sitja
90 nemendur og var það sam-
dóma álit gesta og foreldra að
krakkarnir ættu bestu þakkir
skilið.
Vigdís
Nýtt verslunarhúsnæði til leigu
Til leigu er nýtt verslunar- og iðnaðarhúsnæði við
Móasíðu á Akureyri.
Óskað er eftir tilboðum.
Upplýsingargefur
Fasteignasalan,
Brekkugötu 4, sími 96-21744.
Útvegsmenn á Norðurlandi
Munið aðalfundinn í dag kl. 16.00
á Hótel KEA.
Stjórnin.
111