Morgunblaðið - 27.10.1988, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1988
41
Afiriæliskveðja:
Bárður Daníels-
son arkitekt og
verkfræðingur
Það var ósjaldan að hinn merki
kennari, prófessor Jón Hjaltalín
Sigurðsson, sagði við aðstoðar-
lækna sína þegar vandasöm sjúk-
dómsgreining var í burðarliðnum:
„Það er svo lftið sem við vitum og
fátt sem við skiljum." Þetta sama
lítillæti menntamannsins má telja
eitt aðaleinkenni Bárðar Daníels-
sonar verkfræðings og arkitekts,
sem í gær fyllti sjöunda tuginn.
Bárður varð stúdent frá stærð-
fræðideild MA 1942 með hárri ein-
kunn og lauk verkfræðiprófi frá
Stokkhólmsháskóla 1948 og 1960
prófí þar í húsagerðarlist (arkitekt-
úr).
Hann vann við margvísleg störf
fyrir Raforkumálastjóm og Bruna-
bótafélag Islands fram til 1954.
Hefur síðan rekið eigin verkfræði-
og húsameistarastofu. Brunamála-
stjóri var hann frá 1970-1978.
Umsvif Bárðar Daníelssonar á þess-
um sviðum hafa verið mikil. Hefur
hann unnið fyrir ýmsar opinberar
stofnanir og sveitarfélög. Álit Bárð-
ar sem verkfræðings og fram-
kvæmdamanns er slíkt að dómstól-
ar hafa alloft skipað hann sem
meðdómara í málum er snerta hans
þekkingu og matsmann til álits-
gerða víða á landinu.
Sem dæmi um það trúnaðar-
traust sem Bárður hafði áunnið sér
hjá opinberum aðilum má neftia
þátt hans í vali og samningagerð
um hús þau sem keypt voru til þess
að leysa húsnæðismál þau er sköp-
uðust í sambandi við Vestmanna-
eyjagosið árið 1973. í þeim störfum
reyndist hann farsæll en þó fastur
fyrir eins og sönnum Vestfirðingi
sæmir.
Hér hefur komið í góðar þarfír
ljós hugsun, skýr og rökrétt fram-
setning á því sem um er íjallað.
En auk þess alveg sérstæðar gáfur
og áhugi á stærðfræðilegum við-
fangsefnum sem Bárður hefur
þroskað með sér allt frá stúdents-
árum, svo að hann mun vera meðal
betri stærðfræðinga hér á landi.
Skemmtilestur hans er meðal
annars háþróuð stærðfræði og
talnavísindi og bókakostur hans á
þessu sviði er nútímalegur og
víðfeðmur. Stærðfræðin er hinsveg-
ar náskyld eðlisfræðinni. Áhugi
Bárðar á henni vaknaði mjög
snemma og þann akur hefur hann
ræktað dyggilega.
Enda þótt hann hafi ekki látið
stjórnmál eða pólitík til sín taka
hefur hann ekki komist undan því
gjörsamlega að starfa fyrir með-
borgara sína. Hann var bæjarfull-
trúi í bæjarstjóm Reykjavíkur
1954-1958 og hefði gjaman mátt
vera lengur því það er sannast
mála, að það em alltof fáir með
hæfíleika slíka sem hans, sem fást
til þess að sinna vandamálum í
sveitarfélögum og þjóðarinnar allr-
ar. Það hefur sjaldan verið ljósara
en nú þegar Qölmiðlasíbyljan er á
góðri leið með að viila um fyrir al-
menningi.
Það mætti ætla að maður sem
er jafn umsetinn og eftirsóttur hefði
á sínum bestu starfsámm haft nóg
á sinni könnu. Það kemur því all-
nokkuð á óvart að hann hefur mik-
inn áhuga á flugi og flugmálum og
setti sig rækilega inn í flugmál, og
hefur staðgóða þekkingu á flugvél-
um og flugtækni, og það var á þessu
sérstaka sviði, sem kynni okkar
hófust.
Samskipti okkar urðu smámsam-
an nánari og að því kom að flugfé-
lagið Vængir var stofnað undir for-
ystu Bárðar og stjómarformanns
félagsins, Hreins Haukssonar. Þeir
em Vestfírðingar og sveitungar.
Þetta félag var hugsað fyrst og
fremst sem samgöngubót fyrir
Vestfírðina. Vestfirðingar em
þrautseigir og fastir fyrir og hafa
vafalítið verið það frá upphafí, sam-
anber viðbrögð þeirra við kristni-
boði Þorvalds víðförla og Friðriks
frá Brimum.
Undir fomstu stjómarinnar döfn-
uðu Vængir. Vélamar stækkuðu og
leiðum fjölgaði og flogið var á er-
lendri gmnd. Rétt er að geta þess
að enginn stjómarmanna fékk
greitt neitt fyrir sín störf. Bárður
annaðist alla meiriháttar samninga
fyrir félagið og var það mikið starf
og vandasamt, sérstaklega þegar
samið var við erlenda aðila.
Þrettán meinatækn-
ar brautskráðir
TÆKNISKÓLI íslands braut-
skráði 13 meinatækna 30. septem-
ber sl. Það eru tuttugu ár síðan
T1 brautskráði fyrstu meinatækn-
ana og hafa alls 317 meinatæknar
lokið námi frá Tækniskóla ís-
lands.
Á myndinni em í aftari röð frá
vinstri Brynja R. Guðmundsdóttir
deildarstjóri, Thelma Guðmunds-
dóttir, Þórdís Jensdóttir, Elva Hildur
Hjaltadóttir, Valgerður M. Jóhanns-
dóttir og Sigríður Bergþórsdóttir. í
fremri röð frá vinstri: Torfhildur
Jónsdóttir, Hjördís Þóra Jónsdóttir,
Hafdís Bjamadóttir, Katrín Haralds-
dóttir og Fríða Dís Bjamadóttir.
Einnig brautskráðust Steinunn B.
Siguijónsdóttir, Guðrún Reimars-
dóttir og Kolbrún Ingólfsdóttir.
Þegar félagið skipti um eigendur
var hagur þess mjög sæmilegur.
Það stóð við allar sínar skuldbind-
ingar og hafði gott lánstraust. Enda
þótt við hættum rekstri félagsins
áttum við þremenningamir saman
flugvélar, ásamt Hafsteini Guð-
mundssyni útgefanda og eyddum
tíma saman meira en áður. Kynni
okkar hafa orðið nánari eftir því
sem árin hafa liðið og samskiptin
snúist meira um aðra hluti en flug-
mál, og mér er orðið ljósara hve
gott er að geta farið í smiðju til
Bárðar með hin margvíslegustu
mál, enda verið óspart notað.
Mjög mikils af störfum "Bárðar
verður ekki getið hér enda flest
þeirra unnin í kyrrþey og án bumbu-
sláttar. Bárður er kvæntur Öldu
Hansen, hinni ágætustu konu, og
þó hann hafí verið lánsamur í ævi-
starfí sínu, þá er það þó hans mesta
lán að hafa haft hana við hlið sér.
Þeim báðum sendum við þremenn-
ingamir hugheilar þakkir fyrir sam-
starfíð og óskum þeim alls hins
besta um ókomin ár.
Úlfar Þórðarson
Og nú erum við í Borgartúni 28
Kransæðasjúkdómar
a Islandi og
a
varnir gegn þeim
£2
Fræðslufundur fyrir almenning í Domus Medica
við Egilsgötu laugardaginn 29. október 1988
kl. 14.00.
Dagskrá:
Dr. Sigurður Samúelsson formaður Hjartavemdar: Ávarp.
Dr. Nikulás Sigfússon yfirlæknir: Rannsóknir Hjartavernd-
ar á áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma. Breytingar
á 20 árum.
Dr. Guðmundur Þorgeirsson læknir: Hverjir eru helstu
áhættuþættir kransæðasjúkdóma meðal islendinga?
Niðurstöður úr rannsóknum Hjartaverndar.
Dr. Gunnar Sigurðsson yfirlæknir: Nýjungar i meðferð
hækkaðrar blóðfitu.
Kaffihlé.
Uggi Agnarsson hjartasérfræðingur: Kransæðasjúkdómar,
horfúr og meðferð.
Jón Gíslason næringarfræðingur: Neysluvenjur almenn-
ings. Áhrif upplýsinga og fræðslu með tilliti til áhættu-
þátta.
Hringborðsumræður.
Pundarstjóri: Snorri Páll Snorrason prófessor.
Fyrirlesarar svara fyrirspurnum að loknum erindum sínum.
Fyrirlesarar ræða sín í milli við hringborðið og svara fyrirspumum
úr sal.
Öllum heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir.
Hjartavernd.