Morgunblaðið - 27.10.1988, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1988
Minning:
Ægir Þór Jóhannesson
Fæddur 18. október 1968
Dáinn 27. september 1988
Mig langar í fáum orðum að
minnast vinnufélaga míns Ægis
Þórs Jóhannessonar, en hann hefði
orðið tvítugur 18. þ.m. Ægir Þór
fórst af slysförum 27. september
sl. Við Ægir störfuðum saman hjá
Vegagerð ríkisins um tíma. Þó
kynni okkar Ægis hafi ekki verið
löng þá voru þau nægileg til þess
að sjá að Ægir var drengur góður,
°g mjög kurteis í allri framkomu.
Hann var veghefilsstjóri og sinnti
því starfi af stakri prýði. Eg efast
ekki um að Ægir er kallaður burt
til þess að sinna öðru og stærra
hlutverki, því einhver hlýtur til-
gangurinn að vera með því þegar
svo ungt fólk í blóma lífs síns hverf-
ur svo skyndilega úr þessum heimi.
Ég vil þakka Ægi fyrir samfylgdina
og sendi Þorbjörgu, Jóa og systkin-
um mínar dýpstu samúðarkveðjur.
Gísli Wiium
„Þeir deyja ungir sem guðimir
elska."
Sú harmafregn sem barst okkur
systrunum þann 27. september skil-
ur eftir sig djúpt sár sem aldrei
mun gróa.
Það var ekki hægt að trúa því
að góður vinur okkar væri farinn
frá okkur og við fengjum aldrei að
sjá hann aftur.
Ægir var einstakur og átti engan
sinn líkan. Okkur er í minni sá
dagur í ágústmánuði er við vorum
saman í tjaldi á Hótel Búðum og
vomm að hlusta á Terence Trent
D’arby. Okkur varð litið til Ægis
og hann sem við aldrei heyrðum
syngja, söng þama af eins mikilli
innlifun og hann átti til. Við litum
hvor á aðra og mátti sjá að við
hugsuðum það sama, þetta var ein-
stök og fögur sjón.
Við þekktum Ægi vel, hann var
dulur en tilfinninganæmur, tryggur
félagi og góður vinur vina sinna.
Hann fór út í lífíð með gott vega-
nesti, ást og umhyggju, enda for-
eldrar Ægis, þau Tobba og Jói, allt-
af til taks ef á þurfti að halda, á
þeirra heimili var alltaf hægt að
ræða um hlutina.
Það er alltaf erfitt að horfast í
augu við dauðann, einkum og sér
í lagi þegar svona ung manneskja
er öll.
En við getum þó reynt að hugga
okkur með því að hann hvílir núna
í heimi okkur æðri, þar sem hann
er umvafinn hlýju og kærleika Guðs
þar sem hinn eilífí friður er ríkjandi.
Elsku Jói, Tobba, Stína, Hafrún
og Birgir. Við vottum okkar dýpstu
samúð. Við munum ávallt sakna
hans.
Minning hans er ljós í lífí okkar.
Þegar þú ert sorgmæddur,
skoðaðu þá aftur huga þinn,
og þú munt sjá að þú grætur
vegna þess sem var gleði þín.
(Úr Spámanninum.)
Guðlaug og Sigga
/ myrkri og misjöfnum veðrum vetrarmánaðanna er góður Ijósabúnaður mikilvægt öryggistæki.
Fullkominn Ijósabúnaður tryggir ökumanni gott útsýni og eykur þanng öryggi hans og annarra
vegfarenda.
Mörgum blleigendum þykir einnig til bóta að Ijóskerin prýði útlit bllsins.
RING aukaljóskerin skila þessu tvíþætta hlutverki vel. Þau eru með
sterkum halogen perum sem lýsa betur en hefðbundnar glóþráðaperur.
fílNG aukaljóskerin fást I mörgum stærðum og gerðum, bæði með
gulu og hvítu gleri og leiðbeiningar á íslensku tryggja
auðvelda ásetningu.
Þeir bllaeigendur, sem kjósa öryggi samfara góðu útliti,
ættu að koma við á næstu benslnstöð Skeljungs og kynna
sér nánar kosti FIING aukaljóskeranna.
45
'mm
IM lÉÍ fíölS
Nýjung: Tékkaábyrgð
án bankakorts á
tékkum með mynd
af reikningshafa.
Nú ábyrgist Búnadarbankinn tékka, útgefna
af eigendum Gullreiknings ab upphœb allt ab
kr. 10.000,- án framvísunar bankakorts.
Til pess þarf tékkinn ab bera mynd af
reikningshafa en slíkt stendur eigendum
Gullreiknings til boba.
Pabfer ekki milli mála hver þú ert.
/ -A
*v*njt ■ a«?•■■■■■
M ..
§
n
TRAUSTUR BANKI
PRISMA