Morgunblaðið - 27.10.1988, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1988
t
Móður- og föðursystir okkar,
KATRÍN LÚÐVÍKSDÓTTIR,
áfiur til heimilis á Seljavegi 15,
sem andaðist á Elliheimilinu Grund 22. október verður jarðsett
frá Fossvogskapellu föstudaginn 28. október kl. 10.30.
Minninsr:
-----o
Þórður Guðmunds-
son fv. verslunarsljóri
Systkinabörn og aðrir vandamenn.
t
SIGURLAUGUR GUÐMUNDSSON
frá Flateyri
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 28. október
kl. 10.30.
Bergþóra Skarphéðinsdóttir,
Ingileif Guðmundsdóttir,
Lilja Guðmundsdóttir.
t
Eiginmaður minn,
SIGURSTEINN FRIÐBERG GUÐLAUGSSON
frá Hofsósi,
verður jarðsettur að Kotströnd í Ölfusi föstudaginn 28. október
kl. 14.00.
Fyrir hönd barna og annarra aðstandenda,
Guðný Pálsdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir,
STEPHAN STEPHENSEN,
Bjarkargötu 4,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 27. október
kl. 10.30.
Ingibjörg Stephensen,
Ólafur Stephensen, Klara Stephensen.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓRÐUR GUÐMUNDSSON
fyrrverandi verslunarstjóri,
Hvassalelti 58,
verður jarðsunginn fimmtudaginn 27. október kl. 13.30 frá Dóm-
kirkjunni.
Margrót Sigurðardóttir,
Kristfn Þórðardóttir, Guðmundur Guðmundsson,
Sigurður Þórðarson, Sigrún Andrésdóttir,
Hlldigunnur Þórðardóttir, Finnbogi Höskuldsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móöir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
UNNUR HALLDÓRSDÓTTIR,
Gröf,
Miklaholtshreppi,
verður jarðsungin frá Fáskrúðabakkakirkju laugardaginn 29. októ-
ber kl. 14.00. Minningarathöfn fer fram frá Neskirkju föstudaginn
28. október kl. 13.30. Ferð verðurfrá BS( kl. 10.00 á laugardag.
Kristfn Helgadóttir,
Halldór Helgason,
Pétur Haukur Helgason,
Hilmar Helgason,
Ásgeir Heigason,
Marteinn S. Björnsson,
Jóhanna G. Sigurbergsdóttir,
Guðbjörg Þorsteinsdóttir,
Erla Sverrisdóttir,
Guðrún K. Ingimarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Fæddur 19. maí 1908
Dáinn 19. október 1988
Kveðja frá KFUM
I dag er kvaddur hinstu kveóju
einn úr hópi elstu félaga KFUM,
Þórður Guðmundsson, fyrrum
verslunarstjóri hjá Hvannbergs-
bræðrum. Ungur að árum hóf hann
störf hjá því ágæta fyrirtæki og
helgaði því starfskrafta sína alla tíð
síðan, meðan starfsþrek entist. í
90. Davíðs-sálmi segir svo: „Ævi-
dagar vorir eru sjötíu ár og þegar
best lætur áttatíu ár.“ Þórður hafði
því náð efri mörkum þessa almenna
mælikvarða og var því saddur
lífdaga, eins og komist er að orði,
enda ekki verið heill heilsu seinustu
árin.
Hann gekk ungur í KFUM og
var árum saman í „Úrvali" yngstu
deildar félagsins eins og það var
löngum nefnt. En hópur sveitastjóra
í drengjastarfí félagsins var í dag-
legu tali nefndur „Úrvalið“. Helgað-
ist sú nafngift af því að séra Frið-
rik og nánustu samverkamenn hans
völdu forystumenn í drengja- og
unglingastarfínu úr hópi félags-
manna. Komu þeir saman á úrvals-
fundi vikulega til ráðagerða um
starfið og til sambænastunda. Þórð-
ur hafði forstöðu fyrir 7. sveit, sem
voru piltar úr suðausturhluta borg-
arinnar á þeim árum. Mér verða
ávallt minnisstæðir þeir fundir á
yngri árum mínum þegar Þórður
hafði eitthvert fundarefni, hvort
sem hann las eða sagði okkur sögu.
Allt var svo skilmerkilega fram sett
og röddin svo skýr og hljómmikil,
að allir gátu notið þess, er fram
fór. Hann var einnig liðtækur i sum-
+
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall föður míns og
tengdafööur,
MAGNÚSARSTEPHENSEN.
Elfn Stephensen, Sigurjón Jónsson.
t
Alúðarþakkir fyrir sýnda samúð við andlát og útför
JÓNS JÓNSSONAR.
Laufey Jóhannsdóttir,
Jóhann Jónsson, Sólveig Gunnarsdóttir.
+
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
VALDIMARS JÓHANNSSONAR
frá Kljé.
Róbert Valdimarsson,
Elfn Valdimarsdóttir, Slgurður Lárusson,
Hulda Valdimarsdóttir, Elis Gfslason,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför
LÁRUSAR JÓNSSONAR,
Laugarnesvegi 59.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild A6, Borgarspítala, fyrir
góða umönnun í veikindum hins látna.
Signý Jónsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Útför dóttur minnar, móður, tengdamóður, systur og ömmu,
JAKOBÍNU JÓNSDÓTTUR WAAGE,
Ljósheimum 10,
Reykjavfk,
verður gerð frá Fossvogskapellu föstudaginn 28. október kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaöir, en þeim sem vildu minn-
ast hennar er bent á Krabbameinsfélagið.
Guöbjörg Guðmundsdóttir,
Geir Waage, Dagný Emllsdóttir,
Arnbjörg Jónsdóttir,
Guðmundur Jónsson,
Jónas Jónsson,
og barnabörn.
Lokað
Vegna jarðarfarar STEPHANS STEPHENSEN verða
auglýsingastofurnar ÓSA og Gott fólk lokaðar til kl.
13.00 í dag, fimmtudag.
+
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
GESTS HALLDÓRSSONAR
frá Garðsvfk.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á dvalarheimilinu Hlíð.
Oddný Gestsdóttir, Hðkon Sigtryggsson,
Jóhann Gautl Gestsson, Edda Magnúsdóttir,
Ingibjörg Gestsdóttir, Örn Sigurgeirsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
í dag frá kl. 14.00-17.00 vegna jarðarfarar ÓLAFAR
HAFSTEINS EINARSSONAR, kennara.
Úrsmiðir Skólavörðustíg 3,
Helgi Sigurðsson og
Grétar Helgason.
arbúðunum í Vatnaskógi á þessum
árum og munaði um hann þar sem
hann lagði hönd að verki.
Menn leiða gjaman hugann að
liðnum tíma þegar samferðamenn
kveðja, og rifja upp kynni sín af
þeim á lífsleiðinni. Það sem mér er
efst í huga þegar ég lít til baka að
þessu sinni, er einstæð prúð-
mennska, góðvild og tryggð Þórðar
við menn og málefni, sem honum
voru hugleikin. Hann var trúfastur
fundargestur í Aðaldeild KFUM
meðan heilsan leyfði og Gideonfé-
lagið naut þessara eiginleika hans
frá fyrstu tíð. Hann var einnig um
langt skeið í forystusveit Sundfé-
lagsins Ægis og vann sundíþrótt-
inni þar mikið gagn. Það má einnig
líta á það sem dæmi um staðfestu
hans og tryggð, að hann starfaði
alla tíð hjá sama fyrirtækinu og bjó
áratugum saman á Sólvallagötu 7,
stað sem hann hafði tekið ástfóstri
við.
Mér er kunnugt um, að orð Guðs
var honum dagleg leiðsögn, enda
var hann grandvar og samvisku-
samur í öllu þvf sem hann tók sér
fyrir hendur. Ég tel það heiður fyr-
ir KFUM að hafa fengið að telja
hann meðal félaga sinna, og sóma
að því að hafa e.t.v. átt einhvem
þátt í því að byggja upp góðan
dreng og heilsteyptan sæmdar-
mann. Lífsferill Þórðar minnir mig
á bæn, sem er að finna í áður nefnd-
um Davíðssálmi: „Kenn oss að telja
daga vora, að vér megum öðlast
viturt hjarta." Þessi bæn gæti hafa
verið hans leiðarljós og er fordæmi
okkur sem eftir lifum.
Þessum línum fylgja að lokum
einlægar kveðjur til eiginkonu hans
og fjölskyldu með blessunaróskum
í nútíð og framtíð.
Arni Sigurjónsson
í hvert sinn sem við sjáum á eft-
ir góðum vini fínnum við til trega
og þess vegna langar mig til að
kveðja Þórð_ Guðmundsson með
nokkrum orðum.
Þórður andaðist 19. október á
Borgarspítalanum eftir sutta legu.
Það var fallegur haustdagur, kyrr
og fagur, sólin að lækka á lofti og
ylurinn óvenjumikill miðað við
árstíma.
Árið 1926 kom Þórður til starfa
við skóverslun Hvannbergsbræðra
aðeins 18 ára gamall, beint úr Sam-
vinnuskólanum. Eigandi verslunar-
innar, Jónas Hvannberg, sá þá fljótt
hversu dugiegur og einstaklega
traustur Þórður var, og með tíman-
um varð hann verslunarstjóri. Þórð-
ur vann hjá fyrirtækinu í 60 ár, sem
sýnir best tryggð hans og traust.
Vorið 1933 réðst Margrét Sig-
urðardóttir til Hvannbergsbræðra
og felldu þau Þórður hugi saman
og giftust þau 20. júní 1936. Voru
þau hjónin einstaklega samhent og
áttu fallegt og hlýlegt heimili, sem
ávallt var gott að koma á. Hjóna-
band Þórðar og Margrétar var langt
og farsælt og áttu þau miklu bama-
láni að fagna. Eignuðust þau 3
böm: Kristínu, Sigurð og Hildigunni
og 9 bamaböm. Óll eru þau mikið
dugnaðar- og sæmdarfólk, sem
Þórður var mjög stoltur af.
Þórður var mikill sundmaður og
æfði hann lengi með Sundfélaginu
Ægi. Keppti hann oft fyrir það fé-
lag, meðal annars keppti hann í 100
m bringusundi í Örfírisey ásamt
mörgum sterkum sundmönnum
þeirra tíma. Æfíngaraðstaða Þórð-
ar og félaga hans var nær eingöngu
í sjónum. Árið 1936 fór Þórður
ásamt fleirum á Ólympíuleikana í
Þýskalandi og keppti fyrir íslands
hönd.
Þórður var virkur í Gideon-félag-
inu og ánægjan skein frá Þórði,
þegar hann fór til að úthluta Nýja
testamentinu til 11 skólabama á
hveiju hausti.
Þórður var ávallt sem akkeri
Hvannbergsbræðra. Sanngjamari
og réttsýnni mann er vart hægt að
hugsa sér. Harðduglegur var hann
og jafnframt afskaplega mikið ljúf-
menni, sem hafði góð áhrif á alla,
bæði starfsfólk fyrirtækisins og
aðra. Mér reyndist Þórður hinn
hollasti leiðbeinandi, sem alltaf var
boðinn og búinn til að starfa að
málum fyrirtækisins jafnt inn á við
sem út á við. Fjölskyldu minni,