Morgunblaðið - 27.10.1988, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1988
51
INDLAND
reyna
kraftana
Eins og allir vita er nauðsynlegt að taka á honum
stóra sínum þegar farið er í „sjómann“ og fróðir
menn segja að styrkurinn aukist með hverju öskri.
Nobo nokkur frá norð-austur Indlandi sést hér
keppa í þessari einstæðu íþróttagrein, indverskum
„sjómanni" í Nýju Delhi nú í vikunni. Hann reynir
hér að snúa niður andstæðing sinn, en ekki tókst
það, þrátt fyrir augljós átök. Hann tapaði viður-
Reuter
ELIZABETH TAYLOR
Leikkonan
p
a
sjúkrahús
Elizabeth Taylor sem í sumar lá
á sjúkrahúsi vegna bakveiki
hefur verið iögð inn aftur. í þetta
skipti er það ekki bakið sem hijáir
hana. Heimildir herma að síðustu
sex vikur hafi hún misnotað verkja-
stillandi lyf og sé þar að auki dott-
in ofan í pytt þann er Bakkus ræð-
ur yfir. Er sagt að læknar hafi á
tímabili óttast að hún fengi lost,
þar eð blóðþrýstingur hennar féll
mjög hratt.
Hinn 29. september síðastliðinn
var Elizabeth Taylor færð á St.
John’s sjúkrahúsið í eigin limósínu.
Sagt er að hún hafi neitað að fara
upp í sjúkrabifreið. Var hún í nátt-
fötum einum saman og í mjög
slæmu ástandi. Það er einnig sagt
að í sumar hafi hún reynt að hlýða
ráðum lækna um lyfjanotkun en
áður en varði hafi hún verið farin
að taka 20 verkjastillandi töflur á
dag sem var margfaldur skammtur.
Þá herma fregnir að hún hafi nærst
illa síðustu vikur og borðað ein-
göngu það sem telst óheilsusamleg
fæða.
Haft er eftir læknum hennar að
þeir geti ekki gert neitt fyrir hana
nema hún taki sjálf af skarið. Til
að mynda hefur hún bætt á sig
fímmtán kílóum síðustu vikur og
neitað að fara í megrun. Eina af
fyrstu nóttum hennar á spítalanum Elizabeth Taylor hefur verið bundin við hjólastól síðan í sumar.
sást maður lauma pizzu inn á her-
bergi hennar, og einnig er sagt að
margar vín- og bjórflöskur hafi
fundist í fórum hennar.
Elizabeth átti um árabil við
áfengisvandamál að stríða en fyrir
fjórum árum sigraði hún í viður-
eigninni við Bakkus og snerti ekki
vín um tíma. Haft er eftir læknum
hennar að aldrei hafi hún verið eins
langt leidd og einmitt nú og sé það
undir henni sjálfri komið hvert
stefni.
OTO
A
HEILSUGARÐURINN
Garðatorgi, Garðabæ, sími 656970-71
BURT MEÐ AUKAKILÓIN
Skráning í dag
hjá næringarfræðingi
milii kl. 16 og 18.30
ísíma 656970-71.
færð
Hjartans þakkir sendi ég ykkur öllum, sem
glödduö mig á 100 ára afmœli mínu 17. október
meÖ heimsóknum, gjöfum, símtölum ogskeytum.
Ég biÖ GuÖ aÖ blessa ykkur öll.
GuÖrún Hallvarðsdóttir
frá Kirkjubæ.
IÐNTÆKNISTOFNUN
ÍSLANDS
Eftirtalin námskeið verða haldin á næstunni
hjá Iðntæknistofnun:
REKSTRARTÆKNI - VÉLTÆKNI:
14.-15. nóv.
28.-30. nóv.
14.-17. nóv.
21 .-24. nóv.
Gæðastjórnun. Námskeiðinu er ætlað að auka
skilning á gæðastjórnun og gæðakerfum. Gæði
sem stjórnunartækni. Gæðastaðlar. Uppbygging
gæðaeftirlits. Gæðakostnaður og gæðahandbók.
16kennslustundir.
Vöruþróun og markaðssókn. Vöruþróun, mark-
aðssókn, leið til betri afkomu. Aðferðir til mats
á markaðnum, til að laða fram hugmyndir, bera
þær saman og meta. Gerð framkvæmdaáætlun-
ar, frá hugmynd til framleiðslu. Leiðirtil að fjár-
magna vöruþróun o.fl. 16 kennslustundir.
Örtölvutækni 2. Framhald af Örtölvutækni 1.
Öllum vistháttum örgjörvans er lýst nánar. Hug-
tök eins og gluggavistun, kóðagluggi, gagna-
gluggi, staflagluggi aukagluggi o.fl. verða skýrð.
36 kennslustundir.
Örtölvutækni 3. Framhald af Örtölvutækni 2,
Vélbúnaður örtölvukerfa. Kynnt eru kefi með sam-
nota (multiplexed) vistunar- og gagnalínum ann-
ars vegar og aðskildum línum hins vegar. 36
kennslustundir.
VERKSTJÓRNARFRÆÐSLAN:
3. nóv.
14. nóv.
11. nóv.
5. des.
28. nóv.
2. des.
9. nóv.
22. nóv.
30. nóv.
14. nóv.
5. des.
22. nóv.
7. nóv.
Stjórnunaraðferðir og starfshvatning. Haldið á
Reyðarfirði. Farið er yfir helstu kenningar í stjórn-
un og stjórnunarstíl, hvað hvetur menn til vinnu
og hvað einkennir góð verkfyrirmæli.
Konur vlð stjórnun. Farið er yfir ákveðna hegðun
einstaklinga, eigin sjálfsmynd o.fl. Helstu viðhorf
og fordóma starfsmanna og stjórnenda til kvenna
í stjórnunarstörfum.
Verktilsögn og vinnutækni. Farið er yf ir skipu-
lagða verktilsögn, móttöku nýliða og starfs-
mannafræðslu, líkamsbeitingu við vinnu og vinnu-
vistfræði.
Verktilsögn og vinnutækni. Haldið á Neskaup-
stað.
Stjórnun breytinga. Farið yfir stjórnun breytinga,
hvernig er best að vinna breytingum fylgi. Starfs-
mannaviðtöl, hvernig virkja má starfsmenn til að
leysa vandamál o.fl.
Verkefnastjórnun. Undirstaða verkefnastjórnun-
ar. Hlutverk verkefnisstjóra, myndun verkefnis-
hópa, vöruþróunarverkefni o.fl.
Kjarasamningar og lög. Farið er yfir skaðabóta-
rétt og vinnulöggjöf, sakaregluna, saknæmi. Túlk-
un kjarasamninga o.fl.
Öryggismál. Fariö eryfir helstu öryggismál og
ábyrgð stjórnenda á öryggismálum. Kostnað
slysa og hvað vinnst með bættu öryggi.
Flutningafræði. Farið er yfir ferilgreiningu flutn-
inga utan og innan fyrirtækja, flutninga til og frá
o.fl.
Verkskipulagning og tímastjórnun. Farið er yfir
undirstöðuatriði í áætlanagerð, verkskipulagn-
ingu og tímastjórnun fyrir verkstjóra. Gerð CPM-
framkvæmdaáætlana og Gnatt -áætlana.
Verkskipulagning og tímastjórnun. Haldið á
Akureyri.
PROJECT-forrit og verkáætlanir. Haldiö á Vest-
urlandi. Farið er yfir undirstöðu verkskipulagning-
ar með aðstoð PC-tölvu, kynning á tölvuforritinu
PRJOECT.
Innkaupa- og lagerstjórn. Farið er meðal annars
yfir helstu atriði við skipulag innkaupa og lager-
stjórn o.fl.
Námskeið í Reykjavík eru haldin í húsakynnum Iðntækni-
stofnunar, nema annað sé tekið fram.
Nánari upplýsingar og innritun hjá stofnuninni í síma (91)
68-7000, Fræðsiumiðstöð iðnaðarins í síma (91) 68-7440
og Verkstjórnarfræðslunni í síma (91) 68-7009.
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA!