Morgunblaðið - 27.10.1988, Blaðsíða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1988
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Z *1_________*-
innrasin i iMOimanoi
undirbúin af kappi
HSÍ hefur sent út boðskort til sterkustu handknattleiksþjóða heims
„VIÐ höfum nú þegar sent
út skeyti til nœr allar sterk-
ustu handknattleiksþjóðir
heims og óskað eftir því að
þær komi hingað til lands -
til að leika gegn okkur. Við
bíðum eftir svari frá þessum
þjóðum,“ sagði Gunnar Þór
Jónsson, formaður landsliðs-
nefndar HSÍ t viðtali við Morg-
unblaðíð í gærkvöldi.
Gunnar sagði að skeyti hafi
verið send til Pólveija, Dana,
Frakka og Spánveija, en það eru
allt þjóðir sem íslendingar leika
ekki gegn ( riðlakeppninni eða
milliriðli í B-keppninni í Frakk-
landi. „Þá höfum við sent skeyti
til flestra þjóðanna sem voru efst-
ar á Ólympíuieikunum í Seoul.
S-Kóreumanna, Júgóslava, Ung-
veija, Svía og A-Þjóðverja.
Pólverjar hafa sýnt mikinn
áhuga á að koma hingað. Við
sendum S-Kóreumönnum skeyti,
til að kanna hvort þeir verði á
ferðinni í Evrópu á undirbúnings-
tfma okkar. Ef þeir verða ekki á
ferðinni, þá getum við ekki reikn-
að með þeim,“ sagði Gunnar Þór.
Sovétmenn eru ekki inn í dæm-
inu, þar sem það kostar mikla
peninga að fá þá í heimsókn.
Átta tll tlu landslelkir
„Eins og málin standa nú ligg-
ur landsleikjaplanið fyrir í grófum
dráttum. Við munum leika tvo
landsleiki fyrir jól, tvö leiki á milli
jóla og nýárs, tvö leiki í byijun
janúar og tvo til fjóra leiki áður
en haldið verður til Frakklands,"
sagði Gunnar Þór, en eins og
hefur komið fram þá stefna for-
ráðamenn HSÍ á að allir leikimir
verði leiknir hér á landi.
Undirbúningurinn fyrir innrás-
ina í Normandí, þar sem íslend-
ingar hefja sókn sína í átt að
A-keppninni ( Tékkóslóvakíu
1990, er hafínn af fullum krafti.
Landsliðsmenn íslands eru ekki í
vamarstöðu - heldur em þeir
ákveðnir að sækja fram. Þeir leika
fyrst gegn gegn Búlagríu, siðan
gegn Kúvait og þá gegn Rúmeníu
í riðlakeppninni, en leikirnir fara
fram í Cherbourg ( Normandí.
Sigurður Lárusson
íslensku Isnds-
IIAsmennirnlr
verða ekkl f varn-
arstöðu á næstunni.
Þeir eiga eftir að
sækja gegn sterkum
þjóðum áður en þeir
hefla innrás sína í
Normandí, þar sem
þeir leika í B-keppn-
inni! Frakklandi. Hér
á myndinni sjást Sig-
urður Sveinsson, Sig-
urður Gunnarsson,
Geir Sveinsson,
Kristján Arason og
Atli Himarsson. Fyrir
aftan Kristján og Atla
er Alfreð Gíslason.
KNATTSPYRNA
Sigurður
áframmeð
Skagamenn
SIGURÐUR Lárusson var í gær
endurráðinn þjálfari 1. deildar-
liðs Akraness í knattspyrnu.
Hann tók við liðinu í fyrra og
skilaði því í 3. sæti á Islands-
mótinu. Hörður Jóhannesson
verður sem fyrr aðstoðarmað-
ur Sigurðar.
Sigurður Lámsson náði ágætum
árangri í fyrra og em bundnar
vonir við áframhaldandi störf hans.
ÍA hafnaði ( 3. sæti í sumar og
tryggði sér rétt til
FráJóni að leika í Evrópu-
Gunnlaugsson keppni félagsliða 7.
áAkranesi árið í röð. í haust
vom Skagamenn
ekki langt frá því að komast í 2.
umferð er þeir mættu Ujpest Dozsa
frá Ungveijalandi.
„Þetta leggst vel í mig og ég var
ánægður með sumarið. Ég held að
við getum gert betur næsta sumar,
enda menn reynslunni ríkari eftir
sumarið," sagði Siguðmr Lámsson
jfi gær.
Einhveijar breytingar verða á
leikmannahóp Skagamanna. Ljóst
er að Karl Þórðarson mun leggja
skóna á hiljuna og óvíst er hvað
verður um Ólaf Þórðarson.
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Norwich er
óstöðvandi
lan Rush skoraði loks fyrir Liverpool, en
það dugði ekki gegn Nottingham Forest
NORWICH hefur sex stiga for-
skot í ensku 1. deildinni í knatt-
spyrnu eftir 2:1-sigurá Manc-
hester United á Old Trafford í
gærkvöldi. Meistarar Liverpool
töpuðu fyrir Middlesbrough,
2:1 og Newcastle sigraði Midd-
lesbrough, 3:0.
Norwich heldur áfram sigur-
göngu sinni og Manchester
United varð engin hindmn í gær-
kvöldi. Mark Hughes skoraði fyrsta
^■■m mark leiksins fyrir
Frá United í upphafi
BobHennessy síðari hálfleiks. Un-
lEnglandi ited fékk síðan víta-
spymu sem McClair
misnotaði. Norwich gerði út um
leikinn með tveimur mörkum á
síðust sex mínútum leiksins. Mike
Phelan jafnaði á 84. mínútu og
Andy Townsend skoraði sigurmark-
ið tveimur mínútum síðar.
Liverpool reið ekki feitum hesti
frá viðureign sinni við Nottingham
Forest. Brian Rice kom Forest yfir
um miðjan fyrri hálfleik, en Ian
Rush jafnaði rétt fyrir leikhlé. Hans
fyrsta deildarmark fyrir Liverpool
síðan hann kom frá Juventus. Neil
Webb kom heimamönnum yfir í
upphafi síðari hálfleiks og síðan
fékk Forest vítaspymu sem Nigel
Clough misnotaði.
Brasilíumaðurinn Mirandinha
skoraði tvö mörk fyrir Newcastle
gegn Middlesbrough. Þriðja markið
var sjálfsmark Gary Pallister.
24.000 áhorfendur voru á James
Brasllfumaöurlnn Mirandlnha
átti góðan leik með Newcastle ( gær
og skoraði tvívegis.
Park.
Fjórir leikir fóru fram í 2. deild
í gærkvöldi og urðu úrslit sem hér
segir:
Nell Webb skoraði fyrir Nottingham
Forest gegn Liverpool.
Bradford—Leeds.............1:1
Brighton—Walsall...........2:2
Leicester—Swindon..........3:3
W.B.A.—Manchester City.....1:0
íH&mR
FOLK
■ HOWARD Kendall, þjálfari
Atletico Madrid, hafnaði í gær
boði frá Newcastle, um að gerast
framkvæmdastjóri félagsins. „Ég
er vonsvikinn, því að ég var bjart-
sýnn eftir að hafa rætt við Kendall
á Spáni á mánudaginn," sagði Gor-
don McKeag, forseti Newcastle.
Félagið hefur verið framkvæmda-
stjóralaust síðan Willie McFaul var
rekinn fyrir tveimur vikum.
■ TOM Krommendijk, sóknar-
leikmaður hjá Feyenoord, gekk í
gær til liðs við belgíska félagið CS
Briigge. Krommendijk er 21 árs.
Mörg hollensk félög voru einnig á
eftir honum.
■ MIKLAR Kkur eru á þvi að
Brian Talbot, fyrmm leikmaður
Ipswich, Arsenal og Stoke, taki
við framkvæmdastjórastöðu WBA.
Hann hefur stjómað leik liðsins
síðan Ron Atkinson fór til Atletico
Madrid á dögunum. Mark Law-
renson, sem hætti sem „stjómi"
hjá Oxford í vikunni, hefur einnig
áhuga á starfmu