Morgunblaðið - 05.11.1988, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988
5
Um 6000 liafa
séðIskugga
hraftisins
i í skugga hrafnsins, kvikmynd
Hrafns Gunnlaugssonar, hefur
nú verið sýnd í Laugarásbíói í
12 daga og hafa rösklega 6.000
manns séð myndina.
Myndin er sýnd þrisvar á dag og
er því áhorfendafjöldinn á dag rúm-
lega 500 manns. Grétar Hjartarson,
forstjóri Laugarásbíós, sagði að-
sóknina vera nokkuð jafna, yfirleitt
væri fullt hús á föstudags- laugar-
dags- og sunnudagskvöldum en
minna aðra daga.
^ ^ ^
Búið að salta í
85.000 tumiur
SALTAÐ hafði verið í 78.000
tunnur í fyrrakvöld og reiknað
var með að saltað yrði í um 7.000
tunnur í gær, að sögn Kristjáns
Jóhannessonar birgða- og söltun-
arstjóra síldarútvegsnefiidar.
í fyrrakvöld var búið að salta í
15.410 tunnur á Eskifirði, 11.722
tunnur á Seyðisfirði og 11.570
tunnur á Homafirði. Þá hafði verið
saltað í 6.836 tunnur í Fiskimjöls-
verksmiðju Hornafjarðar, 6.149
tunnur í Strandarsfld á Seyðisfirði
og 5.992 tunnur í Pólarsíld á Fá-
skrúðsfirði.
Töluverð veiði var í Stöðvarfirði
í gær, að sögn Kristjáns Jóhannes-
sonar.
Þorlákshöfn.
ÞEGAR Meitillinn hætti starf-
semi um mánaðamótin myndaðist
biðröð á skrifstofu Ölfushrepps
vegna atvinnuleysisskráningar.
Á þriðjudagskvöld var búið að
skrá 73, þar af 17 karlmenn og
53 konur. Einn hafði verið á skrá
áður.
Þótt samningar um 150 þúsund
tunnur af sfld hafi verið gerðir við
Sovétmenn, reikna sfldarsaltendur
hér ekki með því að mikið verði
saltað á næstunni, eða að þeir geti
bætt við sig fólki í neinum mæli.
Guðmundur Hermannsson sveitar-
stjóri sagðist ekki sjá fram á-að
hægt væri að útvega nema litlum
hluta af því fólki, sem væri búið
að skrá sig atvinnulaust, vinnu hér.
Lítið væri farið að huga að þessum
málum en eitthvað yrði að gera og
það fljótt. Jón
BRUNAÐU MEÐ
Tll,
AUSTURRIKIS OG FRAKKUNDs
Úrvals skíðaferðir í bestu skíðalönd Evrópu!
Eddukvæði og
fomsögur á ensku
„EDDAS and Sagas“ nefiiist bók
eftir dr. Jónas Kristjánsson, for-
stöðumann Árnastofhunar, sem
Hið íslenska bókmenntafélag
hefur gefið út á ensku. Bókin er
að stofhi til þættir sem birtast í
ritinu Saga íslands en Jónas hef-
ur gert á þeim ýmsar breytingar
og aukið við. Þýðandi bókarinnar
er Peter Foote.
Jónas sagði, í samtali við Morg-
unblaðið, að ritið ijallaði um bók-
menntir okkar frá upphafi til siða-
skipta og endaði á Jóni Arasyni.
Hann sagðist binda vonir við að
bókin yrði notuð við íslensku-
kennslu í erlendum háskólum, en
annars væri hún ætluð öllum sem
áhuga hefðu á íslenskum fom-
bókmenntum. Jónas sagði bókina
bæta úr brýnni þörf, því ekkert
sambærilegt rit væri til á erlendum
málum. Hann teldi það mjög heppi-
legt að svona rit væru skrifuð af
íslendingum, svo sjónarmið íslend-
inga og viðhorf til þessara bók-
mennta kæmi fram. Einnig væri
ánægjulegt að svona rit skyldi koma
frá íslandi, en bókinni verður dreift
héðan og hefur Víkingafélagið
breska þegar tekið að sér dreifingu
í Bretlandi.
Jónas kvaðst einnig mjög ham-
ingjusamur að hafa fengið þennan
þýðanda. Peter Foote væri fyrrver-
andi prófessor í íslensku við há-
skóla í London, rithöfundur á enska
tungu, hefði mjög gott vald á
íslensku og væri vel að sér í þeim
efnum sem bókin fjallaði um.
Aðspurður hvort bókin væri
væntanleg á íslensku sagðist Jónas
hafa fullan hug á því, að sú gerð
sem lögð var til grundvallar þýðing-
unni kæmi út sérprentuð, en óvíst
væri ennþá hvort af því yrði.
Dr. Jónas Kristjánsson
73áatvinnu-
leysisskrá
Um 70.000 tonn
veidd af loðnu
TILKYNNT hafði verið um veið-
ar á 69.600 tonnum af loðnu í
gær, föstudag. Albert GK hætti
við að fara með 720 tonn til
Færeyja á þriðjudaginn og fór
til Neskaupstaðar.
í gær tilkynnti Keflvíkingur KE
um 530 tonn, óákveðið hvert, og
Sunnuberg GK 500 tonn til
Grindavíkur.
Á fímmtudaginn tilkynnti Hilmir
SU um 1.100 tonn til Reykjavíkur,
Helga II RE 1.000 tonn til Siglu-
flarðar, Guðmundur Ólafur ÓF 600
tonn til Færeyja, Víkurberg GK 500
tonn til Bolungarvíkur, Björg Jóns-
dóttir ÞH 350 tonn til Þórshafnar,
Fífill GK 640 tonn til Reykjavíkur,
Örn KE 750 tonn til Krossaness
og ísleifur VE 720 tonn til Bolung-
arvíkur.
Á miðvikudaginn tilkynnti
Hólmaborg SU um 1.430 tonn til
Eskifjarðar, Sigurður RE 1.400
tonn til Vestmannaeyja og VíRingur
AK 1.250 tonn til Ákraness.
Á þriðjudaginn tilkynnti Hilmir
II SU um 570 tonn til Siglufjarðar,
Skarðsvík SH 670 tonn til Siglu-
fjarðar, Bergur VE 470 tonn til
Sigluíjarðar, Sighvatur Bjamason
VE 670 tonn til Vestmannaeyja,
Beitir NK 1.230 tonn til Neskaup-
staðar, Jón Kjartansson SU 870
tonn til Eskifjarðar og Grindvíking-
ur GK 850 tonn til Færeyja.
SAALBACH -
HINTERGLEMM
75.300
Hálft fœði innifalið.
Brottför 18. febrúar.
Flogið til og frá Salzburg.
Innifalið i verði: Flug, gisting og flutn-
ingur til og frá flugvelli erlendis.
Staðgreiðsluverð, miðað við gengi
6. október 1988.
FRAKKUND
Dalirnir þrír,
eitt besta skíða-
svœði Evrópu.
VAL THORENS
50.100
Brottför 25. febrúar.
Flogið til og frá Genf.
Innifalið í verði: Flug, gisting og flutn-
ingur til og frá flugvelli erlendis.
Staðgreiðsluverð, miðað við gpngi
6. október 1988.
FERÐASKRIFSTOFAN
- fólk sem kann sitt fag!
Pósthússtrœti 13 - Sími 26900.
AUSTURRÍKI
BADGASTEIN
38.600
Brottför 4. og 18. febrúar.
FLACHAU
68.600 *,
Hálft fœði innifalið.
Brottför 11. febrúar.