Morgunblaðið - 05.11.1988, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988
13
Athugasemd vegna æsifréttar
Mál og menning hefur óskað
eftir að Morgunblaðið birti eftir-
farandi athugasemd, þár sem
umrædd frétt Tímans var birt í
Staksteinum. Þess skal getið að
athugasemd Érá dómsmálaráðu-
neyti um sama mál birtist í Morg-
unblaðinu í gær:
Eins og flestum er kunnugt af
fréttum hefur nefnd dómsmála-
ráðuneytisins um nauðgunarmál
nýlega lokið störfum og skilað af
sér viðamikilli skýrslu af því til-
efni. í tengslum við starf nefndar-
innar voru unnar nokkrar rann-
sóknarritgerðir um meðferð nauðg-
unarmála hérlendis. Það var ljóst
frá upphafí að þeir sem þær rann-
sóknir ynnu gerðu það á eigin
ábyrgð. Því væri þeim líka í sjálfs-
vald sett hvemig þeir kæmu þeim
á framfæri að öðm leyti en því sem
snýr að skýrslu nefndarinnar: Hvort
það yrði með blaðagreinum, erind-
um eða í bókarformi væri mál höf-
undanna sjálfra, enda alvanalegt
að rannsóknum sem ríkið hefur
styrkt — svo sem rannsóknum há-
skólakennara — sé komið á fram-
færi í bókarformi, án þess að höf-
undar þeirra verði að afsala sér rit-
launum.
Ein þeirra rannsókna sem gerðar
vom var viðtalskönnun um nauðg-
unarmál sem Sigrún Julíusdóttir
vann. Að sjálfsögðu hvíldi alger
nafnleynd yfír viðmælendum henn-
ar, og því ógerlegt að þekkja það
fólk sem um var að ræða. Fyrir
nokkm kom Sigrún að máli við
okkur hjá bókaútgáfu Máls og
menningar og spurði hvort forlagið
viídi stuðla að því að koma þessu
efni hennar á framfæri, svo almenn-
ingur mætti kynna sér niðurstöður
hennar. Málaleitan hennar var vel
tekið, enda umræða um meðferð
nauðgunarmála mikilsverð fyrir
þjóðfélag okkar, og reyndar óhjá-
kvæmileg ef einhver viðhorfsbreyt-
ing á að verða.
Sigrún bjó síðan könnun sína til
prentunar, reit inngang, m.a. um
aðferð og siðfræði, og listakonan
Kristjana Samper var fengin til að
gera kápu og myndir. Sigrún vildi
að bókin yrði gefin út um svipað
leyti og skýrslan yrði kynnt almenn-
ingi, og var auðvitað orðið við þeirri
ósk. Bók hennar, sem hlaut nafnið
Hremmingar, var gefín út sem ódýr
kilja, fjölrituð eftir tölvuprentuðu
handriti í 500 eintökum. Ritlaun til
hennar við útkomu námu 35.000
kónur og geta, seljist upplagið allt,
mest orðið 80.000 krónur.
Þessar staðreyndir urðu dag-
blaðinu Tímanum tilefni til risa-
fréttar á baksíðu þann 1. nóvem-
ber. Þar segir í yfirfyrirsögn: „Mál
og menning hefur fundið „best sell-
er“ ársins í ríkisskýrslu" og með
stríðsletri í aðalfýrirsögn: „Hluti
nauðgunarskýrslu gefínn út í
gróðaskyni." Þessi staðhæfing er
algerlega út í hött. Menn þurfa
ekki annað en að sjá bókina, hvað
þá lesa hana, til að fullvissa sig um
að útgerð hennar er með þeim
hætti, að þessi fjölritaða kilja er
fráleit ,jólagjafabók“ eða „best sell-
er“. Hún er framlag til þjóðfélags-
umræðu, og það er reyndar eitt af
markmiðum forlagsins að stuðla að
henni.
I fréttinni sjálfri er reynt að gera
verk Sigrúnar tortryggilegt á allan
hátt. Fremst er svæsin tilvitnun
innan gæsalappa, en hún er raunar
klippt saman úr svörum þriggja
mismunandi kvenna, án þess að það
sé tekið fram. Nafn Sigrúnar er
svert sem kostur er og henni gerð-
ar upp lágkúrulegar hvatir: Hún á
að vera að reyna að auðgast á
nauðgunarmálum, og gefíð er til
kynna að hún hafí farið á bak við
viðmælendur sína og vinnuveit-
anda.
Dómsmálaráðuneytið hefur þeg-
ar svarað þessum aðdróttunum fyr-
ir sitt leyti og sýnt fram á hald-
leysi þeirra. Persónuníðið nær há-
marki í setningunni: „Forvitnilegt
væri að fá upplýst hvort þær konur
sem rætt var við þegar skýrslan
var gerð, hafi þá né síðar vitað að
þær yrðu gerðar að féþúfu félags-
ráðgjafans á þennan hátt.“
Um blaðamennsku af þessu tagi
þarf ekki að fjölyrða. Það er nóg
að bera hana saman við staðreynd-
ir málsins hér að ofan, og er athuga-
semd þessi rituð til að gefa lesend-
um kost á því. Því má bæta við að
við hér á forlaginu þekkjum Tímann
af velviljaðri umræðu um bækur
og bókaútgáfu, og reyndar af góðu
samstarfi við ýmsa bókamenn sem
þar vinna. Það er vándséð hvað
blaðinu gengur til með umfjöllun
af þessu tagi um vandmeðfarið
málefni.
Halldór Guðmundsson
útgáfustjóri Máls og menningar
Kvenfélagið
Hringurinn
heldurbasar
Kvenfélagið Hringurinn held-
ur sinn árlega handavinnu- og
kökubasar sunnudaginn 6. nóv-
ember kl. 14 i Fóstbræðraheimil-
inu Langholtsvegi 109-111.
Á basarnum verður mikið úrval
af fallegum jólagjöfum. Þá verða
einnig til sölu jólakort félagsins.
Allur ágóði rennur til Barnaspítala
Hringsins og annarra líknarmála.
AFSLATTUR
RÝMINGARSALA!!
Við eigum nokkra MAZDA 626 árgerð 1988, sem við seljum í dag og næstu daga með
VERULEGUM AFSLÆTTI:
Fullt verð VERÐ NÚ Þú sparar
4 dyra LX 1.8 L 5 gíra/vökvast. 826.000 710.000 116.000
4 dyra GLX 2.0 L sjálfsk./vökvast. 956.000 844.000 112.000
5 dyra LX 1.8 L 5 gíra/vökvast. 845.000 725.000 120.000
5 dyra LX 1.8 L sjálfsk./vökvast. 903.000 773.000 130.000
5 dyra GLX 2.0 L sjálfsk./vökvast. 989.000 852.000 137.000
5 dyra GLX 2.0 L sjálfsk./vökvast. m/álfelgum og sóllúgu 1.088.000 945.000 143.000
5 dyra GTi 2.0 L 16v 5 gíra/vökvast. m/álfelgum og sóllúgu 1.134.000 968.000 168.000
2 d. Coupe GLX 2.0 L sjálfsk./vökvast. 959.000 839.000 120.000
2 d. Coupe GLX 2.0 L sjálfsk./vökvast. m/sóllúgu 999.000 870.000 129.000
2 d. Coupe GTi 2.0 L 16v 5 gíra/vökvast. m/álfelgum og vindskeiðum 1.100.000 954.000 146.000
2 d. Coupe GTi 2.0 L 16v 5 gíra/vökvast. m/álfelgum, vindskeið og sótlúgu 1.170.000 998.000 172.000
Þetta eru án efa bestu bílakaup ársins. Tryggiö ykkur því bít straxH
OPIÐ LAUGARDAGA FRÁ KL. 1-5.
BÍLABORG H.F.
FOSSHÁLS11 ,SÍM! 6812 99