Morgunblaðið - 05.11.1988, Blaðsíða 15
Alþjóðlegnr dans-
dagur á morgun:
Islenskir
dansskólar
opnir al-
menningi
ALÞJÓÐLEGUR dansdagur
verður haldinn á morgun, sunnu-
daginn 6. nóvember, á vegum
„International Council of Ball-
room Dancing" sem eru alþjóða
samtök danskennara.
Dansskólar um víða veröld verða
opnir þennan dag og kynna starf-
semi sína með ýmsu móti.
Á íslandi verða skólarnir opnir
kl. 13.00—18.00. Hér gefst gott
tækifæri öllum þeim
Háteigskirkja í Reykjavík.
Basar kven-
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988
15
Ný námskeið hjá Bréfaskólanum
HJÁ Bréfaskólanum eru á döf-
inni ný námskeið í fjórum grein-
um; ensku, þýsku, algebru og
siglingafræði. Þá býður Bréfa-
skólinn nemendum sínum nú upp
á námsráðgjöf í gegn um síma
og eru þar gefhar upplýsingar
um námsval, námsaðferðir, und-
irbúning fyrir störf og aðra skóla
og fleira. Þá getur fólk nú innrit-
að sig eða beðið um upplýsingar
i gegnum símsvara.
Byijenda- og framhaldsnámskeið
í ensku eru nú í vinnslu og verða
sennilega í boði í lok nóvember.
Sömu höfundar eru að námskeiðun-
um og áður og eru þau sérstaklega
hönnuð fyrir fullorðinsfræðslu.
Boðið verður upp á tvö námskeið
í þýsku. Annað er fyrir byrjendur
og samsvarar fyrsta áfanga á fram-
haldsskólastigi. í undirbúningi er
gerð útvarpsþátta í samvinnu við
Fræðsluvarp með þessu kennsluefni
Bréfaskólans. Hitt þýskunámskeið-
ið er fyrir lengra komna og er beint
framhald af Þýsku 1.
Algebra á framhaldsskólastigi er
gefin út í 5 kennslubréfum, sem
verða sennilega undirstöðuefni í
fjarkennslu á vegum Fræðsluvarps
eftir áramót.
Siglingafræði er nú kennd í nýrri
og endurbættri útgáfu. Námskeiðið
veitir skipstjómarréttindi á bátum
allt að 30 tonnum ef nemendur ljúka
námskeiðum í verklegum þáttum
hjá Slysavamarfélaginu og taka
lokapróf. I tilkynningu frá Bréfa-
skólanum segir að námsefnið sé
gott til undirbúnings fyrir Stýri-
mannaskólann.
RÝMINGARSALAN Á CITROÉN AX
HELDUR ÁFRAM:
Enn getur þú
sparað meira er>
100.000 kr.
ef þú hikar ekki
Nú er aðeins örfáum Citroén AX, árgerð 1988, óráðstafað.
félags Há-
teigssóknar
KVENFÉLAG Háteigssóknar
heldur árlegan basar sinn á
sunnudaginn 6. nóvember kl. 14.
Á boðstólum verða kökur, hand-
unnir munir, ullarvörur og ýmisleg-
ur annar vamingur. Einnig verður
kaffisala með ijómavöfflum.
Eins og flestum er kunnugt hefir
verið unnið að undirbúningi altaris-
myndar í mósaík í kór Háteigs-
kirkju eftir Benedikt Gunnarsson,
listmálara. Hefír kvenfélagið kostað
allt, sem gert hefír verið til þessa.
Nú er að því komið að altarismynd-
in verði 3ett upp. Munu listamenn
frá Miinchen í Þýskalandi, sem
unnu myndina í mósaík, setja hana
á sinn stað í kórinn fyrir jól.
Allur ágóði af sölunni á basam-
um rennur til þessa verks, en skuld
kvenfélagsins vegna þessa er tölu-
verð. Væri vel að sem flestir legðu
leið sína á basarinn í Tónabæ á
sunnudaginn, og styrki með því alt-
aristöflusjóðinn um leið og þeir
sjálfir afla sér ágætra muna.
Prestarnir
-<
O
O
>
I
8
œ
Ódýrasta gerðin er uppseld.
Sá ódýrasti sem enn er til kostar 329.500 kr. kominn á götuna.
Áætlað verð á árgerð 1989 er frá kr. 439.000,
svo ávinningurinn er mikill.
Greiðslukjör:
Staðgreiðsla eða lánamöguleikartil allt að 12 mánaða á eftirstöðvum.
Komdu við í Lágmúlanum, eða hjá söluaðilum okkar,
og kynnstu Citroén AX, frönskum og fallegum,
á verði sem varla á sinn líka.
I
Söluaðilar:
Bílatorg, Nóatúni 2, Reykjavík
Bifreiðaverkstæði Gunnars Jóhannssonar, Óseyri 6, Akureyri
Benedikt Jónmundsson, Shellstöðinni, Akranesi
Vélsmiðjan Þór, Suðurgötu 9, ísafirði.
ÞETTA ER TILBOÐ
SEM VARLA VERÐUR ENDURTEKIÐ
G/obus?
Lágmúla 5, sími 681555