Morgunblaðið - 05.11.1988, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988
31
Borgarstjórnarfiindur á fímmtudaginn;
Stórfelld skattheimta ríkis
ins mun valda atvinnuleysi
- segir Davíð Oddsson, borgarstjóri
Á FUNDI borgarstjórnar
Reykjavíkur á fimmtudaginn
kom fram, að atvinnuleysi hefiir
aukist í Reykjavík frá síðasta
ári. Davíð Oddson, borgarstjóri,
sagði að áform ríkisstjórnarinn-
ar um stórfellda skattheimtu
muni lama atvinnulífið í landinu.
Á fundinum gagnrýndu borgar-
fulltrúar minnihlutans verð þjón-
ustuíbúða aldraðra að Vestur-
götu 7, en sjálfetæðismenn sögðu
það eðlilegt. Borgarstjórn sam-
þykkti að leggja gúmmihellur á
nokkur leiksvæði barna í til-
raunaskyni og tillögu um að
bæta frágang á skólalóðum var
vísað til skólamálaráðs, auk þess
sem hún verður tíl meðferðar við
gerð fjárhagsáætlunar.
Aukið atvinnuleysi í
borginni
Á fundinum urðu nokkrar um-
ræður um horfur í atvinnumálum.
Guðrún Ágústsdóttir (Abl) vakti
athygli á upplýsingum frá Ráðning-
arstofu Reykjavíkur um fjöida at-
vinnulausra í borginni, en þeir eru
nú rúmlega 150, eða nær þrefalt
fleiri en á sama tíma í fyrra. Guð-
rún lagði áherslu á að bregðast
yrði við þessu, til dæmis með því
að auka styrki til smáfyrirtækja í
iðnaði.
Davið Oddson, borgarstjóri
sagði greinilegt, að ástand I at-
vinnumálum í landinu færi versn-
andi. Hann minnti síðan á, að þar
til fyrir §órum vikum hefði hávær
umræða farið fram um hræðilega
þenslu í Reykjavík, sem nauðsyn-
legt væri að taka á með afskiptum
ríkisins. Þetta sýndi, hve skamm-
sýni sumra væri mikil. Davíð bætti
við að skammt væri síðan að borg-
inni hefði verið vegið af áhrifamikl-
um stjómmálamönnum, sem haldið
hefðu fram nauðsyn þess að slá á
þessa þenslu. „Hver veit nema þetta
ástand, sem sumir óskuðu eftir, sé
að koma og verði verra en menn
höfðu búist við,“ sagði hann.
í máli borgarstjóra kom einnig
fram, að talsmenn ríkisstjómarinn-
ar hefðu sagt að það ætti að vera
fyrsta verk nýju stjómarinnar að
koma hjólum atvinnulífsins af stað.
Þeim hefði haldist uppi að segja
þetta, án þess að þeir aðhefðust
nokkuð í þá átt. Davíð Oddsson
sagði að fyrirætlanir stjómarinnar
um 5 milljarða skattahækkanir
væm til þess fallnar að lama atvinn-
ulífið og stórfelld skattheimta ríkis-
ins myndi valda atvinnuleysi.
Dýrar íbúðir fyrir aldraða
Sigrún Magnúsdóttir (F) gagn-
rýndi verðlag þjónustuíbúða fyrir
aldraða að Vesturgötu 7. Sagði hún
meðaltalskostnað á fermetrann
vera 65.418,00 kr., en aðrir hefðu
byggt hliðstæðar íbúðir fyrir næst-
um 50% lægra verð. Nefndi hún í
því sambandi verkamannabústaði,
stúdentagarða og íbúðir aldraðra
að Sunnuhlíð í Kópavogi. Sigrún
spurði síðan hvort borgin væri að
byggja þessar íbúðir fyrir sérstaka
forréttindahópa, því fæstir aldraðir
réðu við að kaupa þær.
Davíð Oddsson sagði að Sigrún
væri að bera saman ósambærilegar
íbúðir og væri því beinlínis að villa
um fyrir fólki. Fuil samstaða hefði
verið um að byggja þama vandað
hús á viðkvæmum stað í hjarta
borgarinnar. Ekkert benti til þess
að kostnaðurinn væri óeðlilega hár.
Páll Gíslason (S) tók undir orð
borgarstjóra um að Sigrún hefði
borið saman ósambærilegar íbúðir.
Hann sagði ennfremur, að leggja
bæri áherslu á að gera öldruðum
kleyft að dveljast eins lengi heima
hjá sér og nokkur kostur væri.
Guðrún Ágústsdóttir (Abl)
sagði að alltof lítið væri byggt fyr-
ir aldraða í Reykjavík og borgin
ætti að ieggja aukna áherslu á
byggingu leiguíbúða í stað söluí-
búða. Sigrún Magnúsdóttir sagðist
ekki efast um að íbúðimar í þjón-
ustukjamanum að Vesturgötu væm
vandaðar, en sagðist ekki skilja
hvers vegna þurft hefði að byggja
svo dýrt. Elín G. Ólafsdóttir (Kvl)
lýsti þeirri stefnu Kvennalistans,
að borginni bæri að byggja leigu-
húsnæði fyrir aldraða. Með söluí-
búðunum væri verið að mismuna
öldruðum Reykvíkingum eftir efna-
hag.
Blekking að íbúðirnar séu
bara fyrir stóreignamenn
Árni Sigfússon (S) sagði aldraða
vera sjálfstæða borgara, sem flestir
hefðu tök á að nýta eigið fjármagn
til að sjá sér fyrir húsnæði. Þess
vegna ætti borgin að leggja höfuð-
áherslu á að bæta heimaþjónustuna
við þá. Siguijón Pétursson (Abl)
sagði íbúðimar mjög dýrar og að
Þjónustuibúðir fyrir aldraða að
borgarstjórn á fimmtudaginn.
rangt hefði verið að bjóða verkið
ekki út. Davíð Oddsson gerði þá
athugasemd varðandi verð íbúð-
anna. Sagði hann meðalverð þeirra
vera 5 til 5,5 milljónir króna auk
þess sem framkvæmdalán upp á
2,5 milljónir fylgdi hverri þeirra.
Því væri blekking að einungis stór-
eignamenn gætu keypt þessar íbúð-
ir.
Sigrún Magnúsdóttir (F) tók
næst til máls til að gera stutta at-
hugasemd. Sagði hún meðal ann-
ars, að eldra fólk vildi ekki taka
lán; það vildi ekki skulda. Hún ítrek-
aði þá skoðun sína, að verð þeirra
væri hátt. íbúðimar sjálfar væru
litlar, þótt sameignin sem fylgdi
hverri væri stór. Magnús L.
Sveinsson forseti borgarstjómar
bað Sigrúnu þá að ljúka máli sínu.
Samkvæmt fundarsköpum Borgar-
stjómar mætti hver borgarfulltrúi
aðeins tala tvisvar sinnum undir
hveijum dagskrárlið og það hefði
hún þegar gert. Hefð væri fyrir því
að borgarfulltrúar fengju tækifæri
til að gera stutta athugasemd, en
nokkur brögð hefðu verið að því
að þeir misnotuðu sér það og héldu
þriðju ræðuna um efnið. Sagðist
Magnús neyðast til að koma í veg
fyrir slíkt. Fleiri tóku þátt í umræð-
unum um þjónustuíbúðimar og
deildu fulltrúar minnihlutans á verð
jþeirra en sjálfstæðismenn töldu það
eðlilegt. Staðsetning hússins hefði
til dæmis kallað á dýrar lausnir til
að laga það að umhverfinu. Einnig
hefði verið valið dýrt efni í bygging-
Morgublaðid/Þorkell
Vesturgötu 7 vom til umræðu í
una, en það myndi draga úr við-
haldskostnaði.
Samstaða um tilraun með
gúmmihellur
Elín G. Ólafedóttir (Kvl) mælti
fyrir tillögu borgarfulltrúa minni-
hlutaflokkanna um að gera tilraun
með að leggja gúmmfhellur, sem
framleiddar em hér á landi, á nokk-
ur leiksvæði dagvista og skóla í
borginni. Með því mætti bæði auka
öryggi bama og styrkja íslensk'án
endurvinnsluiðnað. Guðrún Zoöga
(S) sagðist telja rétt að gera tilraun
af þessu tagi, annars vegar til að
kanna hvort hellumar geta aukið
öryggi bama og hins vegar til að
sjá hvemig þær þola íslenskt veður-
far. Hins vegar væri væntanlega
ekki hægt að hefja þessa tilraun
strax, þar sem langt væri liðið á
árið. Tillagan var síðan samþykkt
samhljóða.
Elín G. Ólafsdóttir mælti einnig
fyrir annarri tillögu minnihlutisr-
flokkanna. Fjallaði hún um átak til
að lagfæra skólalóðir í borginni og
fullbúa þær leiktækjum. Sagði Elln
að þótt skólalóðir í Reykjavík væm
betur búnar en almennt gerðist á
landinu mætti víða gera betur.
Margar skólalóðir gætu varla talist
viðunandi uppeldisumhverfí fyrir
böm og ungiinga. Guðrún Zoega
svaraði þessu á þá leið, að stöðugt
átak væri í gangi I þessum efnum.
Reykvíkingar gætu verið fullsæmd-
ir af skólalóðunum í borginni miðað
við það sem sem tíðkaðist annars
staðar. Margar lóðirnar væm þann-
ig að einungis vantaði herslumun-
inn á að þær gætu talist fullfráh
gengnar. Guðrún lagði til, að tillög-
unni yrði vísað til skólamálaráðs
borgarinnar og yrði til meðferðar
við gerð fjárhagsáætlunar borgar-
innar. Var sú málsmeðferð sam-
þykkt mótatkvæðalaust.
Basar
Kvenfélagið Heimaey heldur sinn
árlega basar í dag kl. 14.00 á Hallveigar-
stöðum v/Túngötu. Margt góðra muna.
Stjórnin.
Atríði úr Náttbólinu.
Sýningar á Náttbólinu
Símar 35408 og 83033
AUSTURBÆR
K0PAV0GUR
LEIKFÉLAG Verslunarskóla íslands, „Allt milli
himins og jarðar“, sýnir leikritið Náttbólið eftir
rússneska höfimdinn Maxim Gorki undir leik-
stjóm Guðjóns Sigvaldasonar.
Sýningar verða í nemendakjallara NFVÍ sem hér
segir: laugardaginn 5. nóv. kl. 16.00, sunnudaginn
6. nóv. kl.20.00, mánudaginn 7. nóv. kl. 20.00 og
miðvikudaginn 9. nóv. kl. 20.00.
Oðinsgatao.fl. Sunnubraut