Morgunblaðið - 05.11.1988, Page 36
B«ÉJb*fc€P**W'
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988
I
t
l!
i
Sovéskir
dagar
MÍR1988
Tónleikar og danssýning
í Þjóðleikhúsinu sunnudaginn 6. nóvember kl. 20.
Listafólk frá Kirgizíu skemmtir með hljóðfæraleik,
söng og dansi. Fjölbreytt efnisskrá.
Aðgöngumiðar seldir í miðasölu Þjóðleikhússins.
MÍR.
Fjölmiðlakennsla
á íslandi
Blaðamannafélag íslands boðar til
opinnar ráðstefnu um uppbyggingu fjöl-
miðlakennslu á íslandi. Ráðstefnan
verður haldin á Hótel Sögu, ráðstefnusal
A, sunnudaginn 6. nóvember og hef st
kl. 13.30
Illl fj ti
Svavar Sigrún Sigurjón Vilborg
Íi^ f,
Örn Lúðvík Guðmundur Jóhanna
Dagskrá:
1) Setning - Formaður BÍ.
2) Ávarp menntamálaráðherra, Svavars Gests-
sonar.
3) Stutt fframsöguerindi:
a) Sigrún Stefánsdóttir doktor í fjölmiðla-
fræðum: Fjölmiðlanám í Háskóla íslands.
b) Sigurjón Jóhannsson, blaðamaður og kenn-
ari: Fjölmiðlanám í fjölbrautaskólum.
c) Vilborg Harðardóttir, blaðamaður og skóla-
stjóri: Fjölmiðlanám í Tómstundaskólanum.
d) Örn Jóhannsson, formaður FÍP: Viðhorf útgef-
enda.
e) Lúðvík Geirsson, formaður BÍ: Viðhorf Bl.
- Kaffihlé -
4) Pallborðsumræður: Umræður og fyrirspurnir úr sal.
Stjórnandi umræðna: Guðmundur Hermannsson vara-
formaður BÍ.
Fundarstjóri: Jóhanna Harðardóttir stjórnarmaður Bl.
Stefnt er að því að ráðstefnunni Ijúki 17.30-18.00.
Allir félagsmenn og annað áhuga-
fólk um fjölmiðlun og menntamál
er hvatt til að mæta á ráðstefnuna.
Stjórn BÍ
Minning:
Egill Guðjónsson
frá Súgandafírði
Fæddur 11. desember 1917
Dáinn 31. október 1988
Egill Guðjónsson lézt aðfaranótt
mánudags, þ. 31. október sl. í
Landspítalanum, eftir stutta en að
lokum harða sjúkdómslegu. Þar
hneig góður drengur í gras, sann-
kallað valmenni og prúðmenni hið
mesta til orðs og æðis. Við fráfall
hans er nú skarð fyrir skyldi í hin-
um fjölmenna frændgarði hans.
Egill átti til góðra að telja. For-
eldrar hans voru heiðurshjónin Re-
bekka Kristín Guðnadóttir (f. 8.
sept. 1892, d. 14. sept. 1964) og
Guðjón Halldórsson, járn- og vél-
smiður (f. 16. apríl 1882, d. 24.
febr. 1960). Þeim Rebekku og Guð-
jóni varð 6 bama auðið. Elztur var
Egill, sem hér er minnzt. Næstur
var Halldór, sem dó komungur. Hin
eru öll á lífi, en þau em:
Guðríður, gift Halldóri Guð-
bjartssyni, vélstjóra, sem er látinn.
Jóhanna, gift Antoni Nikulássyni,
vélstj., sem er látinn. Guðrún, gift
Agli Kristjánssyni, vélstj. og sjó-
manni. Guðni, rennismiður, kvænt-
ur Sigríði Jónsdóttur.
Þau Rebekka og Guðjón voru
einkar samhent hjón og með af-
brigðum vinsæl í þorpinu. Þar var
oft setinn bekkurinn í húsi þeirra á
fjörukambinum. Þótt húsakynnin
væm lítil var hjartahlýjan því meiri.
Okkur þorpsstrákunum, sem vomm
á sama reki og Egill, fannst oft
gott að skjótast inn í hlýjuiia í
smiðju Guðjóns föður hans, á vet-
uma eftir ærsl og leiki í snjósköfl-
unum, alsnjóugir eins og snjókóng-
ar á að líta. Aldrei var þar amast
við okkur, en glettnin og góðsemin
geislaði af ásjónu Guðjóns, þar sem
hann stóð við aflinn og sló til gló-
andi járnið og gneistaflug í allar
áttir. Nei, hann var nú aldeilis ekki
að amast við okkur maðurinn sá,
alltaf sama ljúfmennið, taldi okkur
aldrei vera í vegi fyrir sér við vinn-
una, hversu annríkt, sem hann átti,
og það jafnvel þótt strákahópurinn
væri oft æðistór, sem fylgdist með
því af forvitni og mikíum áhuga,
sem hann hafði fyrir stafni í smiðju
sinni.
Hið sama gegndi um Rebekku
og mann hennar, hjartahlýja hennar
var mikil í garð okkar leikfélaga
Egils, þótt hún hefði í nógu að snú-
ast og ómegðin mikil á hennar
heimili, gaf hún sér ætíð tíma til
að sinna brekum okkar strákanna
og uppátækjum. Hún var líka syst-
ir hetjunar okkar, Guðna „kónga-
bana“, sem 'felldi og lagði að velli
glímukóngana í „Íslandsglímunni"
1920, eða var það 1921? Ég man
það ekki gjörla. En aldrei þreytt-
umst við strákamir á að heyra sög-
una um það, þegar Guðni lagði sjálf-
an Sigurjón á Álafossi og aðra
glímukappa í þessari frægu glímu.
Eftir að við strákarnir vorum famir
að ganga í bamaskóla þorpsins, var
áhugi okkar á glímu svo mikill um
skeið, að við gengum með glímu-
beltin spennt á okkur frá morgni
til kvölds, tilbúnir í hveijum
frímínútum að heija glímuna. Elzti
bróðir Rebekku var Veturliði, bóndi
í Vatnadal, en hann var um skeið
sameignarmaður afa míns og föður
að litlum vélbáti, „Sigurvoninni",
mikilli happafleytu, var með fyrstu
vélbátunum í Súgandafírði. Systir
Rebekku var Jóna, sem varð
tengdamóðir Kristjáns Ibsens, bróð-
ur míns, þegar hann kvæntist Lilju
dóttur hennar. Yngsti bróðir Re-
bekku var Guðmundur, bátsformað-
ur í Súgandafírði. Oll vom þessi
systkini, 5 að tölu, valmenni og
mikið mannkostafólk. Þau voru inn-
an við tólf ára aldur, þegar þau
misstu föður sinn, Guðna Egilsson,
sem fórst í sjóróðri fyrir aldamótin.
Þetta var mikill örlagadómur og
þungur harmur kveðinn að þeim
og móður þeirra, Guðrúnu Sigurð-
ardóttur, sem stóð ein uppi með
þau, öll í ómegð.
Um Guðjón Halldórsson og nokk-
ur systkina hans segir svo í Súgfírð-
ingabók, m.a.: „Þau komu vestan
frá Hóli í Önundarfírði þijú systkin
á fyrsta tug aldarinnar og settust
að í Súgandafírði, Guðmundur
Ágúst, Guðjón og Júlíana Halldórs-
böm. Þau voru full af andlegum
hæfíleikum og svo listilega hög að
allt lék í höndunum á þeim, sem
þau snertu á. Guðmundur varð
bóndi í Botni, Júlíána vann á heim-
ili hans, en Guðjón varð ólærður
jámsmíðameistari á Suðureyri.
Júlíana var á léttum aldri, þegar
hún fluttist að Botni. Hún var þar
síðan alla tíð, þar til Guðmundur
bróðir hennar fluttist með fjölskyldu
sína til Suðureyrar 1927, en þá fór
Júlíana vestur að Kirkjubóli í
Bjamadal, til Bessabe, systur
sinnar, og lézt þar. Bessabe_ var
móðir hinna kunnu bræðra, Ólafs
____________ ■ 1___________________
Hesta- og jeppakerrur
Framleiðum allar gerðir af kerrum og vögnum.
Burðargeta frá 500 kg - 6 tonna.
Seljum alla hluti í kerrur og vagna.
Áratugareynsla í vagna- og kerrusmíði.
Gerum verðtilboð í alla sérsmíði.
Öryggi og þjónusta. Víkurvagnar,
Laufbrekku 24, Dalbrekkumegin.
Símar 45270 og 72087.
Sýning íbúða
Laugardaginn 5. og sunnudaginn 6. nóvember verða íbúðir í
verkamannabústöðum við Svarthamra 28-36 í Grafarvogi
almenningi til sýnis milli kl. 13 og 19. ,
Stjórn verkamannabústaða í Reykjavík.