Morgunblaðið - 05.11.1988, Side 52
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988 VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
Fyrstu jólasveinarnir komnir
Morgunblaðið/Emilía
Jólasveinamir í Rammagerðinni í Hafnarstræti eru komnir í búðar- | Yngsta kynslóðin flykkist með foreldmm sínum í Hafnarstræti til þess
gluggana. Það er óbrigðult að þeir birtist fyrstu daga nóvember. | að heilsa upp á þá og myndast gjaman umferðaröngþveiti um helgar.
Framkvæmdum fyrir 420
millj. frestað við Blöndu
Bátur fékk
á sig brot
BÁTAR frá Sandgerði og
Keflavík lentu í erfiðleikum vegna
-i ^jrreðurs undir kvöld í gær. Þor-
steinn KE 10 fékk á sig brot út
af Garðskaga. Blotnuðu öll tæki i
stýrishúsi hans og báturinn varð
sambandslaus við land. Engan
mann sakaði. Bátar alit niður í 8
tonn voru á sjó og reru í þokka-
legu veðri og að því er formenn
þeirra töldu góðri veðurspá.
Skipvetjar á Þorsteini gerðu vart
við sig með neyðarblysi. Bátamir
Sandvík GK og Jóhannes Jónsson
KE komu til aðstoðar og fylgdu bátn-
um inn til Keflavikur, þar sem ekki
var fært inn til Sandgerðis.
Smærri bátar lentu einnig í erfið-
leikum, slitu linu og urðu sumir að
skilja eftir ódregið. Bátamir vom
___yestur og norðvestur af Garðskaga.
ísfisksala umfram leyfi:
Óákveðið
hvort menn
verða kærðir
"^„ÞAÐ VAR selt meira magn af
óunnum þorski og ýsu í Bret-
landi í þessari viku en Ieyfilegt
var og það voru nokkrir sem
brutu af sér. Magnið var hins
vegar minna en í fyrstu var tal-
ið,“ sagði Stefán Gunnlaugsson,
deildarsijóri í utanríkisráðuneyt-
inu, í samtali við Morgunblaðið.
„Við reynum að koma í veg fyrir
að slíkt endurtaki sig. Það er ekki
búið að taka ákvörðun um hvort
þessir aðilar verða kærðir og ég
get ekki sagt meira um þetta mál
að sinni," sagði Stefán.
Leyft var í gær að selja 822 tonn
af óunnum þorski og ýsu úr gámum
og 600 tonn úr skipum í Bretlandi
' vikuna 13. til 19. nóvember næst-
komandi. Einnig var leyft að selja
600 tonn af óunnum fiski úr skipum
og 100 tonn úr gámum í Vestur-
Þýskalandi og Frakklandi ofan-
greinda viku, að sögn Stefáns
Gunnlaugssonar.
LANDSVIRKJUN hefiir ákveðið
að draga saman framkvæmdir á
næsta ári um 540 milljónir króna,
fyrir tilmæli ríkisstjórnarinnar.
Langstærstur hluti þessa sam-
dráttar er í framkvæmdum við
Blönduvirkjun, en í byggingu
hennar fara 908 milljónir króna
á næsta ári í stað 1.328 milljóna
eins og Landsvirkjun hafði
áformað. Ekki stendur þó til að
fresta gangsetningu virkjunar-
innar, að sögn Halldórs Jónatans-
sonar, forstjóra Landsvirkjunar,
en auka þess í stað framkvæmd-
ir á árinu 1990.
Alls verða veittar 1.420 milljónir
króna til framkvæmda á vegum
Landsvirkjunar á næsta ári, en í
framkvæmdaáætlunum Landsvirkj-
unar var gert ráð fyrir að sú upp-
hæð yrði 1.960 milljónir. Halldór
sagði að framkvæmdum yrði annað-
hvort dreift yfir lengri tíma eða
frestað fram til 1990 vegna þessa.
Enn væri þó stefnt að verklokum
árið 1991. Það yrði hins vegar
kostnaðarsamara fyrir Landsvirkj-
un að hliðra til framkvæmdum á
þennan hátt, vegna mannþurftar
og stærri vinnubúða. Allar slíkar
sveiflur væru óheppilegar.
Fyrir utan Blöndu verður fram-
kvæmdum fyrir 120 milljónir króna
frestað, en þar er um að ræða að
bora eina 60 milljóna króna holu
við Kröflu og framkvæmdir við
vörugeymslu og aðveitustöðvar við
stjórnstöðina á Geithálsi. Hins veg-
ar verður áfram unnið við byggingu
nýrrar stjórnstöðvar í Öskjuhlíð,
sem á að komast í gagnið í septem-
ber á næsta ári. Hún er nú fok-
held, en það mun kosta um 227
milljónir króna að ljúka við hana
og kaupa háþróaðan tölvubúnað,
en núverandi stjórnstöð á Geithálsi
er orðin of lítil og gömul til að
anna sínu hlutverki eins og sannað-
ist þegar rafmagnið fór af sunnu-
daginn 16. október, sagði Halldór.
Þá er fyrirhugað að ljúka við að-
veitustöðvar við Hamranes í Hafn-
arfirði og Búrfell.
Fjármagna á framkvæmdir
Landsvirkjunar á næsta ári með
erlendu láni að upphæð einn millj-
arður króna, en að öðru leyti með
innlendum lánum og fé af rekstri
fyrirtækisins. Halldór sagði að eftir
væri að sjá hversu raunhæfir þessir
möguleikar væru, því ef Landsvirkj-
un tekur lán innanlands á næsta
ári yrði það í fyrsta sinn í sögu
fyrirtækisins.
Akureyri: ‘
Varð fyrir bíl
og kastaðist
gegnum rúðu
EKIÐ var á gangandi vegfar-
anda á bílastæði við Byggingar-
vöruverslun KEA um sexleytið í
gær. Maðurinn fótbrotnaði og
mun hafa skorist eitthvað á
höfði.
Slysið vildi þannig til að maður-
inn hugðist setjast inn í bíl, sem
stóð kyrr á bílastæðinu. Ökumaður-
inn tók hins vegar af stað í þann
mund er maðurinn ætlaði að setjast
inn í bílinn. Maðurinn kastaðist á
rúðu verslunarinnar með þeim af-
leiðingum að hún brotnaði og hann
féll hálfur inn um hana. Um leið
þrengdi bíllinn að fæti hans og
braut hann og einnig skarst n)áður-
inn á höfði við rúðubrotið.
Lítil flugvél villtist iy
Leiðbeint til lendingar á Rifí
LÍTIL einshreyfils flugvél frá
Bandaríkjunum villtist af leið
vestur af landinu í fyrrinótt.
Flugmaðurinn var á leið til
Reykjavíkur, en fannst loks yfir
Snæfellsnesi. Flugvél Flugmála-
stjórnar beindi vélinni til lend-
ingar á Rifi.
Talið er að rafmagnsleysi hafi
valdið því að vélin hvarf af ratsjá
flugstjórnar í Reykjavík þar sem
slokknaði á ratsjársvara hennar.
Þegar flugtuminn á Reykjavíkur-
flugvelli hafði ekki heyrt frá vél-
inni á tilsettum tíma var leitað til
flugstjómarinnar í Keflavík um
aðstoð og sást vélin á ratsjánni
Keflavík.
Síðar náðist samband við vélina
á neyðarbylgju og hafði hana þá
þegar borið mikið af leið. Leiðsögu-
tækin voru óvirk og leiðbeiningar
flugstjórnarmanna í Reykjavík
virtust falla í grýttan jarðveg hjá
flugmanninum, sem áfram hélt
kolrangri stefnu. Flugvél Flug-
málastjómar var þá send til móts
við hann og fann vélina með að-
stoð ratsjárinnar í Keflavík.
Flugvélinni var flogið til
Reykjavíkur í gærmorgun.
Flugmenn Flugmálastjórnar
voru þeir Ingvar Valdimarsson
(t.v.) og Snæbjörn Guðjónsson.