Morgunblaðið - 09.11.1988, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1988
Ný aðferð við með-
ferð á beinbrotum
Naglar sem leysast upp í líkamanum
Á Borgarspítalanum var i gær
framkvæmd fyrsta aðgerðin hér-
lendis þar sem notaðir eru naglar
sem leysast upp í líkamanum, til
að halda saman beinbrotum.
Þessi aðferð er fínnsk að upp-
runa og hafa farið fram rann-
sóknir í fímm ár, en naglarnir
eru nýlega komnir á almennan
markað.
Að sögn Gunnars Þórs Jónsson-
ar, bæklunarskurðlæknis, sem
framkvæmdi aðgerðina eru nagl-
amir gerðir úr polyglyconsýru, sem
framleidd er á þann hátt að efnið
verður mjög sterkt og þolir mikinn
hliðarþrýsting. Þetta er sama efni
og notað er í innri sauma og sagði
Gunnar langa reynslu fyrir því að
efnið hefði ekki hliðarverkanir,
enda leystist það upp í lífræn efni.
Naglamir héldu hörku sinni í 6 til
8 vikur og styttu í vissum tilvikum
þann tíma sem sjúlingurinn þyrfti
að vera í gifsi eða öðrum umbúðum.
VEÐUR
Gunnar sagði hérlenda lækna
hafa fylgst með tilraunum
Finnanna undanfarin ár en engin
reynsla væri komin á notkun nagl-
anna hér. Sér virtist mestur ávinn-
ingur að þvi að nota þessa aðferð
við brot inni í liðum og vaxtarlínu-
brot,' og helsti kosturinn væri sá
að ekki þyrfti aðra aðgerð til að
Ijarlægja naglann, sem sparaði
bæði sjúkrahúslegu og vinnutap,
en það væri ókostur hve efnið væri
dýrt ennþá.
Aðgerðin í gærmorgun fólst í
réttingu á stórutá, en þá er beinið
tekið í sundur til að rétta skekkj-
una. Hingað til hafa ýmist verið
settir í beinið pinnar, sem þarf að
ijarlægja seinna eða beinið hefur
verið saumað saman í gegnum bor-
göt. Viðstaddur aðgerðina í gær-
morgun var danskur læknir, Allan
Peters, sem vinnur að kynningu á
nöglunum.
Rannsóknaskip Atlantshafsbandalagsins, Alliance, við bryggju á Eskifirði.
Morgunblaðið/Ingólfur Friðgeireson
AUiance komið til Eskifjarðar
Eskifirði.
Hafrannsóknaskipið Alliance,
sem er í eigu Atlantshafsbanda-
lagsins, kom til EskiQarðar á
mánudagskvöld. Sem kunnugt er
hafði verið sótt um leyfí fyrir
skipið að koma tii Neskaupstaðar
en hafharyfirvöld þar neituðu
I DAGkl. 12.00:
// / / /////// / /
Heimild: Veðurstofa íslands
i srveðurspá kl. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 9. NOVEMBER
YFIRLIT ( GÆR: Milli Vestfjarða og austurstrandar Grænlands er
974 mb lægð sem þokast norðaustur en 1032ja mb hæð yfir
Skandinavíu. Um 600 fm suðsuðaustur af Hvarfi er 992ja mb lægð
sem þokast austnorðaustur. Veður mun aðeins kólna í bili en tek-
ur aftur að hlýna þegar líður á nóttina.
SPÁ: Vaxandi suðaustanótt og hlýnandi veður. Um sunnan- og
vestanvert landið verður orðið allhvasst og farið að rigna síðdegis
og þykknar upp norðaustanlands og austan.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FIMMTUDAG: Allhvöss suðaustanátt, einkum vestan-
og sunnanlands. Rigning um mest allt land, þó minnst vestan-
lands. Hiti 7—9 stig.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Breytileg átt og skýjað en úrkomulítið.
Kólnandi veður. Hiti 1—3 stig.
x. Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
1 o Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V E'
= Þoka
= Þokumóða
Súld
> ■>
•>
OO Mistur
—Skalrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma htti veður Akureyri 4 léttskýjað Reykjavík 3 úrk. í gr.
Bergen 8 alskýjað
Helsinki +3 heiðskírt
Kaupmannah. 2 léttskýjað
Narssarssuaq +9 iéttskýjað
Nuuk +8 hálfskýjað
Osló 1 skýjað
Stokkhólmur 0 iéttskýjað
Þórshöfn 10 rigning
Algarve 20 þrumur
Amsterdam 9 mistur
Barcelona 16 skúr
Chlcago 1 heiðskfrt
Feneyjar 10 þokumóða
Frankfurt 8 léttskýjað
Glasgow 7 mistur
Hamborg 8 Jéttskýjað
Las Palmas vantar
London 7 þokumóða
Los Angeles 14 léttskýjað .
Luxemborg 7 léttskýjað
Madrid 15 súld
Malaga 19 alskýjað
Mallorca 22 háffskýjað
Montreal 6 skýjað
New York 8 léttskýjað
Þarls S þokumóða
Róm 14 þokumóða
San Diego 16 alskýjað
Wlnnipeg 1 alskýjað
skipinu um viðlegupláss þar sem
að skipið væri í eigu hernaðar-
bandalags.
Alliance, sem er 3.180 brúttótonn
að stærð og 93 m langt, er með
27 manna áhöfn auk þess að um
borð starfa 20 vísindamenn. Skipið
er smíðað á Ítalíu 1988 og siglir
undir vestur-þýskum fána. Hins
vegar er það í eigu allra ríkja Atl-
antshafsbandalagsins og mun vera
eina skipið í sameign bandalags-
ríkjanna.
Skipið er gert út af neðansjávar-
rannsóknastöð Atlantshafsbanda-
lagsins sem staðsett er í La Spezia
á Italíu. Hlutverk þeirrar stofnunar
er að veita Atlantshafsbandalaginu
vísindalega og tæknilega ráðgjöf
varðandi leit og staðsetningu kaf-
báta neðansjávar. Ástæðan fyrir
komu Alliance til Eskiíjarðar mun
vera áhafnaskipti, auk þess sem
skipið tekur olíu og vistir og unnið
er að viðgerðum um borð.
Áætlað er að skipið fari aftur frá
Eskifírði á morgun, fímmtudag.
- Ingólfur
Útsýnishús í Öskjuhlíð:
Sjö tilboð bárust í
gerð snúningsgóife
LÖGÐ hafa verið fram í borgar-
ráði sjö tilboð í gerð snúnings-
gólfe fyrir væntanlegt útsýnis-
hús á geymum Hitaveitu
Reykjavíkur í Öskjuhlíð.
Lægsta tilboð á Hagvirki og
Garðasmiðjan, 15,9 milljónir króna
en í tilboðinu er ekki tekið fram
hvort söluskattur er innifalinn í
verðinu og tilboðið þvi óljóst að
mati Fjarhitunar hf. Tilboðsverð
Norska fyrirtækisins Selmer Furu-
holmen er 14,6 milljónir en heild-
arkostnaður með söluskatti og
uppsetningu 18,3 milljónir.
V-Þýska fyrirtækið MAN GHH
býður 14,3 milljónir en heildar-
kostnaður er 19 milljónir. Guðjón
Jónsson ásamt V-Þýska fyrirtæk-
inu Stader Constructions býður
32,9 milljónir en heildarkostnaður
er 42,2 milljónir. Elding Trading
Co. ásamt bandaríska fyrirtækinu
Peter Albrecht Co. býður 13,5
milljónir fob., en heildarkostnaður
er 21,3 milljónir.
Héðinn hf. ásamt austurrríska
fyrirtækinu Waager Biró býður
17,8 milljónir fob., en heildar-
kostnaður er 26,6 milljónir og
Páll Jónsson ásamt bandaríska
fyrirtækinu Macton býður 12,7
milljónir cif., en heildarkostnaður
er 18,6 milljónir.
\
Gunnar H. Kristinsson hita-
veitustjóri vísar til samanburðar
og umsagnar ráðgjafa hitavei-
tunnar og leggur til samið verði
við Pál Jónsson og Macton. Málinu
var vísað til umfjöllunar í borgar-
stjóm.
Endurskoðun starfs-
hátta Sjálfetæðisflokks
MIÐSTJÓRN Sjálfetæðisflokks-
ins hefur samþykkt að heQa
undirbúning að nýju starfs-
skipulagi á skrifetofii flokksins
og endurskoðUn starfshátta
hans.
Guðmundur Magnússon, fyrr-
verandi aðstoðarmaður mennta-
málaráðherra, hefur verið ráðinn
til að sinna þessu yerkefni og öðr-
um verkefnum. Guðmundur, sem
er 32 ára að aldri, lauk BA-prófi
í sagnfræði og heimspeki frá Há-
skóla íslands árið 1980 og M.Sc.-
prófi í rökfræði og vísindalegri
aðferðafræði frá London School
of Economics árið 1982. Hann var
blaðamaður á Tímanum 1982—
1983 og á Morgunblaðinu frá 1984
til 1988, er hann réðst til starfa
í menntamálaráðuneytinu sem að-
stoðarmaður ráðherra.
(Fréttatilkynnlng)
Guðmundur Magnússon