Morgunblaðið - 09.11.1988, Síða 36

Morgunblaðið - 09.11.1988, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1988 Minning Magnús Loftsson Fæddur 15. júlí 1908 Dáinn 31. október 1988 Hann Magnús tengdafaðir minn og vinur er látinn. STutt er á milli lífs og dauða, aðeins eitt andartak. Ekki datt mér í hug, þegar ég tal- aði við hann í síma um kvöldmatar- leytið þann 31. október að það yrði síðasta samtalið okkar, en þremur tímum síðar var hann látinn, svo snöggt og öllum að óvörum, þrátt fyrir að hann hafði náð því að verða áttræður nú í sumar. Magnús var alltaf svo kátur og léttur í lund og jákvæður fyrir öllu sem í kringum hann var, þannig að maður tók tæpast eftir því að hann var vissu- lega farinn að eldast. Magnús Loftsson hét hann fullu nafni og var fæddur í Haukholtum í Hrunamannahreppi þann.15. júlí 1908. Hann var yngstur fímm systkina. Magnús var sonur hjón- anna Kristínar Magnúsdóttur og Lofts Þorsteinssonar. Hann hóf snemma bifreiðaakstur og gerði þá atvinnu að ævistarfi sínu. Árið 1939 kvæntist hann Jónínu S. Ásbjömsdóttur frá Sólheimum í Sandgerði, en Jónína átti þá litla dóttur, Guðrúnu, sem ólst upp hjá þeim, en hún var gift Snorra Jóns- syni _sem lést árið 1979. Magnús og Jóna eignuðust sex böm, en þau eru, Kristinn sem kvæntur er Hjördísi Árnadóttur, Guðmar sem kvæntur er Rögnu Bjamadóttur, Sigurbjörg sem gift er Vilhjálmi Einarssyni, Ragnar kvæntur Guð- björgu Guðmundsdóttur, Loftur kvæntur Erlu Sigurðardóttur og yngstur er Ástráður sem kvæntur er Jonínu Hallgrímsdóttur. Bama- bömin em nú orðin 29 og bama- bamabömin alls 14. Magnús var hamingjusamur maður og honum þótti mjög vænt um Jónu sína og bömin og gerði allt sem hann gat til að þeim gæti liðið sem best. Síðari árin sín átti Jóna við mikla vanheilsu að stríða, og kom þá best í ljós hvað hann unni henni mikið. Þá var til þess tekið hvað hann var vakandi yfír því að henni liði sem best. Jóna lést þann 7. október 1983. Eg minnist ætíð þeirrar stundar þegar ég kom ung stúlka fyrst í Holtagerðið og hitti Magnús fyrsta sinni, en þá var Jona á sjúkrahúsi. Ég gleymi seint hlýja brosinu og þétta handtakinu þegar hann bauð mig velkonma og bað mig að ganga í bæinn. Alltaf síðan fann ég sömu hlýjuna þegar ég hitti hann. Oft sat hann í eldhúskróknum hjá mér og þá ræddum við um gömlu dagana og riljaði hann þá gjaman upp, þegar hann var ungur maður. Það var sérlega gaman að heyra hann segja frá og maður skynjaði það að margt hafði hann reynt um dag- ana þó aldrei heyrðist hann kvarta. Gleði bamabamanna var alltaf mik- il þegar afí kom í heimsókn, hann gaf þeim svo mikið af sjálfum sér og átti svo auðvelt með að breyta leiða í kæti ef eitthvað stóð illa á. Magnús var einstaklega hjálp- samur öllum þeim sem hann hafði samskipti við. Hans lífsfylling var einfaldlega í því fólgin að sinna öðmm á undan sjálfum sér. Hann var svo sannarlega sáttur við allt og alla og gladdist mjög yfír vel- gengni bama sinna og bamabama og talaði oft um það. Eftir að Jona lést flutti hann úr Holtagerðinu, þar sem þau höfðu búið frá árinu 1957, og keypti sér íbúð í Hamraborg 32. Þar líkaði honum vel að vera. Hann blandaði geði við fólk og sóttist eftir félags- skap þess, kynntist nýjum vinum og ég veit að hann var hrókur alls fagnaðar í kunningjahópnum eins og hvar sem hann fór. Magnús sóttist ekki eftir verald- t Dóttir mín, ANNA RAGNHILDUR VIÐARSDÓTTIR, óftur tll helmilis íHraunbæ 20, Reykiavlk, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 10. nóvember nk. kl. 10.30 f.h. Fyrir hönd sonar og annarra vandamanna, Vlftar Jónsson. t Systir okkar, ÁSGERÐUR ANDRÉSDÓTTIR, Framnesvegi 42, andaðist mánudaginn 7. nóvember. Jensfna Andrósdóttir, Fanney Andrósdóttir, Sigrfftur Andrésdóttir. t Móðir okkar og amma, SIGURBJÖRG MARTEINSDÓTTIR fró Fóskrúðsfirftl, til heimlllsó Laugarnesvegi 108, verður jarösungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 10. nóvember kl. 15.00. Rósa Sigursteinsdóttir, Marteinn Sigursteinsson, Gerfta Sigursteinsdóttir, Jóna Sigursteinsdóttir, Guftrún Sigursteinsdóttir, Elfsa Sigursteinsdóttlr, Sigursteinn Tómasson og barnabörn. Jón Friðsteinsson, Kristfn Kristinsdóttir, Guðmundur Bachmann, Reynir Hauksson, Björn Haukur Pólsson, Stefón Kjartansson, t Systir okkar, ÁSTRÓS JÓNSDÓTTIR, Krokvelen 12, 1652Torp, Norge, lést í sjúkrahúsi í Frederikstad þann 7. nóvember. Systkini og aftrir aðstandendur. legum gæðum, en útdeildi þess í stað andlegum auði og var sannur vinur vina sinna. Oft var lífsbarátt- an sjálfsagt hörð og vinnutíminn langur, en ekki taldi hann það eftir sér, þar sem um heill og hamingju flölskyldunnar var að ræða og marga munna að fæða. Einn var sá eðlisþáttur sem var mjög ríkur hjá Magnúsi, en það var að verða aldrei neinum til óþæginda og að enginn þyrfti að breyta útaf áður ætluðum áformum sínum hans vegna. Ef til vill lýsir það honum best að þessu leyti, að þegar hann var borinn f sjúkrabörum, helsjúkur út af heimili sínu hinsta sinni, bað hann um að veskið sitt yrði með til að greiða aksturinn með sjúkrabfln- um. Þannig var Magnús. Hann var alltaf af reyna að gæta þess að aðrir yrðu ekki fyrir óþægindum hans vegna. Það er mikil gæfa hveijum manni að fá að kynnast eins hlýjum og góðum manni og Magnús var. Við sem þess fengum að njóta eigum svo margar og góðar minningar sem munu ylja okkur um ókomin ár. Ég kveð tengdaföður minn með söknuði og virðingu og bið góðan Guð að varðveita hann og blessa. Hann átti virðingu allra sem kynnt- ust honum. Björt minning um góðan mann mun eiga eftir að lýsa okkur og ylja um ókomin ár. Þökk fyrir allt og allt. Guðbjörg Nú þegar elsku tengdafaðir minn er kvaddur hinstu kveðju langar mig að minnast hans með fáeinum orðum. Magnús fæddist þann 15. júlí 1908 að Haukholtum í Hruna- mannahreppi. Foreldrar hans voru Loftur Þorsteinsson, bóndi í Hauk- holtum, og kona hans, Kristín Magnúsdóttir. Böm þeirra hjóna urðu fímm: Magnús eldri, Þóra, Þorsteinn, Guðrún og Magnús jmgri, sem nú er kvaddur. Á lífi eru Þorsteinn og Guðrún. Maggi, eins og hann var kallaður af sínum nán- ustu, ólst upp í góðum foreldrahús- um í faðmi fagurrar sveitar, með fossinn tignarlega, Gullfoss í ná- lægð og Brúarhlöðin í næsta ná- Minning: RagnhildurS. Maríus- dóttir tækniteiknari fyrir 4-5 árum þar sem við vorum nokkrir íslendingar við nám og störf. Vegna fámennis okkar tengd- umst við_ mjög sterkum vináttu- böndum. í hópnum hljómaði hlátur Röggu ógleymanlega og hún smit- aði út frá sér með glaðværð sinni og jákvæðu hugarfari. Nálægt henni var ávallt stutt i brosið, þó stundum kæmi það í gegnum tárin. Það var gott að hafa Röggu sér við hlið, hún auðgaði okkur með nær- veru sinni og við stöndum eftir full aðdáunar yfír hugrekki hennar. Elsku Nonni og Steinunn litla, missir ykkar er mikill og fátækleg orð megna lítils, en minningin um elskulega eiginkonu, móður sem dáði og elskaði litla sólargeislann sinn og góða vinkonu lifír. Við vott- um ykkur og fjölskyldum ykkar okkar dýpstu samúð. Vinir frá Sönderborg Hún Ragga okkar er horfín til landsins helga. Það er svo erfitt að skilja að hún, þessi elskulega mág- kona og systir, sem var svo hlýleg, lífsglöð og átti svo mikinn lífskraft, að af henni geislaði, skyldi ekki auðnast að fá að vinna þá baráttu sem hún háði svo hart síðastliðin tvö ár, af svo miklum kjarki og jafnaðargeði að það var mann- bætandi hveijum sem fylgdist með þeirri baráttu. Þegar vágesturinn knúði dyra hjá þessum. ungu hjón- um, sem þá voru bæði við nám er- iendis, og þótt að oft væri sem svört ský væru breidd yfír tilveru þeirra, var kjarkurinn og vonin ávallt í fyrirrúmi, sem fékk okkur hin sem háum kapphlaup veraldlegra Fædd 27. nóvember 1960 Dáin 2. nóvember 1988 Kallið er komið komin er nú stundin, vinaskilnaður viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðata blund. (V. Briem) Hjartað fyllist tómleika — auðn, þegar við fréttum af andláti Ragn- hildar Steinunnar Maríusdóttur. Hversu kaldar geta staðreyndimar verið — eins og ís. En um leið koma minningamar fram í hugann og hjartað fyllist þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast Röggu. Við kynntumst á erlendri grund Kransar, krossar og kistuskreytingar. Sendum tun allt iand. GLÆSIBLÓMIÐ GLÆSIBÆ, ÁKheimum 74. sími 84200 grenni. Ungur að árum hóf hann bifreiðaakstur og fékk sérleyfi til fólksflutninga frá Reykjavík í Grímsnes og Biskupstungur, þannig varð hann einn af brautryðjendum fólksflutninga hér á landi og minn- ast margir hans enn frá þeim dög- um. Frá árinu 1947 stundaði hann leigubflaakstur í Reykjavík, lengst af á Hreyfli. Þann 21. maí 1939 gekk hann að eiga mikla mann- kostakonu, Jónínu Ásbjömsdóttur frá Sólheimum í Sandgerði. Þau stofnuðu heimili sitt í Reykjavík, en fluttu í Kópavog árið 1957 og bjuggu þar æ síðan. Þau eignuðust 6 böm, en fyrir átti Jóna dótturina Guðrúnu, sem varð fósturdóttir Magga. Maður hennar var Snorri Jónsson, sem lést árið 1979. Börn tengdaforeldra minna eru: Kristinn, kvæntur Hjördísi Ámadóttur, Guðmar, kvæntur Rögnu Bjama- dóttur, Sigurbjörg, gift Vilhjálmi Einarssyni, Ragnar Snorri, kvæntur Guðbjörgu Guðmundsdóttur, Loft- ur, kvæntur Erlu Sigurðardóttur, og Ástráður, kvæntur Jónínu Hall- grímsdóttur. Jóna og Maggi bjuggu bömum sínum gott og ástríkt heimili. Vinnudagurinn varð oft langur, allt skyldi gert til að skapa sem best afkomuskilyrði, og þegar tengda- böm og bamaböm bættust í fjöl- skylduna fengu þau sinn skerf af góðvild þeirra, eins og svo margir aðrir. Jóna lést fyrir fímm ámm eftir langvarandi veikindi. Nú em þau bæði horfín á braut. Ástvina- og afkomendahópurinn stóri minn- ist þeirra með virðingu og þakk- læti. Tengdafaðir minn var orðinn aldraður maður. Hann hafði lifað miklar breytingar, eins og aðrir þeir sem fæddust snemma á öld- inni. Hann lifði farsælu lífi, vel lið- inn af öllum og kvaddi sáttur við Guð og menn. Blessuð sé minning Magnúsar Loftssonar frá Haukholtum. Ragna Bjarnadóttir Hann afí minn er dáinn. Oft fljúga mönnum í hug ljóð- mæli þegar þeir heyra lát náins ástvinar. Mín fyrsta hugsun var hins vegar kortið, íslandskortið sem ég var búin að ákveða að gefa hon- um í jólagjöf. Það er svo stutt síðan við sátum í eldhúsinu hans afa og skemmtum okkur yfír rifna landa- kortinu hans frá 1963, veltum vöng- um yfír öllum þeim stöðum sem Vegagerðin hefur numið land síðan þá og ferðuðumst um landið með fíngrunum. Og nú er hann afi kom- inn yfír í aðra vídd, kominn þangað sem hann þarf ekkert kort. Við sama tækifæri spjölluðum við líka lengi um eilífðarmálin og það líf sem við vorum bæði sann- færð um að tæki við eftir dauðann. Ekki grunaði mig þá að hann myndi kanna þá geima innan svo skamms tíma. Þegar. ég hugsa um þetta samtal okkar fyllist ég vissu um það að dauðinn hafí ekki alveg kom- ið afa að óvörum. Dauðinn á sér margar hliðar og ekki allar dökkar. Þeim sem fetað hefur langan veg lífs á jörðu getur dauðinn verið kærkomin hvíld. Dauðans hlið er einnig hlið endur- fundanna við horfna ástvini og sú er líkn hans að tengja þá aftur sam- an sem hann skildi sundur í jarðlíf- inu. Hann afí minn er horfínn til framandi heima og fetar nú aðra stigu og bjartari. Góður Guð blessi hann og gefí honum frið. Sárt mun- um við sem eftir sitjum sakna hans en berum í hjarta okkar minninguna — minningu um góðan mann. Sigríður Guðmarsdóttir vandamála, til að drúpa höfði í auð- mýkt og skilja hve léttvæg þau eru. Ragnhildur var fædd óg uppalin í Keflavík. Foreldrar hennar eru Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Maríus Siguijónsson, hún var fjórða bam þeirra af fímm sem eru Drífa, Siguijón, Guðni Jóhann og Jón Þór, og er hennar sárt saknað af foreldmm og systkinum. Ragga hitti sinn ævifélaga sinn og giftist komung Jón Þór Harðar- syni. Það fór ekki framhjá' okkur að hann var hennar stóra ást og vinur í lífinu, sem studdi hana í gegnum þau erfíðu veikindi sem hún háði. Árið 1981 fæddist þeim lítill sól- argeisli, dóttirin Ragnhildur Stein- unn, sem sannarlega er ekki bara sólargeisli pabba síns, heldur alls- staðar sem hún kemur. Það er svo margt sem kemur í hugann þegar kveðja skal þessa hugprúðu ungu konu, að orða verð- ur vant. Megi Guð styrkja þig og leiða Nonni minn á þessum erfíðu stund- um lífs þíns, og fjölskylduna alla. Sigtryggur og Hjördís

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.