Morgunblaðið - 09.11.1988, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1988
fclk f
fréttum
NANCY REAGAN
Forsetafrú
í lánsflíkum
Nancy Reagan, forsetafrú Bandarílq'anna
hefur síðustu sjö ár fengið „lánuð" föt
að verðmæti 70 milljónir ísl. króna, eins og
skýrt hefur verið frá hér í blaðinu áður. Það
hefur lengi verið vitað að forsetafrúin hafi
dýran smekk og hafa landar hennar ætíð verið
stoltir yfir hve glæsilega hún klæðist. En það
er annað hljóð í mörgum eftir að ljóst varð að
deila má um eignarréttinn á fatnaðinum.
Mörgum framleiðendum þykir mikið til þess
koma að forsetafrúin gangi í kjólum frá þeim
eða noti skartgripi þeirra. Finnst þeim það í
sjálfu sér lítill fómarkostnaður, þótt frúin skili
flíkunum ekki aftur. En eftir að það komst í
hámæli, að forsetafrúin eignaði sér lánsflíkur
hafa menn velt fyrir sér ýmsum hliðum þess
máls, svo sem skattahliðinni. Þannig kann frú-
in að hafa fengið að láni kjóla og skartgripi
fyrir allt að 10 milljónum króna á ári. Til saman-
burðar má nefna að Reagan, bóndi henhar,
hefur tæpar níu milljónir í árslaun.
Ef litið er á þetta sem gjafir til forsetafrúar-
innar ætti hún að hafa gefið þær upp til skatts.
Þetta hefur ekki verið gert og telja sumir, að
það kunni að koma Reagan-hjónunum í koll
eftir að þau taka að njóta elliáranna íjarri
Hvfta húsinu.
Sagt er að Nancy Reagan fái „lánuð“ föt
fyrir milljónir króna ár hvert.
Placido Domingo í Mexíkó
Sumar stjömur eru jú stærri en um sjónvarpsskermi og fyrir neðan píramídana. Yfir 20.000 manns
aðrar. Spænski söngvarinn hann má sjá hljómsveitina og kórinn hlýddu á tónleikana sem voru í lok
Placido Domingo sést hér á risastór- á tónleikum í borg fomu Azteka- október.
Jagger í Indónesíu
Rokksöngvarinn Mick Jagger, átrúnaðargoð margra víða um heim, er
þessa dagana á hljómleikaferðalagi um Asíu, Astralíu og Nýja Sjá-
land. A mypdinni má sjá söngvarann í essinu sínu í Jakarta höfiiðborg
Indónesíu. Áhorfendur tóku honum fagnandi en um 25.000 manns hlýddu
á Jagger.
CHER
Leikkonan
Cher sást
nýlega laumast
inn á stofu til
fegrunarlækn-
isins Harrys
Glassmanns (eiginmanns Vikt-
oríu Principal) en hann oft
kenndur við þá Dr. Jekyll og
Hyde. Eitthvert smáræði
átti hann að finslípa af kropp
hennar.
Heyrst hefiir að mikill daga-
munur sé á handbragði Glass-
manns, suma daga takist honum
vel upp en aðra verði hann að
svara til saka fyrir að hafa af-
myndað viðskiptavini sina. Ekki
fékk hann það verkefiii að slípa
Cher; hún sást daginn eftir hjá
öðrum lækni i sömu grein, svo
það er aldrei að vita nema hún
hafí mætt einu fórnarlambi
Glassmans á biðstofúnni og áUtið
það vænlegri kost að leita annað.
JACKSON
Hver veit
nema Mic-
hael Jackson,
poppsöngvari,
verði í framtí-
ðinni uppnefndur Grétar Garbo.
Heyrst hefúr að þrátt fyrir ung-
an aldur sé gulldrengurinn orð-
inn þreyttur á frægðinni.
Hann hefúr víst sagt vinum
sinum að hann ætU að draga sig
í hlé, eins og Gréta Garbo gerði
á sinum tíma. Einnig segja heim-
ildarmenn að hann sé órólegur
vegna þess að faðir hans ætU að
skrifa bók um líf Michaels.
COSPER
- Að Brennerskarði? Keyrið þið bara beint áfram.