Morgunblaðið - 09.11.1988, Side 45
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR MIÐVIKIIDAGUR 9. NÓVEMBER 1988
45
KORFUKNATTLEIKUR / ISLANDSMOTIÐ
Morgunblaðiö/Einar Falur
Ekki ég!
Þorvaldur Geirsson og ísak Tómasson eigast hér við í leik Vals og Njarðvikur í gær. Hvorugur þeirra vill þó kannast við
að hafa komið við boltann sem virðist á leið í fangið á saklausum ljósmyndaranum.
TeKurlórá kostum
Ekki kæmi á óvart að liðið ynni
Vesturdeildina í vetur. Magic Jo-
hnson og félagar gætu þó haft aðr-
ar hugmyndir!
Denver Nuggets
Hinn skemmtilegi Doug Moe er
að hefja sitt níunda ár sem þjálfari
Nuggets. Láðið vann riðilinn á
siðasta keppnistímabili, en í úrslita-
keppninni settu meiðsl lykilmanna
strik í reikninginn. Liðið spilar hrað-
ann og skemmtilegan körfuknatt-
leik og virkar sterkt á pappímum.
Walter Davis er kominn frá Phoen-
ix og mun hann styrkja liðið, en
eini veikleikinn er í stöðu miðvarð-
ar, þar sem vöðvafjallið Danny
Schayes ræður ríkjum. Nuggets
munu veita Dallas harða keppni í
vetur.
UtahJazz
Utah kom á óvart í úrslitakeppn-
inni gegn Los Angeles Lakers í vor
og vantaði aðeins herslumuninn að
slá Lakers út. Frank Layden (Einar
Bollason NBA-deildarinnar!) hefur
byggt upp sterkt fímm manna lið,
með John Stockton, mark Eaton
og Karl Malone sem aðalmenn. Jazz
(nafnið er alltaf jafn hlægilegt!)
skortir þó tilfínnanlega breydd og
bekkurinn er alls ekki nægilega
sterkur, sem kom liðinu í koll f erfíð-
um leilq'um gegn Lakers í vor. Ef
liðið fær annað tækifæri gegn La-
kers næsta vor gæti alit gerst, því
Utah gengur ávailt vel gegn Lakers.
Houston Rockets
•i
Famir eru Bili Fitch þjálfari, Joe
Barry Carroll og Ralp Sampson á
einu ári. Eftir erfíðleika í samskipt-
um þjálfara og leikmanna, einkum
milli Fitch og Akeem Olajuwon, er
andrúmsloftið hjá Rockets nú allt
annað og betra. Don Chaney er fær
þjálfari og honum og Olajuwon
semur vel. Olajuwon er langbesti
miðvörðurinn í deildinni og Chaney
hefur lýst því yfír að spil liðsins
muni veða aðlagað hæfíleikum
Olajuwon meir en áður. Segja má
að lið Houston sé til alls líklegt í
vetur og ekki ólfklegt að batnandi
andrúmsloft skili sér í betri árangri
en á sl. keppnistímabili.
San Antonio Spurs
Síðustu fréttir benda til að nokkr-
ar sviptingar séu í kringum mið-
varðarstöðuna hjá Spurs, en þar
spila einmitt Pétur Guðmundsson.
A sl. keppnistfmabili spilaði Frank
Brickowski mest í þeirri stöðu og
Pétur mátti verma varamannabekk-
inn mest allt tímabiiið. Brickowski
er með lausan samning við Spurs
og hefur neitað nýju tilboði liðsins.
Taiað er um að hann fari e.t.v. til
Evrópu í vetur. í sl. viku keypti lið-
ið hinsvegar Mike Smrek frá Los
Angeles Lakers, en Smrek er þriðji
miðvörðurinn sem kemur frá Lakers
á tveimur árum og mun hann
eflaust keppa við Pétur um afleys-
ingarstöðu f stöðu miðvarðar. Ef
Brickowski semur við Spurs, er
ekki óiíklegt að Pétur verði að fara
annað ef hann ætlar að spila eitt-
hvað í vetur. Líklegt er að Greg
„Cadillac" Anderson verði aðalmið-
vörður liðsins þvi David Robinson
fær ekki leyfi frá sjóhemum fyrr
en næsta sumar. Vonandi fær Pétur
þó tækifæri á að sýna hvað í honum
býr nú í upphafi keppnistímabilsins.
Nýji þjálfarinn, Larry Brown frá
Kansas-háskóla, á erfítt starf fyrir
höndum með liðið án Robinson, en
ekki er útiiokað að Spurs skríði inn
í úrslitakeppnina í vor.
MiamlHoat
Það sama á við um Miami og
Charlotte, áhangendur liðsins ættu
ekki að búast við neinu kraftaverki
af þessu nýja liði. forráðamenn liðs-
ins hafa safnað saman mikið af
ungum leikmönnum og ætla greini-
lega að vera þolinmóðir í upp-
byggingu þess. Á meðan geta
áhorfendur í Miami dáðst að and-
stæðingunum.
NJARÐVÍKINGAR geta þakkað
Teiti Örlygssyni sigurinn á
Valsmönnum í gœr. Hann fór f
gang þegar mjótt var á munum
og dreif Njarðvíkurliðið áfram
af krafti og dugnaði. Undir lok-
in var staða Njarðvíkinga nokk-
uð trygg og sigurinn öruggur,
92:83.
Leikurinn var jafn framan af og
þrátt fyrir að bæði lið gerðu
mikið af mistökum mátti sjá góða.
kafia. Helgi Rafnsson hélt
Njarðvíkingum á
LogiB. floti í fyrri hálfleik
Eiðsson með 22 af 47 stigum
skrifar liðsins en slæm vöm
Valsmanna kom í
veg fyrir að þeim tækist að ná
undirtökunum.
Valsmenn byijuðu vel í síðari
hálfleik og voru yfír framan af. Þá
fór Teiti að leiðast þófíð og tvær
þriggja stiga körfur komu Njarðvík-
ingum af stað að nýju. Segja má
að þessi kafli hafi gert útum leik-
inn, því þrátt fyrir að munurinn
hafí ekki verið mikill, virtust Vals-
menn aldrei líklegir til sigurs.
Njarðvfkingar léku vel með Teit
Örlygsson sem besta mann. ísak
Tómasson átti einnig góðan leik og
Helgfi Rafnsson var iðinn við kolann
í fyrri hálfleik.
Tómas Holton bar lið Vais uppi
í þessum leik. Einar Ólafsson og
Hreinn Þorkelsson áttu góða spretti
en gerðu einnig slæm mistök.
Njarðvíkingar eru nú efstir í A-
riðli og eina lið deildarinnar sem
ekki hefur tapað leik. Valsmenn eru
í öðru sæti en þetta var flórða tap
þeirra í deildinni.
Grlndavík vann slaka Stúdenta
Grindvíkingar unnu slaka Stúd-
enta auðveldlega í gærkvöldi
er liðin mættust í íþróttahúsini í
Grindavík.
■■■■ ÍS byrjaði af
Kristinn krafti en þá tóku
Benediktsson Grindvíkingar við og
skrifar höfðu 8 stiga for-
skot í leikhléi.
í seinni hálfleik voru Stúdentar
nálægt því að jafna, 41:43, enda
áhugaleysi þá algjört hjá heima-
mönnum. Þegar sjö mínútur voru
eftir náði Hjálmar Hallgrímsson að
skora þijár körfur ( röð úr hraða-
upphlaupum fyrir Grindavík. Við
það var sem heimamenn vöknuðu
að dvala, hristu af sér slenið og
sýndu góðan leik á lokamínútunum.
Valur-UMFN
83 : 92
íþróttahús Vals, íslandsmótið í körfu-
knattleik, þriðjudaginn 8. nóvember
1988.
Gangur leiksins: 0:2, 10:6, 23:20,
27:28, 35:35, 42:36, 42:45, 47:45,
51:47, 56:60, 56:65, 64:73, 68:81,
76:86, 81:87, 83-92.
Stig Vals: Tómas Holton 26, Matthías
Matthíasson 17, Hreinn Þorkelsson 15,
Þorvaldur Geirsson 8, Einar ólafsson
8, Amar Guðmundsson 4, Ragnar Þór
Jónsson 2 og Bárður Eyþórsson 1.
Stig UMFN: Helgi Rafnsson 27, Teitur
Örlygsson 24, Isak Tómasson 15,
Kristinn Einarsson 13, Friðrik Ragn-
arsson 8, Agnar Olsen 3 og Hreiðar
Hreiðarsson 2.
Dómarar: Gunnar Valgeirsson og Jón
Otti Ólafsson. — Hafa oft dæmt betur.
Áhorfendur: 150.
UMFG—ÍS
81 : 65
íþróttahúsið í Grindavík, íslandsmótið
í körfuknattleik, þriðjudaginn 8. nóv-
ember 1988.
Gangur leiksins: 3:7, 9:9, 17:15, 31:20,
39:31, 45:35, 45:43, 52:47, 64:52,
72:56, 77:60, 81:65.
Stig UMFG: Guðmundur Bragason 24,
Jón Páll Haraldsson 23, Hjálmar
Hallgrímsson 11, Sigurbjöm Sigurðar-
son/9, ólafur Jóhannsson 8, Eyjólfur
Guðmundsson 3, Ástþór Ingason 2,
Guðlaugur Jónsson 1.
Stig ÍS: Páll Amar 21, Valdimar Guð-
laugsson 16, Hafþór óskarsson 13, Jón
Júlíusson 9, Þorsteinn Guðmundsson
4, Auðunn Elísson 2 og Heimir Jónas-
son 2.
Dómarar: Sigurður Valgeirsson og
Kristinn Óskarsson og dæmdu þeir
Teitur Öriygsson UMFN.
m
Tómas Holton Val. Helgi
Rafnsson og ísak Tómasson
UMFN. Guðmundur Braga-
son, Jón Páll Haraldsson
UMFG. Páll Amar ÍS.
Ekki benda á mig!
-eftir
SigmundÓ.
Steinarsson
UNDANFARIN ár hefur þaö
aukist mikfö hjá íslenskum
íþróttamönnum, aö þeir
stunda íþrótt sína eftir setn-
ingunni kunnu: „Ekki benda á
mig." Hver kannast ekki við
aö knattspyrnumenn hafi
haldið því fram að þeir vaeru
ekki í liði vegna þess að þjálf-
arinn vœri á móti þeim? Hver
kannast ekki við að þegar illa
gengur, hafi dómarinn verið
á móti þeim? Þessir frasar
sjást reglulega.
Keppnismenn eru oft að leita
eftir sökudólgum til að skella
skuldinni á - þegar illa gengur.
Dómari hefur verið kunnasti söku-
dólgurinn fram til þessa, en nú
eru breytingar að verða þar á.
Eftir Ólympíuleikana I Seoul var
fréttamönnum kennt um að
árangur náðist ekki. Fréttamenn
eru orðnir ofarlega á blaði í
„Sökudólgaleik" íþróttamanna,
þegar þeir standa sig ekki eða
gera mistök.
Á meðan íþróttamenn lifa I
ríkari mæli eftir setningunni:
„Ekki benda á mig,“ eru þeir
komnir af braut.
Knattspymumenn eru komnir
út á hálan ís þegar þeir eru byijað-
ir að tala um þekkingarieysi þjálf-
ara, dómara og fréttamanna.
Þjálfara vegna þess að þeir velja
þá ekki í lið, þrátt fyrir að knatt-
spymumennimir séu ekki nægi-
lega góðir. Þekkingarleysi dómara
- fyrir að þeir dæmi ekki eftir
höfði leikmanna og reki þá af leik-
velli fyrir brot sem þeir áttu ekki
að fremja í leik og þekkingarleysi
fréttamanna fyrir að segja satt
og rétt frá þegar knattspymu-
maðurinn var rekinn af leikvelli,
fyrir gróft brot í ieik.
í gær birtist í Morgunblaðinu
grein eftir knattspymumann, sem
hefur leikið á íslandi, Belgíu,
Noregi og Sviss. Sá leikmaður
hefur greinilega orðið fyrir barð-
inu á þjálfurum, dómurum og
blaðamönnum, sem hafa ekki haft
nægilega þekkingu á kunnáttu
hans og hæfileikum, til að vega
og meta rétt hveiju sinni, að hans
mati.
Tilfróðlalks
íþróttamenn með þá hugsun
að þeir ráði yfír svo mikilli þekk-
ingu, að hinn almenni Iþróttamað-
ur er hættur að skilja út á hvað
(þróttir ganga, em komnir á villi-
götur.
Knattspymumaðurinn upplýsti
fyrir blaðamenn, svona til fróð-
leiks, eins og hann sagði, að
iandsliðið í knattspymu hafí leikið
kerfið 3-5-2 í Tyrklandi og A-
Þýskalandi. öllu má nú nafn gefa.
Það er ekki nema von að við sem
þekkjum svo Ktið til, að mati
knattspymumannsins, bregði í
brún þegar okkur er sagt frá
þessu 3-5-2 leikkerfí. Sérstaklega
eftir að við sáum hreinan vamar-
leik i Tyrklandi og A-Þýskalandi.
Þessi hártogun um leikaðferð
minnir mig á þegar þjálfarinn
sagði um árið: „Strákar nú leikið
þið 4-4-2,“ án þess að útskýra
þá leikaðferð nánar. Við unnum
og hann sagði hróðugur eftir leik-
inn: „Já, það borgaði sig að breyta
leikaðferðinni - það bar árang-
ur.“ Já, sögðum við undrandi, því
að við vissum ekki annað en við
hefðum leikið svokallaða 3-3-4
leikaðferð eins og við vomm bún-
ir að leika í tvö ’ár. Eftir áður-
nefhdan leik lék liðið alltaf 4-4-2
að mati þjálfarans, þó svo að við
lékum áfram gömlu leikaðferðina,
3-3-4. Já, vel á minnst. Sú leikað-
ferð breyttist stundum í 3-5-2
þegar við átti. Báðir útheijamir
drógu sig til baka á miðjuna. Við
lögðumst þó aldrei i vöm, þvi að
það þekktist ekki þá að útheijar
léku sem bakverðir.
Þetta er aðeins smá úturdúr,
en sýnir að ýmsu er hægt að gefa
nafn, eða eftir þvi hvað hentar
hveiju sinni. Það getur vel verið
að leikaðferð landsiiðsins hafí ver-
ið kölluð 3-5-2 fyrir leikina í
Tyrklandi og A-Þýskalandi. í
leikjunum sjálfum var hún ein-
faldlega 5-3-2.
„Sökuldólgal«lkurínn“
Þeir sem lásu bréf landsliðs-
mannsins, sáu strax hvers vegna
hann skrifaði. Hann var að sjálf-
sögðu sár yfír þvi að hafa verið
rekinn af leikvelli í landsleiknum
í A-Þýskalandi. Vildi kenna dóm-
aranum um það hvemig fór. Hann
kom Bér samt ekki strax að efn-
inu, heldur sá hann sig knúinn til
að ráðast að fréttamönnum og
tala um „rétt“ félög og „lituð“
skrif. „Eflaust hefði ég fengið
vægari dóm ef ég hefði verið (
„réttu" félagi," skrifaði hann.
Átti landsliðsmaðurinn von á
því að ekkert yrði skrifað um
fyrsta brottrekstur, sem islenskur
landsliðsmaður hefíir orðið fyrir i
landsleik. Landsliðsmaðurinn veit
það sjálfur að hann gerði ekki
rétt í landsleiknum, þegar hann
hrinti mótherja sínum. Dómarinn
gat ekkert annað gert í stöðunni,
en sýna honum rauða spjaldið —
hvað sem áður hafði gerst í leikn-
um. Það er ehgin afsökun fyrir
landsliðsmanninn, þó að hinn eða
þessi hefði fengiö slæmt spark að
hans mati. Landsliðsmenn íslands
eiga að hafa yfír það mikilli
reynslu að ráða, að þeir eiga ekki
að láta hanka sig á óþarfa brot-
um. Þekking þeirra á reglum
knattspymunnar á að vera orðin
það mikil, að þeir eiga að vita að
ekki á að hrinda mótheijum sínum
með höndum. En á meðan að leik-
menn telja sig hafa meiri þekk-
ingu en dómarar, þá á þessi at-
burður eftir að endurtaka sig.
HÖfunúur er blaðamaður á Morgunblaðinu.