Morgunblaðið - 24.11.1988, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1988
5
Attunda
þing BHM
hefst á
morgun
8. ÞING Bandalags háskóla-
manna verður haldið dagana 25.
og 26. nóvember í Borgartúni.
Þingið sitja um 150 fulltrúar frá
27 aðildarfélögum bandalagsins,
en í bandalaginu eru um 7.000
félagsmenn.
Þingið verður sett kl. 13.30 á
föstudag og að lokinni þingsetningu
ávarpar Svavar Gestsson mennta-
málaráðherra þingið.
Bandalagið er 30 ára um þessar
mundir og verður fyrsti hluti dag-
skrár þingsins helgaðar afmælinu.
í þeim hluta dagskrárinnar ræðir
Ólafur Steinar Valdimarsson um
fyrstu starfsár bandalagsins og
Halldór Guðjónsson, kennslustjóri
Háskóla íslands, ræðir um alþjóða-
samstarf háskóla.
Starfshópur á vegum bandalags-
ins hefur á síðustu vikum unnið
greinargerð um spuminguna:
„Hvers vegna virðist menntun og
menning í varnarstöðu í íslensku
samfélagi?" Niðurstöður starfs-
hópsins verða kynntar á þinginu. í
sumar og haust hefur farið fram
jafnréttiskönnun meðal félags-
manna í BHM. Þorgerður Einars-
dóttir félagsfræðingur hefur haft
umsjón með könnuninni og gerir
hún grein fyrir helstu niðurstöðum
á þinginu.
Auk framangreindra dagskrár-
liða verða föst þingstörf á dagskrá
s.s. skýrsla stjómar, reikningar,
stjórnarkjör og lagabreytingar. Þá
er gert ráð fyrir sérstökum umræð-
um um framtíðarhlutverk banda-
lagsins.
Formaður Bandalags háskóla-
manna er Grétar Ólafsson, læknir
og varaformaður Páll Bjamason,
menntaskólakennari.
(Fréttatilkynning)
Þjóðvinafélagið:
Almanak
Þjóðvina-
félagsins
komið út
ALMANAK Hins íslenska þjóð-
vinafélags um árið 1989 er kom-
ið úr. Útgefandi er Bókaútgáfa
Menningarsjóðs og Þjóðvinafé-
lagsins. Aðalhluti ritsins er Al-
manak um árið 1989, sem dr.
Þorsteinn Sæmundsson sljarn-
fræðingur hefur reiknað og búið
til prentunar.
Annað efni ritsins er Árbók ís-
lands 1987 sem Heimir Þorleifsson
menntaskólakennari tók saman.
Þetta er 115. árgangur Þjóðvina-
félagsalmanaksins. Ritið er að
þessu sinni 216 blaðsíður að stærð
og prentað í Odda. Umsjónarmaður
þess er Jóhannes Halldórsson, for-
seti Þjóðvinafélagsins. Forstöðu-
menn félagsins em kosnir af Al-
þingi. Þeir em, auk Jóhannesar: dr.
Jónas Kristjánsson, sem er varafor-
seti; dr. Guðrún Kvaran orðabókar-
ritstjóri; Heimir Þorleifsson sagn-
fræðingur og Ólafur Ásgeirsson
þjóðskjalavörður.
Höfðar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
Sæmileg
loðnuveiði
SÆMILEG loðnuveiði var í fyrri-
nótt og síðdegis í gær höfðu 8
skip tilkynnt um afla, að sögn
Ástráðs Ingvarssonar starfsmanns
loðnunefiidar.
Víkurberg tilkynnti um 520 tonn
til Þórshafnar, Skarðsvík 640 til
Raufarhafnar, Börkur 1.200 til Nes-
kaupstaðar, Erling 550 tii Siglufjarð-
ar, Guðmundur 800 til Vestmanna-
eyja, Helga II 1.000 óákveðið hvert,
Beitir 350 til Neskaupstaðar og Þórs-
hamar 380 til Siglufjarðar.