Morgunblaðið - 24.11.1988, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1988
7
Fjöldi bíla Qarlægður með krana
Eigendurnir sinntu ekki aðvörun
LÓGREGLAN í Reykjavík lét í vik-
unni fjarlægja á annan tug bíla
sem lagt hafði verið á merkta ak-
rein á Snorrabraut við Bíóborgina.
Aður en gripið var til þessara að-
gerða höfðu starfsmenn bíósins,
að beiðni lögreglunnar, lesið
skráningarnúmer bílanna upp fyr-
ir bíógesti. Að 20 mínútum liðnum
þótti ljóst að enginn mundi gefa
sig firam. Því voru bílarnir dregn-
ir á brott. Að lokinni sýningu kom
í Ijós að flestir bílanna höfðu til-
heyrt bíógestum. Vegna þessa þárf
umráðamaður hvers bíls að greiða
2300 krónur í gjald.
Bílamir voru fluttir í port lögreglu-
stöðvarinnar við Hverfisgötu,
steinsnar frá bíóinu, en ekki á afgirt
svæði sem lögreglan hefur nýlega
fengið til umráða við Elliðavog til að
nota í tilfellum sem þessu. Að sögn
Ómars Smára Ármannssonar var
þessi háttur hafður á til að valda
bíleigendunum ekki óþarfa fyrirhöfn
og kostnaði.
Eftir breytingar, sem gerðar voru
á umferðarmannvirkjum við Snorra-
braut nýlega, hefur borið á því að
menn leggi bílum sínum, líkt og af
gömlum vana, við vinstri brún ak-
brautarinnar. Þar er nú greinilega
auðkennd akrein. Bílastæði, sem
þama vom áður, hafa nú verið flutt
að hægri brún akbrautarinnar og
umferðarmerki sett niður með fárra
metra millibili til að benda ökumönn-
um á nýbreytnina.
Einn bílanna festur aftan í kranabíl Einars Finnssonar.
Umferðaröngþveiti við Snorrabraut:
Góð aðsókn
að sýningu
Kristjáns
MIKIL aðsókn hefur verið að
málverkasýningu Kristjáns
Davíðssonar í Gallerí Borg. Sýn-
ingin var opnuð síðastliðinn
fimmtudag og í gær höfðu á þriðja
þúsund manns komið á hana.
Að sögn Úlfars Þormóðssonar hjá
Gallerí Borg hefur rúmlega helming-
ur myndanna á sýningunni selst, og
hafa margir skráð sig á biðlista eftir
sumum myndanna.
Regnboginn:
Japanskir
kvikmynda-
dagar
JAPANSKIR kvikmyndadagar
heQast í Regnboganum í dag.
Sýndar verða kvikmyndirnar
„Fljót eldflugnanna" og „Fyrsta
ástin“ og eru sýningar kl. 19.00
og 21.00.
Leikstjóri myndarinnar „Fljót
eldflugnanna“ er Sugawa Eizo en
„Fyrsta ástin“ er í leikstjórn Omori
Kazuki. Báðar myndirnar fjalla um
ungt fólk, ástir þeirra og leið til
þroska. Aðalhlutverkin í „Fljót eld-
flugnanna" leika Sakazume Takay-
uki og' Sawada Tamae en aðal-
hlutverkið í „Fyrsta ástin“ er leikið
af Saito Yuki.
Sjá kvikmyndaþátt á bls. 43.
FYRIR KRAKKA OG TÁNINGA
IKEA hannar líka húsgögn fyrir yngra fólkið. Nógu sterk fyrir krakka.
Nógu fjölbreytt fyrir tóninga. Og nógu örugg til að þú haldir ró þinni.
Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7.
103 Reykjavík. Sími 686650
BOJ
skrifborð kr. 9.835-
hilla kr. 1.740-
fataskópur kr. 10.760-
kr. 22.335-
BOJ rúm kr. 12.990-
KENTHA stóll kr. 1.490-