Morgunblaðið - 24.11.1988, Qupperneq 22
22
AFSLÁTTUR
af öllum fatnaði til mánaða-
móta.
Opið laugardag.
KVENFATAVERSLUN
Mosfellsbæ. S. 666676.
Honda 89
Civic
3ja dyra
16 ventla
Verð frá 623 þúsund,
miðað við staðgreiðsju á gengi 1. nóv. 1988
NÝ AFBORGUNARKJÖR
ÁN VAXTA OG VERÐBÓTA.
iiHOIUDA
VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK., SÍMI 689900
TOSHIBA
OG
TATUNG
sjónvarpstæki
14-15-20-21-22
25 og 28“ skermar.
Tæknilega fullkomin
tæki í öllum
verðflokkum.
Góð greiðslukjör.
_________
Einar Farestveit&Co.hf.
BOROARTÚNI28, SÍMI1699B.
Lalð 4 stoppar vlð dymar
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1988
Murry Sidlin hljómsveitarstjóri:
/
4-
Sljóma hvers konar tón-
list - ef hún er góð
SVIÐIÐ er anddyn Hótels Sögn á sunnudagskvöldi. Viðmælandinn
er bandariski hljómsveitarstjórinn Murry Sidlin. Tilefnið eru auka-
tónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands sem hann stjórnar á fimmtu-
dagskvöld. Þar verða í boði kaflar úr ýmsum söngleikjum, West
Side Story, Candide, Porgy og Bess og Cats. Umræðuefiiið er aðal-
Iega tónlist og hann sjálfúr með ýmsum útúrdúrum. Fyrst er spurt
hvemig hann hafi komist í samband við Sinfóniuhljómsveit íslands
þaraa vestan frá Ameriku.
— Aðalhljómsveitarstjóri Sin-
fóníuhljómsveitarinnar hér, Petri
Sakari, sem var einu sinni nemandi
minn — og ég veit raunar ekki
hvort hann lærði meira hjá mér eða
ég af honum — hafði samband við
mig og spurði hvort ég gæti hugsað
mér að stjóma hér. Mér fannst
þetta spennandi kostur og það tók
ekki langan tíma að ganga frá
þessu. Nú er ég kominn og búinn
að stjóma einum áskriftartónleik-
um og framundan eru aukatónleik-
amir.
Og hvemig leist þér nú á þig?
— Mér fannst þetta mjög gam-
an. Hér er mjög góð sinfóníuhljóm-
sveit sem áheyrendur mega vera
stoltir af. Af þessum stuttu kynnum
fram til þessa virðist mér sem
hljómsveitin sé skipuð góðum tón-
listarmönnum sem taka starf sitt
alvarlega og vilja leggja sig fram.
Ég marka það meðal annars af
þeim sólóköflum sem einstakir
hljóðfæraleikarar léku svo vel á
tónleikunuín á fímmtudagskvöldið.
Mér fannst þannig reglulega gaman
að kynnst þessari hljómsveit og
fannst hreinlega gaman á æfíngun-
um. _
Þvert yfir Bandaríkin
Nóg um það í bili en það má
geta þess að bæði áheyrendur og
ekki síður hljómsveitarmenn fögn-
uðu hljómsveitarstjóranum eftir
tónleikana á fimmtudag. Skoðum
þá aðeins feril Sidlins. Hann nam
við Comeli-háskóla og lauk tónlist-
amámi frá P eabody-tónlistarhá-
skólanum. Þá nam hann á Ítalíu
og hefur síðan stjómað hljómsveit-
um þar, í ísrael, Portúgal og
Svíþjóð. Hann hefur síðustu 11 árin
verið aðal tónlistarráðgjafi og
stjómandi Sinfóníuhljómsveitarinn-
ar í New Haven í Connecticut-fylki
í Bandaríkjunum. í átta ár fór hann
þvert yfír landið til vesturstrandar-
innar og stjómaði hljómsveit í Long
Beach, rétt fyrir sunnan Los Angel-
es. Þess á milli hefur hann síðan
verið fenginn til að stjóma víða í
Bandaríkjunum og Kanada.
— Ég er nýlega hættur störfum
með hljómsveitinni í Los Angeles.
Mér fannst nóg að ferðast og skipta
mér í tvær vikur í senn á milli
starfa á austur- og vesturströnd
landsins í átta ár og núna sinni ég
frekar einstökum verkefnum við
hljómsveitarstjóm og kennslu. Á
hveiju sumri kenni ég til dæmis á
námskeiði í Aspen í Colorado sem
haldið er fyrir tónlistarmenn hvað-
anæva úr heiminum og þar hitti ég
einmitt Petri Sakari.
Hvemig berðu þig að þegar þú
kemur í fyrsta sinn á æfingu hjá
hljómsveit?
— Mér finnst mikilvægast að
vera eðlilegur og kurteis, hvetja
hljómsveitarmenn og örva til þess
að leggja sig fram og gera þeim
ljóst að þama em allir að keppa
að sama markmiðinu, að koma tón-
listinni eins vel til skila og okkur
er unnt.
Ég byija yfirleitt þannig að við
lesum tónlistina saman, þ.e. við
forum hratt yfir verkefnin. Hljóm-
sveitarmenn kyonast því hvernig
hendur mínar vinna að stjóminni —
báðir aðiiar byrja á að kynnast ör-
lítið vinnubrögðum hins. Með þessu
kemst á samband milli okkar og
þessi fyrsti þáttur tekur kannski
45 mínútur. Éftir það ganga æfing-
amar út á það að ég geri þeim
grein fyrir því hvað ég vil leggja
áherslu á og hvað þarf að gera til
að skapa þann hljóm sem mér finnst
þurfa í það og það skiptið.
Og hvað gerir svo Murry Sidlin
þegar tóm gefst frá æfingum með
hljómsveit í ókunnri borg?
— Þá fer ég út, skoða mig um
og virði fyrir mér borgina og bygg-
ingamar. Ég fer á söfn og sýning-
ar, leikhús eða kvikmyndahús og
mér sýnist nóg um slíkt hér. Ég
skoða líka tónverk og vinn ýmis
verkefni á hótelherberginu og les
blöð og bækur. Svo stunda ég
heilsuræktina, annað hvort inni á
Murry Sidlin hljómsveitarstjóri frá
hótelinu eða að fer út og skokka
og það hefur verið mjög þægilegt
í þessu milda veðri hér síðustu daga.
Ég hef haft mjög gaman af því
að ganga um borgina, Reykjavík
er hrein og fögur borg. Það kom
mér líka skemmtilega á óvart
hvemig bláókunnugt fólk vindur sér
að mér og fer að ræða um tónleik-
ana á fimmtudaginn var og þakka
mér fyrir þá.
Ég vil lfka nefna annað og það
er hversu hrifinn ég var af sýning-
unni á Ævintýrum Hoffmanns. Þar
var á ferð mjög vönduð og góð
Morgunblaðið/Bjami
Bandaríkjunum.
sýning og þótt ég skilji ekki íslensku
þá segi ég óhikað að ég myndi aft-
ur vilja fara í leikhús á fslandi ef
annað í leikhúsunum er á borð við
þetta. Ég fullyrði að það er engin
álíka stór borg og Reykjavík í
Ameríku sem gæti státað af svona
leiksýningu.
Svipað tölvuvinnslu
Aftur segjum við nóg komið um
hólið og snúum okkur að tónlist-
inni. Hvemig undirbýr Sidlin sig
fyrir æfingar, ákveður hann fyrir-
fram á hótelherberginu hvað hann
HAFRÚN FLYTUR FARÞEGA MILLI
AKRANESS OG REYKJAVÍKUR
EYJAFERÐIR, sem gera út bát
á Breiðafirði á sumrin, hafa
hafið farþegaflutninga milli
Akraness og Reykjavíkur. Við
flutningana er notaður báturinn
Hafrún, sem tekur 63 í sæti.
Ætlunin er að nýta Hafrúnu
yfir vetrartímann með þessum
hætti, en að öðrum kosti væri
báturinn bundinn við bryggju á
Stykkishólmi.
Svanborg Siggeirsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Eyjaferða, sagði að
ætlunin væri að kanna í tvo mán-
uði hvort grundvöllur væri fyrir
þessum ferðum. „Við höfðum Haf-..
rúnu ti! sýnis í Akraneshöfn um
helgina og fjöldi bæjarbúa kom til
að kynna sér þennan nýja mögu-
leika," sagði Svanborg. „Ferðin
tekur um hálfa klukkustund með
Morgunblaðið/Emilía
Hafrún, bátur Eyjaferða á Stykkishólmi, er nú í farþegaflutningum milli Akraness og Reykjavíkur.