Morgunblaðið - 24.11.1988, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1988
George Bush skipar Brent Scowcrofit; öryggisráðgjafa:
Þrautreyndur og nýt-
Washington.
GEORGE Bush, hinn nýkjörni forseti Bandaríkjanna, skýrði frá því
í gær að hann hefði ákveðið að skipa Brent Scowcroft öryggisráð-
gjafa sinn. Scowcroft, sem er 63 ára að aldri, býr yfir mikilli reynslu
á vettvangi utanríkismála og nýtur virðingar jafnt meðal demókrata
sem repúblíkana.
mikillar virðingar
Reuter. ^
Líkt og flestir þeir sem Bush
hefur valið til að gegna valdamikl-
um embættum í ríkisstjóm sinni er
Scowcroft fyrrum samstarfsmaður
hans. Er Scowcroft lét af störfum
sem undirhershöfðingi í flugher
Bandaríkjanna árið 1972 varð hann
aðstoðarmaður Henrys Kissingers,
fyrrum utanríkisráðherra. Scow-
croft tók siðan við stöðu yfirmanns
Framfærsluvísitalan, helzti
mælikvarði bandarískra stjómvalda
á verðbólgu, hækkaði um 0,4% í
október, miðað við 0,3% í septem-
ber og nemur verðbólgan því 4,6%
miðað við 12 mánaða tímabil. Verð-
bólgan hefur ekki verið meiri frá
1981 er hún mældist 8,9%. í fyrra
nam hún 4,4%.
Helztu ástæður hækkunarinnar
í október er verðhækkun á fatnaði
Þjóðaröryggisráðsins og átti náið
samstarf við þá Kissinger og Alex-
ander Haig, sem þá gegndi stöðu
skrifstofustjóra forsetaembættis-
ins, er Watergate-hneykslið reið
yfir sem lyktaði með því að Richard
Nixon neyddist til að láta af emb-
ætti Bandaríkjaforseta. í nóvember
árið 1975 ákvað eftirmaður Nixons,
Gerald Ford, að fela Scowcroft
og bifreiðatryggingum. Hagfræð-
ingar spá því að verðbólgan eigi
eftir að aukast m.a. vegna verð-
hækkunar á innflutningsyörum og
þenslu í hagkerfinu. Búast þeir
einnig við að bandaríski seðlabank-
inn hækki vexti fyrir árslok í þeirri
von að það megi verða til að slá á
þenslu í hagkerfinu og þar með
draga úr verðbólguáhrifum.
embætti öryggisráðgjafa en George
Bush varð yfírmaður bandarísku
leyniþjónustunnar, CIA.
Allt frá þessu hefur Scowcroft
verið í hópi virtustu sérfræðinga
Repúblíkanaflokksins á sviði ut-
anríkis- og vamarmála. Ronald
Reagan Bandaríkjaforseti leitaði
ráða hjá honum er Bandaríkjaþing
neitaði að samþykkja fjárveitingar
til smíði MX-kjamorkueldflaugar-
innar árið 1983. Fór forsetinn þess
á leit við Scowcroft að hann semdi
nýja áætlun um smíði eldflaugar-
innar þar sem tekið væri tillit til
sjónarmiða þingheims.
Er uppvíst varð um óleyfilega
vopnasölu Bandaríkjamanna til
klerkastjómarinnar í íran tók
Scowcroft sæti í þriggja manna
nefnd sem forsetinn skipaði til að
rannsakaði málið. Hann hefur auk-
inheldur skrifað íjölda greina og
haldið fyrirlestra um vamarmál og
samskipti austurs og vesturs. Hefur
hann sagt að veija megi ijárfram-
lögum til vamarmála á skynsam-
legri hátt en gert hafi verið og látið
í ljós efasemdir um að hyggilegt
sé að koma upp geimvömum svo
fljótt sem auðið er. Vill hann þess
í stað nota geimvamaráætlunina til
að þrýsta á Sovétmenn um að
ganga til frekari afvopnunarsamn-
inga en þessu sjónarmiði hafa bæði
Reagan og Bush hafnað.
Bandaríkin:
Mesta verðbólga frá 1981
Washington. Reuter.
VERÐBÓLGA er orðin meiri á þessu ári i Bandaríkjunum en nokkru
sinni frá árinu 1981, samkvæmt upplýsingum stjórnvalda. Hagfræð-
ingar spá þvi að hún eigi eftir að aukast það sem eftir er ársins.
r krakkar!
AAUNÍÐ
AÐ BURSTA
JENNURNAR
eru komin a alla
útsölustaði
Öll lionsdagatöl eru merkt og
þeim fylgir jólasveinslimmidi og
tannkremstnpa.
Allur hagnaður rennnr óskiptnr
tilliknarmála.
Verð 150.-
rorséða sprengjuþotan
Hulunni hefur veriö svipt ai
torséðu sprengjuþotunni Stealth, sem á aö
geta flogiö gegnum ratsjárvarnir oc
__gert árásirá óvinastöövar fyrirvaraiaust. ^
Hæð: 5,1 m. Lengd: 20,7 m.
Vænghaf: 51,6 m. Áhöfn: 2
Hreyflar: 4 (General Electric F-118s)
Þyngd:* Hámark 167 tonn, tóm 64, farmur 18
Flugdrægni:* 9.200 km Flughraði: * Um 800 knVklst
Hámarks flughæö:* 15 km
* Mat sértræfiinga ■ s';:
Msöaltiár maöur
Hvernig bandarískar sprengjuþotur
koma fram á ratsjám i
1 B-1B
Stealth
15 fersm
Hringirnir sýna stærð þotnanna samkvæmt ratsjársvörun þeirra.
Þoturnareru sýndar (réttum stæröarhlutföllum.
HEIMIIOIR: Chlcaqo Tribúné) Federatión ot Américan Selemlsts oq Ftaqher Bahdárikiárina
Lýsing
Bandaríkin:
Torséða sprengjuþot-
an sýnd í fyrsta sinn
Palmdale. Reuter.
Bandaríski flugherinn sýndi á
þriðjudag torséðu sprengjuþot-
una B-2, sem Bandaríkjamenn
nefiia Stealth, í fyrsta sinn á
þriðjudag.
Um fimm hundruð gestir og
starfsmenn flugvélaverksmiðju
Northrop félagsins í Palmdale í
Kalifomíu voru 55 metra frá
sprengjuþotunni þegar hún var
sýnd við hátíðlega athöfn. Þotan
kostaði 500 milljónir Bandaríkja-
dala (24 milljarða ísl. kr.) og tók
tíu ár að smíða hana en hún hefur
verið algjört hemaðarleyndarmál
þar til nú.
Sagt er að hún sé úr efni sem
taki ratsjárgeisla í sig eða breyti
stefnu þeirra. Hreyflar þotunnar,
sem era §órir, era faldir í vængjum
hennar beggja megin stjómklefans
þannig innrauðir geislar geta ekki
greint útblástur þeirra, að sögn
Júgóslavía:
Fj öldasamkomur
bannaðar í Kosovo
flugvélasérfræðinga. Þotan hefur
valdið nokkrum deilum, sumir segja
hana of dýra og aðrir telja að sá
búnaður þotunnar sem leitar uppi
flugskeyti með geislum auki líkum-
ar á því að óvinaherimir verði henn-
ar varir og skjóti hana niður.
Bandarískir embættismenn segja
hins vegar að þotan verði tii þess
að Sovétmenn neyðist til að veita
enn meira fé til loftvama, en þeir
eiga nú 2.250 orrastuvélar sem
gegna því hlutverki að ráðast gegn
árásarflugvélum, rúmlega 7.000
ratsjár og 9.000 loftvamaflug-
skeyti.
Talsmaður bandaríska flughers-
ins, Pat Mullaney, sagði að torséða
sprengjuþotan færi í sína fyrstu
ferð eftir sex til tólf vikur. Fyrir-
hugað er að Northrop félagið smíði
132 slíkar þotur.
Belgrað. Reuter.
LÖGREGLUYFIRV ÖLD í
Kosovo bönnuðu í gær fjöldasam-
komur í kjölfar mótmælaaðgerða
sem Sbúar af albönskum uppruna
hafa staðið fyrir undanfama
fimm daga. Mörg þúsund manns
af albönskum upprana hafa mót-
mælt þvi viða um Kosovo-hérað
að tveimur vinsælum leiðtogum
þeirra hefúr verið vikið frá að
kröfú Serba.
í yfirlýsingu frá lögreglunni seg-
ir að mótmælin „hafi skapað óvið-
unandi ástand í héraðinu sem gref-
ur undan landslögum."
Bannið nær yfir „fjöldasamkom-
ur og hópgöngur á almannafæri" í
höfuðborg Kosovo, Pristina, sem
og öðrum borgum héraðsins. Lög-
regluyfírvöld skýrðu einnig frá því
að virði íbúamir bannið að vettugi
verði gripið til lögmætra og annarra
ótilgreindra aðgerða.
Leiðtogar í Kosovo sögðu á
mánudag að ef mótmælaaðgerðum
linnti ekki neyddust yfirvöld til að
grípa til neyðarúrræða.
1 tturipJl
| Áskriftarsíminn er 83033