Morgunblaðið - 24.11.1988, Síða 29

Morgunblaðið - 24.11.1988, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1988 29 Nýr forsætisráðherra í Ungveijalandi: Hagfræðingur og um- bótasinni tilnefhdur Búdapest. Reuter. Kommúnistaflokkur Ungveijalands tilnefhdi í gær nýjan forsætisráð- herra og tekur hagfræðinginn Miklos Nemeth við embættinu af Kar- oly Grosz. Þetta var tilkynnt á höfuðstöðvum flokksins eftir að Grosz, sem verður áfram leiðtogi flokksins, hafði komist að samkomulagi við Þjóðernishreyfinguna, samtök hópa sem eru óháðir kommúnistaflokkn- um. Ennfremur hefúr verið lagt til að Rezsoe Nyers, sem margir töldu líklegan eftirmann Grosz, yrði efnahagsmálaráðherra, sem er nýtt og valdamikið embætti. Grosz dregir sig í hlé sem forsætis- ráðherra en verður áfram leiðtogi flokksins. Tilnefningarnar verða Beirút: Shítar vega hver annan lagðar fyrir ungverska þingið í dag og er talið næsta vist að þær verði samþykktar án mikilla umræðna. Nemeth er fyrrum háskólakennari í hagfræði, byijaði að starfá fyrir efnahagsdeild kommúnistaflokksins árið 1981, tók sæti í miðstjóm flokksins og varð ritari hennar í efna- hagsmálum í júní í fyrra. Nemeth var kjörinn í stjórnmálaráð flokksins í maí ásamt nokkrum umbótasinnum, meðal annars Nyers. Janos Lukacs, sem á sæti í stjóm- málaráðinu, sagði á blaðamánna- furidi að flokkurinn hefði komist að þeirri niðurstöðu að hann þyrfti á „ungum, dugmikiklum vinnuhesti" að halda, manni sem gæti tekið raunsæjar ákvarðanir fljótt. Vestrænir stjómmálaskýrendur sögðu að líklega yrðu ekki miklar breytingar á efnahagsstefnu stjóm- arinnar undir forystu Nemeths. „Hann hefur mikla reynslu hvað efnahagsumbætur varðar," sagði Mark Palmer, sendiherra Banda- ríkjanna í Ungveijalandi. „Hann nýt- ur augljóslega stuðnings Grosz og þekkir mjög vel til Vesturlanda. Við teljum að hann sé mjög hlynntur umbótum og að hann komi þeim í framkvæmd,“ bætti sendiherrann við. Reuter Gat kom á framhlið höfúðstöðva Þjóðvarðliðsins í miðborg Madrídar þegar geysiöflug bílsprengja sprakk þar á þriðjudag. Tveir létust í sprengjutilræðinu og 45 manns særðust. Lögreglan telur að aðskiln- aðarsamtök Baska hafi staðið fyrir tilræðinu. Spánn: Tveir létust og 45 særð- ust í sprengjutilræði ETA Beirut. Reuter. TVEIR menn féllu og tíu særð- ust í hörðum átökum milli tveggja fylkinga shíta í suður- hverfúm Beirutborgar i gær, þeim mestu síðan i maí í vor. Bardagamir stóðu í alla fyrrinótt á milli Amal-shíta, sem styðjast við Sýrlendinga, og Hizbollah-hreyf- ingarinnar en hún er á snærum Irana. Var beitt sprengjuvörpum og alls kyns skotvopnum og segja vitni, að miklar skemmdir hafi orð- ið í borgarhlutanum. Þegar kom undir morgun í gær tókst að semja um vopnahlé. I suðurhluta Beirut- borgar býr hálf milljón shíta við mikla fátækt og hafa hreyfingamar tvær barist þar um völdin frá árinu 1984. Madríd. Reuter. TVEIR létust og 45 særðust þeg- ar bílsprengja sprakk fyrir utan höfúðstöðvar spænska Þjóðvarð- liðsins í Madrid síðastliðið þriðju- dagskvöld. í sprengingunni, sem var geysiöflug, eyðilögðust 20 bílar og rúður brotnuðu í 300 m fjarlægð. Talið er að aðskilnað- arsamtök Baska hafi staðið fyrir sprengjutilræðinu. Starfsmaður spænska ríkissjón- varpsins, sem ók framhjá höfuð- stöðvum Þjóðvarðliðsins í þann mund sem sprengjan sprakk, lést samstundis. I gær lést tveggja og hálfs árs gamall drengur á sjúkra- húsi og foreldrar hans liggja þungt haldnir. Að sögn lögreglunnar lögðu tilræðismennimir, sem taldir em tilheyra aðskilnaðarhreyfingu Baska, ETA, sendibíl hlöðnum 100 kg af sprengiefni á gangstétt fyrir utan höfuðstöðvar Þjóðvarðliðsins. Þeir fóm yfir í annan bíl sem beið þeirra og sprengdu samstundis upp fjarstýrða sprengjuna í sendibíln- um. Þetta er fyrsta bílsprengjan sem sprengd er í Madríd í 17 mán- uði. „Það leikur enginn vafí á því að tilgangurinn var að valda miklu manntjóni," Sagði Jose Luis Corcu- era, innanríkisráðherra Spánar, á blaðamannafundi í gærmorgun. Lögreglan setti upp vegartálma umhverfis borgina til að hindra að tilræðismennimir kæmust undan. Bíll þeirra fannst mannlaus og lög- reglan sprengdi hann í loft upp vegna ótta um að sprengju hefði verið komið fyrir í honum. . Sprengingin varð aðeins nokkr- um kiukkustundum áður en fundur Felipes Gonzalez, forsætisráðherra Spánar, og Francois Mitterrands, forseta Frakklands, hófst. Á fundi þeirra átti meðal annars að ræða áframhaldandi aðgerðir lögreglu gegn ETA. t 15 manns hafa látist á þessu ári í hryðjuverkum Baska sem krefjast sjálfstæðs ríkis. Bandarísk rannsókn: Strangur matarkúr get- ur dregið úr æðakölkun New York. New York Times. BREYTINGAR á lífsháttum geta einar og sér stöðvað eða dregið úr æðakölkun — án tilstyrks lyíja eða skurðaðgerðar, að sögn vísindamanna. Æðakölkun leiðir í mörgum tilvikum til hjartaá- falls, en helsta orsök bráðrar æðakölkunar er hátt kólesterólstig blóðsins. Vísindamennimir slá þann var- nagla, að þetta séu aðeins bráða- birgðaniðurstöður, sem byggist á rannsókn á fáum sjúklingum. Þeir segja þó, að rannsóknarskýrsla þeirra, sem kynnt var á mánudag, kunni að hafa víðtæk áhrif á meðferð hjartasjúkdóma. Sjúklingamir, sem allir þjást af hjartasjúkdómum, voru settir á fitusnautt fæði, látnir sækja streitunámskeið og stunda létta líkamsþjálfun. „Það skiptir miklu, ef sýnt verður fram á, að unnt sé að stöðva framrás kransæðasjúk- dóma með því einu að breyta lífsháttum fólks — án þess að grípa til lyfjagjafa," segir dr. Alexander Leaf, forstöðumaður hjartadeildar Massachusetts Gen- eral Hospital í Boston. Niðurstaða vísindamannanna kom á óvart, því að skammt er síðan í ljós kom, að unnt er að vinna á blóðtappa með sterkum lyfjum. Dr. Dean Omish, aðstoðarpró- fessor við læknadeild Kalifomíu- háskóla, fór fyrir hópnum, sem rannsóknina gerði. „Ef niðurstöðumar verða jafnjákvæðar hér eftir sem hingað til, hljóta þær að vega þungt, þegar læknar ákveða, hvort gripið skuli til hjartaígræðslu, hjárása- raðgerðar eða annarra hátækni- legra aðgerða, sem þeir hafa lagt traust sitt á fram til þessa," bæt- ir dr. Leaf við, en hann stjómar tilraunum með forvarnalækningar við læknadeild Harvardháskóla og er fyrrum yfirlæknir á Massac- husetts General Hospital. Fólkið í rannsóknarhópnum hafði allt fengið þann úrskurð, að það væri með alvarlega hjarta- sjúkdóma. Alls fímmtíu manns var af handahófí skipt niður í tvo hópa. Annar hópurinn fékk hefð- bundna meðferð; var meðal ann- ars ráðlagt að lækka kólesteról- stig blóðsins og blóðþrýsting og að hætta að reykja. Fólkið í hinum hópnum fékk miklu strangari fyrirmæli um heil- brigt lífemi. Það var sett á fitu- snautt grænmetisfæði — minna en 10% hitaeininganna úr fitu, ómettaðri. Þetta er aðeins þriðj- ungur þeirrar fitu, sem er að meðaltali í fæðu Bandaríkja- manna. Líkamsþjálfun einstakl- inganna var sniðin við hæfí hvers fyrir sig, og hópurinn allur tók þátt í námskeiði í slökun, jóka og hugleiðslu, auk þess sem reykingafólkinu var fyrirskipað að hætta. Ef gerður er samanburður á þeim 12 sjúklingum, sem búnir em að ganga í gegnum ströngu meðferðina, og 17 sjúklingum, sem fengið hafa hefðbundna með- ferð, kemur í ljós, að æðar hinna fyrmefndu (í tilraunahópnum) hafa víkkað mælanlega. Fyrir meðferðina úrskarðuðu læknamir, að lokunarstig í krans- æðum sjúklinganna í tilrauna- hópnum væri 44,4% að meðaltali (þ.e. í sumum kransæðanna var að minnsta kosti 70% lokun, en aðrar vom tiltölulega vel opnar). Eftir eitt ár hafði meðallokunin minnkað niður í 40,8%, og dr. Omish segir, að árangurinn hafi orðið bestur, þar sem lokunin var mest. Á hinn bóginn jókst meðallok- unin hjá þeim, sem fengu hefð- bundna meðferð, úr44,l 146,2%. Bæklingar með umsóknareyðublöðum liggja frammi í öllum VERSLUNUM SAMVINNUMANNA, öllum af- greiðslum SAMVINNUBANKA ÍSLANDS, SAM- VINNUTRYGGINGA og SAMVINNUFERÐA- LANDSÝNAR. Auk þess má snúa sér til afgreiðslu SAMKORTS hf. ^ ÆJfF, .. .................................................... Ármúla3~ 108 Reykjavík- Sími91-680988

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.