Morgunblaðið - 24.11.1988, Síða 31

Morgunblaðið - 24.11.1988, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1988 31 Færeyjar: Lúskruðu á lögreglunni Þórshöfh. Frá Snorra Halldórssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. FIMM menn á aldrinum 17-21 árs, sem lúskruðu á tveimur lögT'eglu- þjónum í Þórshöfn í síðustu viku, geta í versta falli átt von á sex ára fangelsisvist og sekt. Arásin átti sér stað er lögreglu- mennimir komu á vettvang vegna innbrots í hljómtækjaverzlun í Þórs- höfn aðfaranótt sl. miðvikudags. Skyndilega réðust fímm menn, sem dregið höfðu nælonsokka yfir höfuð sér, til atlögu gegn lögregluþjónun- um. Rifu þeir af þeim kylfumar og létu högg og spörk dynja á þeim. Létu þeir síðan til skarar skríða gegn bifreið lögregluþjónanna, bratu í henni rúður og eyðilögðu bílsíma. Arásarmennimir náðust síðar um Bandaríkin: Brj óstastækkan- ir leyfðar áfram Washington. Reuter. DÓMNEFND á vegum bandaríska Matvæla- og lyfjaráðsins komst að þeirri niðurstöðu í gær að ekki væri hægt að banna brjóstas- tækkunaraðgerðir sem framkvæmdar eru með því að koma gervi- efiiinu silíkoni fyrir í bijóstum. í niðurstöðum nefiidarinnar sagði að ekki hafi verið sannað með læknisfræðilegum rökum að kon- um stafi hætta af aðgerðinni. Nefndin mælti með þvi að kon- ur yrðu varaðar við því að aðgerð- in gæti haft heilsuspillandi áhrif og vildi að gerð yrði spjaldskrá yfir þær konur sem gangast und- ir aðgerðina. Það var mat nefndarinnar að bandaríska Matvæla- og lyfjaráð- ið ætti að kreQast þess að læknar fái skriflegt samþykki þeirra kvenna sem vilja gangast undir bijóstastækkun. Um tvær milljónir bandarískra kvenna hafa gengist undir bijóstastækkunaraðgerðir. Að- gerðin er fólgin í því að silíkons- ekkjum er komið fyrir í brjóstun- um í þeim tilgangi að stækka þau eða breyta lögun þeirra. Ástæður þess að rannsókn hófst á skaðsemi bijóstastækkana með silíkon var rannsókn sem framleiðandi silíkons, Dow Com- ing, gerði og leiddi í ljós að æxli geta myndast í rottum þegar silí- koni er sprautað í þær. Neys- lusamtök í Bandaríkjunum kröfð- ust banns við notkun silíkonefna f bijóststækkunaraðgerðum. nóttina og vora úrskurðaðir í 14 daga gæzluvarðhald. Við yfir- heyrslur sögðust þeir hafa ráðist á lögregluþjónana í hefndarskyni þar sem nokkrir þeirra höfðu verið handteknir nokkram dögum áður. Um fyrri helgi bratust mennimir inn í hús í Þórshöfn og er maður úr næsta húsi hugðist stugga við þeim hótuðu þeir honum og fjöl- skyldu hans lífláti. Fékk fjölskyldan taugaáfall. Þar sem það er ekki til siðs að hafa menn í haldi meðan á rann- sókn innbrots stendur vora menn- imir fimm látnir lausir. Létu þeir þá til skarar skríða á ný og lú- skraðu á lögreglunni, sem fyrr seg- ir. Verkföllin ekki að leysast ENGIN lausn er í sjónmáli í verk- falli útvarpsmanna og starfsmanna á sjúkrahúsum. Langur tími líður milli samningafunda og þykir það m.a. benda til að samningsaðilar séu ekki á þeim buxunum að semja í bráð. Almennt er talið að endir verði bundinn á verkfall sjúkrahúss- manna þegar nær dregur fyrir- hugaðri vinnustöðvun starfsmanna á rannsóknarstofum þeirra. Hún hefur verið boðuð 1. desember næstkomandi. Aðeins átta starfsmenn útvarps- ins hafa mætt til vinnu að undanf- ömu, þ.á.m. útvarpsstjórinn, og hefur þeim tekizt að halda uppi útsendingum í klukkutíma í hádeg- inu og frá klukkan 18.30-20.00. Hillir ekki undir samkomulag í deilu, sem stendur yfir þar á bæ. Tekur sfjórn sjálfstæðismanna við? LEIÐTOGAR Fólkaflokksins freista þess enn á ný að mynda nýja landsstjórn í Færeyjum en fyrri samningalotur flokka þar í landi hafa engan árangur borið. Sem stendur bendir flest til þess að mynduð verði stjórn flokka, sem hafa sjálfstæði Færeyja á stefnu- skrá sinni. Jógvan Sundstein, form- aður Fólkaflokksins, segist ekki útiloka myndun stjórnar með þátt- töku Þjóðveldisflokksins, Sjálvstýr- isflokksins og Kristilega fólka- flokksins. Stjórn af því tagi hefði á bak við sig 18 lögþingsmenn af 32. Tilraunir til þess að mynda stjóm Fólkaflokksins, Jafnaðarflokksins og Sambandsflokksins hafa engann árangur borið. Fyrirhugað er að lögþingið komi saman til síns fyrsta fundar eftir kosningar í næstu viku. Hvernig ersnjórinn á bragðið? Eins og fram hefur komið hefur veturinn tekið völdin í Evrópu með fannkomu og frosthörkum. Þessi mynd var tekin eftir að fyrsti snjór- inn féll í Vestur-Berlín, nánar tiltekið í dýragarðinum þar í borg. Sjimp- ansar era forvitnar og fróðleiksfúsar skepnur og þessi kynnti sér fyrir- bærið með því að bragða á því. Bresk spá um málmmarkaðinn: Álverðið lækk- ar á næsta ári London. Reuter. LÍKLEGT er, að málmverð lækki nokkuð á næsta ári frá því, sem það hefur verið hæst á þessu. Er ástæðan sú, að betra jafnvægi verður á milli framboðs og eftirspumar en verið hefur. Kemur þetta. fram í breskri könnun á málmmarkaðnum. Engin hætta er á verðhrani vegna þess, að framleiðendur hafa gætt þess að auka ekki framleiðsl- una um of, en jafnvægið mun nást þegar dregur úr iðn- og bflafram- leiðslu í aðildarríkjum OECD. Kem- ur þetta fram í skýrslu frá EIU (Economist Intelligence Unit), rannsóknastofnunar á vegum Ec- onomist-útgáfunnar í Bretlandi. Búist er við, að framboð á áli og kopar muni aukast það mikið miðað við eftirspum, að verðið á báðum málmunum verði um 0,90 dollarar pundið á næsta ári. Trúlegt er, að jafnaðarverð fyrir ál á þessu ári hafí verið um 1,20 dollarar pundið. Minni breytingum er spáð á verði annarra málma eins og blýs, zinks, tins og nikkels. Ef bú finnur bennan stað geturðu gert reifarakaup á bókum, leikföngum og Þeir sem hafa þegar komið auga á Jólamarkaðinn í Fellagörð- um hafa sparað drjúgt með hagstæðum jólainnkaupum. hað er ekki að furða því að þetta er eini bókamarkaðurinn með mikið magn ódýrra bóka og leikföng og jólavöru að auki. Bættu Fellagörðum inn á kortið þitt og gerðu góð kaup fyrir þessi jól. JÓIAMARKAÐURINN DRAFNARFELL 16, FELLAGÖRÐUM, S. 78588

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.