Morgunblaðið - 24.11.1988, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1988
Gunnar Bjarnason
„Það á að hagnýta þá
neikvæðu auglýsingu á
vörum okkar, sem
grænfriðungar hafa
komið af stað úti í
heimi. Með réttum
vinnubrögðum og réttri
túlkun í sterkustu §öl-
miðlum heims á að
heQa kröftuga gagn-
sókn.“
hross frá áhorfendasætum og veð-
málastúkum.
Lítum aðeins á þorskastríðið. Þar
áttum við í átökum um mikilvæg
hagsmunamál sjómanna og útgerð-
armanna í nágrannalöndunum.
Þessir menn vissu ekkert um veiði-
þol íslenzkra fiskstofna. Að því stríði
loknu hófum við rannsóknir eftir
fjárhagslegi-i getu þjóðarinnar á
veiðiþoli fiskistofnanna. Af þessu
starfi okkar hafa nágrannar okkar
lært, og nú hrósa þessir fyrrum and-
stæðingar íslendinga okkur fyrir
framsýni og alla framkomu í málinu.
Þetta var alvöru stríð. Þetta
ástand í dag vegna hvalveiða og fisk-
sölu er stríð við fífl og ósvífna mála-
liðsterrorista. í þessu stríði högum
við okkur ekki rétt. Hvað á að
gera?
Þetta, sem hér á efir verður sagt:
Það á ekki að híma undir hús-
vegg eins og maður með vonda
samvizku og snökta út í veröldina
og biðja um miskunn og hjálp. Það
á að hagnýta þá neikvæðu auglýs-
ingu á vörum okkar, sem grænfrið-
ungar hafa komið af stað úti í heúni.
Með réttum vinnubrögðum og_rétt.ri
túlkun í sterkustu fjölmiðlum heims
á að hefja kröftuga gagnsókn og
nota þar bæði „fallbyssur" og
„sprengjur" svo að almenningur í
heiminum hrökkvi við og fari að
hugsa um málin.
Hvernig má þetta vera gert?
Auðvelt mál, þannig:
Alþingi feli samróma ríkis-
stjórninni að setja sölubann á alla
verzlunarhringi og sölusamtök úti
í heimi, sem láta hvalfriðunar-
terroristana segja sér fyrir verk-
um. Þetta verði öllum samtökum og
verzlunum tilkynnt og um leið það,
að þeir muni aldrei, hvorki í styij-
öld eða hungursneyð, fá keyptar
matvörur frá íslandi — aðeins
hinir, sem standast hótanir terr-
oristanna, fá að njóta þessara við-
skipta. Þessi ákvörðun verði þannig
kynnt heiminum, að stærstu sjón-
varpsstöðvum vestan hafs og
austan verði boðið hingað og tekið
vel þeim gestum með útsýnisferðum
og veisluhöldum að fornum höfð-
ingjasið, og loks lesi forseti Íslands
þessa ályktun Alþingis á fjórum
tungumálum af svölum þinghússins
með góðri myndatökuaðstöðu fyrir
fréttamennina, og þar að auki verði
þangað safnað svo mörgu fólki inn
á Austurvöll, að þar verði þéttskip-
að. Þannig mundi boðskapurinn
komast til skila til almennings
þess, sem fískinn borðar.
Það er auðvelt að gera stutta
greinargerð með tillögunni, og ein-
mitt liggur í dag hér á borði mínu
ágætlega skrifuð grein eftir Jón
Sæmund Sigurjónsson, þingmann
Alþýðuflokks á Norðurlandi.
Hann segir allt, sem segja þarf. Það
þarf enga nefíid sérfræðinga í það
mál. Hættan er að bulla of mikið
og kæfa meginkjarnann með
vísindaþvælu, sem neytendur skilja
ekkert í.
Það þarf að koma skýrt fram í
textanum að þetta gerum við íslend-
ingar samkvæmt fyrirmynd hinna
stærri þjóða í NATO, að láta ekki
undan skemmdarverkamönnum.
Síðan og strax að þessari athöfn
lokinni verði sendir til útlanda
100—200 stúdentar með nokkrar
milljónir af litlum og auðskildum
bæklingi á frönsku, ensku og
þýzku og þeir dreifi bæklingnum í
allar meiriháttar matvöruverzlanir
og heildverzlanir, og þó því aðeins
að þeir samþykki að skipta við okk-
ur og dreifi pésanum, en textinn á
fremstu síðu verði sem næst þessi
með eins stóru letri og þar kemst
fyrir:
Við eigendur þessarar verzlun-
ar fordæmum terroristaaðgerðir
Greenpeace-hreyfingarinnar og ann-
arra þeirra samtaka, sem beijast
með óheiðarlegum hætti gegn hefð-
bundnum atvinnuháttum Islendinga
og annarra norðlægra þjóða, sem
lifa af fískveiðum.
Við metum vinnubrögð Islendinga
til að vernda lífríki sjávarins í norðri
og fylgjast með stærð og ástandi
fiski-, sela- og hvalastofna, sem þeir
stunda öðrum þjóðum framar og til
fýrirmyndar.
Vegna hins tandurhreina sjávar
og aldagamallar fiskveiðimenningar
íslenzku þjóðarinnar er það löngu
viðurkennt, að þaðan kemur lang-
besti fiskur heimsins að flestra dómi.
Okkur er því ánægja af því, kæru
viðskiptavinir, að geta boðið ykkur
nú og í framtíðinni til sölu og neyzlu
það besta fiskmeti, sem heimsbyggð-
in hefur upp á að bjóða.
Höfundur er útflutningsráðunaut-
ur hjá Félagi hrossabænda.
8S
________________________39
Aðalfimdur
Borgara-
flokksins á
Reykjanesi
AÐALFUNDUR kjördæmisfé-
lags Borgaraflokksins í Reykja-
neskjördæmi var haldinn í veit-
ingahúsinu Gaflinum þriðjudag-
inn 1. nóvember 1988.
Halldór Pálsson í Hafnarfirði var
endurkjörinn formaður en stjórn
félagsins'skipar 21 maður víðs veg-
ar úr kjördæminu. Félagið hefur
haldið uppi þróttmiklu starfi í kjör-
dæminu frá því það var stofnað 4.
júní 1987. Skrifstofa félagsins er í
Hafnarfirði og eiu þingmenn Borg-
araflokksins í kjördæminu þar til
viðtals alla þriðjuddaga kl. 17—19.
A fundinum, þar sem um 100
félagar og gestir voru mættir, ræddi
formaður Borgaraflokksins, Albert
Guðmundsson, um stjómmála-
ástandið í kjölfar myndunar nýrrar
ríkisstjórnar og svaraðí fjölda fyrir-
spurna fundarmanna ásamt þing-
mönnum kjördæmisins, þeim Júlíusi
Sólnes og Hreggviði Jónssyni.
(Fréttatilkynning)
nýja sið fylgdu lög. í þessum lögum
stóð og stendur enn þá, ef ég man
rétt: „Þú skalt ekki mann deyða.“
Flest lönd þar í Evrópu gengust
undir þenna nýja sið og lögin, sem
honum fylgdu.
Ja, það voru stór loforð gefin,
mikið í fang færst, enda gengið illa
víða að halda loforðin.
Það er stolt, það er fjöregg, það
er hátindur okkar menningar, að
við höfum ekki vopn, en tekist hef-
ur að leysa deilur með samningum.
Svo mikið er rætt og ritað um
frið og afvopnun í heiminum, að
áreiðanlega öfunda okkur margir
og spytja: „Hvernig fóm íslending-
ar að þessu?“ Því er til að svara:
Verið ljúf og góð við börnin, hafið
ekkert ljótt fyrir þeim, þá verða þau
ljúfar og góðar manneskjur, jjjóðum
sínum til sóma og geta með gleði
minnst æsku og bernskustöðvanna
og sagt:
Allt var þar glatt hið góða,
því göfuga opnaðar dyr.
Það var innlegg í alþjóða sóma,
það er eilífðar vermandi hyr.
Andlit Islands! Eg hef reynt að
hugsa, en ekki tekist að skilja eða
getað sætt mig við þetta heiti,
minnist heldur ekki að Kafa séð eða
heyrt slíkt áður. Hins vegar eru
mörg nöfn tengd landinu, svo sem
faðir, móðir, fóstra og fleira.
Lengi hefur landið okkar átt sína
Fjallkonu eða drottningu, saman-
ber:
„Fjalladrottning, móðir mín,
mér svo kær og hjarta bundin."
Ekki skortir drottninguna hirð-
ina:
„Huldar landsins vemdarvættir,
vonarglaðar stíga dans.
Guðm. Guðm.
Er það nauðsynlegt að bæta and-
liti á Island ofan á öll nöfnin, ljóðin
og — ættjarðarástina!! Ef svo er,
er þá afsakanlegt að sækja það |jót-
asta aftur í heiðni til að stimpla
þetta andlit með? Ég bara spyr!
Höfundur er rithöfundur.
ALSTIGAR
ALLAK GERÐIR
SÉRSMÍÐUM
BRUNASTIGA O.FL.
Kaplahrauni 7, S 651960
10 ARA ABYRGÐ
Þegar Soffía fermist hefur hún að
eigin dómi náð því marki að verða
fullorðin. En fullorðna fólkið er á
öðru máli, að minnsta kosti þegar það
hentar því.
Metsöluhöfundurinn Iðunn
Steinsdóttir fer á kostum í bók sinni
„Víst er ég fullorðin“ sem fjallar um
eftirvæntinguna, öryggisleysið,
forvitnina og hræðsluna um að vera
örðuvísi en hinir, sem togast á í okkur
meðan við erum að breytast úr barni í
fullvaxta manneskju.
Iðunn, uppá sitt besta, er
gulltrygging fyrir góðum lestri. Bók
fyrir unglinga á öllum aldri.
Víst er ég fullorðin
eftir Iðunni Steinsdóttur
Barnaoé