Morgunblaðið - 24.11.1988, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 24.11.1988, Qupperneq 47
8801 H3HM3VOV. .£S 3TJí)A(lUi ■Hii ,(flCiAJaM JOHOH mörgunbeaðtit;'fimmtudagur; 24. nóvember;iw m ~37 Hvalveiðar Islendinga eftir Grím Karlsson Hvalveiðar okkar eru jafngamlar íslandssögunni. En í tæpa hálfa öld höfum við gert út 4 hvalbáta, og veiðin verið allar götur söm og jöfn, eða um 400 dýr á ári. íslendingar hafa ekki eitt einasta skipti freistast til að taka meira þótt oft hafi verið þörf á auknum útflutningi. Erlendis hefur verið bent á hval- veiðar íslendinga, sem fyrirmyndar- veiðar, vegna stöðugleika, fyrir- hyggju og framsýni. Auk þess hafa 1.500-2.000 hrefnur verið veiddar af Norðmönn- um, aðallega á íslensku hafsvæði. Hrefnuveiðimenn fyrir norðan og vestan hafa orðið fyrir gífurlegu tjóni því í stað þess að auka veiðam- ar í 1.500-2.000 hrefnur á ári, þá veiða þeir ekki neitt. Menn tala um mikla eða litla hagsmuni, en aðalat- riðið í hvalveiðimálinu er, að við erum hluti af lífkeðjunni, eigum lífsafkomu okkar undir viðgangi hennar og varðveislu. Það er íslenska þjóðin sem á landið í nútíð og framtíð, gögn þess og gæði, og það ætti ekki að vera í huga nokkurs lifandi manns að hugsa um að breyta því. Þótt háværar raddir út í heimi, þrátt fyrir bitra reynslu, séu enn að flokka bæði menn og dýr_í æðri og óæðri verur, og vilji nú að íslend- ingar víki eða hverfi af eigin vett- vangi, verðum við að sameinast og mótmæla því harðlega enn einu sinni. Við ísiendingar megum ekki horfa um of á tiltekin aukaatriði. Við þurfum að þjappa okkur um að varðveita og viðhalda lífríki okk- ar hafsvæðis sem tilvera þjóðarinn- ar byggist á. Skuldir og vonlaus rekstur mega ekki heltaka hugi ráðamanna þann- ig að þeir sjái ekki vanda arðbærra og lífsnauðsynlegra atvinnugreina. Það er eins og sumir ráðamenn vilji ekki hugsa nema um þá sem sitja í skuldasúpunni. Eru hvalveið- ar kannski of arðbærar til að njóta athygli? En ef þeim verður hætt þá verða það fleiri en hval- og hrefnuveiðimenn sem sitja í skulda- súpunni, innan fárra ára verður það þjóðin öll. Óvinum lífkeðjunnar, Grænfrið- ungum, er mikið í mun að eyði- leggja tækifæri okkar og sjálfsagð- an rétt til að sanna fyrir opnum tjöldum veiðiþol og fæðuþörf hvala- Grímur Karlsson „Ef alþjóðahvalveiði- ráðið getur ekki séð til þess að við fáum frið til að ljúka okkar rann- sóknum þá höfum við ekkert að gera lengur í þeim félagsskap.“ stofna ásamt fleiru, með vísinda- veiðum. í upphafi árása Grænfriðunga voru þeir ósparir á að bjóða pen- ingagreiðslur ef við vildum selja og svíkja rétt okkar og óborinna ís- lendinga. Ef Grænfriðungar hætta ekki skemmdarverkum á atvinnu- starfsemi og viðskiptum okkar við önnur lönd og vilja ekki skilja eða skoða rök okkar Islendinga í hval- veiðimálinu, er ekki um annað að ræða en að halda vísindaveiðunum sér næsta sumar, en að auki gera hina hvalbátana út af fullum krafti. Og þó við veiðum 1.500 hrefnur þá mun ekki sjá högg á vatni á þeim stofni. Ef alþjóðahvalveiðiráðið getur ekki séð til þess að við fáum frið til að Ijúka okkar rannsóknum þá höfum við ekkert að gera lengur í þeim félagsskap. Grænfriðungar ættu að hugsa sig um áður en þeir ganga of langt — og það hafa þeir raunar þegar gert. Það má líka beina þeirri spum- ingu til Grænfriðunga, hvort þeir telji málunum betur komið ef við þurfum að selja Rússum og Japön- um hval- og hrefnuveiðiréttindi í íslenskri lögsögu. Höfundur er skipstjóri í Njarðvík. Bjart skrifborðsljós, heima og á vinnustað: DULUX*TABLE Fæst i öllum helstu raftækjaverslunum og kaupfélögum. Heildsölubirgöir: — Fallegur skrifborðslampi með sparnaðarperunni DULUX® S 11W; sem jafn- gildir birtu 75W glóperu. — Hreyfanlegur í allar stellingar. — Litir: svartur, hvítur. OSRAM Ijóslifandi orkusparnaður ts JÖHANN ÚLAFSSON & C0. HF. 43 Sundaborg 13 — 104 Reykjavík - Sími 688 588 sem jafn gaman er að gefa og þiggja N JL, n úna er tími jólakortanna, tíminn til að senda ættingjum og vinum ljúfar jóla- og nýárskveðjur. Fallegt jólakort með skemmtilegri ljósmynd af „uppáhalds“ fólkinu þínu er sannarlega ein gleðilegasta jólagjöf sem völ er á. EIÐIST0RGI FUJI framköllunin við Eiðistorg býður stór og litrík íslensk jólakort,ætluð fyrir ljósmyndir, ásamt umslagi á aðeins 28.- kr. Við framköllum litljósmyndir og göngum frá kortum með mynd sé þess óskað. Tilbúið kort með mynd og umslag kostar 45.- kr. FUJI framköllunin, Eiðistorgi 15. Síminn er (91)-611215. VERK) HAG/Vn VEUIÐ GÆÐAVÖRUR Á CÓÐU VERÐI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.