Morgunblaðið - 24.11.1988, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 24.11.1988, Qupperneq 48
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NOVEMBER 1988 Viðkvæmu málin gleymd- ust á flokksþingi fram- sóknarmanna Er sameiningartalið í samræmi við steftiuna? EF marka má stjórnmálayfírlýsingar þings Alþýðuflokksins, sem haldið var um síðustu helgi, virðist endanlega staðfest að flokkurinn hafí slitið „trúlofun“ sinni við Sjálfstæðisflokkinn og biðli nú til vinstri í staðinn. Mikið var rætt á þinginu um að nú yrði að sameina íslenska jafnaðarmenn á ný í stórum flokki, og komu bæði flokks- formaðurinn Jón Baldvin og Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra, inn á það í ræðum sínum á þinginu og sendu Sjálfstæðisflokknum föst skot. Hins vegar var greinilegt af orðum Jónanna beggja að þótt nú sé biðlað til hinna félagshyggjuflokkanna hafíia þeir markaðslausn- um í efnahagslífínu alls ekki eins eindregið og samstarfsmenn þeirra í ríkisstjóm, framsóknarmenn, gerðu á sínu flokksþingi. Sú stefna á varla hljómgmnn hjá Alþýðubandalagsmönnum heldur. Að þessu leyti virðist forystan vera í dálítilli mótsögn við sjálfa sig, og hóp- ar, sem era málsvarar ólíkra sjónarmiða innan flokksins, þykjast því hafa ástæðu til að vera óánægðir með hana af mismunandi ástæð- um. Það er líklega ofeinföldun að tala þar um togstreitu milli hægri og vinstri, einnig kemur við sögu ágreiningur um menn og vinnu- brögð. Að sögn nokkurra viðmælenda Morgunblaðsins hefur Jón Baldvin, formaður flokksins, verið gagnrýndur fyrir að hafa lítil sam- skipti við „gamla flokkinn“. Ákvarðanir séu ekki teknar á flokksskrifstofunni heldur á Vestur- götunni með vinum og kunningjum. Þá sé oft ekki leitað inn í flokkinn þegar þurfi að skipa menn í nefnd- ir og ráð, vegna þess að Jón treysti ekki sínum eigin flokksmönnum. í • staðinn séu fengnir utanaðkomandi menn, sem lítið hafi sést í flokks- starfí, en hafí trúnað Jóns Baldvins. Jóhanna vill félagshyggju Jóhanna Sigurðardóttir hafði fyr- ir þingið látið í ljósi efasemdir um að hún myndi gefa kost á sér í embætti varaformanns áfram. Margir túlkuðu það sem missætti við Jón Baldvin Hannibalsson, og að sögn þeirra sem til þekkja var Jóhanna óánægð með það hversu lítið samráð Jón Baldvin hefur haft við hana og fleiri flokksmenn, en þeim mun meira við Jón Sigurðsson og þröngan hóp í kring um þá tvo. Þennan ágreining tókst greinilega að jafna fyrir þingið, að minnsta kosti á yfírborðinu. Jóhanna hélt ræðu við setningu þingsins á undan Jóni Baldvin. Þar kom óánægja hennar greinilega í ljós, en hún forð- aðist allar yfírlýsingar um innan- flokksmál. Sagðist aðeins hafa orð- ið fyrir vonbrigðum með fram- kvæmd stefnu flokksins og varpaði fram þeirri spurningu hvort grund- vallaratriði jafnaðarstefnunnar hefðu fallið í skuggann í efnahags- málaargaþrasi. Þótt hún boðaði aft- urhvarf til félagshyggju og baráttu launþega gegn gróðaöflum og for- réttindahópum talaði Jóhanna hins vegar ekki um sameiningu vinstri flokkanna. Jóhanna hlaut glæsilega kosn- ingu í varaformannsembættið (202 af 209), töluvert betri en Jón Bald- vin í formannsstöðuna. (190 af 206) Að sögn innanbúðarmanna hefur Jóhanna betri tengsl inn í flokkinn en formaðurinn. Staða hennar í flokksforystunni er talin hafa styrkst, meðal annars vegna kjörs Láru V. Júlíusdóttur í ritara- stöðu, en Lára er fyrrum aðstoðar- maður Jóhönnu og á ágæt sam- skipti við almenna flokksmenn að sögn viðmælenda blaðsins. Fram- bjóðandi Jóns Baldvins til æðstu embætta í flokknum var hins vegar Elín Alma Arthúrsdóttir, gamall nemandi hans úr Menntaskólanum á ísafírði. OLAFUR Þ. STEPHENSEN AF INNLENDUM- VETTVANGI GUÐMUNDUR SV. HERMANNSSON Framsóknarflokkurinn er greinilega tiltölulega sáttur við sig og sína um þessar mundir, að minnsta kosti ef marka má flokksþing fí'amsóknarmanna um siðustu helgi. Þar lýsti hver ræðumaðurinn á fætur öðram yfír ánægju með rikisstjórnina og þær aðgerðir sem hún hefíir lofað. Þær era enda flestar í þeim anda, sem Steingrímur Hermannsson boðaði í vor, þegar hann talaði á fíind- um þar sem framsóknarmenn fengu að blása út, vegna óánægju sem stjórnarsamstarfið þá. Fyrir nokkrum árum var Framsóknarflokkurinn í kreppu eftir kynslóðaskipti í for- ustunni og tilraunir til að breyta þeirri ímynd að flokkurinn væri bænda- og landsbyggðarflokkur. Þetta var m.a. undirstrikað með því að Steingrímur Hermannsson fór í framboð fyrir Reyknesinga. Þessi breyting fór verulega fyr- ir brjóstið á mörgum landsbyggð- armönnum, sem samfara auknum erfíðleikum á landsbyggðinni magnaði umræðuna um lands- hlutamisrétti, þar sem menn töldu sig vera að missa málsvarann suður. Nú virðist hins vegar sem breytingin hafi tekist nokkuð vel, ef tii vill vegna þess að á sama tíma hefur félagsstarfíð í flokkn- um tekið nokkrum stakkaskipt- um. Menn þakka það Sigurði Geir- dal, sem tók við sem fram- kvæmdastjóri flokksins haustið 1986. Sigurður var áður fram- kvæmdastjóri Ungmennasam- bands íslands og hefur mikla reynslu af félagsmálum á landsv- ísu. Og undanfarið hefur Fram- sóknarflokkurinn lagt mun meiri áherslu á að kjördæmasamböndin taki þátt í flokksstarfinu, þannig að þótt flokkurinn réyni að höfða meira til þéttbýlisins, hefur hann um leið bætt samskiptin við lands- byggðina. ' A flokksþinginu 1986 var sam- þykkt að formenn kjördæmasam- bandanna tækju sæti í fram- kvæmdastjóm. Á þinginu nú kvörtuðu raunar sumir yfir þess- ari breytingu. Finnur Ingólfsson gjaldkeri flokksins sagði m.a. að eftir þessa stækkun væri fram- kvæmdastjómin algerlega óstarf- hæf. En aðrir segja að þetta hafí aukið verulega lýðræði í flokkn- um, og um leið hafí dregið úr óánægjuröddum á landsbyggð- inni. Og á þinginu um helgina var samþykkt að skipa nefnd til að endurskoða flokksstarfið, sem í sitja formenn kjördæmasambanda og landssambanda flokksins, en ekki fulltrúar „flokksapparatsins" í Reykjavík. Einn framámaður flokksins á Norðurlandi sagði við Morgun- blaðið að það hefði verið áberandi minna um hörð átök á milli manna um byggðamál á nýliðnu þingi en áður. Það stafaði örugglega af því að formenn kjördæmasam- bandanna væm komnir inn í flokksstjórnina, og tillögur undan- genginna kjördæmisþinga hefðu verið hafðar til hliðsjónar við ályktanasmíði fyrir flokksþingið. Framsóknarmenn hafa einnig fengið aukið sjálfstraust vegna skoðanakannana sem sýna æ of- aní æ, að Steingrímur Hermanns- son og Halldór Ásgrímsson eru vinsælustu stjómmálamenn landsins. Og flokksþingið sýndi raunar vel hvers vegna Steingrím- ur Hermannsson er jafn vinsæll meðal framsóknarmanna og ann- ara og raun ber vitni. Hann hefur mjög sérstæðan ræðustíl, þar sem hann rabbar við áheyrendur frekar en flytur yfir þeim ræðu. Einnig virtist hann fínna hvað áheyrendur vildu helst heyra og var oft á undan að brydda upp á málefnum sem gátu orðið umdeild. Hann tók síðan mikinn þátt í störfum þingsins, svaraði flestum ræðumönnum ef þeir höfðu verið með einhveija gagnrýni og stjórn- aði starfshópi sem fjallaði um stjómmálaályktun. Þetta allt færði Steingrím nær þingfulltrúum. En í fréttatímum sjónvarpsins undirstrikaði svið- setningin að þarna var forsætis- ráðherra að tala: í baksýn var merki Framsóknarflokksins með íslenska fánann á hvora hlið. Á þinginu töluðu ekki allir í takt við setningarræðu Steingríms. Til dæmis flutti Valur Amþórsson þau skilaboð frá Sam- bandinu að gengisfelling væri lífsnauðsynleg fyrir útflutnings- Steingrímur Hermannsson á flokksþingi Framsóknarflokksins, með flokksmerkið og fánann í baksýn. greinamar, þótt Steingrímur hefði áður sagt að hann teldi slíkt ekki koma til greina eins og staðan væri. En þótt mörgum framsóknar- mönnum finnist sjálfsagt að ríkis- stjóminni gangi hægt að fram- fylgja ýmsum stefnumálum, svo sem raunvaxtalækkun, má segja að í heild hafi þingheimur þjappað sér á bak við formanninn, ekki síst við að svara þeirri gagnrýni sem sjálfstæðismenn komu með á stjómarstefnuna og Framsóknar- flokkinn á flokksráðsfundi Sjálf- stæðisflokksins vikuna áður. Kannski vegna þessa, „gleymd- ist“ að ræða ýmis mál á þinginu. Margir óttuðust til dæmis að tog- arakaupamálið á Suðumesjum myndi blossa þar upp, vegna veru- legrar óánægju Sauðkrækinga og annara Skagfirðinga með fram- göngu Steingríms í því máli. Þegar minnst var á hvalamálið, var það einungis til að lýsa stuðn- ingi við stefnu Halldórs Ásgríms- sonar sjávarútvegsráðherra en enginn nefndi það upphlaup sem varð, þegar Steingrímur gaf undir fótinn með það að ef til vill yrði vísindahvalveiðum hætt. Lítið sem ekkert var rætt um stóriðju, eða utanríkismál og varaflugvöll, sem allt eru viðkvæm mál, bæði innan flokksins og ríkistjómarinnar. Það var þvi ekki að ófyrirsynju að Steingrímur Hermannsson túlkaði flokksþingið þannig að það hefði fyrst og fremst sýnt góða samstöðu framsóknarmanna, og að flokksforustan hefði umboð til að gera nánast hvað sem er, til bjargar atvinnuvegunum. Um við- kvæmu deilumálin í flokknum er ijallað á öðrum vettvangi. Flokksþing Alþýðuflokksins: Jón Baldvin hefíir ekki einhuga stuðning allra flokksmanna þott hann fengi góða kosningu. Þeir sem styðja sljórnarsamstarfið og tal um sameiningu við félagshyggjuflokka, era á móti utanríkis- stefíiu hans og borgaralegum áherslum í efíiahagsmálum. „Viðreisn- arkratar“ eða „hægrikratar" era sammála honum um utanríkismál- in en hatast út í Alþýðubandalagið og Framsókn. Þingið sýndi greinilega að öfugt við „viðreisnarkratana", sem vilja óbreytta stefnu í utanríkismálum og eru hlynntir samstarfí við Sjálf- stæðisflokkinn, er hluti flokks- manna hlynntur samstarfinu til vinstri, en gagnrýnir Jón Baldvin fyrir of borgaralegar áherslur. í þessum hópi eru til dæmis Birgir Ámason, formaður SUJ, og fleiri ungir jafnaðarmenn og Guðmundur Ámi Stefánsson, bæjarstjóri í Hafn- arfirði. Bæði Birgir og Guðmundur Ámi veittust harkalega að Jóni fyr- ir afstöðuna til tillagna á allsheijar- þingi Sameinuðu þjóðanna og Sam- band ungra jafnaðarmanna flutti tillögur um róttækar breytingar á utanríkisstefnunni. Þar eru ungir jafnaðarmenn þó ekki á einu máli, frekar en eldri menn í flokknum. Sumir ungu jafnaðarmennirnir tala um Birgi og stuðningsmenn hans sem „kommana" og láta litla hrifn- ingu í ljósi yfír stefnu hans. Uppruninn gleymdur? Guðmundur Ámi gagnrýndi harðlega of mikla áherslu á einka- rekstur og markaðslausnir í efna- hagslífínu hjá forystunni og taldi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.