Morgunblaðið - 06.12.1988, Side 15

Morgunblaðið - 06.12.1988, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1988 15 suuatchn ÚRSMIÐIR Skólavðrðustíg 3. Sími: 11133 Nóatúni 4 - Sími 28300 LOKAFUNDIR sýslunefnda Norður- og Vestur-IsaQarðar- sýslu voru haldnir 18. nóvember, en þær hafa starfað á aðra öld. Um var að ræða framhaldsaðal- fundi, en nefndirnar komu sam- an til aðalfunda venju samkvæmt í júnímánuði síðastliðnum. Samkvæmt sveitastjórnarlögum ber sýslunefndum að leggja niður störf eigi síðar en 31. desember 1988, en héraðsnefndir skulu mynd- aðar í stað þeirra. Allir hreppar Norður- og Vestur-ísafjarðarsýslu hafa tilnefnt fulltrúa í héraðsnefnd, en formleg stofnun þeirra hefur þó ekki átt sér stað. ísafjörður og Bolungarvík hafa hins vegar hafnað samstarfi við þessi sveitarfélög í héraðsnefnd. A framhaldsaðalfundunum var farið yfir nokkur mál til lokaaf- greiðslu, þar á meðal sýsluvegamál og fjárhagsáætlanir. Samþykktar voru tillögur til þeirra héraðs- nefnda, sem myndaðar verða, að láta rita sögu sýslunefndanna frá upphafi og kanna sérstaklega hvort ekki þyki henta að rita sameigin- lega sögu sýslunefnda Norður- og Vestur-Isafjarðarsýslu. Þjóðmál og almenn héraðsmál voru að vanda rædd á fundum sýslunefndanna. Sýslunefndimar samþykktu að lokum að leggja niður umboð sitt við næstu áramót. Þær hvetja allar sveitarstjómir í sýslunni til þess að skipa svo málum sínum í hinum nýju héraðsnefndum, að þessi um- skipti verði íbúum sýslunnar til hagsbóta og byggðinni þar til styrktar og eflingar. Rúllugluggatjöld gluggatjöld SuAurl<ind\bniui ð. Siml; 91 - b J2 15- SMITH& NORLAND Hún er smá - en samt svo kná! Fjölhæf! Kraftmikil! Fyrirferðalítil! MK 1004: Lítil eldhúsvél frá SIEMENS Verd: 6.360,- „ Svarti Haukurinn “ hefur á sér svipmót fimmta áratugarins en undir niðri leynist hátækni nútfmans. Viö sendum öll úr i póstkröfu, árs ábyrgð. vísa og úrskífu. Ólin er úr besta Nýju Swatch úrin eru mætt - stundvíslega. Lítum á eitt þeirra. „ Svarti Haukurinn “ er með swatch-Quartz úrverkið í högg- og vatnsþéttri umgerð úr IgÆÐASTÁLI Stóra tölustafi og SJALFLYSANDI Bók um íslandsför Collinffwoods 1897 ÖRN og Örlygur hafa gefið út bókina Fegurð íslands og fornir sögustaðir — Svipmyndir og sendibréf úr Islandsfor W.G. Collingwoods 1897. Bókin Fegurð íslands og fomir sögustaðir hefur að geyma afrakst- ur Islandsferðar Collingwoods árið 1897 auk ævisögu hans sem Har- aldur Hannesson ritaði. Colling- wood var breskur fornfræðingur og listmálari sem ungur hreifst af ís- lendingasögum og fomnorrænni menningu. Megintilgangur Collingwoods með ferð sinni hingað var sá að mála myndir af sögustöðum tengd- um íslendingasögum og eru afköst hans á því sviði ótrúlega mikil. Hann ritaði einnig fjölda bréfa heim til fjölskyldunnar þar sem hann lýs- ir landi og þjóð á mjög opinskáan hátt. í hinni nýju bók birtast öll bréf- in, flestar ljósmyndanna og allar þær vatnslitamyndir sem tiltækar em, 166 talsins. Þess má gjaman minnast að þegar vatnslitamyndir Collingwoods komu hingað til lands lét Kristján Eldjárn þáverandi þjóð- minjavörður svo um mælt að þær yrðu ekki metnar til fjár. Myndirnar teljast nú hluti af menningararfi íslensku þjóðarinnar og fátt lýsir betur mikilvægi þeirra en það sem Björn Th. Björnsson segir í lokaorð- um sínum í formála bókarinnar: „Pílagrímar miðalda drógu skó af fótum á helgum stöðum; Colling- wood kallar bók sína Pílagrímsferð. Fátt gæti verið meira réttnefni um hugðina í þessum fögru myndum. Því em þær okkur íslendingum ómetanleg gjöf, sem erlendur mað- ur hefur lagt á helgan blótstall lands okkar og sögu.“ Haraldur Hannesson hafði um- sjón með útgáfunni, samdi ævisögu Collingwoods, þýddi sendibréf hans og samdi við þau skýringar; ritaði eftirmála, kannaði allt myndefni og samdi ásamt Asgeiri S. Bjömssyni texta með ljósmyndum. Ásgeir S. Bjömsson hafði einnig umsjón með útgáfunni, kannaði allt myndefni og samdi texta með lista- verkum Collingwoods. Björn Th. Bjömsson, Haraldur Hannesson og Janet B. Gnospelius rituðu formála. Bjöm skrifar m.a.: „Það má kalla andlegt afrek Coll- ingwoods, með hvaða augum hann skoðar þetta land. Það er ekki með augum vonbrigða eða saknaðar lið- inna tíma, það er ekki með neinni tilhneigingu rómantískrar fegmnar, né bregður þar fyrir nokkm yfir- læti. Með heiðum huga og hreinni elsku skynjar hann tímann sem breitt hefur grænan feld sinn yfir tóftimar, yfir gamlar traðir, og hjúpað bústaði manna og dýra í sína þungu og mjúku voð. En haf- ið, fjöll og ár em söm; þau era leik- sviðið mikla sem enn stendur uppi, þótt leikararnir sjálfir séu löngu komnir af klæðum og til annarra verka.“ Norður- og Vestur-ísafiarðarsýsla: Lokafundir sýslunefhda Forsala Hótel íialin Islandi daglega frákl 19 687111 sima juiL tmvMisiieii r& LI. 24-04 Nu þarf ekki lengur að velta fyrir sér hvar á að skemmta sér á gamlárskvöld. Að sjálfsögðu með Bítlavinafélaginu á Hótel íslandi Hótel ísland skartar sínu fegurstg í Ijósum, lazerog frábærum hljómburði með hljómsveit allra lands- ^ manna. Allir gestir f á hatta og léttar veitingar Aldurstakmark 18 ar Verö aögöngumiða kr. 1.800.- kAlfskinni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.