Morgunblaðið - 06.12.1988, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 06.12.1988, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1988 Halldór Asgrímsson: Margir fá ekki lán frá Atvinnutryggingasjóði A FUNDI sameinaðs Alþingis í gær var efnt til umræðna utan dagskrár um stöðu fyrirtækja í sjávarútvegi að ósk allra stjórnar- andstöðuflokkanna. Sjávarút- vegsráðherra sagði meðal annars, að mörg fyrirtæki fullnægðu ekki skilyrðum Atvinnutrygginga sjóðs fyrir aðstoð. Þorsteinn Páls- son, formaður Sjálfstæðisflokks- ins, sagði að miðað við óbreytta stjórnarstefnu gæti atvinnuleysi í landinu orðið 4 til 5% þegar líður á veturinn. Þorsteinn Pálsson (S/Sl) sagði vanda sjávarútvegsins mikinn og að ekki yrði beðið lengur með aðgerðir. Hann sagði að forsætisráðherra og sjávarútvegsráðherra hefðu lýst því yfír að grípa þyrfti til aðgerða en ekkert hefði komið fram um það í hveiju þær aðgerðir yrðu fólgnar eða hvenær yrði gripið til þeirra. Raun- hæfar ráðstafanir yrðu að fela í sér aukið aðhald í ríkisbúskapnum og fráhvarf frá þeirri skattastefnu sem nú legðist með miklum þunga á at- vinnulífíð. Með rangri gengisskrán- ingu og aukinni skattheimtu stefndi nú í atvinnuleysi, sem gæti orðið 4 til 5% seinna í vetur. Þorsteinn sagði að langflest fyrir- tæki í sjávarútvegi væru vel rekin og gera þyrfti almennar ráðstafaniri til að tryggja afkomu þeirra. Hann sagði að lokum, að með því að færaj fjármuni úr ríkissjóði til einstakra fyrirtækja, sem væru í reynd gjald- þrota, væri stefnt að þjóðnýtingu í sjávarútvegi. Hreggviður Jónsson (B/Rn) taldi að gengisfelling væri einungis skammtímalausn og eina lausn van- dans væri að strika út skuldir fyrir- tækjanna. Kristín Halldórsdóttir (Kvl/Rn) sagði að athygli vekti, að allar lausnir á vanda sjávarútvegsins væru miðaðar við bætta afkomu fyrirtækja, en afkoma heimilanna væri afgangsstærð. Kvennalistakon- ur styddu raunhæfar aðgerðir, en gætu ekki fallist á aðgerðir sem bitn- uðu á launafólki. Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs- ráðherra sagði að kjör í landinu væru langt umfram það, sem at- vinnugreinin þyldi. Hann sagði að meðan góðæri ríkti í landinu hefði verið gengið alltof langt í aukningu ráðstöfunartekna og ekki hefði held- ur tekist að stýra ríkisfjármálunum sem skyldi. í ræðu sinni sagði sjávarútvegs- ráðherra enn fremur, að það væri Ijóst, að mjög mörg fyrirtæki upp- fylltu ekki þau skilyrði sem Atvinnu- tryggingarsjóður setti fyrir lánveit- ingum. Brýna nauðsyn bæri til upp- stokkunar í rekstri þeirra og í sum- um tilfellum sameiningar. í máli ráðherra kom einnig fram, að mörg fyrirtæki hafa stöðvast, ekki aðeins vegna rekstrarerfiðleika heldur einn- ig vegna hráefnisskorts. Mörg þeirra gætu ekki tekið aftur til starfa eftir áramót. Fleiri alþingismenn tóku þátt í þessum umræðum, sem stóðu langt fram eftir kvöldi. * Afengiskaup handhafa forsetavalds: Upplýsingar bárust nafiilaust til flölmiðla - segir Geir H. Haarde Á fundi sameinaðs Alþingis í gær urðu nokkrar umræður vegna yfirlýsingar Þorvaldar Garðars Kristjánssonar (S/Vf) um áfengis- kaup handhafa forsetavalds. Guðrún Helgadóttir forseti samein- aðs Alþingis og Ólafiir Ragnar Grímsson Qármálaráðherra svör- uðu gagnrýni hans á málsmeðferð þeirra og ummæli í fjölmiðl- um. Geir H. Haarde (S/Rvk) sagði nauðsynlegt að mál af þessu tagi fengju eðlilega umQölIun en upplýsingar um þetta mál hefðu borist fjölmiðlum með óeðlilegum hætti. Hvatti hann þingforseta til að kanna hvemig það hefði átt sér stað. Þorvaldur Garðar Kristjáns- Ólafiir Ragnar Grímsson son flutti þinginu yfirlýsingu vegna áfengiskaupa sinna, þegar hann var sem forseti sameinaðs Alþingis einn af handhöfum for- setavalds. Þessi yfírlýsing er birt í heild sinni annars staðar á blaðs- íðunni. Þegar Þorvaldur Garðar hafði lokið máli sínu tók Guðrún Helga- dóttir, núverandi forseti sam- einaðs AJþingis, til máls. Sagðist hún harma orð hans í sinn garð, en þau væru byggð á miklum mis- skilningi. Hún hefði engin afskipti haft af þessu máli í fjölmiðlum önnur en þau, að svara spuming- um um gildandi reglur í þessum efnum. Þær væru á þá leið, að forseti sameinaðs þings nyti engra sérréttinda varðandi áfengiskaup hjá ÁTVR. Það væri hins vegar túlkunaratriði hvort handhafar forsetavalds hefðu slík réttindi hver fyrir sig. Guðrún sagðist telja að svo væri ekki, heldur hlytu þeir allir að koma fram fyrir hönd forseta landsins í fjarveru hans. Ólafúr Þ. Þórðarson (F/Vf) sagðist sjá ástæðu til þess að þakka Ríkisendurskoðun, fjár- málaráðherra og forseta samein- aðs Alþingis vegna þessa máls. Hann sagðist hins vegar harma, að hafa orðið vitni að því, að fyrr- verandi forseti sameinaðs Alþingis hefði ekki farið rétt með tölur varðandi áfengiskaup sín. fjármálaráðherra sagði að áfengiskaup handhafa forseta- valds á árum áður hefðu verið könnuð vegna eindreginna óska, sem til hans hefði verið beint, eink- um frá fulltrúum fjölmiðla. Hann hefði látið þær upplýsingar í té, en auðvitað mætti deila um hvort fjármálaráðherra eða Ríkisendur- skoðun hefði átt að gera það. Ólaf- ur sagði að ekki ætti að ríkja nein launung í þessum efnum og það væri misskilningur hjá Þorvaldi Garðari að þetta hefði verið gert í pólitísku skyni. Geir H. Haarde (S/Rvk) sagð- ist vilja vekja athygli á einni hlið þessa máls. Sér fyndist það skipta verulegu máli, með hvaða hætti upplýsingar um þetta mál hefðu verið birtar. „Það vill þannig til, að alþjóð hefur tvívegis orðið vitni að því á síðustu vikum, að á æðstu stöðum hafa menn ekki virt trúnað um viðkvæm mál, heldur látið fréttir af þeim berast nafnlaust til fjölmiðla." Geir sagði, að annars vegar væri þar um að ræða beiðni sérs- taks ríkissaksóknara í Hafskips- málinu um að tiltekinn þingmaður yrði sviptur þinghelgi og hins veg- ar upplýsingar um áfengiskaup forseta Hæstaréttar. í báðum þessum málum hefðu fréttir, hafð- ar eftir nafnlausum heimildar- mönnum, birst í sjónvarpi áður en málin voru rædd við viðkomandi aðila. Hann sagði nauðsynlegt að mál sem þessi fengju eðlilega umfjöll- un í fjölmiðlum, en fréttaflutning um trúnaðarupplýsingar yrði að bera að með eðlilegum hætti. Ráðamenn, sem gæfu fjölmiðlum slíkar upplýsingar, ættu að koma fram undir fullu nafni. í þessum tveimur málum hefði orðið trúnað- arbrestur og stjórnvöld og forsetar þingsins yrðu að gera hreint fyrir sínum dyrum, svo treysta mætti því, að eðlilegs trúnaðar yrði gætt í málum af þessu tagi. Þorvaldur Garðar Kristjánsson tók aftur til máls. Sagðist hann hafa lagt á það áherslu í yfirlýs- ingu sinni, að almennar stjórnskip- unar- og stjórnsýslureglur ættu að gilda við meðferð mála af þessu tagi. Hann sagði að í máli Ólafs Þ. Þórðarsonar hefðu komið fram dylgjur um að hann hefði skýrt rangt frá áfengiskaupum sínum. „Sárt bítur soltin lús,“ sagði hann um þau orð Ólafs. Þorvaldur Garð- ar bætti því við, að ummæli hans í sjónvarpsviðtali virtust hafa mis- skilist og ýmsir skilið orð hans þannig, að hann hefði keypt 100 til 200 áfengisflöskur á ári. Hann hefði hins vegar keypt umrætt magn í hvert skipti sem hann var handhafi forsetavalds. Þessi mis- skilningur hefði verið leiðréttur í sjónvarpinu að hans eigin ósk. MÞIAGI Yfírlýsing’ Þorvaldar Garðars Krist jánssonar vegna áfengiskaupa Þorvaldur Garðar Kristj- ánsson fyrrum forseti samein- aðs Alþingis gaf eftirfarandi yfirlýsingu á fimdi Alþingis í gær: Mikið hefur verið talað síðustu dagana um áfengiskaup hand- hafa forsetavalds. Með því að ég var sem forseti sameinaðs AI- þingis einn af handhöfum for- setavalds í fimm ár þykir mér hlýða að flytja þinginu svohljóð- andi yfirlýsingu: Þegar ég var forseti samein- aðs Alþingis keypti ég áfengi hjá Áfengisverslun ríkisins á kostn- aðarverði. Mér var kunnugt um • að handhafar forsetavalds hefðu þessi réttindi og svo væri í fram- kvæmd. Og enga athugasemd hefir Ríkisendurskoðun gert við mín áfengiskaup í fimm ár. Ég leit svo á að kaup mín á áfengi á þessum kjörum fylgdu emb- ætti mínu og gengju raunar að hluta upp í risnukostnað vegna embættis míns, sem ég bar sjálf- ur og gerði Alþingi ekki reikning fyrir. Alþingi greiðir að sjálfsögðu allan kostnað af opinberum veisl- um sínum og móttöku erlendra gesta og annað þess háttar, sem til fellur. En alltaf vill það henda að vel geti farið á að forseti sam- einaðs Alþingis fái menn á veg- um þingsins, hvort heldur inn- lenda eða erlenda gesti, á sitt heimili, ef við verður komið og veiti þar það sem þykir við hæfi. Forsetar erlendra þjóðþinga hafa ákveðna risnu til að mæta slíkum kostnaði auk þess sem þeir hafa ráðherralaun. Hér er um hvorugt að ræða. Hins vegar hafa aðrir svo sem ráðherrar í ríkisstjóm Islands risnu. Það er jafnsjálfsagt sem það er vandfarið með þau fríðindi. í raun og veru eru áfengiskaup handhafa forseta- valds angi af miklu stærra máli. Það varðar stjómsýslur í heild og þá ekki síst ríkisstjóm lands- ins. Hvarvetna þarf að hafa yfir- sýn til samanburðar í þessu efni og beita því aðhaldi sem sæmir góðum stjómarháttum. Með tilliti til atburða síðustu daga, fjölmiðlafárs hæstvirts Qármálaráðherra og glaðbeittra ummæla hæstvirts forseta sam- einaðs Alþingis um áfengiskaup mín vil ég bæta við nokkrum orðum. Málefnaleg gagnrýni er af hinu góða hvar sem við verður komið. En ég er hugsandi út af því sjónarspili, sem alþjóð hefir verið áhorfandi að síðustu daga vegna áfengiskaupa handhafa forsetavalds. Ég ætla ekki hér að hafa uppi gagnrýni á einstaka fréttamenn eða fjölmiðla, sem mest hafa aðstoðað við að koma sýningu þessari á fjalimar. En ég kemst ekki hjá að víkja nokkr- um orðum að hæstvirtum forseta og hæstvirtum fjármálaráðherra. Ég ætla ekki að í raun og veru geti verið ágreiningur um að handhafar forsetavalds hafi haft heimild til kaupa á áfengi á kostnaðarverði. Hins vegar getur menn greint á um hvað sé hæfilegt að nota heimildina mikið. Staðreyndin er að þessi réttur til áfengiskaupa hafi verið svo lengi sem elstu menn muna og að því er ætlað er frá fyrstu tíð, þegar handhafar forseta- valds komu til. En nú hefir Guðrún Helga- dóttir hæstvirtur forseti fullyrt að handhafar forsetavalds, og þar með forseti sameinaðs Al- þingis, hafí ekki átt neinn rétt og kaupin á áfengi á kostnaðar- verði hafi verið heimildarlaus. Ég leyfi mér að mótmæla þess- ari fullyrðingu sem rangri og órökstuddri. Ég nota þetta tæki- færi til að mótmæla þó að um- mælin hafi verið við fyjlmiðla, en ekki viðhöfð í forsetastól, enda er það ekki hlutverk hæstv- irts forseta að kveða upp dóm um lögmæti þessa. Hins vegar er það rannsóknarefni hvers vegna hæstvirtur forseti leggur sig fram um að hallá réttu máli til að reyna að ófrægja forvera sinn. Hæstvirtur ijármálaráðherra hefur vaðið fram á víðan völl í áfengiskaupamálinu, þó að hann eigi enga stjórnskipulega aðild þar um. Að vísu heyrir undir hann Áfengisverslun ríkisins og sem slíkur gæti hann vandað um við starfsmenn fyrirtækisins, ef ástæða hefði verið til út af þessu máli, sem nú er ekki til að dreifa. Hins vegar hefir hæstvirtur fjár- málaráðherra ekkert að gera með handhafa forsetavalds eða nokkuð sem þeim viðkemur, hvort sem það eru áfengiskaup þeirra eða annað. Aðfarir hæstv- irts ráðherra bijóta í bága við reglur um stjórnskipun landsins og eru andstæðar allri góðri hegðun í stjórnsýslu. Eftir að Ríkisendurskoðun var gerð óháð handhöfum fram- kvæmdavaldsins þurfti að móta venjur og reglur er varðaði yfir- stjóm Alþingis á stofnuninni. En meginatriðið var að Ríkisendur- skoðun starfaði sem áður sjálf- stætt og væri bundin af almenn- um stjórnskipunar- og stjórn- sýslureglum svo sem um hlut- læga málsmeðferð. Þetta er Þorvaldur Garðar Kristjánsson grundvallaratriði sem ríkisend- urskoðandi hefir alltaf lagt áherslu á. Yfirstjórn Alþingis yfir Ríkisendurskoðun má aldrei vera andstæð þessari grundvall- arreglu. Síst af öllu má beita eftirlitsvaldi að geðþótta og handahófi til að þjóna skammtíma sjónarmiðum í stjórnmálabaráttu eða Ieggja einstaka menn í einelti. Fylgja verður föstum almennum reglum um hvaða upplýsingar eru birtar í stað þess að láta handahóf og tilviljanir ráða. Ef þessa er ekki gætt væri eftirlitsvaldið sannar- lega illa komið í höndum Al- þingis. Til þessa má aldrei koma, en áfengiskaupamálið nú minnir okkur á skyldurnar við réttarrík- ið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.