Morgunblaðið - 06.12.1988, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1988
rimlagluggatjöldin frá
Þessi stórkostlegu gluggatjöld eru til í
ótrúlegu litaúrvali, sem við
framleiðum eftir máli.
m
pílu
gluggatjöld Suðurlandsbraut 6, símar: 83215
Áskriftarsíminn er 83033
Kjarkleysi eða
pólitískt mat?
eftir Kristínu
Jónsdóttur
Helgina 6-8. nóv. hélt Kvenna-
listinn sinn árlega landsfund að
Lýsuhóli. Þessi fundur eins og aðrir
landsfundir Kvennalistans var fyrst
og fremst vinnufundur og vettvang-
ur fyrir skoðanaskipti. Um 100
konur mættu til leiks víðs vegar
af landinu.
Eins og á undangengnum þing-
um var reynt að skilgreina pólitíska
ástandið, líta um öxl og læra af
reynslunni og síðast en ekki síst
horfa til framtíðarinnar og móta
stefnuna ef til kosninga kæmi í
vor. Flutt voru m.a. erindi um land-
búnaðar- og sjávarútvegmál, at-
vinnu- og efnahagsmál og út frá
þeim spunnust umræður sem byggt
verður á við áframhaldandi mál-
efnavinnu.
Hvað er frétt?
Nú bregður svo við að fjölmiðlar
hafa verið óvenju duglegir að segja
fréttir af landsfundi Kvennalistans
svo eitthvað verulega fréttnæmt
hlýtur að hafa verið á dagskrá. En
það voru ekki hinar frjóu umræður
um efnahags- og atvinnumál sem
vöktu athygli fréttamanna. Við höf-
um líklega verið alltof sammála
þar. Sátt og samlyndi virðist ekki
fréttaefni.
Það ber ekki að skilja orð mín
svo að við höfum ekki tekist á um
ágreiningsmál, þau hljóta alltaf að
koma upp í mannlegum samskipt-
um. Þau hafa einfaldlega ekki verið
sýnileg fjölmiðlum. Konur hafa sýnt
hver annarri þann trúnað og virð-
ingu að leysa ágreining innan hreyf-
ingarinnar með því að ræða málin
og reyna að komast að sameigin-
legri niðurstöðu. Ekki fjalla um
hann á síðum dagblaðanna.
Hvert var þá fréttaefnið?
Ekki kjarkleysi heldur
pólitískt mat
Kristín Ástgeirsdóttir flutti mjög
gott erindi ætlað til að vekja um-
ræðu. Henni tókst vissulega að
varpa ljósi á þætti í starfsemi okkar
sem betur mega fara. M.a. nefndi
hún atriði varðandi síðustu stjórnar-
myndunarviðræður sem við erum
flestar sammála um að ekki hafi
komist nógu vel til skila og því
þurfum við ....að gera verulegt
átak til þess að koma því á fram-
færi við fólk að ekki var um kjark-
leysi að ræða eða allsherjar andúð
á því að taka þátt í ríkisstjórnum,
heldur pólitískt mat“.
Einnig ítrekaði hún þá ábyrgð
sem konur um allt land vita að þær
þurfa hugsanlega að axla. Það er
sú staðreynd að: „Við höfum boðið
Kristín Jónsdóttur
„Þessi tilhögnn hefur
reynst okkur vel og
varaþingkonurnar hafa
flutt fjöldann allan af
merkum málum á
síðustu þingum. Sú
samþykkt sem gerð var
á landsfúndinum og olli
Qaðrafokinu var því
engin stefiiubreyting.“
okkur fram til að taka þátt í stjórn-
un landsins og við þurfum að búa
okkur undir að verða reiðubúnar,
kannski í mars, kannski í maí,
kannski ekki fyrr en eftir 2V2 ár“.
Innlegg Kristinar var að ósekju
túlkað af fjölmiðlum sem einhver
djúpstæður ágreiningur. Má velta
því fyrir sér hvort það skýri að ein-
hveiju leyti þennan óvænta áhuga
fréttamanna á landsfundinum.
V araþingkonur á þing
En fleira vakti athygli. Á fundin-
um var samþykkt tilaga um vara-
þingkonur. Við Kvennalistakonur
höfum alltaf lýst yfir því að við
séum grasrótarhreyfing sem vill
dreifa valdi. Allt frá því að okkar
fyrstu konur fóru á þing, haustið
1983, höfum við viðhaft þá vinnu-
reglu að brenni mál á varaþing-
konum sem erindi eiga inn á Al-
þingi flytji þær þau sjálfar, annað
hvort í frumvarps- eða tillöguformi
eða veki athygli á þeim með fyrir-
spurnum til ráðherra. Enginn er
færari að flytja mál en sá sem er
sannfærður og trúir á málstaðinn.
Þessi tilhögun hefur reynst okkur
vel og varaþingkonurnar hafa flutt
&
HÚTBLILW
Ljúffengir pastaréttir meö súpu, brauði og
kaffi á aðeins 490 kr.
Frítt fyrir börn innan 6 ára aldurs og
hálft gjald fyrir börn innan 12 ára.
Slepptu eldamennskunni af og til og
littu inn í Lindina.
Þar færðu fullkomna máltíð á frábæru verði.
Hótel Lind er staður fyrir alla fjölskylduna.
RAUÐARÁRSTÍG 18 Sími 623350