Morgunblaðið - 06.12.1988, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1988
MANNFRÆÐI
HRAFNKELS
SÖGU OG
FRUMÞÆTTIR
Hermann
Pálsson
MANNFRÆÐI
HRAFNKELS SÖGU
og frumþættir
Hermann Pálsson
Dr. Hermann Pálsson,
prófessor í Edinborg,
sýnirenn í þessu riti sínu
hversu hann leggur sig
fram um að sjá Hrafn-
keís sögu Freysgoða í
nýju Ijósi. Bókin ein-
kennist af þekkingu og
gerhygli.
IÐNBYLTING
HUGARFARSINS
Ólafur
Ásgeirsson
Ólafur Ásgeirsson
IÐNBYLTING
HUGARFARSINS
Bók um afstöðu manna
til þróunar atvinnulífs og
afskipta ríkisvaldsins af
henni hér á landi fyrstu
áratugi 20. aldar, eftir
Ólaf Ásgeirsson.
1
Bökaúfgófa
/MENNING4RSJÓÐS
SKÁLHOLTSSTÍG 7 • REYKJAVÍK
SÍMI 621822
MJÓFIRÐ-
INGA-
SÖGURII
Vílhjálmur
Hjálmarsson
Annar hluti af Mjó-
firðingasögum Vilhjálms
Hjálmarssonar á Brekku,
en hinn fyrsti kom út
1987. Rekur höfundur
áfram byggðarsöguna í
átthögum sínum og
spannar hér sveitina
sunnan fjarðar og í botni
hans. Er greint frá bú-
jörðum og landsnytjum á
þeim slóðum og birt
bændatöl með bólstaða-
lýsingum, en inn á milli
skotið ítarlegum köflum
um síld- og hvalveiðar
Norðmanna í Mjóafirði
og af Sveini Ólafssyni,
héraðshöfðingja og
alþingismanni í Firði.
Lýsa Mjófirðingasögur
tímabili mikilla breytinga
í lifnaðarháttum, svipt-
inga í atvinnulífi og
röskunar íbúafjölda.
Bökaúfgafa
/MENNING4RSJÓÐS
SKÁLHOLTSSTÍG 7 • REYKJAVÍK
SÍMI 621822
LJÓÐASTUNDÁ
SIGNUBÖKKUM
Jón Óskar
Framhald af Ljóðaþýð-
ingum úr frönsku frá
1963, en þær endur-
skoðaðar, miklu aukið
við og formáli umbreytt-
ur í ágrip af sögu franskr-
ar Ijóöagerðar á n ítjándu
og tuttugustu öld.
SÁÐÍ
SANDINN
Agnar
Þórðarson
Níu smásögur sem
sverja sig í ætt við leikrit
höfundar. Sumarþessar
sögur Agnars Þórðar-
sonar hafa unnið til verð-
launa og verið þýddar á
erlend mál.
1
Bókaúfgöfa
/HENNING4RSJÓÐS
SKÁLHOLTSSTÍG 7 • REYKJAVÍK
SlMI 621822
Flytjendur á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins í Bústaðakirkju á
miðvikudag'. F.v.: Sean Bradley, Jón Aðalsteinn Þorgeirsson, Laufey
Signrðardóttir, Helga Þórarinsdóttir og Ólöf Sesselja Óskarsdóttir.
Einnig leikur á tónleikunum Þorsteinn Gauti Sigurðsson á pínaó.
Kammermúsík
í Bústaðakirkju
Kammermúsikklúbburinn
hcldur aðra tónleika sina á
starfsárinu miðvikudaginn 7.
desember kl. 20.30 í Bústaða-
kirkju.
Á efnisskránni er tríó fyrir
píanó, fiðlu og lágfiðlu í Es-dúr
K.498 eftir W.A. Mozart, tríó fyrir
píanó, klarinettu og knéfiðlu í B-
dúr op. 11 eftir Ludwig van Beet-
hoven og kvintett fyrir klarínettu
og strengjakvartett í B-dúr op. 34
eftir Carl Maria von Weber.
Flytjendur eru Laufey Sigurðar-
dóttir sem leikur á fiðlu, Sean
Bradley á fiðlu, Helga Þórarins-
dóttir á lágfíðlu, Olöf Sesselja
Óskarsdóttir á knéfiðlu, Jón Aðal-
steinn Þorgeirsson á klarinettu og
Þorsteinn Gauti Sigurðsson á
píanó.
(Fréttatilkynning)
Seyðisgörður:
Fiskvinnslufólki
sagt upp störfinn
Seyðisfirði.
Fiskvinnslan hf. og Norðursíld
hf. hafa sagt upp hluta af fastr-
áðnu starfsfólki og ennfremur
var lausráðnu fólki sagt upp og
þeim sem ráðnir voru tímabundið
vegna síldarvertíðarinnar. Upp-
sagnarfrestur á fastráðningar-
samningum er Qórar vikur og
miðast uppsögnin á þeim því við
23. desember. Hjá lausráðna
fólkinu er uppsagnarfresturinn
ein vika og miðast við 9. desem-
ber, en búist er við því að vinnan
hjá þeim haldist eitthvað fram í
mánuðinn vegna síldarfrysting-
ar.
Venjulega eru starfandi hjá físk-
iðjunni um 100 manns. 45 fastráðn-
um var sagt upp og 30 lausráðnum.
Hjá Norðursíld hafa verið 56 starfs-
menn og var þar 29 fastráðnum
sagt upp og 22 lausráðnum. Af
lausráðna fólkinu hjá báðum fyrir-
tækjunum voru 31 aðkomumenn
og útlendingar sem voru ráðnir
tímabundið vegna síldarsöltunar og
frystingar. Áður voru þegar hættir
margir Svíar sem voru starfandi
hjá báðum fyrirtækjunum á síldar-
vertíðinni.
Adolf Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri þessara fyrirtækja,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að aðalástæðan fyrir þessum upp-
sögnum nú væri tvenns konar. „í
fyrsta lagi þá er togarinn okkar,
Gullver, búinn með kvótann í ár
ásamt viðbótarkvóta sem við keypt-
um og er því bundinn við bryggju
og kemst ekki á veiðar fyrr en
XJöfóar til
XI fólks í öllum
starfsgreinum!
JMí>r0MJiM&foi$>
fyrstu dagana í janúar. í öðru lagi
erum við að endurskipuleggja rekst-
urinn hjá okkur. Fiskvinnslan hf.
keypti í sumar fyrirtækið Norð-
ursíld og höfum við verið að sam-
eina alla yfírstjóm á fyrirtækjunum
og ná betri nýtingu á mannafla og
hráefni auk hagræðingar í rekstri.
Hluti af þessu fólki sem við sögðum
upp var einungis ráðið tímabundið
vegna síldarsöltunar og frystingar.
Við reiknum með að fyrirtækin fari
aftur af stað í framleiðslu um 15.
janúar ef rekstrarskilyrði verða í
lagi. Ef hins vegar ástandið verður
óbreytt í frystingunni verður að
skoða rekstrargrundvöllinn í ljósi
þeirra staðreynda," sagði Adolf.
Garðar Rúnar.
• •
Oldinokkar
1981 -1985
IÐUNN hefur gefíð út bókina
„Oldin okkar - minnisverð
tíðindi 1981 -1985. Nanna Rögn-
valdsdóttir og Sigurður G Tóm-
asson tóku bókina saman.
Þetta er sjöunda bókin um öldina,
sem nú er að líða, og fjórtánda
bindið í bókaflokknum „Aldirnar".
Á bókarkápu er þess getið, að
í nýju bókinni séu frásagnir m.a.
af „Fyrsta bankaráni á íslandi,
Helliseyjarslysinu, frækilegu sundi
Guðlaugs Friðþórssonar, Vilmy-
undi Gylfasyni og stofnun BJ,
BSRB - verkfallinu, gjaldþroti
Hafskips, kvennaframboðum og
heimsáokn furstahjónanna af Món-
akó.“
Bókin er 230 blaðsíður, unnin í
Prentsmiðjunni Odda hf..