Morgunblaðið - 06.12.1988, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 06.12.1988, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1988 Morgunblaðið/Þorkell Anna Kristín Arngrímsdóttir, Guðlaug María Bjarnadóttir og Arni Pétur Guðjónsson í hlutverkum sinum í „Stór og smár“. Þjóðleikhúsið: Sýningum á „Stór og smár“ lýkur fyrir jól Þrjár sýningar eftir AÐEINS þijár sýningar eru nú eftir á „Stór og smár“ eítir Botho Strauss í Þjóðleikhúsinu, því ákveðið hefur verið að sýn- ingar verði ekki teknar upp að nýju eftir áramót. Leikritið var frumsýnt 23. nóvember. Sýn- ingar verða alls 9 talsins. Gísli Alfreðsson, Þjóðleikhús- stjóri, sagði í samtali við Morgun- blaðið að aðsókn hefði verið ágæt en gæfí þó ekki tilefni til þess að álíta að hægt væri að taka verkið upp eftir áramótin. Aðspurður hvort hann teldi að umræðan um lengd verksins og frestun frum- sýningar ættu þátt í að aðsókn er ekki betri, sagðist Gísli ekki telja að svo væri, gagnrýnendur hefðu lokið miklu lofsorði á sýn- inguna og tekið fram að hún væri síst of löng. Desember væri alltaf erfíður mánuður í leikhúsinu en hann vonaðist til að fólk tæki nú við sér og léti þessa sýningu ekki framhjá sér fara. Sýningamar þijár sem eftir eru verða í kvöld, á fímmtudags- og sunnudagskvöld. Karl Steinar Guðnason alþingismaður: Endurskoðar afetöðu sína til ríkisstj órnarinnar # Keflavík. „ÉG HORFI ekki lengur upp á þá neyð sem ríkir í málum aldr- aðra á Suðurnesjum. Þessi ríkis- stjóm kennir sig við félags- hyggju, en sú félagshyggja verð- ur að birtast í fleiru en að bora göt á 5öll og styðja Qárvana flugfélög og því íhuga ég nú að styðja ekki Qárlagafrumvarp þessarar ríkissljórnar," sagði Karl Steinar Guðnason, alþingis- maður Reyknesinga. Fjármála- ráðherra segir, að brýnt sé að leysa rekstrarvanda sjúkrahúss Keflavíkur áður en ráðist er í frekari framkvæmdir þar. Karl Steinar sagði að í tillögum heilbrigðisráðherra væri ekki gert ráð fyrir neinu fjármagni til bygg- ingar hinnar svokölluðu D-álmu við sjúkrahúsið í Keflavík. Þessi bygg- ing væri Suðurnesjamönnum mikið kappsmál og hefðu öll sveitarfélög- in, D-álmusamtökin og fólkið í byggðarlaginu barist fyrir þessu máli í mörg ár. Hann sagði að staða öldrunar- mála væri verst á Suðumesjum og því mætti ekki fresta því lengur að hefja byggingu D-álmunnar.„Ég hef sagt heilbrigðisráðuneytinu þessa skoðun mína og látið minn þingflokk vita að fáist ekki fjár- magn til þessara mála strax á næsta ári, þá mun ég endurskoða stuðning minn við þessa ríkisstjórn," sagði Karl Steinar Guðnason. „Það bíða mörg brýn verkefni í sjúkrahús- og heilsugæslumálum víða um land,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson, ijármálaráðherra. „Mörgum sjúkrahúsbyggingum er ólokið og það er mjög dýrt að vera með slík hús. Þess vegna tókum við þá ákvörðun að veita ekki fé í nýframkvæmdir, heldur veita hinu takmarkaða fjármagni til að ljúka við aðrar byggingar. Vandamál aldraðra er víða mikið og fjölmarg-, ir hafa leitað til mín og heilbrigðis- ráðherra vegna þess. Þar að auki er rekstrarvandi sjúkrahúss Keflavíkur mikill. Á næstu dögum fundum við heilbrigðisráðherra með sveitarstjórnarmönnum á Suður- nesjum til að ræða hvernig unnt er að ieysa þann vanda. Ég hefði talið að á næsta ári væri ærið verk- efni að leysa hann.“ — BB Gagnrýni NATO á varnir íslendinga: Höfum oft bent á að úrbóta er þörf — segir Guðjón Petersen fram- kvæmdastjóri Almannavarna „Við höfúm oft bent á að úrbóta er þörf á þessu sviði og að margt þyrfti að gera betur en nú er,“ segir Guðjón Petersen fram- kvæmdastjóri Almannavarna um gagnrýni NATO á vamarvið- búnað Islendinga. Gagnrýni þessi kom fram á vetrarfúndi varnar- málaráðherra NATO-ríkjanna sem haldinn var fyrir helgina. í skýrslu sem dreift var á fúndin- um voru íslendingar m.a. hvattir til að gefa hagvörnum sínum meiri gaum og að semja íslenska áætlun um neyðarvarnir sem hægt væri að grípa til ef til ófrið- ar kæmi. Guðjón var spurður að því á hveiju strandaði í þessu máli af hálfu íslendinga. Hann sagði að erfítt væri að svara þeirri spurningu en var helst á því að pólitísk af- staða hefði ekki verið tekin til þessa þáttar vamarmála íslendinga. Hann benti þó á að fyrir þremur árum hefði verið skipað hér hag- vamaráð en sæti í því eiga ráðu- neytisstjórar allra ráðuneyta hér- lendis. Hinsvegar hefði ráðinu ekki enn verið sköpuð aðstaða til þess að framfylgja þeim verkefnum sem því er ætlað að gera. Aðspurður um hvort Almanna- varnir gætu bætt eitthvað úr á þessu sviði sagði Guðjón svo ekki vera án þess að stofnunin yrði stækkuð frá því sem nú er. Tónleikar til heiðurs Jórunni Viðar sjötugri í TILEFNI 70 ára afinælis Jór- unnar Viðar tónskálds mun Söngskólinn í Reykjavik efiia Fundur dómsmálaráðherra og lögreglumanna: Hef vissulega áhyggjur af mannfeeð lögreglunnar segir Halldór Ásgrímsson FORSVARSMENN Landssam- bands lögreglumanna fúnduðu á föstudag með dómsmálaráð- herra og ráðuneytismönnum vegna málefna Iausráðinna lög- reglumanna. Talsvert er um slíka menn í Iangflestum stærstu lög- regluliðum landsins. Aðilar kynntu sína hlið málsins og var boðað til nýs fúndar í næstu viku. Halldór Ásgrímsson, dómsmála- ráðherra, sagði í samtali við Morg- unblaðið að vissulega hefði hann áhyggjur af mannfæð lögreglunnar. „Það er ljóst að þessi samdráttur kemur niður á þjónustu lögreglunn- ar við samfélagið og það er áhyggjuefni," sagði ráðherra. „Við verðum hins vegar að hafa í huga, að ríkið er með aðhaldsaðgerðir og það þýðir að draga verður saman seglin á öllum sviðum. Ég get ekki annað en tekið þátt í þeim sam- drætti. Til mín koma daglega for- svarsmenn fyrirtækja sem eru að segja upp öllu starfsfólki og hætta starfsemi vegna erfiðleika. Þeir erf- iðleikar hljóta að koma fram í opin- bera geiranum sem annars staðar. Ég tel mikilvægast af öllu að styrkja undirstöður þjóðfélagsins. Ef þar tekst sæmilega til mun annað leys- ast í framhaldi af því,“ sagði Hall- dór Ásgrímsson. Eins og fram hefur komið eru 28 ólærðir lögreglumenn í Reykjavík og verða ráðningarsamn- ingar þeirra látnir renna út um ára- mót. Samkvæmt upplýsingum Landssambands lögreglumanna hafa einnig 12 menn verið settir til lögreglustarfa á Keflavíkurflug- velli, án þess að njóta nokkurrar formlegrar tilsagnar. Sama máli gegnir um 6 starfsmenn lögreglu á Isafírði, 4 í Hafnarfírði, 4 í Kópa- vogi, 2 í Vestmannaeyjum og 2 á Akureyri, svo nefnd séu dæmi úr nokkrum stærstu lögregluliðum landsins. Samkvæmt upplýsingum Landssambands lögreglumanna liggur ekki fyrir hvaða meðferð stöður þeirra manna munu fá við yfirstandandi fjárlagagerð og hvort einhveijum þeirra verður sagt upp um áramót. Landssamband lögreglumanna hafði samþykkt að útlærðir lög- reglumenn ynnu ekki við hlið þess- ara ófaglærðu manna frá áramótum og hugðust með því þrýsta á yfír- völd að sjá um að enginn verði sett- ur til starfans án þess að hafa lok- ið fyrrihlutaprófí frá lögregluskóla og að uppfylltum skilyrðum núgild- andi reglna. Að sögn Þorgríms Guðmundssonar formanns Lands- sambandsins hefur sambandið á undanfömum mánuðum ítrekað beðið ráðuneytið um fundi til að ræða kröfur sínar um fjölgun út- lærðra lögreglumanna. til tónleika í íslensku óperunni 6. desember kl. 17.00, þar sem flutt verða tónverk eftir Jór- unni. Má meðal annars finna þar kafla úr Svítu fyrir fiðlu og píanó, Tilbrigði fyrir selló 0g píanó, Hug- leiðingu um gamlar stemmur fyrir píanó, einsöngslög, kórlög og þul- ur. Meðal einsöngslaganna verða m.a. frumflutt 2 lög, „Við Kína- fljót“ við texta Þorgeirs Svein- bjarnarsonar og „Sönglað á göngu“ við texta Valgarðs Egils- sonar. Meðal kórlaga má nefna kórverkið Mansöngur fyrir Ólafs rímu Grænlendings. Jórunn Viðar er einn af frum- kvöðlum íslensks tónlistarlífs og hefur verið frá því hún kom frá námi í stríðslok. Tónlistamám sitt stundaði Jórunn fyrst hér heima, hjá móður sinni, Katrínu Viðar, og Páli ísólfssyni og síðar í Tónlist- arskólanum í Reykjavík hjá Áma Kristjánssyni. Að loknu stúdents- prófí 1937 fór hún til Berlínar og lærði tónsmíðar 0g píanóleik við Tónlistarháskólann þar í 2 ár eða til upphafs seinni heimsstyijaldar- innar og slapp heim til Islands með skrekkinn. Þá fór hún til Bandaríkjanna og nam tónsmíðar við Juillard tónlistarháskólann í New York hjá Giannini en var í einkatímum í píanóleik hjá greif- afrú Morsztyn. Síðustu 12 árin hefur Jórunn-kennt við Söngskól- ann í Reykjavík. Flytjendur tónlistar .Jórunnar verða Catherine Williams, Elísabet Jórunn Viðar F. Eiríksdóttir, Garðar Cortes, Guðríður St. Sigurðardóttir, Hólm- fríður Sigurðafdóttir, Ingibjörg Marteinsdóttir, Jórunn Viðar, Katrín Sigurðardóttir, Kristinn Sigmundsson, Kolbrún Sæmunds- dóttir, Laufey Sigurðardóttir, Lára Rafnsdóttir, Lovísa Pjeldsted, Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Olafur Vignir Albertsson, Selma Guð- mundsdóttir og Þuríður Pálsdóttir ásamt öllu starfsfólki Söngskólans í Reykjúvík, sem flytur kórverk og þulur. (Úr fi-éttatilkynningu)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.