Morgunblaðið - 06.12.1988, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 06.12.1988, Blaðsíða 58
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1988 Margrét Einars- dóttir - Minning Fædd 16. september 1902 Dáin 24. nóvember 1988 Frænka mín Margrét Einars- dóttir fædd á Blönduósi 16. septem- ber 1902 lést að kveldi dags 24. nóvember sl. að Sólvangi í Hafnar- fírði. Mig langar að minnst hennar með nokkrum orðum. Fyrstu minningar mínar af frænku minni voru sögur móður minnar af afrekum og uppátækjum hennar í æsku. Lýsing hennar á Margréti var ávallt blönduð ákveð- inni lotningu. Heimsóknir Margrét- ar að Ysta-Gili til ömmu minnar og afa voru tengdar kaupstaðar- ferðum afa míns til Blönduóss. Mamma sagði að systkinin hefðu alltaf beðið spennt eftir því hvort sæist í eldrauðan kollinn á Möggu í fylgd með afa úr kaupstaðnum, því þá var von á að líf og flör færð- ist í tuskumar. Möggu datt það ólíklegasta í hug og ef hún fékk ekki það sem hún vildi þá gubbaði hún bara til að leggja áherslu á málið. Þessi frænka mín fannst mér alla tíð mjög spennandi, en jafn- framt bar ég vissa lotningu fyrir henni. Margrét fór ung að árum til Reykjavíkur og vann um tíma í Bjömsbakaríi, en henni var ekki að skapi að setjast þar að og festa ráð sitt, útþráin var búin að heltaka hana. Hún fluttist til Svíþjóðar um tvítugt, en þar starfaði hún fram til ársins 1964 eða þar til hún komst á eftiriaun. Af dvöl hennar í Svíþjóð frétti ég lítið nema almennar fréttir sem alltaf komu reglulega til flöl- skyldunnar, þó veit ég að í Svíþjóð famaðist henni vel og eignaðist hún þar §ölda vina sem héldu sambandi við hana til æviloka. Þegar Margrét kom aftur til ís- lands árið 1964, hélt íjölskyldan að hún væri komin til að eyða hér rólegu ævikvöldi, en það kom fljót- lega í ljós að það átti ekki yið Margréti. Það var enn of mikill kraftur eftir í þessari konu að það ætti við hana að setjast í helgan stein. Hún gerðist gjaldkeri hjá stórkaupmanninum Kristjáni G. Gíslasyni og vann hjá honum og fjölskyldu hans í fjölda ára og veit ég það fyrir víst að hún vann verk sín af mikilli trúmennsku og öðlað- ist bæði virðingu og vináttu Krist- jáns, sem hún mat alla tíð mjög mikils. Ég kynntist Möggu ekki fyrr en hún fluttist frá Svíþjóð og þróaðist fljótlega mikil vinátta milli hennar og flölskyldu minnar. Það sem mér þótti dásamlegast við okkar sam- verustundir var hvað hún hafði mikla lífvisku og hvað mikið hún kenndi mér. Við gátum alltaf hlegið dátt saman og það gat hún látið mig gera allt fram í andlátið. Margrét giftist aldrei, hún lagði mikið upp úr sjálfstæði konunnar, en þrátt fyrir að hún væri bamlaus naut hún alla tíð frábærrar umönn- unar frænku sinnar, Margrétar Þorvaldsdóttur. Margrét var sælkeri mikill og oft er við borðuðum saman sat hún gjaman í eldhúsinu hjá mér á með- an ég bjó til matinn. Dreyptum við þá gjaman á viskí sem mátti bara vera 5 sl. því ef meira væri nyti maður ekki matarins, en hvemig ég átti að mæla það vissi ég ekki þá. Þessu bar að hlýða því hún var alla tíð stjómsöm kona. Við hjónin mátum Möggu mikils og alltaf var gaman að koma til hennar á Birki- melinn, en þar átti hún dásamlegt heimili og frábæra nágranna. Okkur Haraldi verður alla tíð minnisstæðust ferðin sem við fómm norður Kjöl með mömmu og Möggu. í kulda og trekki var Magga mín í pelsinum sínum tilbúin að mæta íslensku veðri og náttúm. Þá fannst mér að bæði veðrið og náttúran mættu gæta sín fyrir þessari kjarkmiklu og kröftugu konu. Með þessum orðum kveð ég þessa öldnu vinkonu mína. Auður Gunnarsdóttir Margrét Einarsdpttir fæddist í Hjaltabakkakoti á Ásum í Austur- Húnavatnssýslu 16. september 1902. Foreldrar hennar vora hjónin Margrét Þorsteinsdóttir og Einar Einarsson sem þar bjuggu þá, bæði komin af traustum norðlenskum ættum. Föðurafí hennar var al- þýðuskáldið Einar Andrésson, sem kenndur var við Bólu í Skagafírði. Komung fluttist Margrét með for- eldrum sínum til Blönduóss og þar ólst hún upp. Blönduós mun ekki hafa látið mikið yfír sér í byrjun þessarar ald- ar, þótt þar væri þá tekin að þró- ast miðstöð verslunar í Austur- Húnavatnssýslu. Flestir bjuggu við þröngan kost, enda fá tækifæri til uppgripa. Nú era þar sem víða ann- ars staðar mikil umskipti orðin. Fjölmennur frændgarður Margrét- ar Einarsdóttur þar um slóðir hefur átt dijúgan hlut að eflingu atvinnu- og menningarlífs á Blönduósi fyrr og síðar. Um tvítugsaldur dvaldist Mar- grét fáein ár í Reylgavík og vann þar verslunarstörf. En síðan urðu mikil tímamót í lífí hennar, því að um miðjan þriðja áratug aldarinnar tók hún sig upp og hélt til Svíþjóð- ar. Ekki veit ég hvað hún hugði á langa dvöl þar í fyrstu, en raunin varð sú, að í Stokkhólmi átti hún heima í fjöratíu ár. Fyrst mun hún hafa verið í vistum, en jafnframt aflaði hún sér staðgóðrar menntun- ar, m.a. í verslunarskóla. Lengst starfaði hún á skrifstofu Fríhafnar- innar í Stokkhólmi og gegndi þar ábyrgðarstöðu sem féhirðir. Árið 1964 hafði Margrét náð eftirlaunaaldri í stöðu sinni hjá Fríhöfninni. Hún hafði fyrir löngu fengið sænskt ríkisfang, var orðin rótgróinn Stokkhólmsbúi og átti þar margt góðra vina og kunningja. Engu að síður þótti henni nú tími til kominn að snúa heim úr Svíþjóð- arferðinni sem staðið hafði í §óra áratugi. Hún venti því sínu kvæði í kross, fluttist búferlum til íslands og settist að í Reykjavík. Einhveij- um kann að hafa þótt tvísýnt um að hún mundi festa yndi hér heima eftir svo Ianga dvöl í Svíþjóð þar sem hún hafði unað hag sínum vel. Slíkur uggur reyndist þó ástæðu- laus. Þótt Margrét hefði lokið fullri starfsævi á sænska vísu var hún enn á góðum aldri, sextíu og tveggja ára, og starfsþrekið óbilað. Hún réð sig til starfa hjá heildversl- un Kristjáns G. Gíslasonar og er skemmst frá því að segja að þar vann hún í meira en hálfan annan áratug eða þar til hún var orðin áttræð, síðari árin í hlutastarfí. Vinnuveitandi hennar hafði þá víðsýni til að bera að gefa henni kost á að halda áfram störfum hjá fyrirtækinu þótt aldurinn færðist yfír og vaxandi fötlun á hægri hendi gerði henni örðugt um vik. Vafa- laust hefur hann og séð sem var, að Margrét mundi standa fyrir sínum hlut í vinnunni þótt hún þyrfti. nokkuð fyrir því að hafa af þessum sökum. Eftir heimkomuna til íslands sýndi Margrét mikla atorku við að búa sér bólfestu á nýjan leik. Hún keyti litla íbúð í Qölbýlishúsi, stækkaði smám saman við sig og fluttist loks í rúmgott húsnæði við Birkimel sem hentaði henni vel eins og heilsu hennar var þá farið. Þar stóð síðan heimili hennar, tigin- mannlegt og hlýlegt í senn eins og verið hafði á östermalm í Stokk- hólmi forðum daga. Allmörg síðustu árin bjó Margrét við hrakandi líkamsheilsu, og þar kom að hún gat ekki lengur dvalist heima. í rúmlega þijú ár var hún vistmaður á elli- og hjúkranar- heimilinu Sólvangi í Haftiarfírði, nokkur síðustu misserin rúmföst. Þar andaðist hún 24. nóvember sl. Það era orðin þijátíu og sjö ár frá því að fundum okkar Margrétar bar fyrst saman. Ég var þá nýkom- inn til náms í Stokkhólmi og varð þess fljótlega var, að Margrét Ein- ars, eins og hún nefndi sig þá, var einn af máttarstólpunum í íslensku „nýlendunni" þar í borg. Þessi myndarlega og fasmikla, eldhærða kona var tíður gestur á samkomum íslendinga sem kallaðar vora landa- mót, hún hafði dvalist í Stokkhólmi frá því áður en sögur hófust í aug- um okkar sem nýkomin voram á staðinn og var tengiliður við fyrri og frægari skeið í sögu nýlendunn- ar. Það fór um mig og okkur hjón bæði eins og fjölmarga Stokkhólms- landa fyrr og síðar, að með okkur og Margréti tókst fljótt kunnings- skapur og vinátta sem ekki rofnaði upp frá því. Þegar hún fluttist heim til íslands löngu seinna varð hæg- ara um vik að rækja þau kynni og um hana myndaðist óðara traustur hópur gamalla og nýrri vina. Margréti var þannig farið að hún hlaut að setja svip á hvem þann hóp sem hún átti aðild að. Hún var ákveðin og einörð og lét álit sitt og vilja í ljósi án mærðar og vafn- inga. Auðséð var að þar fór verald- arvön heimskona sem lét ekki smá- muni koma sér úr jafnvægi. Hún var fróð um menn og málefni, hafði yndi af ferðalögum og hafði víða farið, miðað við það sem títt var á hennar yngri áram. Allt stuðlaði þetta að því hversu skemmtilegt var að vera í návist hennar og eiga við hana samræður. Hún var frænd- rækin og ættmennum sínum og mörgum öðram óbilandi hjálpar- hella. Vinum sínum var hún tröll- trygg, enda var eftirtektarvert hve vel entust tengsl hennar við foma vini bæði í Svíþjóð og á íslandi. Þessarar tryggðar naut hún m.a. í langvinnri sjúkravist undir ævilok- in. Minnisstæðasti drátturinn í mjmd Margrétar verður sú mannlega reisn sem markaði alla framgöngu hennar. Hún var sjálfstæð og sterk, hafði brotið sér braut af eigin rammleik og verið sinnar gæfu smiður, að því leyti sem það er nokkram manni gefíð. Margt gekk henni í haginn eins og mannkostir hennar og dugnaður stóðu til. Eng- an veginn fór hún þó varhluta af öllu mótlæti, fremur en verða vill um flesta menn. Heilsan var ekki að öllu traust, þótt hún væri sterk- byggð að upplagi. Að því er áður vikið, að hægri höndin varð henni á efri áram ónýt og raunar verri en engin, og heymarbilun varð henni líka til óþæginda. En Margrét lagði ekki árar í bát heldur stóð meðan stætt var. Mér er nær að halda að ég hafí enga manneskju þekkt eins víllausa og lítið gefna fyrir sjálfsvorkunnsemi og kvein- stafí. Jafnvel undir það síðasta, þegar kraftar hennar vora mjög þrotnir svo að hún gat litla björg sér veitt og átti örðugt um mál hafði hún á takteinum kaldranalega glettni um kröm sína. Það var eins og henni yrði aldrei raunveralega á kné komið. Hjalmar Gullberg, eitt af höfuð- skáldum Svíþjóðar á þeim áratug- um er Margrét Einarsdóttir dvaldist þar í landi, bregður í kunnu kvæði upp mynd af suðrænni konu sem ber þunga byrði á höfði sér án þess að förlast reisn og þokki og skáld- inu verður hún ímynd hinnar sönnu aðalstignar: Sádant ár adel: att med hállning bára ocksá det tyngsta. Það var reisn af þessu tæi sem var aðalsmerki Margrétar. Margrét Einarsdóttir var þess konar manneskja, að hver og einn sem þekkti hana vel hlýtur að vera þakklátur fyrir þau kynni og það verður alltaf gott að hugsa til henn- ar. Blessuð veri minning hennar ævinlega. Arni Gunnarsson Kveðja Hún var frá á fæti, hún Margrét Einarsdóttir, þegar hún birtist á skrifstofu okkar í byijun febrúar- mánaðar árið 1965 til þess að ráða sig sem gjaldkera. Þá var hún nýkomin frá Stokk- hólmi, þar sem hún hafði um ára- raðir gegnt ábyrgðarmiklu gjald- kerastarfi við fríhöfn Stokkhólms- borgar. í þakklætis og virðingar- skyni mun sænska ríkið hafa sæmt hana heiðursmerki, þegar hún lét þar af störfum fyrir aldurs sakir. Ymsum af stöllum hennar mundi ævistarfið hafa nægt og þær kosið að setjast í helgan stein til þess að njóta ævikvöldsins í ró og næði. En fyrir Margréti var starfsdagur- inn hvergi nærri að kveldi kominn. Hún átti eftir að bæta við sig 18 ára þrotlausu starfí, sem unnið var af trúmennsku og ósérplægni. Margrét Einarsdóttir fæddist í Hjaltabakkakoti 16. . september 1902, en fluttist ung til Blönduóss. Þar ólst hún upp hjá foreldram sínum, Einari Einarssyni og Mar- gréti Þorsteinsdóttur, til 18 ára ald- urs. Þá fór hún til Reykjavíkur, þar sem hún vann í Björasbakaríi í nokkur ár, eða þangað til hún fór til Svíþjóðar, 21 árs að aldri, og réð sig þar í vist. Fyrr en varir innritað- ist hún í verslunarskóla, þar sem hún lauk námi með ágætum árangri. Henni var þá boðin staða við fríhöfti Stokkhólms, þar sem hún starfaði til ársins 1963, þá komin á eftirlaun. Þess má geta að hún hafði starfað sem aðalgjáldkeri frá byijun síðari heimsstyijaldar. Arið 1964 flyst hún til fslands og ræður sig hjá okkur ári síðar, eins og að ofan getur. Margrét virt- ist samlagast fírmanu og verða óaðskiljaniegur aðili þess, um leið og hún ávann sér traust og virðingu samstarfsfólksins. En dagarair liðu, þeir utðu að vikum og vikuraar að áram. Skömmu eftir áttræðisaf- mæli Margrétar, hinn 16. septem- ber 1982, kom hún að máli við mig og sagði að nú fyndi hún á sér, að starfsdagurinn væri að kveldi kom- inn. Þá spurði ég hana, hvort hún kysi ekki heldur að minnka vinnuna en að hætta alveg, en þá svaraði hún: „Það er því miður ekki hægt að minnka hana meira." Þegar hér var komið sögu sáum við Margréti að sjálfsögðu sjaldnar, en höfðum þó jafnan spumir af henni. Að einu leyti hafði hún látið undir höfuð leggjast að búa nægi- lega vel í haginn fyrir sig, elliárun- um til góða. Hún hafði aldrei gifst, og naut því ekki ástríkra niðja í ellinni. En hún átti marga vini, sem héldu tryggð við hana til hins síðasta. Kristján G. Gíslason Margrét lést á Sólvangi í Hafnar- firði þ. 24. nóvember og var þá bundinn endi á langt veikindastríð stórbrotinnar konu. Hún fæddist í Hjaltabakkakoti 16. september 1902 og vora foreldrar hennar Margrét Þorsteinsdóttir og Einar Einarsson. Þau fluttu nokkru síðar til Blönduóss og þar ólst Margrét upp. Hún var góðum gáfum gædd og lauk komung námi við Kvenna- skólann á Blönduósi. Síðan lá leiðin til Reykjavíkur en þar vann hún í Bjömsbakaríi við afgreiðslustörf. Það var gaman að heyra hana segja frá þeim tíma þegar afgreiðslu- stúlkumar vora í drifhvítum slopp- um og ekki kom til greina annað en ekta danskt smjör í kökubakstur- inn. Fyrir stuttu birtist í Lesbók Morgunblaðsins mynd af starfs- fólkinu í Bjömsbakaríi, sennilega tekin skömmu fyrir 1920. Myndin sýnir að þar var rekið mjmdaifyrir- tæki og þekkti ég þar Möggu Ein- ars á miðri mjmd. Hún minntist alltaf þessa tíma með ánægju. Upp úr 1920 hleypti Margrét heimdraganum og fór með þeim hjónum Ásmundi Sveinssyni og fýrri konu hans, Gunnfríði Jóns- dóttur, sem v_ar náfrænka hennar, til Svíþjóðar. í Stokkhólmi var hún í vist hjá góðu fólki, fyrst allan daginn og síðar hálfan, og þegar hún taldi sig vera komna vel niður í sænskunni dreif hún sig á verslun- arskóla — Pálmans Handelsinstitut — og lauk þaðan prófí með ágætis vitnisburði. Þá sótti hún um og fékk atvinnu á pósthúsi Fríhafnarinnar í Stokkhólmi og var að nokkram áram liðnum orðin forstöðumaður þess. Fríhöfnin í Stokkhólmi er gríðar mikið fyrirtæki með mörg hundrað milljóna króna veltu á ári. Það vakti því verðskuldaða athygli að þegar staða yfírgjaldkera þar losnaði var Margrét hvött til að sækja um stöðuna og fékk hana. Hún var þá orðin sænskur ríkis- borgari. Aðspurð um það hvemig í ósköpunum þeim í stjóm Fríhafnar- innar — hefði dottið í hug að ráða konu og það íslenska í svo mikil- vægt embætti, svaraði hún því til að það væri búin að verða sjóð- þurrð svo oft hjá fyrirrennurum hennar að verra gæti það ekki orðið. Margrét gegndi stöðu sirini með piýði og var sæmd heiðursmerki Stokkhólmsborgar er hún lét af embætti. Ferðalög höfðu alltaf heillað Margréti og hún var búin að fara víða uni Evrópu. Einn vetur tók hún sig til og fór á spænskunámskeið á kvöldin í heilan vetur. Síðan fékk hún inni hjá spænskri fjölskyldu í Madrid í nokkra mánuði og fór eft- ir það margar ferðir til Spánar, en þetta var löngu áður en Spánarferð- ir urðu algengar. Eftir að hún var hætt í Fríhöfninni fór hún til Banda- ríkjanna og dvaldi þar í eitt ár, fyrst hjá Línu og Jóni Gunnars- sjmi, sem var frændi hennar, en réð sig síðan sem stofustúlku til banda- rískra hjóna sem bæði vora læknar og auðkýfingar. Það var dásamlegt að heyra hana segja frá því. Við hjónin kjmntumst Margréti er við dvöldum í Stokkhólmi á stríðsáranum og þau kynni hafa nú staðið hvað mig varðar í 48 ár. íslendingahópurinn var fremur fá- mennur á þeim áram, ekkert sam- band heim en við héldum vel sam- an. Það var Sigurður heitinn Þórar- insson sem kynnti okkur fyrir Möggu og sagði um leið að hún gæti leiðbeint okkur um alla skap- aða hluti. Og það reyndist orð að sönnu. Hún leiddi okkur í allan sannleika um samskipti við jrfírvöld, að ég nú ekki tali um sænskar umgengnis- og kurteisisvenjur sem þá vora í mjög föstum skorðum og torskildar íslenskum. Og við voram ekki þau einu sem hún tók að sér svo að segja. Eftir stríðið, þegar allar flóðgáttir opnuðust, komu margir íslendingar til náms og dval- ar í Stokkhólmi. Frá þeim árum á Margrét hóp vina sem hafa launað henni fyrri viðurgeming og staðið að baki henni þegar hún þarfnaðist mest. Árið 1948 fékk Margrét krabba- mein í hægra bijóstið og var það fjarlægt og húr. gekkst undir sterka geislameðferð. Ekki tók meinið sig upp aftur en hægri handleggurinn varð henni með tímanum gagnslaus og verra en það vegna þyngsla og tilfinningaleysis í hendinni, sem ágerðist og varð að lokum algert. Margrét flutti til íslands árið 1964. Hún var búin að koma marg- ar ferðir hingað eftir að stríðinu lauk og þá fyrst og fremst til að heimsækja móður sína, sem lést 1956, 93 ára að aldri, og systkini sín, Bjama og Þuríði. Hvorki Bjami né Margrét giftust en Þuríðir var
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.