Morgunblaðið - 06.12.1988, Síða 18

Morgunblaðið - 06.12.1988, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1988 TIL KANARÍ FYRIR JÓUN! Notaöu desember til aö hvíla þig á skamm- deginu, bregöa birtu á tilveruna. Nú gefst þér kostur á Kanaríeyjaferö á sértilboði Flugleiða: 6 daga ferð Verð frá kr. 21.900 BroHför er 14. desember. Upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiöa, Lækjargötu, Hótel Esju og Kringlunni, umboðsmenn um land allt og ferðaskrifstofurnar. Upplýsingar og farpantanir í síma 25 100. FLUGLEIDIR * 3 Skóli í kreppu eftírHauk Sigurðsson Starfsdagurinn í Menntaskólan- um í Reykjavík hefst kl. 8 að morgni. Þá verður að vera ljóst hvert skal haldið í fyrstu stund: í Pjós, Casa Nova, Þrúðvang eða ekkert út fyrir gamla skólahúsið. Hvað þarf að taka með sér? Tösku og kort, eitt eða tvö. Meira ber maður ekki í einni ferð. Þegar inn í stofu er komið, flýgur kortið upp á nagla og nær yfir hálfa töflu. Þá verður að skrifa á töflu báðum megin við kortið og út á vegginn ef vel ætti að vera. Séu sögukortin tvö, er því síðara slengt yfir það fyrra þegar nota þarf. Ekki er hægt að nota þau hlið við hlið. Skynsamlegast væri sennilega að hafa annað um hálsinn. Þurfi mað- ur að fara í aðra byggingu fyrir næsta tíma, þarf gjaman þriðja kortið ef öðrum bekk er kennt. Þá þarf að koma hinum tveim yfir í Gamla skóla í frímínútum, grípa það þriðja og arka síðan í þriðja húsið. Verst ef þröng er í stiganum og lítið hægt að komast áfram. Þá þarf að ryðjast, biðja fólk að ganga hraðar en helst þyrfti rennibraut fyrir þá sem una ekki hægagangi. Onnur kennslutæki en þau sem greint hefur verið frá verða ekki með góðu móti flutt milli húsa nema menn vilji hætta á að skemma þau í þrengslum, rigningu og hríð. Þannig er þetta í flestum öðrum greinum. Tungumálakennaramir bera sín segulbandstæki milli bygg- inga, aðrir troða í töskur sínar þeim handbókum sem ættu að vera í stof- unum. Myndarlegt bókasafn í íþöku bjargar þó miklu. En fjárveiting til starfs þar er svo skorin við nögl að hinn lipri bókavörður okkar er þar í hlutastarfi og safnið því stund- um lokað þegar nemendur þurfa á að halda. Um húsnæðismál Menntaskólans í Reykjavík hafa birst greinar hér í blaðinu að undanfömu og áskoran- ir á stjómvöld um úrbætur. Nem- endasamband skólans hefur látið þau mál til sín taka, og er það vel. Orð skulu til alls fyrst. Lesendum má einnig vísa á greinargóða úttekt um húsnæðismálin og viðtöl við rektor og einn af kennurum skólans f tímaritinu Þjóðlífi í september síðastliðnum. Húsnæðisvandinn hefur lengi legið eins og mara á skólanum og skyggt á allt starf sem þar hefur verið unnið. Þrengsli og bág aðstaða til að rækja það starf, Haukur Sigurðsson „Húsnæðisvandinn hef- ur lengi leg-ið eins og mara á skólanum og skyggt á allt starf sem þar hefiir verið unnið. Þrengsli og bág að- staða til að rækja það starf, sem ætlast er til af nemendum, kennur- um og öðrum starfs- mönnum skólans, veld- ur kyrkingi með tíman- um.“ sem ætlast er til af nemendum, kennurum og öðrum starfsmönnum skólans, veldur kyrkingi með tíman- um. Þótt menn beri sig vel þar inn- an dyra, og vilji ekki láta umhverf- ið draga úr sér kjark, finnum við sem þar kennum að bilið breikkar, við verðum stöðugt fjær því að sinna starfí okkar eins og við helst viljum. Stundum hvarflar að manni að sumt húsnæði skólans sé ekki ósvipað því sem kom fram í skýrslu Guð- mundar Finnbogasonar um skóla- húsnæði upp úr síðustu aldamótum, en þá var pottur víða brotinn í þess- um efnum. En engan þarf að undra að svo hafí verið þá: þjóðin var að feta sín fyrstu spor að fræða allan ungdóminn í skólum. En vissulega er öldin önnur nú. Með fé er bruðl- að. Við sjáum verslunarhallir rísa, þegar offjárfesting í verslunum og skrifstofum er þegar orðin vanda- mál. í Kringlunni hafa nú risið þjón- ustuhús fyrir verslun sem rúma 37.000 fermetra. Hvaða verðmæti er verið að skapa með því? Hvaða vanda er verið að leysa með þeim byggingum? Ráðamenn tala fjálgum orðum um að menntunin sé besta fjárfest- ingin og æskan sé okkar mestu verðmæti. Skólar hafa víða risið á síðustu árum og margir vel búnir. Þessar umbætur hafa skotist fram hjá Menntaskólanum í Reykjavík. Aðstaða nemenda til félagsstarfs er svo með öllu óviðunandi. Þeir geta ekki haldið almennan fund um málefni sín, þyrftu í raun að endur- taka hann átta sinnum til að ná vel til allra. Svo aum er fundaraðstaðan í kjallara Casa Nova. Sennilega verður aldrei nein viðunandi lausn fyrr en reist verður bygging sem hugsuð er til kennslu og annars skólastarfs og innréttingu hagað í samræmi við það. Allar aðrar lausn- ir eru skammtímalausnir. Hvernig er þá hægt að starfa í slíkum skóla? Sá góði andi sem í skólanum er bjargar honum. Sam- vinna nemenda og kennara er yfir- leitt góð og þar sem slíkt er í skóla etur árangur ekki orðið slæmur. ýmsum greinum eru unnin góð störf, þó að þessi vonda aðstaða komi í veg fyrir að önnur verði unnin. Arangur riokkurra nemenda sem keppt hafa í stærðfræði og eðlisfræði síðustu ár hefur verið með ágætum. Ég ætla að vel sé unnið í ýmsum öðrum greinum sem ekki er keppt í. Úrslit í keppni segja ekki allt, þau eru ijóminn ofan á. Fyrir löngu er viðurkennt að ekki verður kennt almennilega í mennta- skóla né í öðrum framhaldsskólum nema hver grein eigi sér sína stofu. Nú eru þrjár sérstofur í skólanum, fyrir náttúrufræði, eðlisfræði og efnafræði. Aðrar greinar eiga sér enga slíka stofu. Mín kennslugrein er saga. Hvað þyrfti að vera þar svo að hægt væri að kenna af viti? Sögukort, myndvarpi fyrir glærur og annar sem varpar myndum úr bókum á tjald. Hljómbandstæki til að flytja merka texta, ræður nem- enda og annarra og dagskrár um söguleg efni. Myndbandstæki og/eða sýningarvél fyrir kvikmynd- ir. Skúffur til að geyma í glærur og fjölrit. Hillur til að geyma á nauðsynlegustu handbækur í er- lendri og innlendri sögu, kortabæk- ur o.fl. Sumt af þessu er til á hveiju heimili og þykir ekki mikið. Slíkt umhverfi er hvetjandi, þroskandi og fæðir nýjar hugmyndir og þá finna menn að þeir eru að gera eitt- hvað sem hefur varanlegt gildi. Þessu þjóðfélagi tröllríður enda- laus umræða um vexti, vísitölu, fjárfestingu, gjaldþrot, bankana og markaði erlendis, fyrir utan „vanda frystingarinnar". Þó að ekki verði hjá þeirri umræðu komist, veldur hún því að önnur mál sitja á hakan- um eða gleymast. Þær stóru línur eru sjaldan dregnar upp hvemig menn vilja að þjóðfélagið eigi að þróast, við hvaða skilyrði menning okkar eigi að búa svo að hún dafni. Sótt er að henni úr öllum áttum. Fjárveiting til menningar- og menntastofnana er ár eftir ár skor- in við nögl. Slíkt á eftir að hefna sín. Til að veijast sókn erlendrar lágkúru sem flæðir yfir okkur þarf öflugt og vakantji menningarstarf. í því starfí eru skólamir grunnur. Ef menntunin er besta fárfestingin þarf að sjá það í verki. Höfiindur er cand.mag. ísagn- fræði og kennari við Menntaakól- ann í Reykjavík. Metsölublad á hveijum degi! I Stærðir: 35-40 Verð kr. 2.97S,- Stærðir: 40-47 Verð kr. 3.450,- Stærðir: 35-40 gj Verð kr. 3.2S0, I Stærðir: 40-47 Verð kr. 3.795,- V I Italskir leður kuldaskór ímiklu úrvali GEís I y////////^^^m4////////7mm. 1

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.