Morgunblaðið - 06.12.1988, Page 31

Morgunblaðið - 06.12.1988, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1988 31 PANTHELLA Hönnuður: Verner Panton Borðlampar tvær stærðir: Lítill: 400 mm, hæð 530 mm Stór: 500 mm, hæð 675 mm Gólflampi: 500 mm, hæð 1270 mm Hvítur Skipastóll í vanda NÁMSMENN ATHUGIÐ! Ný hraðvirk, létt og handhæg TA Triumph-Adler skrif- stofuritvél á verði skólaritvélar. UmboSsmenn um land allt: Bókabúð Keflavíkur, Keflavfk, Bókabúð Olivers Steins, Hafnarfirði, Bókabúöin Grima, Garðabæ, Grifill, Reykjavík’, Hans Arnason, Reykjavlk, Jón Bjarnason, Akureyri' Kaupf. V-Húnvetninga, Hvammstanga, Kaupf. A-Skaftf„ Hornafirði, M.M. búðin, Selfossi, PC tölvan, Akranesi Penninn, Reykjavík, Rás s.f„ Þorlákshöfn, Stuðull s.f ’ Sauðárkróki, Sameind, Reykjavík, Skrifvélin, Reykjavik, Tölvuvörur hf„ Reykjavík, Traust, Egilsstððum. Sendum i póstkröfu • Prenthraði 13 slög/sek • "Lift off” leiðréttingar- búnaður fyrir hvern staf eða orð. • 120 stafa leiðréttingarminni • Sjálfvirk: miðjustilling undirstrikun feitletrun • Handfang og lok. auk ýmissa annarra kosta sem prýða eiga ritvél morgun- dagsins. Komdu við hjá okkur eða hringdu og fáðu frekari upplýsingar. Einar J. Skúlason hf. Grensásvegi 10, sími 686933 eftirSigurð Arngrímsson Kaupskipaflotinn er að sigla í strand, vegna þess að útgjöld eru í engu samræmi við tekjur félag- anna, ef undan eru skilin skipafé- lög sem fljóta á háum farmgjöldum á inn- og útflutningi landsmanna, þar sem þau hafa nánast einokun- araðstöðu. Há framgjöld flytjast síðan yfir á tolla og álagningu kaupmanna og orsaka hér hærra verðlag á neysluvarningi en þekk- ist meðal nágrannaþjóða okkar og verri samkeppnisaðstöðu útflutn- ingsatvinnuveganna. Hvað veldur og hvað er til bóta Yfirbygging í landi er stór kostnaðarliður. Aðrir þættir sem valda þessu eru stórir áhafnir, röng áhersla á menntun skipstjórnar- manna, tregða stéttarfélaganna til að fallast á breytingar og há að- stöðugjöld hafna og skattar. Haldi stéttarfélögin fast við fyrri ákvarðanir, verður engu breytt og siglingar sem atvinnuvegur mun leggjast af, ef undan eru skilin þau skipafélög sem njóta sérstöðu og hækka farmgjöld í samræmi við þarfir sínar og kostnað. Fyrsta skrefið hlýtur því að vera að fækka til muna í áhöfn yfir- og undir- mönnum skipanna og breyta lögum þar að lútandi. Stærri skip sem sigla á föstum rútum ættu ekki að þurfa fleiri en sjö í áhöfn, þ.e. skipstjóra, stýri- mann, tvo háseta, tvo vélstjóra og matsvein. Sjóbúnað og viðhald má færa yfir á sérstök gengi. En á skipum, þúsund lestir og minni, þarf vart fleiri en fimm í áhöfn. Samhliða þessu verði menntun skipstjórnarmanna endurskoðuð og lögum breytt þar að lútandi svo menntunin verði markviss og tekn- ar inn í námsefnið nýjungar, en felldir burt úreltir kennsluhættir- og stefnt verði að því að skipstjórn- armenn fái hagnýta menntun í: „Hleðslufræði, siglingum, vélfræði og samskiptum við land, þannig að þegar fram í sækir verði hægt að fækka enn frekar í áhöfn skipa. Lögum verði breytt enn frekar og öllum skipum, sem eru tryggð og hafa haffærisskírteini, leyft að skrá sig undir íslenskan fána og skipsbækur megi skrifa auk íslensku á ensku, frönsku, þýsku og norðurlandamálunum. Á skipum sem sigla til og frá íslandi og með ströndum landsins, skal áhöfn að jafnaði vera íslensk og æskilegt að skipstjóri og yfirvél- stjóri á öllum skipum sem sigla undir íslenskum fána séu Islend- ingar. Það er mikill misskilningur, sem stafar að sumu leyti af vanþekk- ingu, að skip sem sigla nú undir hagkvæmisfánum, séu illa mönnuð °g öryggi þeirra ábótavant. Hitt er sönnu nær, að hjá þeim er skylda að halda vikulega bruna- og bátaæfingar og skipstjórar eiga á hættu að missa réttindi sín, sé út af þessu brugðið. Og ef við tök- um yfirmenn frá Filippseyjum sem dæmi, þá hafa stjórnvöld þar sér- hæft sig í útflutningi menntaðra yfirmanna, sem fengið hafa mun hagnýtari menntun en við eigum kost á að fá, við ríkjandi kennslu- aðferðir í sjómannaskólanum. Einfalda þarf alla afgreiðslu í landi og gera hana markvissa til að lækka yfirbyggingu, sem stafar ekki síst af úreltum vinnubrögðum banka og opinberra aðila, sem valda því að stór hluti starfsmanna skipafélaganna vinnur við óþarfa bréfaskriftir og skýrslugerðir, flokkun og geymslu bréfa og skjala frá þessum aðilum, sem ekkert hagnýtt gildi hafa. Þetta veldur auknum kostnaði, sem velt er út í verðlagið. FAXAFENI 7 - sími 687733 Hvað vinnst og hveiju töpum við Margir óttast að við þetta missi sjómenn atvinnu sína. Það óttast ég ekki, en hún kemur til með að breytast. Ég tel ekki óraunhæft að líta svo á að innan tíu ára yrði kaupskipafloti landsmanna um tíu milljón tonn. Og í stað fækkunar mundi félagatala aukast í félögum yfirmanna og fleiri störf skapast fyrir þá með auknum flota. Undirmönnum skipa mundi fækka um borð, en margir þeirra flytjast yfir í önnur störf, s.s. við sjóbúnað og viðhald. Þeirra er víðar þörf en í þessum störfum og með tiltölulega stuttu námskeiði væri hægt að þjálfa þá í störf eftirlits- manna, sem líta eftir öryggis- búnaði skipa, að hann sé í góðu lagi. Þarna yrði um mörg ný störf að ræða og ferðalög um allan heim til að sinna eftirlitinu. Breytingarn- ar geta kostað tímabundna röskun, en þegar fram í sækir munu þær verða sjómönnum og landsmönn- um til góðs vegna starfa sem skap- ast við aukinn flota og þjónustu við hann. Með fækkun í áhöfnum skipa og einföldun afgreiðslu þeirra geta skipafélög lækkað farmgjöld á vöru til og frá landinu og stuðlað að lækkun vöruverðs á innfluttum varningi, þannig að það verði svip- að og í nágrannalöndum okkar og gert útflutning samkeppnishæfari á heimsmarkaði. Og auk þessa mundi verðlækkunin knýja flugfé- lög til að lækka há gjöld á flutn- ingi á farmi og farþegum. En við það mundu tekjur þeirra aukast en ekki minnka, vegna aukinna viðskipta og fijálsræðis í viðskipt- um, sem ríkið yrði að sjálfsögðu yrði að taka þátt í með afnámi margvíslegra kvaða á þessa þjón- ustu, s.s. sölu- og matarskatt, sem drepa mun annars vaxtarbrodd þessa iðnaðar. Lokaorð Islendingar eru vel menntaðir og á mörgum sviðum hafa þeir verið fljótir að tileinka sér nýjung- ar og aðlaga sig að þörfum mark- aðarins og kröfum nútímans. Mörg ár eru síðan ég kynnti þessa hug- mynd, en þá átti hún hvergi hljóm- grunn. Nú hafa aðstæður breyst það mikið, að málið verður að ræða og kanna og taka síðan af- stöðu. Það hafa frændur okkar á Norðurlöndunum þegar gert. Lög- um um skráningu skipa og flug- véla og fjölda manna í áhöfnum þeirra hefur þegar verið breytt þannig að félögin geti aðlagað sig þörfum markaðar og samkeppni. Þetta er gert með því að fækka í áhöfnum og einfalda reksturinn, án þes að minnka öryggi, með því að nýta nýja tækni og öruggari og betri vélar. Ef við ætlum okkur hlutdeild, verðum við að taka upp ný vinnu- brögð. Flytja staðnaða menntun til sinna heima á sjóminjasafn, ’en nýta þess í stað nýja tækni, þjálfun og menntun, sem gera munu okk- ur, samkeppnislega séð, að for- ystuþjóð í flutningum á fólki og vörum á sjó og lofti. Höfundur er fyrrverandi skip- stjóri. Góö hönnun og glæsilegt útlit einkenna ritvélarnar frá TA Triumph-Adler Sigurður Arngrímsson „Með fækkun í áhöfin- um skipa og einföldun afgreiðslu þeirra geta skipafélög lækkað farmgjöld á vöru til og frá landinu og stuðlað að lækkun vöruverðs á innfluttum varningi, þannig að það verði svipað og í nágranna- löndum okkar og gert útflutning samkeppnis- hæfari á heimsmark- aði. Og auk þessa mundi verðlækkunin knýja flugfélög til að lækka há gjöld á farmi og farþegum.“ ipf|6m

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.