Morgunblaðið - 06.12.1988, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 06.12.1988, Qupperneq 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, VIÐSKEPTI/AIVINNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1988 Prentiðnaður PRENTSMIÐJUR hamast nú við að ljúka prentun jólabókanna. Það var að heyra á talsmönnum þeirra prentsmiðja sem Morgun- blaðið ræddi við, að prentun jólabóka hafi ekki dreifst eins mikið á þijá síðustu mánuði ársins um þessi jól en undanfarin ár, heldur raðast mest á nóvember og desember. Talið er að óvissa í efhahags- málum og stjórnarskipti hafi ráðið miklu þarna um. Þannig er nú prentað allan sólarhringinn í nokkrum prentsmiðjum, og á ströng- um vöktum í öðrum. Hjá prentsmiðjunni Odda er nú unnið sleitulaust allan sólarhring- inn. Samkvæmt því sem Þorgeir Baldursson forstjóri Odda segir, prentar Oddi nú á annað hundrað bækur sem ætlaðar eru á jólamark- að. Þorgeir sagði, að þessari keyrslu yrði haldið út næstu viku, en þá hægist um þar til endurprentun á bókum sem seljast vel hefst. Hann sagði að minna hefði verið prentað hjá Odda í september og október nú en undanfarin ár, og að greini- lega hefði verið hik á mönnum. Samkvæmt upplýsingum frá prentsmiðju ísafoldar er nú prentað á vöktum þar. Ísafoid prentar fjórar jólábækur í ár, og talsmaður prent- smiðjunnar sagði, að ekki sæi út úr verkefnum þar fyrr en haila færi mjög að jólum. Hann sagði, að það hik sem kom á menn í kjöl- far stjómarskipta hafi sett strik í reikninginn hjá prentsmiðjum, og hjá ísafold hafi þau verkefni sem venjulega eru unnin á tveimur eða þremur mánuðum hrúgast á sama hálfa mánuðinn. SYNINGAR — Forsvarsmenn sjávarútvegssýningarinnar í Bella Center og Úrvals ræða skipulag ferða héðan á sýninguna í sumar. T.v. Knútur Oskarsson, framkvæmdastjóri Úrvals, Þórleifur Ólafsson, umboðsmaður sýningarinnar hér á landi, Judith Barrell, skipulagsstjóri ITF, John V. Legate, framkvæmda- syóri ITF í Evrópu og Patricia Foster, framkvæmdastjóri sjávarútvegssýninganna, auk Roland Assier, sölu- manns innanlandsdeildar Úrvals. Sýning-ar Sjávarútvegssýningin íBella Center í fulluin undirbúningi Forsvarsmenn sýningarfyrirtækisins ITFI hvetja íslendinga eindregið til að endur- skoða hönnun handknattleikshallarinnar svo að hún nýtist sem best UNDIRBÚNINGUR fyrir alþjóð- legu sjávarútvegssýninguna í Bella Center í Kaupmannahöfii 6.-10. júní á næsta sumri er kom- inn vel á veg. Skipuleggjendur þessarar sýningar eru hinir sömu og standa að sjávarútvegssýning- unni sem haldinn er reglulega ISLANDSKYNNING — Hótelstjóri Pullman hótelsins í Luxemborg var staddur hér á landi fyrir nokkru. Kynnti hann m.a. Íslandshátíð, sem haldin verður á hótelinu dagana 15.-26. febrúar 1989. Um sviðað leyti mun opna ný Flugleiðaskrifstofa og íslensk ferðamálaskrifstofa í Luxemborg. Verndari hátíðarinnar verður Einar Benediktsson sendiherra. Meðan á hátíðinni stendur verður sett upp sýning í anddyri htoelsins, þar sem kynntar verða ýmsar útflutningsvörur íslendinga, jafnframt verður kynning á ýmsum vinsælum ferðamannastöðum. Hefur Ferðamálaskrifstofa Lúxemborgar látið gefa út upplýsingabækl- ing á íslensku. Myndin var tekin 'þegar hótelstjórinn var staddur hérlendis og hitti ýmsa þá aðila sem hann hefur átt samstarf við. Frá Flugleiðum f.v. Jóhann D. Jónsson, Sveinn Sæmundsson, Einar Gústavsson, Pétur Esra- son, Pétur J. Eiríksson og Sigurður Helgason forstjóri, Karel Hilkhuyzen hótelstjóri Pullman hótelsins, Margrét H. Hauksdóttir, Flugleiðum, Már Gunnarsson, Flugleiðum, Knútur Óskarsson Ferðaskrifstofunni Úrval, Anna Guðný Aradóttir, Flugleiðum og Birgir Þorgilsson Ferðamálaráði íslands. hér á landi, eða Industrial & Trade Fairs International Ltd. Við skipulag sýningarinnar í Bella Center hefiir verið tekin upp sú nýbreytni að eftia til tveggja hliðarsýninga, annars vegar helgaða búnaði fyrir fisk- eldi og hins vegar er sýning á sjávaraiurðum. Forsvarsmenn ITF voru einmitt hér á landi fyr- ir skömmu til að vekja áhuga íslenskra framleiðenda sjávaraf- urða á þessari sýningardeild. Patricia Foster, forstöðumaður sjávarútvegssýninga ITF, sagði í samtali við Morgunblaðið að til- gangurinn með þessari útvíkkun sýningarinnar yfir á sjávarafurða- sviðið væri að búa til hér í Evrópu einhvers konar hliðstæðu sjávaraf- urðasýningarinnar í Boston. Patric- ia Foster bendir á að helsti sýning- arvettvangur sjávarafurða í álfunni hafi til þessa verið bundinn við stór- ar matvælasýningar á borð við SIAL í Frakklandi, þar sem hætta geti verið á að sjávarafurðimar hverfi í skuggann fyrir hvers kyns öðmm matvælum. Með samtvinnun sjávarútvegssýningarinnar í Bella Center við sjávarafurðir og fiskeldi er aftur á móti verið að freista þess að gefa sýningargestum heildar- yfirsýn yfir það sem er að gerast á þessu sviði. Patricia Foster segir, að öll sýn- ingaraðstaða sjálfrar sjávarútvegs- sýningarinnar sé meira og minna seld. Þar verða 12 þjóðir með sér- stakar sýningardeildir fyrir fram- Fj ármagnsmar kaður Heildarkostnaður vegna greiðslukorta er um 8prósent — miðað við 50% ávöxtunarkröfu og 1% söluþóknun hjá Kaupþingi PÉTUR Blöndal, framkvæmda- stjóri Kaupþings, segir að vegna aukinnar eftirspurnar hafi Kaupþing ekki séð sér annað fært en að hækka ávöxtunar- kröfú fyrir greiðslukortanótur úr 45% í 50%. Ávallt sé mikil eftirspurn fyrir jól eftir pening- um og það sama sé að gerast núna. Hann sagði að kaupmenn þyrftu að borga 2-3% til greiðslu- kortafyrirtælganna í þóknun, 2,5-5 % í ávöxtunarkröfú eftir tímalengd og 0,93% til Kaup- þings í söluþóknun. Kaupmaður- inn þurfi því að fórna um 8% til að fá peningana strax. „Þetta eru aðilar sem væntanlega þurfa að kaupa inn vörur fyrir jólin og ég treysti þeim fullkomlega til að gera það sem er skynsamlegt fyrir þá. Hér er því ekki verið að lána fátækjum ekkjum peninga,“ sagði Pétur Blöndal í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði jafn- framt að Kaupþing væri með lægstu söluþóknunina en veitti aftur á móti eigendum Einingarbréfa lang- bestu ávöxtunina. Þessi 50% ávöxt- un rynni því beint til mörg þúsund sparifjáreigenda um allt land og helmingurinn af því fólki ætti innan við 200 þúsund krónur. „Ef kaup- menn hafa mikla þörf fyrir peninga rétt fyrir jólin og eru reiðubúnir að borga þessa vexti finnst mér sjálf- sagt að ná í þá vexti fyrir sparifjár- eigendur heldur en að láta myndast biðröð þar sem menn fara jafnvel að múta mér fyrir að kaupa þeirra nótur.“ Pétur sagði ennfremur að það sem seljandi greiðslukortanótna þyrfti að athuga væri hvaða kjör hann fengi hjá hinum ýmsu aðilum þ.e. hver heildarkostnaðurinn væri. Hann gat þess að hér væri um mjög háa ávöxtun að ræða en á Islandi hefðu alltaf viðgengist mjög háir duldir vextir í formi stað- greiðsluafsláttar. Það þætti ekki mikill afsláttur að fá 5% afslátt en samt væru það 5% afföll sem gæfu 50% ávöxtunarkröfu á greiðslu- kortanótum. leiðendur sína og eru Islendingar þar á meðal en auk þeirra Norð- menn, Svíar, ítalir, Hollendingar, Bretar, Frakkar, Færeyingar og nú í fyrsta sinn Grænlendingar og Finnar. Þátttakendur koma að sjálf- sögðu víðar að og verða alls um 600 talsins. Reynslan af fyrri sýningum Ieiðir í Ijós að um 60% sýningargesta eru frá Norðurlöndunum en um 40% eru lengra að komnir, jafnvel allt frá Ástralíu og Saudi Arabíu, enda þótt ekki fari miklar sögur af sjáv- arútvegi í því landi. Patricia Foster segir að enn sé laus sýningarað- staða í fiskeldisdeildinni og einnig í sjávarafurðadeildinni, en erindi Patriciu Foster hingað til lands á dögunum var ekki síst að vekja athygli innlendra framleiðenda sjávarafurða á þeirri deild, eins og áður segir. Auk þess voru Foster og sam- starfsmenn hennar innan Industrial & Trade Fairs Intemational hér að ganga frá ýmsum málum í tengsl- um við fyrirhugaða sjávarútvegs- sýningu í Laugardalshöll árið 1990. Patricia Foster segir að heita megi að fullbókað sé á þá sýningu og engir frekari vaxtamöguleikar fyrir hendi vegna skorts á sýningarað- stöðu. Foster hafði heyrt af áformum um byggingu handknattleikshallar vegna heimsmeistarakeppninnar 1995 og hugmyndum um að nýta hana einnig sem sýningarhöll, en taldi þær fráleitar. „Þetta er vissu- lega fallegt hús ef dæma má eftir þeim hugmyndadrögum sem fyrir liggja en staðreyndin er sú að hring- laga byggingar af þessu tagi henta afar illa til sýningarhalds. Ákjósan- legast er að slíkar byggingar séu rétthyrntar eða jafnvel ferning- slaga. “ Þau Foster og John V. Legate, framkvæmdastjóri ITF í Evrópu, voru hins vegar sammála um að skynsamlegast væri að hanna slíka byggingu með það fyrir augum að hafa mætti af henni hin margví- slegustu not — til hvers kyns innan- ússíþrótta, skemmtana, tónleika og sýninga. Hvöttu þau íslendinga ein- dregið til að kynna sér sýningar- höll í Birmingham í Bretlandi sem einmitt hefði verið hönnuð með til- liti til þess að nota mætti hana til alls kyns uppákoma og þannig ná hámarksnýtingu. Víðar væri að finna dæmi um slíkar byggingar í Bretlandi, t.d. í Glasgow, og lýstu þau sig reiðubúin að vera íslenskum aðilum innan handar, ef þeir hefðu hug á að kynna sér slíkar bygging- ar í Bretlandi. Jólabókaprentun á lokasnúningi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.