Morgunblaðið - 06.12.1988, Qupperneq 64
64
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1988
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
DAVID J. VINCENT
lést á heimili sínu í London 1. desember.
Málfríður (Bfbi) Árnadóttir Vincent,
David og Kenneth Vincent.
t
Ástkær eiginkona mín og móðir okkar,
INGIBJÖRG ÁRNADÓTTIR,
Vogatungu 99,
Kópavogi,
lést í Borgarspítalanum laugardaginn 3. desember.
Ólafur Jóhannesson
og dætur.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐNÝI NGVARSDÓTTi R,
Lundargötu 13b,
Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð 3. desember.
Kolbrún Sigurlaugsdóttir,
Ágúst Siguriaugsson,
tengdabörn og barnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
INGIGERÐUR GUÐBJÖRG GUÐLAUGSDÓTTIR,
Heiðarvegi 5,
Selfossi,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum 4. desember.
Kristrn Guðfinnsdóttir, Örn Guðmundsson,
Árni Guðfinnsson, Kristfn Hjaltadóttir,
Guðrún Guðfinnsdóttir, Ari Páll Tómasson
og barnabörn.
t
Systir okkar,
HALLDÓRA G. GUÐJÓNSDÓTTIR,
Rauðarárstfg 9,
sem lést 27. nóvember, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju þriðju-
daginn 6. desember kl. 15.00.
Helga Guðjónsdóttir,
Margrét Guðjónsdóttir.
t
Móðir okkar,
SIGRÍÐUR BJARNEY EINARSDÓTTIR
frá Hreggsstöðum,
sem andaðist 27. nóvember, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
í Reykjavík föstudaginn 9. desember kl. 15.00. Jarðsett verður
sama dag að Lágafelli.
Börnin.
t
Faðir okkar,
KRISTJÁN JÓNSSON
fyrrv. skóiastjóri, Hnffsdal,
sem andaðist 2. desember, verður jarðsunginn frá Hnífsdals-
kapellu laugardaginn 10. desember kl. 14.00.
Kveðjuathöfn verður í Áskirkju fimmtudaginn 8. desember kl. 13.30.
Kjartan Kristjánsson,
Kristjana Kristjánsdóttir,
Elfsabet Kristjánsdóttir,
Jón Kristjánsson,
Kristján Kristjánsson.
t
Útför eiginmanns míns, föður okkar og tengdaföður og afa,
DANÍELS WILUAMSONAR,
Grýtubakka 12,
sem andaðist 4. desember, fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 9. desember kl. 13.30. »
Þeim sem vildu minnast hans, er bent á húsbyggingarsjóö Leik-
félags Reykjavíkur.
Kristfn Ásta Egilsdóttir,
Ágústa Danfelsdóttir,
Ásthildur Kristjánsdóttir, Ólafur Theódórsson,
Egill Kristjánsson, Guðbjörg Vilhjálmsdóttir,
Kristján Ólafur Kristjánsson,
Vignir Kristjánsson, Elfsa Guðmundsdóttir
og barnabörn.
Þóranna Lofts-
dóttir - Minning
Fædd 1. desember 1895
Dáin 26. nóvember 1988
Lítið jólatré í íbúð undir súð í
Bólstaðarhlíðinni, allt tandurhreint,
snoturt og hlýlegt, hver hlutur með
sinn ákveðna stað og tilgang í til-
verunni. í miðri þessari mynd er
Þóranna afasystir mín.
í mörg ár fannst mér jólin byija
þegar ég hljóp upp stigana í Ból-
staðarhlíðinni með smájólaglaðning
rétt fyrir klukkan 6 á aðfangadags-
kvöld. Þama bjó frænka mín ein
en aldrei einmana að því er mér
fannst. Hún bjó sér hlýjan og góðan
heim sem virtist öruggur og óum-
breytanlegur, þar sem litlir hlutir
urðu stórir, litla jólatréð hennar eitt
hið stærsta serh ég hef séð.
Þessi lífsfylling eða innri gleði,
hversu sátt hún virtist við líf sitt,
örlögin og sjálfa sig, fannst mér
einkenna hana mest. Hún hafði
þess vegna sjálfstraust, sjálfsöryggi
til þess að fara sínar eigin leiðir,
láta sínar skoðanir í ljós óhikað
þegar hún vildi vera hreinskilin.
Hvaða nútímakona sem er gæti
verið stolt af því sjálfstæði sem ein-
kenndi hana.
Ekki er ólíklegt að hörð lífsbar-
átta hafi mótað þessi viðhorf henn-
ar en ung missti hún móður sína
og þurfti fljótlega eftir það að fara
að vinna fyrir sér, treysta á sjálfa
sig.
Þóranna Loftsdóttir fæddist að
Miðhóli í Sléttuhlíð í Skagafirði 1.
desember 1895, þriðja í röðinni af
sex systkinum, tveimur bræðrum
og fjórum systrum. Foreldrar henn-
ar voru hjónin Loftur Jónsson og
Ingibjörg Þóroddsdóttir.
Æskuheimilið tvístraðist nokkru
eftir lát móðurinnar og bömin
þurftu ung að sjá um sig. Þóranna
vann við ýmis þjónustustörf, aðal-
lega ráðskonu- og framreiðslustörf.
Framan af ævi hélt hún sig við
Norðurland, en fluttist síðan til
Reykjavíkur þar sem hún bjó í ára-
tugi. Um tíma rak hún matsölu við
góðan orðstír, en hún þótti mjög
samviskusöm og dugleg til vinnu.
Ég kynntist frænku minni strax
í frumbemsku. Ég býst við að mér
hafi fundist ég fara einhvers á mis,
þar sem ég átti hvorki móðurömmu
né móðurafa og hafi ákveðið að
láta Þórönnu bæta mér það upp.
Hún bar umhyggju fyrir okkur
systkinunum, og lagði m.a. mikla
áherslu á hollustu í mataræði og
t
Útför móður okkar,
GUÐRÚNU JÓNÍNU GUNNARSDÓTTUR
Ijósmóðurfrá Bakkagerði,
Furugerði 1,
fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 7. desember nk. kl.
15.00.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Hjartavernd.
Ragnheiður Kristinsdóttir,
Hreinn Kristinsson,
Anna Kristinsdóttir.
t
Útför
UNU KRISTJÁNSDÓTTUR THORODDSEN,
sem lést þann 25. nóvember sl., verður gerð frá Dómkirkjunni í
dag, 6. desember, kl. 10.30.
Ólfna Kristinsdóttir, Magnús Arnason,
Guðlaugur Kristinsson, Ragnheiður Jónsdóttir,
Unnur Kristinsdóttir, Sigmar Björnsson,
Skúli Thoroddsen
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför
BJARGARJÓNSDÓTTUR
frá Vallanesi,
Selási 26, Egilsstöðum.
Magnús Jónsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir samúð og vináttu við andlát og jarðarför
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
HALLDÓRS BJARNASONAR,
Króki,
Gaulverjabæjarhreppi.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þakka innilega auðsýnda samúö og hljálpsemi við andlát og útför
eiginkonu minnar,
DAGBJARTAR J. PÁLSDÓTTUR,
Laufvangi 1,
Hafnarfirði.
Guð blessi ykkur öll.
Stefán Hallgrímsson.
minnisstæðar eru mér áhyggjur
hennar yfír því hversu föl ég væri,
ég væri ekki nógu mikið sólarmeg-
in þar sem svefnherbergi mitt sneri
í norður.
Hún lumaði ýmsu að okkur systk-
inunum, m.a. Jesúmyndum, enda
trúuð kona, en aldrei var ég ánægð
með svarið sem ég fékk hjá henni
við spumingunni um hver guð væri,
en það var, að guð væri andinn í
sjálfri mér. Svar þetta olli mér mikl-
um heilabrotum og hálfgerðum von-
brigðum lengi á eftir.
I sínum óumbreytileika og
ákveðna lífsstfl virtist frænka mín
búa yfír miklum sveigjanleika og
aðlögunarhæfni.
Hún fluttist úr litlu notalegu
íbúðinni sinni á Hrafnistu í Hafnar-
firði, þar sem hún bjó síðustu 7
árin. Hún vildi komast í örugga
höfn áður en heilsu hennar hrak-
aði. Þetta hljóta að hafa verið tals-
verð umskipti fyrir hana þar sem
hún hafði búið ein og Hafnarfjörður
hálfgerð sveit í hennar augum. En
hún lagaði sig vel að þessum nýju
heimkynnum með sínu jákvæða
hugarfari.
Þessari sterku konu var mikið í
mun að standa sig eins lengi og
hún gat og kraftar hennar leyfðu.
Hún vildi að sem minnst væri fyrir
sér haft, vildi halda í sjálfstæði sitt
sem lengst. Hún lést 26. nóvember
sl.
Við lífið hafði hún verið sátt og
dauðann líka. Þó helsjúk í lokin,
var stutt í brosið og manni fannst
hún segja: „Þetta er allt í lagi, þetta
er bara hluti af lífinu."
Guð blessi minningu frænku
minnar.
Gunnhildur Gunnarsdóttir
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð i Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafharstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara.
Blómastofa
fíiðfinns
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
tll kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.