Morgunblaðið - 04.01.1989, Blaðsíða 27
eaei jtaumai. t- jmoAOUHivaiM QiaA,mv[tJOHOM
as
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1989
27
Isafiörður:
Byggðar- og umhverfis-
verndarsamtök stofiiuð
ísafirði.
ÁHUGAMENN um byggðar- og
umhverfisvernd boðuðu til
stofnfundar slíkra samtaka á
Hótel ísafirði miðvikudaginn
28. desember.
Um 60 manns voru mættir til
fundarins og gengu flestir í sam-
tökin, en samkvæmt lögum þeirra
vilja félagsmenn vinna að vemdun
og viðhaldi mannvirkja sem búa
yfír menningarsögulegu gildi og
Fimm sögur um
Morgan Kane
Bókaútgáfan Prenthúsið hef-
ur gefið út Morgan Kane-bók
sem heitir Bjargvætturinn.
í henni eru fimm sögur um Morg-
an Kane, eftir Louis Masterson.
Tæplega 70 bækur um Morgan
Kane hafa komið út á íslensku.
„Þessar fimm sögur eiga það
sammerkt að Morgan Kane tekst á
hendur erfið verkefni, öðrum til
hjálpar. Hann svífst einskis til að
leysa þau vel af hendi," segir m.a.
í kynningu útgefanda. Hersteinn
Pálsson þýddi söguna.
að prýða og bæta umhverfið.
Elísabet Gunnarsdóttir arkitekt
hafði orð fyrir fundarboðendum og
gat þess að í nóvember hefði Hjör-
leifur Stefánsson arkitekt mætt á
fund með undirbúningsnefndinni
og flutt erindi um íslenska bygg-
ingarsögu og setti nokkur merk
hús á ísafírði þar í samhengi.
Hér er staðsett elsta hús lands-
ins í hverfí húsa frá 18. öld sem
öll eru í sínu upprunalega um-
hverfi í Neðsta-kaupstað. Þá var
rætt um hugsanlega varðveislu
Eyrarkirkju, en mikill áhugi er á
því að hún fái að standa áfram
þótt ný kirkja verði byggð. Á stofn-
fundinum voru flutt erindi um
ýmis mál sem varða byggð og
umhverfisvemd. í fyrstu stjóm
samtakanna vom kjörin: Bjöm
Teitsson skólameistari, formaður,
Óskar Eggertsson, Sigríður Stein-
unn Axelsdóttir, Ásthildur Þórðar-
dóttir og Samúel Einarsson.
í lok fundarins var samþykkt
áskomn til sóknamefndar ísafjarð-
ar um að hún beiti sér fyrir því
að Eyrarkirkja verði ekki rifín þótt
ný kirkja verði byggð.
- Úlfar
Bók um kirkjugarð-
inn við Suðurgötu
ÚT ER komin bók eftir Úlf
Friðriksson, „Fundið og gefíð
— Sundurlausir þankar á leið-
um milli leiða í kirkjugarðinum
við Suðurgötu“.
í kynningu^ útgefanda segir: í
bókinni leiðir Úlfyr Friðriksson les-
anda sinn milli leiða í gamla kirkju-
garðinum í Reykjavík, sem einmitt
verður 150 ára um þessar mundir.
Hann flettir í bókum, ritgerðum
og ritum um og eftir þá sem þar
hvíla, rifjar upp atvik úr lífi þeirra
eða þeim tengd, flytur okkur ljóð,
kynnir okkur gömul bréf og rýnir
í legsteina og minnisvarða þekktra
sem óþekktra íslendinga; innan
þessa mjög svo sérstæða ramma
hugleiðir höfundur líf og dauða,
tilvist sína, uppruna og skoðanir.
Höfundurinn, Úlfur Friðriksson,
er fæddur árið 1912 í Kúrlandi,
en er af þýsku og pólsku bergi
brotinn. Hann fluttist til íslands
árið 1955 og hefur starfað hjá
Kirkjugörðum Reykjavíkur frá ár-
inu 1968. Hann hefur áður skrifað
eina bók, f ríki hestsins, sem kom
út árið 1977. Reykholt aðstoðar
við útgáfu, en Prenthúsið sér um
dreifingu bókarinnar, sem gefin
er út í kiljubroti.
Hraðfiystihús Grindavíkur hefur verið nánast lokað síðan í haust.
Morgunblaðið/Kr.Ben.
Lagmetisiðj an kaupir Hrað-
frystihús Grindavíkur
Grindavik.
LAGMETISIÐJAN Garði hf. í
Grindavík hefúr keypt meiri-
hluta hlutabréfa i Hraðfrysti-
húsi Grindavikur, sem nú hefúr
verið nánast lokað i allt haust
vegna rekstrarerfiðleika.
Að sögn forráðamanna Lag-
metisiðrjunnar fá þeir nú gott hús-
næði fyrir ýmsar hliðarfram-
leiðslugreinar fyrirtækisins svo
sem sósugerðina og kavíarfram-
leiðsluna.
Þá eru uppi hugmyndir um að
auka við framleiðslugreinar eða
skapa framleiðendum með góðar
hugmyndir tækifæri um samvinnu
með húsnæðið.
Kr.Ben.
Unnið við sósugerð hjá Lagmetisiðjunni en sú framleiðsla fær
nú nýtt húsnæði og rýmra frá þvi sem var.
Flestir ASÍ-samningar losna
10. apríl - aðrir 15. febrúar.
SAMNINGAR flestra stéttarfélaga utan Alþýðusambands
íslands áttu að vera lausir nú um áramót eða fyrr, en bráða-
birgðalög ríkisstjórnarinnar binda hins vegar alla kjara-
samninga til 15. febrúar að minnsta kosti. Þá losna meðal
annars samningar allra starfsmanna ríkisins og Reykjavík-
urborgar, sjómanna og flestra yfirmanna á skipum, banka-
manna, og margra iðnaðarmanna.
Bæjarstarfsmenn annarsstaðar ir þá áttu Sjómannasamband ís-
0'
INNLENT
en í Reykjavík geta sagt upp launa-
liðum sinna samninga fyrir 15.
febrúar og þann 20. febrúar verða
verslunarmenn utan Reykjavíkur
með lausa samninga. Næsta stóra
lotan verður 30. apríl þegar Akur-
eyrarsamningamir svonefndu
'losna, svo og samningar Verslun-
armannafélags Reykjavíkur.
► Ef aðildarfélög Alþýðusam-
bands íslands eru fyrst tekin fyr-
Flskverð ó uppboðsmörkuðum 3. janúar.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hœsta Lœgsta Meðal- Magn Helldar-
verð verfi verfi (lestir) verfi (kr.)
Þorskur 49,00 38,00 48,35 0,697 33.702
Ýsa 87,00 87,00 87,00 0,038 3.306
Karfi 15,00 15,00 15,00 0,005 75
Steinbítur 54,00 51,00 51,22 0,236 12.114
Keila 18,00 18,00 18,00 0,083 1.494
Langa 40,00 40,00 40,00 0,023 920
Lúöa 315,00 215,00 280,76 0,174 48.853
Koli 80,00 80,00 80,00 0,240 19.200
Ýsa smá 76,00 40,00 68,15 0,447 30.498
Samtals 77,24 1,944 150.162
Seit var úr bátum. f dag veröur einnig seldur bátafiskur.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur ós- 42,00 37,00 39,76 28,375 1,128.307
lægður Ýsa óslægð 96,00 70,00 92,96 3,366 312.898
Samtals 45,40 31,741 1.441.205
Selt var úr netabátum. (dag veröur einnig selt úr netabátum.
lands og félög járniðnaðarmanna,
blikksmiða og kjötiðnaðarmanna
ósamið þegar bráðabirgðalögin í
maí í fyrra voru sett og eru eldri
samningar þeirra því bundnir til
15. febrúar. Samningar félaga inn-
an Alþýðusambands Vestfjarða
áttu að losna um áramótin — og
einnig samningar Sóknar — en
þeir eru einnig bundnir til 15. febr-
úar. Flest félög verslunarmanna
úti á landi em með sína samninga
bundna til 20. febrúar. Samningar
Sambands byggingamanna og raf-
virkja em bundnir til ágústloka á
þessu ári og svokallaðir virkjana-
samningar em bundnir til 30. sept-
ember. Flest félög innan vébanda
ASÍ — þar á meðal Verslunár-
mannafélag Reykjavíkur og þau
félög sem tóku þátt í svokölluðum
Akureyrarsamningum eru með
samninga gildandi til 10. apríl.
► Allir félagar Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja ættu
að geta verið með lausa samninga
þann 15. febrúar. Allir ríkisstarfs-
menn og starfsmenn Reykjavíkur-
borgar, Akraness og Siglufjarðar
áttu að vera með lausa samninga
um áramót. Hið sama gildir um
Kennarasamband íslands, sem
er utan BSRB. Bæjarstarfsmenn
17 félaga í svokölluðu „samfloti"
em með gildandi samninga til árs-
loka 1989, en launaliðir em upp-
segjanlegir með 15 daga fresti
fjóra daga á árinu. Fyrsta dagsetn-
ingin er 1. febrúar, sem þýðir að
þeir ættu að vera til í „slaginn"
þann 15. ef þeir kæra sig um.
► Tuttugu og þrjú aðildarfélög
Bandalags háskólamenntaðra
ríkisstarfsmanna áttu að vera
með lausa samninga um áramótin,
nema Hið íslenska kennarafélag,
sem átti ósamið þegar bráða-
birgðalögin vom sett. Þetta þýðir
að BHMR í heild er með lausa
samninga 15. febrúar.
► Samband íslenskra banka-
manna er með samninga lausa frá
áramótum, sem framlengjast til
15. febrúar vegna bráðabirgðalaga
ríkisstjómarinnar.
► Samningar félaga í Far-
manna- og fiskimannsambandi
íslands áttu að renna út um eða
fyrir áramót, með örfáum undan-
tekningum, svo sem skipstjómm,
sem hafa samninga til lengri tíma.
► Blaðamannafélag íslands
og Félag islenskra bókagerðar-
manna em með samninga bundna
til 31. mars.
Gerningahátíð í
Nýlistasaftiinu
HÓPURINN Inferno 5 gengst
fyrir sýningunni og gern-
ingahátíðinni Rykdjöflar í Ný-
listasafhinu og verður frum-
sýning 6. janúar. Önnur og
þriðja sýning verða 7. og 8. jan-
úar, en óvíst er um firamhald
sýninganna.
Meðlimir Infemo 5 era: Þorri
Jóhannsson, skáld o.fl., Ómar Stef-
ánsson, myndlistarmaður o.fl.,
Einar Melax, tónlistarmaður o.fl.,
Óskar Thorarensen, tónskáld o.fl.,
Eggert Ketilsson, dansari og Helgi
Skj. Friðjónsson, myndlistarmaður
og auglýsingateiknari. Þeir hafa
áður sett upp sýningar og haldið
tónleika í Nýlistasafninu, á Amar-
stapa á Snæfellsnesi, að Draghálsi
og á fleiri stöðum, gefíð út 6 kass-i
ettur með tónlist sinni og staðið
að útgáfu myndasöguritsins Band-
orms.
Sýningin Rykdjöflar er tileinkuð
Kurt Schwitter og segir í fréttatil-
kynningu að meginefni hennar sé
bókmenntir, ritmsl og orðahapp-
drætti, en msl og forgengileiki
komi mikið við sögu. Áður en sýn-'
ingin hefst koma gestir Infemo,
þeir Eggert Einarsson og Ámi Ing-
ólfsson fram með eigin geminga.