Morgunblaðið - 04.01.1989, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUÐAGUR 4. JANÚAR 1989
19
VIÐBROGÐ VIÐ GENGISFELLINGUNNI
Þorsteinn Pálsson, for-
maður Sjálfstæðisflokks:
Skattar ríkis-
sljórnarinnar
hafa hækkað
gengið
„ÞETTA er hvoru tveggja of lítíð
og of seint,“ sagði Þorsteinn Páls-
son, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, um gengisfelíingu ríkisstjórn-
arinnar. „Það jákvæða í þessu er
auðvitað að með þessu viðurkenn-
ir rikisstjórnin að hún hefur verið
á rangri braut. Þessar aðgerðir
eru þó í raun hreint kák og leysa
engan vanda.“ Þorsteinn sagði að
með skattahækkunum sinum hefði
ríkisstjómin i raun verið að
hækka gengið með þvi að hækka
kostnað.
„Hvoru tveggja er að skekkjan í
raungenginu er meiri en sem þess-
ari gengisfellingu nemur og að að-
gerð sem þessari hljóta að fylgja
hliðarráðstafanir af ýmsu tagi. Hið
alvarlega í þessu er að tíminn hefur
farið til spillis. Það er búið að eyða
nú á fjórða mánuð í ekki neitt annað
en að hækka skatta.
Ríkisstjómin er eini aðilinn í þjóð-
félaginu sem virt hefur verðstöðvun
að vettugi. Verðstöðvun var eðlileg
tímabundin aðgerð þegar hún var
sett á í lok ágúst í tíð fyrri ríkis-
stjómar, en hún er auðvitað mark-
laus þegar ríkisstjómin sjálf virðir
hana ekki. Þær gífurlegu beinu og
óbeinu skattahækkanir, ekki síst
þær sem velta strax út í verðlagið,
em til marks um þetta. I raun og
vem hefur ríkisstjómin þannig verið
að hækka gengið með því að hækka
kostnaðinn í þjóðfélaginu. Þessi ráð-
stöfun hefur ekki önnur áhrif en að
dollarinn er settur á sama stig og í
haust sem leið, en þá þegar var ljóst
að viðbótaraðgerða var þörf.“
Víglundur Þorsteinsson
formaður Félags
íslenskra iðnrekenda:
Smávægileg
deyfisprauta
„GENGISFELLINGIN er aðeins
smávægileg deyfisprauta, sem
skiptír engu raunverulegu máli
fyrir samkeppnisiðnaðinn, og það
verður einungis að líta á hana sem
uppbót vegna falls á dollar á
síðustu mánuðum," segir Víglund-
ur Þorsteinsson, formaður Félags
íslenskra iðnrekenda um áhrif
gengisfellingarinnar.
„Samkeppnisiðnaðurinn er meira
og minna allur rekinn með tapi, sem
jókst jafnt og þétt allan seinni hluta
síðastliðins árs, og það skiptir engu
máli I neinum gmndvallaratriðum
hvort menn em að tapa 10% eða
14%. Raunverulegar efnahagsráð-
stafanir hljóta að koma seinna í
þessum mánuði, og ég sé ekki annað
en að framundan bíði 10-12% geng-
isbreyting. Að henni lokinni fara
menn kannski að koma upp úr kaf-
inu,“ sagði Víglundur.
Júlíus Sólnes, formaður
Borgaraflokks:
Gengisfelling
hefur ekki
sömu áhrif og
áður
„VID erum þeirrar skoðunar að
raungengið hafi um langan tíma
verið allt of hátt og það yrði að
finna leið til að rétta af raungeng-
ið til að útflutningsframleiðslan
geti aítur farið í gang með eðlileg
ytri skilyrði f lagi. Það er hins
vegar eftir sem áður spurning
hvort hægt er að fella gengið með
þessum hætti án þess að gera
nokkrar hliðarráðstafanir," sagði
Júlíus Sólnes, formaður Borgara-
flokksins, aðspurður um gengis-
fellinguna.
„Það sem er kannski vert að at-
huga í þessu sambandi er að gengis-
felling er ekki lengur það hagstjóm-
artæki sem hún var fyrir nokkrum
ámm, áður en almenn verðtrygging
fjárskuldbindinga kom til sögunnar,
vegna þess hvað bæði ríkið sjálft og
fyrirtækin - og þá ekki síst útflutn-
ingsfyrirtækin - em með miklar er-
lendar skuldir. Nú er það miklu
flóknara og erfiðara mál að gera upp
hvað borgar sig í þessu.
Við viljum líta svo á að það sé
miklu eðlilegra að gera allt efna-
hagsdæmið upp með tilliti til þess
hvemig á að skapa útflutnings-
framleiðslunni sem hagstæðust ytri
skilyrði og líta þá á gengisfellingu
sem afgangsstærð. Hér finnst manni
kannski vera byijað á öfugum enda,
en hins vegar viðurkennum við þá
staðreynd að það verður ekki lengur
umflúið að leiðrétta raungengið. Það
er þó ennþá spuming hvort það verð-
ur endilega gert með þessum hætti.
Við höfum að vísu ekki enn séð for-
sendumar fyrir þessu og getum þess
vegna ekki alveg sagt um með hvaða
hætti þetta skuli gert,“ sagði Júlíus.
Friðrik Pálsson forstjóri SH:
Ekkert er eftir
nemaþjóðnýt-
ingþegar eigið
féerþorrið
„ÞAÐ er ekki aðeins deilt um
stærð vandans, heldur er stundum
erfitt að finna að það sé vilji tíl
að leysa hann. Þeir stjórnmála-
menn, sem nú eru hér i forsvari,
eru meiri kjarkmenn en ég hef
áður kynnzt í íslenzkum stjóm-
málum, að þora að horfa á fyrir-
tækjunum f útflutningsatvinnu-
vegunum blæða út. Hver vikan er
dýr,“ sagði Friðrik Pálsson, for-
stjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystí-
húsanna.
„Þegar eigið fé er þorrið, er ekk-
ert eftir nema þjóðnýting og fróðlegt
væri að fá að vita hverjir ráðher-
ranna vilja mæla því bót. Fólkið í
landinu og'þá ekki sízt í sjávarpláss-
unum, vill ekki horfa upp á það, að
atvinnuvegurinn verði lagður í rúst.
Það vill ekki þurfa að leita á ríkisjöt-
una. Þess vegna hlýt ég eins og
margir aðrir að vona, að hér sé á
ferðinni biðleikur, sviðsetning á ein-
hveiju, til að geta sagt að eitthvað
sé verið að gera, tíminn er hlaupinn
frá okkur,“ sagði Friðrik.
Málmfríður Sigurðardótt-
ir, Kvennalista:
Virðistekki
eigja að
bætakjara-
rýrnunina
„ÉG VEIT í raun ekki hverju 4%
gengisfelling á að skila útflutn-
ingsgreinunum öðru en að hækka
skuldiraar, þvi hún leiðréttir ekki
að gagni þeirra rekstrargrund-
völl. Þar að auki hlýtur hún að
stuðla að verðbólgu. Það sem okk-
ur þykir undarlegt er að það kem-
ur ekkert fram um hliðarráðstaf-
anir; hvernig eigi að bæta launa-
fólki þessa kjararýrnun og hvera-
ig þetta komi við heimilin," sagði
Málmfríður Sigurðardóttir, þing-
maður Kvennalista.
„Við höfum eins og allir viður-
kennt að gengið hefur verið rangt
skráð mjög lengi og þetta er náttúru-
lega ein af orsökunum fyrir vondri
stöðu útflutningsatvinnuveganna. Á
hinn bóginn er þetta orsökin fyrir
góðæri í innflutningsgreinum. Þetta
misræmi er náttúrulega óhjákvæmi-
legt að leiðrétta, en það sem nú
hefur verið gert er ósköp máttleysis-
legt.
Það sést í rauninni ekki að það
sé meiningin að bæta almennu
launafólki þá kjararýmun sem það
verður fyrir. Okkur fyndist betra ef
farið væri út í gengisfellingu að hún
væri það stór að hún skilaði útflutn-
ingsatvinnugreinunum sem leiðrétti
stöðu þeirra. Við hefðum viljað sjá
einhveijar frekari ráðstafanir, svo
sem að söluskattur yrði lækkaður á
móti. Spumingin hvort þetta er ekki
bara bytjunin, hvort það er ekki
meiningin að taka gengisfellingar í
áföngum og hvort það eigi að milda
skellinn með því að fara hægt í
þetta."
Sigurður Markússon fram-
kvæmdastjóri sjávaraf-
urðadeildar SÍS:
Brúar flórð-
imgiim af því
bili sem mynd-
astheftir
SIGURÐUR Markússon firam- J
kvæmdastjóri sjávarafurðadeild-
ar SÍS segir að brúttóálirif gengis-
fellingarinnar hafi i för með sér
hækkun sem ncraur um 4,70 kr. á
hvert kíló freðfisks. Nægi sú
hækkun til að brúa um fjórðung-
inn á þvi bili sem brúa þarf til að
vega upp á mótí þeirri hækkun,
sem orðið hefiir á framleiðslu-
kostnaði.
„Samkvæmt opinberum tölum
hækkaði meðalverð á útfluttum freð-
fiski um 8,21 kr. á hvert kíló á fyrst
átta mánuðum síðastliðins árs. Það
er mat okkar að á sama tíma hafi
framleiðslukostnaður hækkáð um
26,24 kr. á kíló, þannig að um er
að ræða bil upp á um 18 kr. á hvert
kíló sem þarf að brúa. Það má því
segja að brúttóáhrif gengisfellingar-
innar nægi til að brúa um það bil
fjórðunginn af því bili,“ segir Sigurð-
ur Markússon.
Kristján Ragnarsson
framkvæmdastjóri LÍÚ:
Áhrifin óljós
fyrir flotann í
heild
KRISTJÁN Ragnarsson fram-
kvæmdastjóri LÍU segir að áhrif
gengisfellingarinnar fyrir fiski-
skipaflotann í heild verði ekki ljós
fyrr en nýtt fiskverð liggi fyrir
upp úr miðjum febrúar.
„Gengisbreytingin eykur tekjur
þeirra skipa sem selja aflann erlend-
is, og einnig þeirra skipa sem full-
vinna aflann um borð. Hins vegar
verður hækkun á kostnaði varðandi
veiðarfæri, viðhald og olíu, og það
má ætla að þetta vegi upp hvað á
móti öðru hjá þessum aðilum, en
útkoman verði jákvæð við gengis-
breytinguna. Hún er aftur á móti
neikvæð að óbreyttu fískverði fyrir
þá aðila sem leggja upp aflann hér
heima. Fiskverð er laust 15. febrúar
næstkomandi og því er ekki hægt
að segja til um hver endanleg áhrif
gengisfellingarinnar verða fyrir flo-
tann í heild fyrr en að afstaðinni
fískverðsákvörðun þá.“
Hvernig væri aö byrja
nýtt ár meö heil sudvöl á
Hótel Örk
Aðeins kr. 11.100,-á mann í 3
dagaog kr. 14.600,- í 5 daga.
Innifalió:
Morgunverður, sund, sauna,
sjúkraþjálfun, nudd, leirböð,
Ijós, snyrtimeðferð.
Gisting í eins eða tveggja
manna herbergi á Hótel Örk
erein besta aðstaða á landinu
til hvíldar og hressingar.
Veriö avallt velkomiiv
a Hotel Örk hf.
Simi 98-34700
HVERAGERÐI
BoSfioIt Suðurver Hraunberg
m*MM5 #83730 # 79988
PÍD