Morgunblaðið - 15.01.1989, Blaðsíða 35
86! HAÚVIAI .81 aUDAQUfflWg MUTT3m I MJÚH qi<ajgy.U3H0M .......
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 1989
&8
35
Brúðhjónin Ása
Guðmundsdótt-
ir og Ari Ein-
arsson.
Ljósmyndastofan Nýmynd, Keflavík.
annað ykkar komi með eldiviðinn
á bálið, þið verðið bæði að bera
að,“ segir Ari og vitnar í ræðu
prestsins. „Ræðan snerti okkur,"
segir hann, enda líklega eins gott
að fólk hlusti á sjálfan hjúskapa-
reiðinn! „Söngurinn var alveg sér-
staklega fallegur, þó að afa hafi
fundist hann heldur nútímalegur,"
segir Ása brosandi.
Áhugamálin? Þau hjón fóru
stundum á skíði áður og þeim
fínnst mjög gaman að ferðast.
Ása segir að hann sé með algjöra
veiðidellu, enda fari hann oft að
veiða með félögunum. „Ég þarf
að koma mér upp veiðistöng og
sitja með stöngina á móti hon-
um,“ og Ari hreyfir engum mót-
bárum við þessum ummælum.
Þvert á móti. Þau leggja einmitt
áherslu á að hjón hafí sömu
áhugamál svo þau geti verið sam-
an í frístundum á tímum sem nú,
þegar vinnan krefst næstum alls
af fólki. „Jú, við ætlum að eiga
fleiri böm, okkur líst vel á töluna
þrjá“.
BRÚÐHJÓN VIKUNNAR
„Ræðan
snerti okkur“
Brúðhjónin þessa vikuna eru þau Ari Einarsson og Ása Guðmunds-
dóttir úr Njarðvíkum. Það var Þorvaldur Karl Helgason sem gaf
þau saman í Njarðvíkurkirkju 31. desember síðastliðinn.
au áttu sameiginlega kunn-
ingja, þannig byijaði það.
Hún var bara sautján ára og hann
20 þegar þau fóru að búa saman
heima hjá föður hans, en fljótlega
kom að því að þau keyptu sér
íbúð. Þau eiga eins árs dóttur,
Fríðu Kristínu. „Þegar bamið
okkar kom þá dreif maður í því
að trúlofa sig. Reynslutíminn er
búinn að vera sex ár svo við vitum
alveg að hveiju við göngum," seg-
ir Ari.
„Hjónabandið er punkturinn
yfír i-ið. Það býr svolítið í manni
að langa til þess að gifta sig. Og
brúðkaupsdagurinn var alveg
stórkostlegur, meiriháttar. Frá því
að við vöknuðum um morguninn
og þangað til við fóram að sofa.
Maður á þennan dag,“ segir Ása,
„og allir aðrir era svo meðvitaðir
um það,“ bætir hún við.
„Það er sérstök stemmning yfir
þessum degi, brúður er eins og
drottning. „Það er ekki nóg að
Þau giffcu sig
Ari Einarsson og Ása Guð-
mundsdóttir
Helgi Amarson og Ragna
Peta Hámundardóttir
Reynir Kristjánsson og
Ásdís Hlöðversdóttir
Gunnlaugur Hafsteinsson
og Theódóra Sif Ragnars-
dóttir
Baldur Örlygsson og Lau-
fey Vilmundardóttir
Kjartan Haraldsson og
Sigríður Elísabet Magnús-
dóttir
Jón Sigurðsson Möller og
Helga Hauksdóttir
Asbjöm Morthens og
Brynja Gunnarsdóttir
Magnús Jónsson og Elín
Norðdahl
Stefán Aðalsteinsson og
Þuríður Dam Þorláksdóttir
Stefán Amgrímsson og
Svava Kristbjörg Héðins-
dóttir
MYNDLIST
Var að hugsa um
eitthvað lokað
og viðkvæmt
Ingileif Thorlacius lauk prófi Crá Myndlista- og handíðaskóla íslands
árið 1986 og síðan lá leið hennar til Hollands þar sem hún var við nám
í tvö ár. Um þessar mundir er hún að opna í Ásmundarsal sina fyrstu
einkasýningu þar sem hún sýnir vatnslitaverk frá síðastliðnu ári. Þær
virðast allar hafa svipað viðfangsefni, eru málaðar frekar daufum
litum, utan ein, og engin þeirra er innrömmuð. Er þetta þemasýning?
Morgunblaðið/Ámi Sæbcrg
Ingileif opnar sína fyrstu einka-
sýningu, í Ásmundarsal.
Nei, en það er margt sameigin-
legt með myndunum og það
var gert alveg ómeðvitað. Það má
kalla þetta sjálfsmyndir. Mér fannst
ég þurfa einhveija manneskju í
myndimar og þá verður maður sjálf-
ur nærtækastur. Þetta eru helst
hendur og andlit og egg og vatn ..."
- Egg og vatn?
„Þessir hlutir endurspegla eitthert
ástand. Ég var að hugsa um eitt-
hvað lokað og viðkvæmt — en samt
svo sterkt. Ég verð allt í einu svo
hrifin af einhveiju sem inniheldur
kannski eitthvað en getur alveg eins
verið tómt. Áður en ég mála mynd-
ina er ég búin að ganga með ein-
hverja hugmynd mismunandi lengi
áður en ég veit hvaða form hentar.
Myndimar era lokastigið.“
— Myndir þínar haf a engin nöfn?
„Ég hef reynt að skíra þær en
ég gat það ekki. Ég er að benda á
eitthvað sem mér finnst á einhvem
hátt mikiivægt þó ég skilji ekki sjálf
af hveiju það er svona mikilvægt.
Nei, það er enginn sérstakur boð-
skapur í þeim, og engin ádeila. Mér
finnst það ekki skipta máli hvort það
er ádeila eða ekki ádeila í myndum
almennt. Hlutir þurfa að snerta fólk
á einhveiju öðra sviði líka, kannski
óskynsamlegu. Ég held að það skipti
ekki máli hvað maður gerir, hvort
það er fígúratívt eða abstrakt, það
þarf að tala til fólks á ómeðvituðu
sviði.“
Sparifjáreigendur
Bera spariskírteinin ykkar "skúffuvexti"?
Um þessar mundir eru nokkrir flokkar spari-
skírteina innleysanlegir. Gleymist að innleysa þau á
réttum tíma er hætt við að farið sé á mis við. hærri
raunvexti. Við ráðleggjum ykkur hvaða spari-
skírteini er rétt að innleysa og sjáum um endur-
fjárfestingu í nýjum spariskírteinum, bankabréfum
eða öðrum öruggum verðbréfum.
}
Eigendur og útgefendur
skuldabréfa:
Vegna mikillar eftirspumar óskum við eftir góðum
skuldabréfum í umboðssölu.
Verið velkomin á nýjan stað. Næg bflastæði.
. fjármál eru okkar fag!
UERÐBRÉFAUIÐSKIPTS
SUÐURLANDSBRAUT 18 • SÍMI 688568
he0 di
16
ÍGí5SS44!
stÓW
UTSALA
KBIBiBSI qq
Kringlunni 4.