Morgunblaðið - 19.01.1989, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.01.1989, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1989 Hörður Einarsson stj órnarformaður Amarflugs: Skattahækkunum mótmælt á fundi SUS: „Einbeitum okkur að hlutafiáraukningu“ HORÐUR Einarsson stjórnarformaður Amarflugs segir enn of snenunt að segja til um það hvort Amarflugi tekst að útvega tilskil- ið nýtt hlutafé, til þess að félaginu takist að bjarga rekstrinum. Það sé samt sem áður sá möguleiki sem stjórnendur félagsins einbeiti sér að þessa dagana. „Það er verið að vinna að'því að útvega nýtt hlutafé og hvort það tekst eða ekki á bara eftir að koma í ljós,“ sagði Hörður í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að ef það tækist ekki yrðu stjómendur félags- ins að athuga með aðrar leiðir, en þeir myndu ekki velta þeim fyrir sér fyrr en það lægi fyrir hvort h 1 utafj árau kni ngi n tækist. Aðspurður hvort stjómendur Amarflugs gætu hugsað sér að fé- lagið sameinaðist Flugleiðum eins og tillaga Steingríms Sigfússonar samgönguráðherra gerir ráð fyrir, takist þeim ekki að útvega tilskilið íjármagn, sagði Hörðun „Við ein- beitum okkur að einu verkefni í einu og skoðum þann möguleika ekki á meðan við vinnum að því að útvega nýtt fjármagn." Hörður sagði að það lægi ljóst fyrir að brýnt væri að niðurstaða fengist sem fyrst i þessu máli og kvaðst hann gera sér vonir um að það yrði fyrir næstu mánaðamót, þótt erfitt væri að nefna dagsetn- ingar í þessum efnum. Morgunblaðið/Þorkell „Við erum að heQa nýja sókn með annan valkost gegn ofsköttunarsteftiu ríkisstjórnarinnar — valkost ftjálslyndrar umbótasteftiu í íslensku þjóðfélagi," sagði Þorsteinn Pálsson á fundi SUS. Til vinstri situr Arni Sigfússon, formaður SUS, undir rauðu ljósi. Smygl á 1100 bjór- kössum óupplýst ENGINN hafði í gærkvöldi gengist við að eiga þá ellefú hundruð kassa af Heineken- bjór sem tollgæslan fann í inn- sigluðum gámi úr Laxfossi i Sundahöfti á þriðjudag. Þetta er mesta magn af bjór sem tollgæsla hér á landi heftir fimdið í einu skipi. Rannsókn- ardeild toUgæslunnar vinnur nú að málinu í samvinnu við RLR. Kristinn Ölafsson tollgæslu- stjóri taldi í gærkvöldi ótíma- bært að ræða hvort óskað yrði eftir kyrrsetningu einhvers úr áhöfti skipsins, en Laxfoss á að halda úr höfn í dag. Hann sagði að gámurinn hefði komið um borð í skipið f Antwerpen og að samkvæmt plöggum skipsins hefði hann átt að vera tómur. Tollgæslustjóri sagði aðspurður að gáminum hefði verið lokað með innsigli eins og öðrum gám- um í lestinni. Ibúðir aldraðra hækka um 250-375.000 kr. Skattar ekkjufólks hækka um 50% - einstæðra foreldra um PÉTUR Sigurðsson, formaður Sjómannadagsráðs, segir að vöru- stjómarinnar kom fram hjá ræðu- gjaldshækkanir stjórnvalda muni hækka um 5% verð verndaðra þjón- ustuíbúða aldraðra, á borð við þær sem sjómannadagsráðin i Reykjavík og Garðabæ eru að byggja við Naustahlein i Garðabæ. Þetta þýðir hækkun íbúðarverðsins um 250.000-375.000 krónur, að þvi er Pétur sagði á fundi Sambands ungra sjálfstæðismanna á Hótel Borg i gær. Pétur sagði að sparnaðurinn í því að auðvelda öldruðum að búa í eigin húsnæði næmi um 1,6 milljónum fyrir hvern einstakling sem ekki þyrfti að vista á stofiiun. Það skyti því skökku við að öldruðum væri gert erflðara fyrir að koma sér i tryggt eigið húsnæði. Fundur SUS bar yfírskriftina var haldinn fyrir fullu húsi. Mjög „Ríkisstjóm yfír á rauðu ljósi" og hörð gagnrýni á skattastefnu ríkis- Sverrir Hermannsson Landsbankastjóri; Efast um að vaxta- munur bankans nægi blaðinu í dag: „Vegið meðaltal vaxta- munar hjá Landsbanka íslands allt árið 1988 var 5,09% ... eftir síðustu ákvörðun meirihluta bankaráðs Landsbanka íslands í vaxtamálum frá 29. nóvember sl. reiknast mönn- um til að vaxtamunur bankans sé 3,39%. Af þessu getur alþjóð séð hversu heilar brýmar eru í málatil- búnaði Ó. Grímssonar sem kallar sig fjármálaráðherra." Sjá nánar f miðopnu. „VAXTAMUNUR Landsbankans er 3,39% og ég efast um að hann nægi til að hægt sé að reka bank- ann hallalausan. Ef þessi vaxta- munur yrði út árið yrði bankinn vafalaust rekinn með halla,“ sagði Sverrir Hermannsson, bankastjóri Landsbankans, f samtali við Morg- unblaðið. Sverrir Hermannsson segir meðal annars í grein sem birtist í Morgun- mönnum, sem voru auk Péturs þau Sólveig Pétursdóttir, Geir H. Haarde, Lýður Friðjónsson, Sigurð- ur B. Stefánsson, Þorsteinn Pálsson og Ámi Sigfússon. í gögnum, sem lögð voru fram á fundinum, vom reiknuð ýmis dæmi um skattahækkanir. í útreikning- um, sem endurskoðendur hafa gert á sköttum 68 ára ekkju, sem á 8 milljóna króna eign, kemur fram að fyrir lagasetningu stjómarinnar í desember greiddi hún 6L750 kr. af eigninni en nú 93.000 kr. og nemur hækkunin 50,6%. Einnig kom fram í máli Sólveigar Péturs- dóttur að einstæð móðir með tvö böm, fimm og átta ára, hefur hækk- að í sköttum. Að frádregnum skött- um námu endurgreiðslur til hennar í formi bamabóta og bamabóta- auka 104.961 kr. á síðasta ári, en verða nú aðeins 82.370 kr. eða 21,5% minni. I máli Lýðs Friðjónssonar kom fram að samkvæmt bráðabirgðanið- urstöðu athugunar, sem Vinnuveit- endasambandið og önnur samtök vinnumarkaðarins hefðu látið gera á skattahækkunum fyrirtækja, kæmi fram að þær væru meiri en menn hefði órað fyrir. Þannig Bankamálaráðherra og bankaeftirlit: Ekki samráð um vaxtaákvarðanir Hefur víðtæk áhrif á túlkun samráðshugtaksins, segir Vilhjálmur Egilsson Bankaeftirlit Seðlabankans segir að fundur þriggja ráðherra með bankaráðsmönnum stjórnarflokkanna geti ekki talizt samráð um vaxtaákvarðanir f skilningi 22. greinar laga um viðskiptabanka. Ekkert liggi fyrir um að ríkigviðskiptabankarrJr hafl eða muni ha£a samráð um ákvarðanir um vexti eða þjónustugjöld. „Verði það hins vegar gert er það sjálfstætt athugunarefiii hvernig staðið var að þeirri ákvarðanatöku,“ segir bankaeftirlitið. Jón Sigurðsson, viðskiptaráð- herra, sagði það skoðun sfna að fundurinn hefði alls ekki falið í sér samráð milli lánastofnana um vaxtaákvarðanir í skilningi banka- laganna, heldur hafí eingöngu verið um það að ræða að fulltrúar ríkis- stjómarinnar gerðu grein fyrir mati sínu á horfum í verðlagsmálum og vaxtaþróun í því samhengi. „Þetta er að sjálfsögu ekki sam- ráð um einstakar vaxtaákvarðanir. Vaxtaákvarðanir eru teknar af hverri bankastofnun um sig og það eru bankaráðin sem móta stefnuna í vaxtamáium. Það er alveg skýrt að slíkar ákvarðanir eru auðvitað teknar af hvetjum banka út frá hans sjónarmiðum og hagsmunum, en þær hljóta að byggja á mati á almennum atriðum í hagþróuninni. Þau vildi ríkisstjómin kynna sem gerzt fyrir þessum mönnum," sagði Jón Sigurðsson. Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Verzlunarráðs, sagði að það lægi fyrir að ráðherra hefði sagt í sjónvarpi að það hefði verið niðurstaða fundarins að menn væru sammála um að vaxtahækkana væri ekki þörf, og það gæti tvímælalaust ekki flokkazt undir annað en samráð. „Miðað við þessi viðbrögð ráðherrans og bankaeftir- litsins kemur það mér mest á óvart, 21% hækki skattar á meðalfyrirtæki í samkeppnisiðnaði um tæp 47%. Lítið fískvinnslufyrirtæki, sem ekki sé í útgerð, hækki um 33% en skatt- ar stórs útgerðar- ög fískvinnslufyr- irtækis hækki um rúm 83%. Dæmin í verzlun og þjónustugreinum séu enn hrikalegri vegna mikilla eignar- skatta. Fyrirtæki, sem rekið sé í jámum og greiði engan tekjuskatt, greiði engu að síður 63% hærri skatta vegna sérstaks skatts á verzlunar- og skrifstofuhúsnæði. að þeir skuli ekki bara halda því fram að fundurinn hafi snúizt um veðrið og skipulagningu laxveið- anna næsta sumar." Vilhjálmur sagði að VÍ hefði ekki í huga að fara út í málarekstur vegna þessa. Hins vegar væri ljóst að þessi túlkun bankaeftirlitsins hefði víðtækar afleiðingar fyrir túlkun á samráðshugtakinu í verð- lagslöggjöfinni. „Það gæti komið upp sú staða í dómsmálum, sem ijalla um brot á verðlagslöggjöf- inni, að veijendur muni mjög vitna í þetta álit viðskiptaráðherra og bankaeftirlits," sagði Vilhjálmur. Götuvita stolið GÖTUVITA á mótum Eiríks- götu og Barónsstígs var sto- lið aðfaranótt þriðjudags, á tímabilinu frá miðnætti til kl. 4. Þjófarnir eru ófundnir og ekki er vitað hvaða not þeir ætla sér að hafa af um- ferðarljósunum, eða hvort þeir hafa sóst eftir rauða, gula eða græna ljósinu. Dagbjartur Sigurbrandsson, hjá borgarverkfræðingi, sagði að slíkur þjófnaður hefði ekki verið framinn áður. „Það virðist sem sá eða þeir sem þetta gerðu hafi haft með sér skrúflykil og skrúfað hausinn lausan. Síðan hafa þeir klippt á rafmagnið og rölt í burtu með hausinn. Engar frekari skemmdir voru unnar á ljósunum á gatnamót- unum.“ Dagbjartur sagði að enginn virtist hafa séð til þjófanna. „Við spurðumst fyrir í nágrenn- inu og eftir því sem við kom- umst næst voru ljósin í gangi á miðnætti, en starfsmaður Blóðbankans, sem mætti til vinnu klukkan fjögur um nótt- ina, tók eftir að ljósin voru óvirk. Svona haus á götuvita kostar um 20-25 þúsund krónur og það er erfitt að sjá hvaða not þjófamir hafa af honum. Menn hafa að vísu sóst eftir hausunum á skemmtistaði og við höfum til dæmis selt einum matsölustað slíkan haus,“ sagði Dagbjartur Sigurbrandsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.