Morgunblaðið - 19.01.1989, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1989
Strætisvagnar Reykjavíkur:
Gengið til samninga við Brimborg
hf. um 20 Volvo strætisvagna
Brimborg- hf. átti lægstu tilboð-
in í strætisvagna fyrir SVR og
hefur verið ákveðið að ganga til
samninga við fyrirtækið um af-
hendingu 20 vagna til SVR á
næstu fimm árum. Vagnarnir
verða af gerðunum Volvo B10M
og Volvo B10R. Þeir fyrrnefiidu
eiga að kosta 6.989.000 krónur
og hinir síðarnefndu 7.540.000
krónur samkvæmt tilboðunum, að
sögn Sigfusar Jónssonar hjá Inn-
kaupastofnun Reykjavikur. Borg-
arráð samþykkti á fundi sínum í
fyrradag að gengið skuli til samn-
inga við Brimborg hf. um vagna-
kaupin.
12 aðilar skiluðu tilboðum til
SVR. Flestir buðu fleiri en einn val-
möguleika. Hörður Gíslason skrif-
stofustjóri SVR segir að tilboð Brim-
borgar hafi verið ótvírætt hagstæð-
ast, verð þeirra er lægst, ef frá er
talið verð sem júgóslavneskur aðili
bauð. Júgóslavnesku vagnarnir
þóttu hins vegar óhentugir, enda
gömul hönnun, segir Hörður. Meðal
annarra sem buðu voru ísam hf. sem
bauð Scania-vagna, Ræsir hf. bauð
Benz-vagna, Bílaborg hf. bauð
DAF-vagna og Hekla hf. bauð Ley-
land-vagna. Að auki bárust tilboð
íslenzkir
útgerðar-
menn eru
áhugalitlir
- segir sjávarút-
vegsráðherra um
öflun veiðiheimilda
„ÍSLENDINGAR hafa lengst af
haft lítinn áhuga á öflun veiði-
heimilda innan lögsögu annarra
ríkja. Því hefur ekki verið unnið
að neinu marki að slikum málum.
Það þýðir ekkert hefja viðræður
um veiðiheimildir, liggi ekki ftill
alvara þar að baki,“ sagði Halldór
Asgrímsson, sjávarútvegsráð-
herra.
Eigendur frystitogara hafa lýst
yfir áhuga sínum á því að auka af-
komumöguleika skipa sinna með því
að veiðiheimilda verði aflað meðal
annarra þjóða, til dæmis Grænlend-
inga. Halldór sagði að á sínum tíma
hefði mikil vinna verið lögð í öflun
veiðiheimilda innan bandarískrar
fiskveiðilögsögu. Þær heimildir
hefðu fengizt en jafnframt hefði
komið í ljós að áhugi íslenzkra út-
gerðarmanna hefði ekki verið raun-
verulegur og heimildirnar hefðu ekki
verið nýttar.
frá framleiðendum yfirbygginga sem
buðu val um undirvagna af mismun-
andi gerðum.
Volvo- vagnamir sem fyrirhugað
er að kaupa eru að öllu leyti smíðað-
ir af Volvo AB í Svíþjóð. Hörður
Gíslason segir að báðar gerðimar,
B10M og B10R, séu notaðar víðs
vegar um Norðurlöndin og hafi
reynst vel. Hann var spurður hvort
það hafi haft einhver áhrif á val SVR
að Volvo-vagnar em stór hluti
vagnaflotans nú þegar. Hann sagði
að ekki hefði á það reynt, þar sem
verð Volvo-vagnanna hafí verið af-
gerandi lægst. „En það má segja
að það sé almennt viðurkennt af
rekstraraðilum bílaflota, til dæmis á
Norðurlöndunum, að betra sé að
hafa færri tegundir en fleiri," sagði
Hörður.
BlOM-vagnamir em með mótor-
inn á milli öxla, en B10R hafa mótor-
inn aftast í vagninum. Hörður sagði
að hinir'fyrmefndu taki nokkm fleiri
farþega og henti því betur á ijölförn-
um leiðum, hins vegar séu deildar
skoðanir manna um ágæti hvors
Volvo strætisvagn eins og Brimborg hf býður SVR. Þó er sá munur
að öftustu dyrnar á SVR vögnunum verða að öllum líkindum tvöfald-
ar. Svona vagn kostar tæpar sjö milljónir króna tilbúinn til aksturs
á götum Reykjavíkur.
Forsetinn
verður við
útför Jap-
anskeisara
VIGDÍS Finnbogadóttir, forseti
íslands, verður viðstödd útför
Hirohitos Japanskeisara í Tókíó
24. febrúar nk.
í för með forsetanum verður
Kornelíus Sigmundsson forsetarit-
ari. Benedikt Gröndal sendiherra f
Japan fer einnig utan vegna þessa.
Komelíus Sigmundsson sagði í
samtali við Morgunblaðið að ekki
væri ráðgert að forsetinn hitti jap-
anska ráðamenn að máli í förinni
enda lægju slíkar athafnir niðri
meðan þjóðin syrgði keisarann.
fyrirkomulags fyrir sig. „Það em
ósannaðar en svolítið skiptar skoð-
anir um hæfni þeirra, til dæmis í
hálku og snjó,“ sagði hann. í viðræð-
Pjf % § «
unum við Brimborg er ætlunin að
kanna möguleika á því að báðar
gerðirnar verði með þrennum dymm,
fremst, aftast og í miðju vagnanna.
Op Utvegsbanki Islands hf
Ábótin færir þér
varanleg verömæti!
ARALÖNG REYNSLA
Við hjá Útvegsbankanum höfum ætíð verið stolt af
ÁBÓTINNI sem hefur margsannað gildi sitt sem hag-
stæð sparnaðarleið fyrir sparifjáreigendur á liðnum
árum. Um áramótin var enn aukið á kosti reikningsins
með nokkrum nýjungum.
STIGHÆKKANDI VEXTIR
Við bjóðum nú hærri vexti til þeirra sem ekki taka út af
reikningum sínum. Vaxtastigin eru fjögur og miðast við
að ekki sé tekið út í 6, 12, 18 eða 24 mánuði. Vextir
umfram verðtryggingu á vaxtastigunum eru nú
3.5-5.0%.
ALLTAF LAUS
Á ÁBÓTINNI er spariféð alltaf laust þegar grípa þarf til
þess. Eins og áður reiknast ekkert gjald af úttektum og
reikningurinn ber sparisjóðsvexti þá mánuði sem tekið
er út.
BETRI YFIRSÝN YFIR SPARNAÐINN
Til að auðvelda eftirlit með sparnaðinum fá ÁBÓTAR-
reikningseigendur nú send yfirlit fjórum sinnum á ári.
SPARIÁBÓT VERÐLAUNAR ÞÁ SEM SPARA
Nú gefst þér líka kostur á að gera sparnaðarsamkomu-
lag við Útvegsbankann með því að stofna SPARIÁBÓT.
Þú sparar minnst 5000 krónur mánaðarlega og við
millifærum af tékkareikningi þínum, sendum þér gíró-
seðil eða þú greiðir á annan hátt sem þér finnst þægi-
legri. Þegar þú stofnar SPARIÁBÓT færðu strax vexti
samkvæmt 3. vaxtastigi sem nú eru 4.5% umfram
verðtryggingu og getur tekið út af reikningnum einu
sinni á hverju 6 mánaða tímabili án þess að rýra Vaxta-
tekjur þínar.
HAFÐU SAMBAND VIÐ ÚTVEGSBANKANN OG
FÁÐU UPPLÝSINGAR UM MÖGULEIKA
ÁBÓTARREIKNINGSINS.
ósarfslA