Morgunblaðið - 19.01.1989, Blaðsíða 54
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR «MMTUDAGÍ3l 19. JANÚAR 1989
ínémR
FOLK
KÖRFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN__
Cleveland vinnur enn
Frá
JóniH.
Garöarssyni
ÍV-Þýskaiandi
■ UWE Fuchs, markahæsti leik-
maður 2. deildarinnar í V-Þýska-
landi, hefur fengið mörg góð tilboð
síðustu vikur. ítalska liðið Flórens
hefur gert honum
tilboð og einnig
þýsku liðin Bayern
Miinchen, Frank-
furt og Kaisers-
lautem. Þó telja margir líklegt að
hann taki tilboði frá 2. deildarliði
Freiburg. Þjálfari liðsins heitir
Fritz Fuchs og er faðir Uwe.
■ NORBERT Nachtwei mun
að öllum líkindum skrifa undir
samning við Frankfurt. Nachtwei
hefur leikið með Bayem Miinchen
en félagið vill losna við hann. Þá
er líklegt að einn sterkasti leikmað-
ur Dortmund, Frank Mill fari til
Kölnar. Hann hefur samið við
Köln en liðin eiga eftir að semja
um verðið.
■ GUIDO Buchwald, leikmaður
Stuttgart, segist ekki ætla að leika
með öðru félagi í úrvalsdeildinni.
Hann hefur fengið tilboð frá flest-
um liðum Þýskalands en segir að
hann hafí aðeins áhuga á tilboðum
frá Ítalíu og Spáni.
■ MICAHEL Harforth, einn
besti leikmaður Karlsruhe, segist
vera búinn að fá nóg af hálf tómu
launaumslagi. Hann barði í borðið
og sagðist fara eitthvað annað éf
hann fengi ekki viðunandi laun.
Samningur hans rennur út í vor og
hann er þegar farinn að svipast um
eftir nýjum vinnuveitendum.
■ VESTUR—ÞJÓÐ VERJAR
kusu nýlega „fyrirmyndar knatt-
spymumann ársins 1988.“ Það var
Thomas HSssler, frá Köln, sem
hlaut felst atkvæði en Jiirgen
Klinsmann, frá Stuttgart, varð
annar.
Cavs kemur á óvart í hverj-
um leiknumaföðrum
KÖRFUBOLTASÉRFRÆÐINGAR hafa beðið
þess um nokkurt skeið að hið unga og
skemmtilega lið Cleveland gæfi eftir á toppn-
um i NBA-deildinni. Leikmenn liðsins eru
ekkert á því og á mánudaginn vann liðið
góðan sigur í Phoenix, 126:110. Það var bak-
vörðurinn Mark Price (29 stig) og Brad Daug-
herty (28 stig) sem lögðu grunninn að sigri
Cavs sem hefur unnið 27 leiki en tapað ein-
ungis sjö. Ljóst er að sterkustu lið Austur-
deildarinnar munu ekki eiga sigur vísan gegn
þessu liði í úrslitakeppninni f vor.
Detroit vann Boston nokkuð
örugglega 96:87 á mánudag.
Joe Dumars er handarbrotinn hjá
Detroit og verður frá keppni í
NBA-deildin
Sunnudagur:
Philadelphia—Charlotte ...116:109
Miami Heat—Indiana ...118:117
Chicago Bulls—Boston ...110:104
.120:112
Dallas Maverics—Portland... ...111:108
L.A. Lakers—L.A. Clippers.. 116:95
Mánudagur:
New York—San Antonio ...116:106
Charlotte—Philadelphia ...127:122
Altanta—Washington ...117:106
Cleveland—Phoenix Suns ..126:110
Denver—Sacramento ...116:110
LA Lakers—Houston ...124:113
Detroit Pistons—Boston 96:87
Golden State—Seattle ...146:117
Þriðjudagur:
New Jersey—San Antonio.... ...117:112
Atlanta—Milwaukee 111:98
Chicago Bulls—Indiana 103:96
Seattle—LA Clippers ...130:107
Utah Jazz—Portland ...111:110
Sacramento—Houston ...123:109
ÁRSHÁTÍÐIR
Þorrablót!
%>
uny
Sérmerkjum glös
með skemmtilegum
teíkníngum eða eftir
ykkar tíílögum!
Höfðabakki 9
Reykjavík s. 685411
Gunnar
Valgeirsson
skrifar
nokkrar vikur. Það
kom þó ekki að sök
gegn Boston sem
saknar Larry Bird
mjög þessa dagana.
Liðið hefur nú unnið 16 leiki en
tapað 19 og með þessu framhaldi
getur svo farið að liðið komist ekki
í úrslitakeppnina.
Los Angeles vann Houston á
mánudag og er Lakers að komast
á skrið aftur. Þrenningin Worthy,
Scott og „Magic" Johnson eru nú
allir að komast í stuð aftur og hef-
ur Johnson leikið svo vel að talið
er að hann eigi góða möguleik á
að endurheimta titilinn „leikmaður
ársins" að nýju. Hann skoraði 17
stig, tók 13 fráköst og átti 18 stoð-
sendingar gegn Houston, en James
Worthy var stigahæstur hjá Lakers
með 26 stig.
San Antonio tapar enn leikjum
og hefur nú einungis unnið 10 af
fyrstu 36 leikjunum í vetur. Atlanta
sigraði Milwaukee á þriðjudag, en
Milwaukee hafði unnið átta leiki í
röð. Þar skoraði Dominique nokkur
Wilkins 28 stig fyrir sigurliðið. Loks
vann Charlotte athyglisverðan sigur
í Ffladelfíúborg á þriðjudag í fram-
Iengdum leik, 127:122.
SKAUTAR
Brad Daugherty Iék mjög vel fyrir Cleveland.
Byltingí
gerð skauta
Norðmenn hafa hannað skauta framtíðarinnar
orðmennimir Finn Halvorsen
(40 ára) og Jan Bratland (30
ára) hafa undanfarin fjögur ár unn-
ið að hönnun nýrrar tegundar
skauta. Skautar hafa eins g festum
er kunnugt ekki breyst mikið í
gegnum árin, þrátt fyrir mikla þró-
un í hönnun skíða.
Mikil leynd hefur hvílt yfír þessu
starfí Halvorsens og Brentlands, en
þeir hafa nú þegar tryggt sér einka-
leyfí í Evrópu, Japan og Banda-
ríkjunum. Þeir segjast ætla að
reyna að koma nýju skautunum á
markað fyrir næsta vetur. „Ég er
fullviss um að nýju skautamir eiga
eftir að valda byltingu í skauta-
íþróttinni," sagði Halvorsen.
Nýju skautamir em 30 til 50%
léttari en þeir gömlu og fullyrt er
að skautahlaupari geti bætt sig um
0,5 sek á hveija 500 metra, eða tíu
sekúndur í 10.000 metra hlaupi,
með því að nota nýju skautana.
Finn Halvorsen hefur sjálfur ver-
ið að prófa nýju skautana. Hann
er fyrrum skautahlauparí og þekkir
því vel til þar. Þegar hafa fyrir-
spumir borist frá framleiðendum í
Japan og Bandarílgunum. Markað-
urinn er mjög stór, sérstaklega á
skautum fyrir ísknattleik. Talið er
að hægt sé að selja þijár til fjórar
milljónir skauta fyrir ísknattleiks-
menn í heiminum á ári hveiju.
Nýju skautarnlr eru
30 tll 50% lóttarl en
þelr gömlu og fullyrt
er aö skautahlauparl
getl bætt slg um 0,5
sek á hverja 500
metra.
Frá
JóniH.
Garðarssyni
iV-Þýskalandi
mm
FÓLK
■ LESENDUR v-þýska tfma-
ritsins Kicker hafa valið leikmenn
ársins. Ekki hefur verið tilkynnt um
allar stöður en búið er að segja
hver er besti mark-
vörðurinn og hver
besti bakvörðurinn
að mati lesenda.
Raimond Aumann
frá Bayern Mlinchen var valinn
besti markvörðurinn. Næstur kom
Bodo Illgner frá Köln og í 3.
sæti varð Andreas Köpke frá
Niirnberg. Besti bakvörðurinn er
Jiirgen Kohler frá Köln. Næstir
koma Rune Bratseth frá Bremen
og Michael Schulz frá Kaisers-
lautem.
■ PAUL Steiner veltir því nú
fyrir sér hvort hann eigi að skrifa
undir nýjan þriggja ára samning
við Köln eða taka tilboði frá öðru
liði. Köln hefur lagt mikla áherslu
á að halda honum hjá félaginu en
þarf að bjóða vel því Steiner hefur
fengið mörg góð tilboð.
■ THOMAS HSssler var valinn
íþróttamaður ársins 1988 í Köln.
Þjálfari ársins var Hannes Löhr,
þjálfari v-þýska ólympfulandsliðs-
ins.
■ LEVERKUSEN sigraði Ajax,
2:1 í úrslitaleik á sterku móti á
Kanaríeyjum. Dieter Eckstein
gerði bæði mörk Leverkusen.
Hann var markakóngur mótsins og
einnig valinn besti leikmaðurinn.
■ JURGEN Mohr, V-Þjóðveij-
inn sem leikur með Sigurði Grét-
arssyni í Luzem, vill nú fara frá
félaginu. Hann er óhress með laun-
in og segist geta grætt meira með
því að leika í V-Þýskalandi.