Morgunblaðið - 19.01.1989, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 19.01.1989, Blaðsíða 56
Fróöleikur og skemmtun fyrirháa semlága! FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1989 VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR. Umfangsmikið fíkniefhamál: Einn handtekinn í Reykjavík — íjórir í Kaupmannahöfti SAMSTARF fíkniefhadeilda lögreglu í Reykjavík og Kaupmanna- höfo hefor leitt til handtöku fimm manna, Qögurra karla og konu, sem grunuð eru um fíkniefoamisferli. Konan og þrír karlanna eru íslensk og á aldrinum 26-33 ára. Fimmti maðurinn er Hollendingur á líku reki. Morgunblaðið/Sverrir Komið með skipverjann á Ágústi Guðmundssyni GK á Borgarspítalann klukkan 21 í gærkvöldi. Skipveiji á Ágústi Guðmundssyni GK iyrir borð: Þetta var spuming um sekúndur SKIPVERJI á Ágústi Guð- mundssyni GK féll útbyrðis síðdegis í gær er báturinn var á veiðum um 18 sjómílur frá Garðskaga. Manninum var bjargað í gúmmíbát frá Staf- nesi KE en hann var þá búinn að vera í sjónum í 5—10 mínút- ur. Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti hann síðan á Borgarspít- alann. „Þetta var spuming um sek- úndur," sagði Oddur Sæmundsson skipstjóri á Stafnesi. Hann sagði að félagar mannsins hefðu ekki náð honum um borð með Markús- ameti. Hann hefði lamist utan í síðuna og verið orðinn mjög kald- ur og marinn, auk þess sem blóð hefði gengið upp úr honum. Mað- urinn er ekki talinn í lífshættu. Þrítugur Reykvíkingur var hand- tekinn hérlendis á þriðjudag en hin fjögur voru handtekin í Kaup- mannahöfn og þar voru þau í gær úrskurðuð í 27 daga gæsluvarðhald. Fólkið er grunað um stórfellt hasss- mygl milli Hollands, Danmerkur og íslands. Amar Jensson lögreglufulltrúi vildi engar upplýsingar gefa um málið í gær en staðfesti að menn hans hefðu haft samvinnu við lög- reglu í Kaupmannahöfn um málið og að maðurinn, sem handtekinn var í Reykjavík, hefði áður vérið viðriðinn fíkniefnamál. Sakadómur í ávana- og fíkniefnamálum tekur afstöðu til gæsluvarðhaldskröfunn- ar í dag. Talsmaður Kaupmannahafnar- lögreglunnar sagði í gær að lög- regla hefði fylgst með ferðum Is- lendinganna þriggja og Hollend- ingsins í talsverðan tíma áður en til handtöku kom. Meðal annars hefðu símar fólksins verið hleraðir. Talsmaðurinn sagði aðspurður að fólkið hefði smygiað „umtalsverðu magni“ af hassi milli Danmerkur og Hollands en færðist undan að nefna tölur í því sambandi. Flugleiðir kaupa þriðju Boeing1737-400-þotuna Kaupverð fímm nýrra þotna um 10 milljarðar króna STJÓRN Flugleiða hefor ákveðið að festa kaup á þriðju þotunni af gerðinni Boeing 737-400 og verður hún afhent i marz 1990. Félagið fter tvær þotur af þessu tagi afhentar í vor. Kaupverð hverrar vélar er rúmar 30 millj- ónir Bandaríkjadollara, eða um 1,5 milljarðar íslenzkra króna. í fyrrahaust sömdu Flugleiðir um smíði á tveimur Boeing 757 þot- um að verðmæti um 100 milljón- um dollara, eða nær fímm mill- jörðum króna. Hefor félagið því á hálfo öðru ári samið um smiði fímm nýrra þotna að verðmæti hér um bil 10 milljarðar króna. 400-þotum 3. júní 1987, á 50 ára afmæli samfellds atvinnuflugs á íslandi, og verða þær afhentar í vor. Við það tækifæri tryggði félag- ið sér jafnframt forkaupsrétt að þriðju þotunni, sem nú hefur verið ákveðið að kaupa. Verður hún kom- in í notkun áður en sumaráætlun Flugleiða 1990 hefst. Að sögn Ein- ars Sigurðssonar er afhending- artími Boeing 737-400-þotunnar nú orðin allt að sex ár og hefði það m.a ráðið því að Flugleiðir ákváðu að nýta kaupréttinn. Einnig hefðu hávaðareglur á evrópskum flugvöll- um knúið á um kaupin þar sem Boeing 727-þotur félagsins myndu ekki uppfylla þær reglur. Flugleið- ir fljúga með páfa ÍTALSKA flugfélagið Alitalia hefor í samráði við páfagarð óskað eftir því við Flugleiðir að félagið Qjúgi með Jóhann- es Pál páfa annan til landsins er hann kemur í íslands- heimsókn sína í byijun júní. „Það er okkur sönn ánægja að verða við þessari ósk,“ sagði Einar Sigurðsson, blaða- fulltrúi Flugleiða, í gær. Að hans sögn ferðast páfi jafnan með flug- vélum ítalska flug- félagsins Alitalia, en nú hefði Flugleiðum borizt sú ósk að sækja páfa til Tromsö í Norður- Noregi og fljúga með hann til íslands. Hingað kæmi síðan þota frá Alitalia og flygi með hann til Finnlands að lokinni íslands- heimsókninni. Að sögn Einars Sigurðssonar koma fjórir nánustu samstarfs- menn páfa með vélinni, 30 kirkj- unnar menn til viðbótar og milli 40 og 50 blaðamenn. Verður þota Flugleiða stúkuð sérstak- lega niður vegna þessarar ferð- ar. Vaxtaákvarðanir á morgun: Leggja Landsbankasljórar tíl 4% hækkun innlánsvaxta? Á FUNDI bankaráðs Landsbankans á morgun má búast við að tillaga frá hankastjórum Landsbankans rnn allnokkra hækkun innlánsvaxta og eitthvað minni hækkun útlánsvaxta komi fram og verði afgreidd af bankaráðinu. Heimildarmenn Morgunblaðsins telja að bankastjórarn- ir muni gera tillögu um að innlánsvextir hækki um allt að 4%, til þess að ríkisbankarnir bjóði ekki mun lakari ávöxtun á sparífé landsmanna en einkabankarnir, og er jafoframt talið að tillaga verði gerð um eitt- hvað minni hækkun útlánsvaxta. Einkabankarnir, Iðnaðarbankinn og Verslunarbankinn, munu jafhframt fyrirhuga einhveijar vaxtahækkan- ir, en ekki er líklegt að þær verði miklar. ar. Líklegra er þó talið að bankaráð ríkisbankanna muni samþykkja ein- Að sögn Einars Sigurðssonar, blaðafulltrúa Flugleiða, fól stjóm félagsins Sigurði Helgasyni, for- stjóra, að ganga frá kaupum á þriðju Boeing 737-þotunni. Vænt- anlega yrðu samningar um kaupin undirritaðir í febrúarbyrjun. „Það hefur ekki verið gengið frá þ?I hvemig kaupin verða fjármögn- uð og þá hvort hún verður keypt á kaupleigusamningi," sagði Einar. Að hans sögn er verið að kanna hvaða leið yrði hagkvæmust fyrir félagið en erlendar lánastofnanir hafa boðið fram fjármagn. Flugleiðir undirrituðu samninga um kaup á tveimur Boeing 737- Ekki liggur fyrir hver niðurstaða bankaráðsins verður, þegar fjallað verður um tillögu bankastjóranna, en komið hefur fram í fréttum að sumir bankaráðsmenn telji enga þörf á vaxtahækkun og lýstu þeir þeirri skoðun sinni eftir samráðsfund með þremur ráðherrum ríkisstjómarinn- hveija vaxtahækkun, þó að hún kunni að verða minni en tillögur bankastjóra gera ráð fyrir. Er þá rætt um að 2-3% vaxtahækkun verði samþykkt, þar sem ella yrði sam- keppnisstaða ríkisbankanna gegn einkabönkunum mun lakari en nú og telja stjómendur bankanna að óbreyttir vextir gætu haft það í för með sér að sparifjáreigendur myndu í ríkum mæli flytja sparifé sitt í aðra banka, svo sem Utvegsbanka, Iðnað- arbanka eða Verzlunarbanka, sem í dag bjóða hærri innlánsvexti en ríkis- bankamir. Þá er talið að bankastjóramir muni gera tillögu um að útlánsvextir verði einnig hækkaðir, en örlítið minna en innlánsvextimir, og þá jafnvel í áföngum, þannig að lítils- háttar hækkun gengi í gildi nú á mánudag um Ieið og innlánsvextir hækkuðu, en síðan hækkuðu útláns- vextir um annað prósentustig, eða liðlega það um næstu mánaðamót. Samtals yrði tillagan um hækkun útlánsvaxta liðlega 3%. Til stóð að fundur yrði haldinn í dag I bankaráði Landsbankans en fundinum var frestað vegna veikinda eins bankaráðsmanns. Stefna einkabankanna mun vera sú að hækka vexti í áföngum. Litið er til þess að það gangi einungis í skamman tíma að hafa mikinn vaxta- mun á verðtryggðum og óverð- tryggðum lánum. Auk þess er horft til þess að ríkissjóður býður spariskír- teini sín með 6,7% raunvöxtum. Sjá nánar Bl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.