Morgunblaðið - 19.01.1989, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 19.01.1989, Blaðsíða 31
31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1989 Bókamarkaðurinn verður í Þingholtsstræti 2. Bókamarkaður í Þingholtsstræti SAMEIGINLEGUR bókamark- aður ýmissa bókaforlaga, hefst í dag Smmtudag, að Þingholts- stræti 2, á horni Bankastrætis. Markaðurinn stendur til 28. janúar. ”F]öldi forvitnilegra og eigu- legra bóka hafa verið dregnar fram í dagsljósið og eru nú boðn- ar á vægu verði. Seldar verða bæði nýlegar og gamlar bækur, svo sem skáldsögur, ævisögur, bamabækur, ástarsögur, vísinda og sagnfræðirit, svo eitthvað sé nefnt“, segir í fréttatilkynning- unni. Hj ónanámskeið í Mosfellsbæ NÁMSKEIÐ fyrir hjón á öllum aldri verður haldið í Safiiaðar- heimili Lágafellssóknar í Mos- fellsbæ laugardaginn 21. janúar kl. 13-19. Nokkur undanfarin misseri hafa Sr. Þorvaldur Karl Helgason, Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson og Sr. Birg- ir Ásgeirsson staðið fyrir svonefnd- um hjónanámskeiðum. Hafa þau ýmist verið haldin í Skálholti eða Laugarneskirkju. Um er að ræða samverustundir með hjónum á öll- um aldri, sem vilja fá tækifæri til þess að ræða hjónaband og sam- búð, fræðast um eðli og tilgang hjúskapar og skoða ýmis dagleg viðfangsefni, bæði gleðileg og sorg- leg, sem fyrir kunna að koma í svo nánu samfélagi karls og konu, sem hjónaband er. Námskeiðið er ætlað fólki, sem hyggst ganga í hjóna- band, er í sambúð eða hefur verið gift í lengri eða skemmri tíma. Með námskeiðinu er stefnt að því að auðga samskiptin í milli hinna tveggja einstaklinga, styrkja sam- bandið milli þeirra og efla sjálfsvit- und og stöðu gangvart makanum, að því er segir í fréttatilkynningu sem Morgunblaðinu hefur borist. Næsta námskeið verður sem fyrr segir í Safnaðarheimili Lágafells- sóknar í Mosfellsbæ á laugardag. Það hefst kl. 13 og stendur til kl. 19. Upplýsingar og skráningu ann- ast Sr. Birgir Ásgeirsson milli kl. 10-12 fimmtudag og föstudag. Annars má snúa sér til einhvers hinna þriggja leiðbeinenda. Fiskverð ð uppboðsmörkuðum 18. janúar. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hœsta Lœgsta Mefial- Magn Heildar- verð verfi verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 63,00 63,00 63,00 3,766 237.258 Þorskur(óst) 52,00 39,00 49,32 5,011 247.136 Ýsa 132,00 101,00 120,33 1,781 214.313 Ýsa(ósl.) 100,00 44,00 88,69 0,653 57.912 Ufsi(óst) 15,00 15,00 15,00 0,009 135 Steinbítur 15,00 16,00 15,00 0,006 90 Lúða 270,00 185,00 249,81 0,168 41.968 Keila 18,50 18,50 18,50 0,610 11.294 Keila(óst) 18,50 18,50 18,50 0,137 2.544 Þorsklifur 27,00 20,00 23,50 0,114 2.691 Hrogn 210,00 210,00 210,00 0,084 17.640 Samtals 67,50 12,340 832.981 Selt var úr ýmsum bátum. [ dag verður meðal annars selt óá- kveðið magn úr Stakkavík ÁR, frá Hafbjörgu í Ólafsvík og Tanga á Grundarfirði og 15 tonn af þorski úr Júlíusi Geirmundssyni (S. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 61,00 68,00 60,63 14,303 867.249 Þorsk.(ósl.dbt) 44,00 44,00 44,00 0,280 12.320 Þorsk.(sl.dbt) 41,00 40,00 40,40 2.755' 111.302 Þorsk.(ósl.l.bt) 55,00 48,00 51,65 10,600 547.465 Ýsa 98,00 90,00 94,23 0,946 89.180 Ýsa(óst) 85,00 72,00 80,95 0,213 17.242 Ýsa(umálóst) 12,00 12,00 12,00 0,013 156 Hrogn 244,00 244,00 244,00 0,059 14.396 Samtals 56,89 29,169 1.659.309 Selt var úr Krossnesi SH, Ólafi Bjarnasyni SH og netabátum. í dag verða meöal annars seld 15 tonn af þorski úr Krossnesi SH og Farsæli SH. Selt verður óákveðið magn af óslægðum þorski úr netabátum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 60,50 50,00 57,13 11,500 657.000 Ýsa 112,50 60,00 88,47 2,731 241.613 Ufsi 23,50 23,50 23,50 2,700 63.450 Karfi 35,00 17,00 34,62 2,947 102.026 Steinbítur 24,00 24,00 24,00 0,025 600 Hlýri 20,00 20,00 20,00 0,012 240 Langa 15,00 15,00 15,00 0,068 1.020 Blálanga 31,00 31,00 31,00 0,031 961 Keila 22,00 22,00 22,00 1,122 24.684 Skarkoli 64,00 64,00 64,00 0,250 16.000 Lúða 309,00 205,00 239,67 0,075 17.975 Samtals 52,45 21,461 1.125.569 Selt var úr Sighvati GK, Þorsteini Gíslasyni GK, Sigrúnu GK, Reyni GK, frá Fiskverkun Jóhanns Guöbrandssonar í Sand- geröi, Valdimari hf. í Vogurn og Þorbirni hf. í Grindavík. I dag verða meðal annars seld 10 tonn, aðallega af þorski og ýsu, úr Aðalvik KE. Selt verður úr dagróðrabátum ef á sjó gefur. Ráðstefna um rétt heímaviiinandi fólks UM NÆSTU helgi efiiir Bandalag kvenna til ráð- stefiiu á Hótel Loftleiðum sem ber yfirskriftina „Hvar stöndum við? Hvað viljum við?“ og Qallar um réttinda- mál heimavinnandi fólks. Ráðstefiian hefst kl 10 f.h. á laugardag og er öllum heimil þátttaka. Dóra Guðmundsdóttir ein þeirra sem á sæti í undirbúningsnefnd ráðstefnunnar segir að þetta verði vonandi undanfari þess að stofnuð verði landssamtök um hagsmuna og réttindamál heimavinnandi fólks sem munu hafa að markmiði að reyna að stuðla að verðugri réttarstöðu fólks sem vinnur heima. „Margt ungt fólk myndi kjósa að vera heima með bömum sínum“ sagði Dóra en bætti því við að eins og nú væri í pottinn búið væri það nánast óhugsandi. Réttur heimavinnandi fólks væri metinn til-lítils og reynsla enn síður. Það væri og kappsmál hóps- ins að fólk gæti einnig fengið að velja, hvort það vildi vera heima- vinnandi eða ekki. Sagðist hún vona að ráðstefnan skilaði þeim árangri að sýna fram á baráttuhug og samstöðu um þetta efni. Hún sagði að svo virtist sem margir væru farnir að líta á þetta mál af meira raunsæi og því væri full ástæða til bjartsýni. Sérstakur gestur á raðstefn- unni og einn frummælenda er Ing- unn Birkeland, formaður Norska húsmæðrasambandsins, sem greinir frá störfum þess og stefnu. Aðrir ræðumenn á ráðstefnunni verða Helga Guðmundsdóttir sem talar um starfssemi hagsmuna- nefndarinnar, Jóhanna Sigurðar- dóttir félagsmálaráðherra ræðir um réttarstöðu heimavinnandi fólks, Davíð Oddsson borgarstjóri um dagvistarmál, Guðrún Erlends- dóttir, hæstaréttardómari talar um sifjarétt og hjúskapareign, séra Öm Bárður Jónsson í Grindavík talar um fjölskylduna og heimið og Ragna Jónsdóttir spyr í sínu máli hvort hagsmunasamtök heimavinnandi fólks eigi rétt á sér. Einnig verða fulltrúar frá ríkisskattstjóra og einnig rætt um tryggingamál. Dóra Guðmundsdóttir tók sér- staklega fram að hópurinn sem hefur undirbúið ráðstefnuna teldi mjög mikilvægt ef fólk utan af landi sýndi þessu áhuga ekki síður en íbúar á höfuðborgarsvæðinu. Ingunn Birkiland Náttúruverndarráð og Landvernd: Fyrirlestur um einnota umbúðir Náttúruvemdarráð og Land- vemd gangast í dag, fímmtudag, fyrir almennum kynningarfiindi um einnota umbúðir. Fundurinn verður haldinn kl. 20.30 í Odda við Suðurgötu. Erindi á fundinum munu flytja Auður Sveindsdóttir frá Landvemd, sem talur um einnota umbúðir sem umhverfisvandamál, Ragnar Birg- isson frá Sanitas, sem fjallar um stöðu mála hérlendis og starf endur- vinnslunefndar iðnaðarráðuneytis- ins og Jörgen Sallenhag frá PLM Pack í Svíþjóð, sem hyggst segja frá reynslu Svía af innsöfnunarkerf- um. Fyrri tveir fyrirlestrarnir verða um 10 mínútur hvor, en Sallenhag ætlar að tala í hálftíma. Á eftir verða almennar umræður. %•* Abendingar frá LÖGREGLUNNI: Akstur léttra bifhjóla Enginn má stjóma léttu bif- hjóli, nema hann hafí gilt ök- uskírteini til þess eða til að mega stjórna bifhjóli. Ökuskír- teini til að mega stjóma léttu bifhjóli má ekki veita þeim, sem era yngri en 15 ára, enda hafi hann áður fengið tilskylda ökukennslu. Nokkur brögð era að því að unglingar yngri en 15 ára aki léttum bifhjólum án tilskilinna réttinda. Þeir ýmist fá þessi hjól að láni, kaupa léleg hjól til viðgerðar eða hafa fengið ný eða nýleg hjól að gjöf frá foreldram eða öðram. Stundum er erfítt að bíða eftir að aldurs- mörkunum sé náð og freistingamar ná yfírhöndinni. Þá skortir allnokkuð á að þeir, sem hafa leyfí til aksturs léttra bifhjóla, virði þær reglur sem í gildi era varðandi takmark- anir á akstri þessara ökutækja. Léttum bifhjólum, sem og bif- hjólum, má t.d. ekki aka á gangstétt eða eftir gangstíg og í námunda við íbúðarhús á að haga akstri og meðferð þannig að frá ökutækinu stafí ekki hávaði að óþörfu. Áhuga unglinga á léttum bifhjólum ber að taka alvarlega. Foreldrar þurfa að veita þeim uppeldisþætti sérstaka athygli og unglingamir að skilja að akstur slíkra ökutælqa er annað og meira en að setjast undir stýri og aka af stað. Létt bifhjól era ekki leiktæki og það þarf að meðhöndla þau í samræmi við það. Farið varlega. í fréttatilkynningu frá Náttúra- vemdarráði segir að Sallenhag sé manna kunnugastur um endur- heimt áldósa í Svíþjóð, enda hafí hann stjómað þeirri vinnu. Agælis loðnu- veiði en leið- inda veður ÁGÆTIS loðnuveiði var I fyrri- nótt, þrátt fyrir leiðindaveður á miðunum. I gær, miðvikudag, til- kynnti Börkur um 1.150 tonn til Skotlands og Húnaröst tilkynnti , um 600 tonn til Færeyja. Víkur- berg tilkynnti um 520 tonn til Færeyja síðdegis á þriðjudag. Síðdegis í gær höfðu þessi skip tilkynnt um afla: Hilmir II 570 tonn til Seyðisfjarðar, Börkur 1.150 til Skotlands, Fífill 570 til Raufar- hafnar, Pétur Jónsson 1.100 til Seyðisfjarðar, Dagfari 520 til Seyð- isfjarðar, Harpa 520 til Raufar- hafnar, Beitir 1.200 til Neskaupstað- ar, Höfrangur 850 til Reyðaríjarðar, Húnaröst 600 til Færeyja, Erling 620 til Raufarhafnar, Guðmundur 860 til Vestmannaeyja, Sigurður 1.250 til Vestmannaeyja, Guðmund- ur Ólafur 600 óákveðið hvert og Svanur 670 til Vopnafjarðar. Alþjóðlega bænavikan; Samkoma á Hjálpræðis- hernum í kvöld SAMKOMA verður hjá Hjálpræð- ishernum i kvöld, fimmtudags- kvöld 19. janúar, kl. 20.30. og er hún liður í Alþjóðlegu bænavi- kunni, sem nú stendur yfír. Ræðumaður kvöldsins er Hafliði Kristinsson frá Hvítasunnusöfnuð- inum. Tónlistarflutningur verður í umsjá Sjöunda dags aðventista og mun Æskulýðskór aðventista syngja og trompet-tríó leikur. Einnig verður mikill almennur söngur. Daníel Óskarsson stjórnar samkomunni. Allir velkomnir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.