Morgunblaðið - 19.01.1989, Blaðsíða 46
fclk í
fréttum
MQRGUNBLADIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1989
María
Ólafsdóttir
á uppáhaldsstaðnum
sínum,
við Gróttu.
FJÖLHÆF LISTAKONA
„Einhvem
tíma
ætla ég
að kaupa
lítið hús“
María Ólafsdóttir heitir hún
stúlkan sem lék Garúnu í
kvikmyndinni Djákninn er sýnd var
í sjónvarpinu yfir jólin. Þessi stúlka
er aðeins tvítug að aldri, hefur aldr-
ei leikið áður í leikriti eða verið í
leiklistarskóla. Hinsvegar hefur hún
dansað við mörg tækifærin, í ellefu
ár, og síðast á „Allt vitlaust“-sýn-
ingunni sem gekk í Broadway við
metaðsókn í eitt og hálft ár. En
María fæst hvorki við leiklist eða
dans þessa dagana. Hún býr í lista-
mannahverfi í New Yörk-borg og
stundar þar nám við Parsons school,
einn virtasta listaskóla Banda-
ríkjanna. Þar tók hún inntökupróf
síðastliðið haust og komst hún beint
inn á annað ár í fatahönnun. Um
þetta allt og fleira spjölluðum við
einn góðviðrisdag.
„Ég vissi varla að ég gæti teikn-
að fyrr en ég fékk jákvætt svar frá
Parsons,“ segir hún, brosmild og
hógvær. „Ég hafði byijað í Versló
og ætlaði að verða „bissnesskona".
Svo fór ég til Englands í fatahönn-
un en þar var námið alls ekki eins
og ég vildi hafa það. En í Parsons
fæ ég að teikna eigin hugmyndir.“
— Fatahönnun, er þetta gamall
draumur að rætast?
„Nei, nei, ekki svo gamall. Þegar
ég var lítil ætlaði ég að verða ball-
erína. Mig langaði alltaf að vera á
sviði og hef dansað á ýmsum sýn-
ingum í gegnum tíðina. Þó að ég
r sé núna að læra hátískuhönnun vil
ég frekar verða búningahönnuður,
ég held að ég sé búin að komast
að því. Fatahönnun sem hátíska _er
yfirborð. Hátískan segir ekkert. Ég
vil grúska meira, ég hef gaman af
allri sögu í kringum búninga. Og
ég vildi gjaman síðar meir verða
hluti af þeim hópi sem starfar hér
í leikhúslífi og kvikmyndum. Það
er svo mikil gróska í þessum málum
hér.“
— Nú hefur þú dansað á ótal
sýningum, leikið, hannað og saum-
að föt, verið í skóla, stundum allt
í einu. Hefurðu alltaf nógan tíma
til alls?
„Nei, ég hef ekki tíma til þess
að gera allt sem ég ætla í lífinu.
Ég vildi hafa sólarhringinn tvöfalt
lengri. Fyrir utan allt þetta er ég
að leita að sjálfri mér. Fyrst og
fremst vil ég vita hvað er fyrir inn-
an þessa persónu sem er að öllu
þessu, hvem innri mann ég hef að
geyma. Ég hef prófað ýmislegt, hef
verið erlendis við störf og ferðast
mikið, og ennþá lifi ég fyrir sjálfa
mig.
Jú, dansinn hefur alltaf verið stór
þáttur í lífi mínu. Það var mjög
gaman að dansa í rokk-og-ról-
sýningunni á Broadway. Og stund-
um höfðum við fræga áhorfendur.
Til dæmis John Travolta og leik-
stjórann Polanski. Ég hitti þá báða,
annan reyndar undir svolítið skrýtn-
um kringumstæðum. Ég var stödd
baksviðs að klæða mig í danskjólinn
og var í vandræðum með rennilás-
inn að aftan. Kemur þá ekki þessi
Morgunblaðið/Sverrir
litli maður að mér og segir: „Má
ég renna upp fyrir þig?“ Það var
víst Polanski en ég hafði ekki hug-
mynd um það. Þegar stelpumar
sögðu mér hver þetta væri skamm-
aðist ég mín niðrí tær. Svo sá ég
hann aftur og bara brosti sætt!
Ég hef alltaf verið með einhvem
fíðring í mér og er mjög þijósk.
Þetta nám sem ég er í núna krefst
mikils og það hefur komið fyrir að
ég hafi ekkert sofið í nokkra sólar-
hringa af því að ég hef þurft að
skila verkefnum. Ég vil gera vel.
Ég veit inni í mér að ég á eftir að
vera nokkur ár úti við nám. En ég
veit líka að á endanum kem ég
heim til íslands. Ég sakna alltaf
landsins og kann betur að meta það
eftir því sem ég er Iengur að heim-
an. Og einhvem tíma ætla ég að
kaupa lítið hús og eignast mann
og böm.“
Útsala útsala
... allt að 70% afsláttur
HAGKAUP
HIRÐSIÐIR
Listin
að stíga út
úr bifreið
Tvær prinsessur á leið í sömu
veisluna. Báðar eru þær spari-
klæddar og koma þær akandi hvor
í sinni limósínunni. Fyrst kemur
Díana. Hún smýgur kvenlega út
úr bifreiðinni, lögulegir fótleggir
hennar koma í ljós í bíldyrunum og
glæsilega er stigið út úr bifreið-
inni. Svona gera prinsessur. Strax
á eftir kemur Sara. Hún rís upp
inni í bílnum, beygir fótleggina og
hoppar út, líkari froski en prins-
essu. „Hún lærir þetta aldrei," seg-
ir breska pressan og menn hrista
höfuðið.
WARREN
BEATTY
Heyrst hefur að leikarinn
Warren Beatty hafi nýlega
sent fyrrverandi ástkonu sinni,
Diane Keaton, risastóran rósa-
vönd. Svo sem ekki í frásögur
færandi.
Nema hvað
að Diane hef-
ur lofað
Warren að
ekki skuli hún
minnast einu
orði á ástar-
samband
þeirra í nýrri sjálfsævisögu leik-
konunnar. Bókaforlag það er
gefa mun bókina út hafði þó
verið boðið og búið til þess að
borga Diane vænar summur ef
öll smáatriði fengju að fljóta
með. En Diane hafði gefið Warr-
en loforð sitt og lét ekki kaupa
sig til lausmælgis. Warren er
sagður anda léttar. \