Morgunblaðið - 19.01.1989, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 19.01.1989, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1989 /, N6 van-tav' mig bara. málnincju. íyrir tvo fjöLL, fimm tré og eitt-^'aUavatn." Ásí er... ... hrærigrautur. TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved ® 1989 Los Angeies Times Syndicate Þú hlýtur að vera meiri- háttar glæpon? HÖGNI HREKKVÍSI Svolítið furðuleg- ur áróður Til Velvakanda. Kúnstugur áróður er nú rekinn gegn Flugleiðum. Margir áhrifa- menn hafa látið það eftir sér hafa að verði Amarflug gert upp, sem sýnist hið eina rétta eins og komið er, muni Flugleiðir einoka allt ftug til og frá landinu. Þetta er alrangt og raunar furðulegur málflutningur ábyrgra manna. það ætti öllum að vera ljóst að nú er þegar hafin sam- keppni margra öflugra flugfélaga um þennan mjög svo takmarkaða flutning milli Islands og Evrópu. Má þar nefna Lufthansa, SAS og Brithish Airways sem án efa mun koma inn á markaðinn svo um munar. Það er því knýjandi nauð- syn, hafí það nokkru sinni verið, að íslendingar gangi sameinaðir til þessa leiks og mun ekki af veita. Hafi Arnarflug verið, og sé rekið með tapi, bætir ekki úr skák að ausa meira fé í þann rekstur, skatt- borgararnir láta sér það tæpast lynda að meira fé sé kastað „út um gluggann" þegar allt virðist á helj- arþröm hjá hinu opinbera. Væri nær að flokksforingjar kæmu sér saman um sameiginlegt átak landsmanna í flugsamgöngum, en að ala á tor- tryggni og hömlulausri samkeppni milli okkar sjálfra, öllum til tjóns nema þá hinum erlendu félögum sem nú horfa glaðhlakkaleg á sund- urlyndið hér. Flugáhugamaður Þessir hringdu . . Góðir útvarpsþættir Elín Friðríksdóttír hringdi: „Ég vil þakka fyrir ýmislegt gott frá síðata ári. Sérstaklega vil ég þakka forseta íslands. Þá vil ég þakka Ríkisútvarpinu fyrir mjög margt gott og skemmtilegt á síðasta ári t.d. þætti Helgu Thorberg og Páls Líndals. Eins þakka ég leikfimina með Halldóru Bjömsdóttir, hún er við margra hæfí. En ég álít að sjónvarpið okkar megi svolítið vara sig. Það er hægt að líta á menningu og skemmtan frá svo mörgum sjón- arhomum, enda margir hópar fólks með mismunandi tilfínningu fyrir skemmti- og afþreyingar- efni. Mörgum finnst sem mætti vera meira af meinlausum sögu- legum skemmtiframhaldsþáttum en minna af hasar- og kynlífs- myndum. Líklega mega blessaðir fréttamennimir okkar svo stund- um vera svolítið háttvísari, það verður margt fréttaefni viðkvæmt í meðförum. Eitt er það orð sem nú heyrist alloft, bæði í útvarpi og sjónvarpi og það er orðið skondriir, skondn- astir eða skondinn. Ég skil ekki hvers vegna þarf yfirleitt að nota þetta orð. Ég vil óska stjóm landsins til hamingju og vona að störf hennar verði landinu til hagsbóta í raun.“ Úr Úr tapaðist í nóvember. Á úrinu er talan 4341. Finnandi er vin- samlegast beðinn að hringja í síma 19271. Lyklaveski Lyklaveski með einum lykli, stimplað Útvegsbanki íslands, fannst í Hafnarfírði fyrir skömmu. Upplýsingar í síma 32364. Hanskar Piltur gleymdi nýjum hlífðar- hönskum í Saab-bifreið sem hann fékk far með af Hellirsheiði niður á Langholtsveg. Er ökumaðurinn beðinn að hringja í Ester í síma 82486 eða 624260. Silfiirnæla Kringlótt silfurnæla týndist í desember. Finnandi vinsamlegast hringi í Önnu eða Kristínu í síma 39225 að deginum. Slæða Stór sjalslæða, rauð, hvít og blá tapaðist sl. föstudag í Mið- bænum eða Vesturbænum. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 74564. Gleraugu Gleraugu fundust í Gyðufelli sl. laugardag. Upplýsingar í síma 71794. Víkverji Víkveiji las á dögunum í Feyki, Óháðu fréttablaði á Norður- landi vestra, pistil sem hét Fallvalt- ir gjaldmiðlar. Þar sagði frá fall- völtu gengi á erlendum gjaldeyris- mörkuðum og voru tínd til dæmi um hækkun Bandaríkjadollars, þeg- ar bandarískir flugmenn höfðu skotið niður tvær líbýskar herþotur og lækkun japanska jensins með lækkandi blóðþrýstingi Japanskeis- ara, sem nú er látinn. Síðan segir Feykir að Japanskeisari hafí verið vinsæll með löndum sínum og eins sé um Steingrím Hermannsson. Sem betur fer sé krónan þó annarr- ar náttúru en jenið, því væru þau lík hefði það eitt, þegar Steingrímur sagaði í puttann á sér hér um árið, getað þýtt þjóðargjaldþrot! Þegar Víkveiji las þetta rifjaðist upp fyrir honum samtal við Steingrím Hermannsson í sjón- varpi. Spyrillinn, sem Víkveiji man ekki í svipinn hver var, spurði þá Steingrím eitthvað á þá leið, hvort verið gæti að vinsældir hans stöfuðu af því að hann væri svo mannlegur að saga í fíngurna á sér! Steingrím- ur þvertók ekki fyrir það, að þetta gæti hjálpað upp á sakimar í vitund fólks og jafnvel orðið Framsóknar- flokknum til framdráttar. Það var þá, sem Víkveiji minntist frá öðru atviki orða Steingríms um þann draum hans að gera Framsóknar- flokkinn að stærsta flokki þjóðar- innar. skrifar Víkveija rak í rogastans, þegar hann las frétt í sunnudagsblaði Morgunblaðsins um Bolvíking, sem vill fá að taka bílpróf. Þar kom m.a. fram, að prófdómari Vestfirð- inga situr á ÁJcranesi og fer ekki vestur, nema einu sinni í mánuði. Henti Bolvíkingnum, sem er sjó- maður í þessu tilviki, ekki að bíða Skagamannsins verður hann að leggja leið sína til Akraness. í frétt Morgunblaðsins var þess getið, að það kostaði Bolvíkinginn 16 þúsund krónur að fara í bílprófið með einkabíl og var þá aðeins reiknað kílómetragjald en enginvgreiðsla til ökumannsins, sem Bolvíkingurinn yrði alla vega að hafa suðurleiðina. Röskar 9 þúsund krónur kostaði það Bolvíkinginn að fljúga suður og ferðast svo með Akraborginni á milli Reykjavíkur og Akraness (því auðvitað mætti maðurinn ekki taka bílprófíð í Reykjavík, eða hvað!). Til viðbótar þessu þarf okkar maður svo auðvitað að borða á þessu ferða- lagi og að öllum líkindum að gista syðra þannig að kostnaður af slíku ferðalagi léki á tugþúsundum króna. Þessi þjónusta eða öllu heldur skortur á þjónustu er auðvitað fyrir neðan allar hellur. Satt að segja sýnist Víkveija þetta vera hrein afturför frá því Bifreiðaeftirlit ríkis- ins var og átti hann hreint ekki von á slíku. En enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur! En grínlaust tekur Víkveiji upp orð Ingibjargar Vagnsdóttur í Bol- ungarvík, sem segir í fréttinni: „Ég skil ekki til hvers þessi bæjarfógeta- embætti eru orðin. Maður þarf að sækja allt suður, þessir menn sem stjóma virðast aldrei hugsa út fyrir Reykjavík. Það væri kannski réttlátara að hafa bara ökuskóla uppi á miðhálendinu, þá ættu að minnsta kosti allir jafn erfitt með að komast þangað.“ XXX 1* Feyki þeim, sem Víkveiji vitnaði til í upphafi, er önnur klausa, þar sem vikið er að nýársdagsræðu séra Hjálmars Jónssonar. Séra Hjálmar fjallaði um áramótin og meðal annars þann hug, sem fólk legði í þá venju að óska öðrum gleði- legs nýs árs. Síðan hefur Feykir eftir séra Hjálmari þá sögu, að eitt sinn við messu í Silfrastaðakirkju á nýársdag hafí séra Björn Jónsson á Miklabæ óskað Steingrími bónda á Silfrastöðum gleðilegs nýs árs, eins og hann var vanur. En nú tók bóndi óskum prests fálega og sagði: „Þetta sagðir þú nú líka í fyrra, en samt hef ég ekki Iifað neitt ár jafn- bölvanlegt og það síðasta.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.