Morgunblaðið - 19.01.1989, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1989
Kristín Guðmunds-
dóttír - Minning
Fædd 9. desember 1894
Dáin 10. janúar 1989
í dag fer fram frá Dómkirkju
Krists konungs í Landakoti útför
Kristínar Guðmundsdóttir, en hún
lést á Elliheimilinu Grund þriðju-
daginn 10. janúar sl.
Kristín fæddist þann 9. desember
1894 á Nýlendu undir Austur-
Eyjaflöllum. Foreldrar hennar voru
hjónin Guðmundur Vigfússon og
Anna Jónsdóttir. Kristín var ein af
sex systkinum, sem nú eru öll látin.
Ung að árum var hún sett í fóst-
ur til föðursystur sinnar sem bjó í
Reykjavík og ílengdist hún þar. A
unglingsárum sínum starfaði hún í
þvottahúsi Landakotsspítala uns
hún giftist manni sínum Kristján
Guðjónssyni prentara, þann 3. októ-
ber 1923. Kristján lést þann 26.
desember 1945. Þeim Kristjáni og
Kristínu fæddist sonur, Ágúst, árið
1915. Hann fluttist til Danmerkur
og kvæntist þar sænskri konu, Ger-
trud. Þeim hjónum varð ekki bama
auðið. Ágúst lést í Danmörku árið
1981.
Eftir að Kristín missti mann sinn
hóf hún störf við saumaskap. Er
mörg handavinnan sem liggur eftir
hana.
Á árunum sem Kristín vann á
Landakotsspítala komst hún í kynni
við kaþólska söfnuðinn hér á landi.
Var það hennar einlæga ósk að
ganga í þennan söfnuð, sem hún
og gerði. Var hún mjög áhugasöm
í safnaðarstarfinu og varð ein af
stofnendum Paramentfélagsins árið
1920, sem nú er Kvenfélag Krists-
kirkju. í því félagi starfaði hún af
lífi og sál eins lengi og kraftar
leyfðu. Með Kristínu em nú allir
stofnendur Paramentfélagsins látn-
ir. Einnig var Kristín gerð að heið-
ursfélaga í Reykjavíkurfélaginu.
Allt frá því ég man eftir mér
stendur þessi virðulega kona í
peysufötunum mér fyrir hugarsjón-
um. Hún bjó þá hjá Bimi Jónssyni
kaupmanni og Guðrúnu Kristins-
dóttur á Vesturgötu 17A í
Reykjavík. Þau hjónin voru Kristínu
ætíð mikil hjálparhella. Árið 1976
fluttist Kristín að Norðurbrún 1,
en árið 1985 var hún, sökum veik-
inda, flutt á Elliheimilið Gmnd og
var þar til dauðadags.
En nú er Kristín farin á fund
skapara síns. Trúin segir okkur að
dauðinn sé síðasta skrefið á jarð-
neskum vegi lifsins. Með dauðanum
göngum við í gegnum dymar, og
stöndum við upphaf nýs kafla í lífí
okkar. Það er því mikilvægt að
hafa það fyrir augum, að eftir
myrkur dauðans bíður okkar ljós
eilífs lífs.
Ég votta systkinabörnum
Kristínar, öðmm ættingjum og vin-
um, innilegrar samúðar og bið al-
góðan Guð að veita styrk sinn.
Eg lifi nú þegar í Drottni í dag,
ég dey, svo að erfi ég lífið,
ég ferðast mót eilífum unaðarhag.
Hví er þá mín sál ei með gleðibrag?
Ég á þegar eilífa lífið.
(V.Br.)
Megi Drottinn veita henni eilífa
hvíld og láta hið eilífa ljós lýsa
henni. Hún_hvíli í friði.
Ágúst K. Eyjólfsson
Þegar nálgast þunga stundin
þegar gjörvöll lokast sundin
leyf mér flýja þá til þín,
flýja til þíns heita hjarta
hverfa þá mun nóttin svarta.
Þú, ó Jesú, manst til mín.
Sálin lífsins óttast enda,
enginn nema þú má senda
huggun þá, sem færir frið.
Lát mig eins og bamið blunda,
benjar þinna síðuunda
halda mér þitt hjarta við.
I dag kveð ég góða vinkonu mína
Kristínu Guðmundsdóttur sem and-
aðist 10. janúar á hjúkrunarheimil-
inu Gmnd þá orðin 94 ára.
Það er langur ævindagur og hef-
ur margt á þá drifið misjafnlega
gott, sem ég ætla ekki að rekja hér.
Ég ætla aðeins að þakka Kristínu
samfylgdina.
Kynni okkar og vinátta hófust
fyrir 36 ámm, þó svo ég hafi lengi
áður vitað hver hún var, þessi glæsi-
lega kona á íslenska búningnum,
sem alltaf var í kirkjuhni okkar.
Það var árið 1953 að undirrituð
ásamt 8 öðmm stúlkum fór í
pílagrímsferð til Lourdes. Í þeim
hópi var Kristín Guðmundsdóttir
aldursforseti, um 30 ámm eldri en
við hinar. Ekki kom það að sök því
Kristín var með létta lund,
skemmtileg og félagslynd og vomm
við allar sem ein.
Hún átti stóran þátt í hvað allt
gekk vel og var ánægjulegt. Alltaf
var hún tilbúin að rétta hjálparhönd
hveijum sem á þurfti að halda og
var ég þess oft aðnjótandi þar sem
hún studdi mig dyggilega.
Þetta var 6 vikna löng ferð sem
hófst með siglingu „Drottingarinn-
ar“ til Kaupmannahafnar þar sem
við dvöldum hjá St. Jósefssystrum
í 3 daga áður en haldið var til
Hollands til móts við séra Jósef
Hacking, sem var mikill vinur okk-
ar allra ásamt því að vera prestur
okkar. Hann lést fyrir 25 ámm.
Fómm við fyrst með honum ásamt
séra Habbets, sem einnig var einn
af prestum okkar en er nú látinn,
á smábúgarð rétt við Valkenburg
sem var í eigu foreldra hans. Þar
dvöldum við í nokkra daga í yndis-
legu umhverfí hjá dásamlegum for-
eldmm hans sem allt vildu fyrir
okkur gera.
Þar sem og annars staðar var
Kristín okkur til fyrirmyndar og
alltaf var stutt í glaðværan hlátur
hennar.
Ferðinni var svo haldið áfram til
Lourdes undir stjóm og leiðsögn
séra Hackings sem sá um að rétt
væri að öllu staðið og að við gætum
nýtt okkur sem best allt sem fram
Gleymdu ekki
qóðu gistihúsi
sem býður þig
velkominn í vetur
Edduhótelið á Klaustri er tilvalinn áningarstaður
á ferð um Suðausturland. Herbergin eru öll með
baði og bíða þín tilbúin allan sólarhringinn.
Njóttu þess á ferðalagi að nærast og hvílast á Klaustri.
Renndu við hvenær sem er... það verður
opið í allan vetur.
..á Klaustri
fór á þessum dásamlega og ógleym-
anlega stað.
Eftir að heim kom héldum við
hópinn um tíma, en aðallega hitti
ég Kristínu og heimsótti hún okkur
oft og hafði gaman af börnum okk-
ar og áttum við margar ánægjuleg-
ar stundir saman. Hún var síðar
fermingarvottur Kristínar dóttur
okkar.
Kristín var mikil hannyrðakona
og vann fyrir sér á árum áður við
að bródera og telja út fyrir hann-
yrðaverslanir, einnig hannaði hún
sjálf mynstur.
Kristín var fædd austur undir
Eyjafjöllum en fluttist ung til
Reykjavíkur og ólst upp hjá föður-
systur sinni. Hún giftist Kristjáni
Guðjónssyni prentara og áttu þau
einn son, Ágúst.
Eiginmaður Kristínar lést langt
um aldur fram árið 1945 eftir
hörmulegt slys. Syrgði hún mann
sinn mjög mikið. Það var hjálp
Kristínar og styrkur hve trúuð hún
var. Hun leitaði huggunar í bæn-
inni og í kirkju sinni. Hún var alla
tíð mjög kirkjurækin, það leið ekki
sunnudagur né aðrir helgidagar, og
þurfti ekki helgidaga til, án þess
að hún sækti kirkju á meðan kraft-
ar hennar leyfðu. Síðar þegar hún
komst ekki lengur hjálparlaust naut
hún aðstoðar yndislegra vina sinna,
hjónanna Guðrúnar og Bjöms Jóns-
sonar, sem hugsuðu um hana sem
væri hún þeirra eigin móðir, Ég hef
ekki þekkt betra fólk en þau, alla
þá umhyggju sem þau sýndu þess-
ari gömlu konu sem var svo mikill
einstæðingur orðinn, þau eiga mikið
þakklæti skilið.
Sonur Kristínar fluttist til Dan-
merkur þar sem hann kvæntist
sænskri stúlku. Hann lést þar fyrir
átta ámm og var það þungt áfall
fyrir gömlu konuna.
Það var margt mótlætið sem
Kristín varð fyrir, en alltaf reis hún
upp aftur og án þess að bugast.
Hún veiktist af illkynja sjúk-
dómi, sem hún þó sigraðist á, og
beinbrotin hennar vom orðin yfir
30. Verst var þegar skemmd kom
í auga hennar og hún missti það.
Kristín bar sína erfiðleika í hljóði
og aldrei heyrði ég hana kvarta eða
tala illa um nokkurn mann og alltaf
var hún til í að slá á létta strengi.
Það er komið að leiðarlokum á lanri
ævi. Ég kveð Kristínu vinkonu mína
með söknuði og þakklæti í huga
að hafa átt hana fyrir vin.
Ég bið góðan Guð að varðveita
hana og blessa. Blessuð sé minning
hennar. Lát hið eilífa ljós lýsa
henni, hún hvíli í friði. Ríörir
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
nauðungaruppboð
Nauðungaruppboð
annað og síðara á eftirtöldum fast-
eignum fara fram á skrifstofu emb-
ættisins á Hafnarbraut 27, Höfn,
fimmtudaginn 26. janúar 1989:
Kl. 13.00, Ránarslóð 17a, Höfn, þingl. eign Jóns Benediktssonar og
Halldóru Gísladóttur, eftir kröfum Arnmundar Backmans hrl. og
Byggöastofnunar.
Kl. 13.30, Austurbraut 14, Höfn, þingl. eign db. Heiðars Pótursson-
ar og Hugrúnar Kristjánsdóttur, eftir kröfum Jónatans Sveinssonar
hrl. og Innheimtumanns rikissjóös.
Kl. 14.00, Smárabraut 19, Höfn, þingl. eign Karls Birgis Örvarsson-
ar, eftir kröfu Arnmundar Backmans hrl.
Kl. 14.30, Smárabraut 2, Höfn, þingl. eign Flosa Ásmundssonar,
eftir kröfum veödeildar Landsbanka [siands, Klemensar Eggertsson-
ar hdl. og Innheimtumanns rikissjóös.
Kl. 15.00, Grund II, Nesjahreppi, þingl. eign Sigurgeirs Ragnarsson-
ar, eftir kröfu Landsbanka Islands.
Kl. 15.30, Hafnarbraut 39, Höfn, þingl. eign Arnar Ómars Úlfarsson-
ar, og Snjólaugar Sveinsdóttur, eftir kröfum Sveins Sveinssonar
hdl., Innheimtumanns ríkissjóös, Skúla J. Pálmasonar hrl., Haínar-
bæjar og Kristins Hallgrímssonar hdl.
Kl. 16.00, Heiðarbraut 5, Höfn, þingl. eign Gunnars Davíðssonar,
eftir kröfum Reynis Karlssonar hdl. og Kristins Hallgrímssonar hdl.
Kl. 16.30, Hlíðartún 15, Höfn, þingl. eign Ómars Antonssonar, eftir
kröfu Innheimtumanns ríkissjóös.
Sýslumaðurinn i Austur-Skaftafellssýslu.
Bndsskófinn
Síðustu innritunardagar
(1) Byrjendanámskeiðið er sniðið fyrir fólk
sem lítið eða ekkert þekkir til bridsíþróttar-
innar. Reglur spilsins eru skýrðar og farið
yfir undirstöðuatriði sagna.
(2) Framhaldsnámskeiðið verður í þetta
sinn í beinu framhaldi af byrjendanámskeið-
inu. Farið verður dýpra í Standard-sagnkerf-
ið og tækni spilamennskunnar.
Hvort námskeið um sig stendur yfir í 11
kvöld, þrjár klukkustundir í senn, frá kl.
20.15-23.15.
Byrjendanámskeiðið er á mánudögum og
hefst 23. janúar.
Framhaldsnámskeiðið er á þriðjudögum og
hefst 24. janúar.
Kennsla fer fram í Sóknarhúsinu, Skipholti
50A í Reykjavík.
Nánari upplýsingar og innritun í síma 27316
milli kl. 15 og 18 í dag og á morgun, en í
síma 612075 um helgina.
Frönskunámskeið
Alliance Francaise
13 vikna vornámskeið hefst mánudaginn 23.
janúar. Kennt verður á öllum stigum ásamt
samtalshópi og í einkatímum.
Innritun fer fram í bókasafni Alliance Fran-
caise, Vesturgötu 2 (gengið inn bakdyrameg-
in) alla virka daga frá kl. 15 til 19 og hefst
mánudaginn 9. janúar.
Allar nánari upplýsingar fást í síma 23870 á
sama tíma.
Greiðslukortaþjónusta.
Sjálfstæðisfélag ísafjarðar
heldur almennan fund í Sjálfstæðlshúsinu
2. hæö laugardaginn 21. janúar kl. 16.00.
Gestur fundarins verður Þorvaldur Garöar
Kristjánsson, alþingismaður, og ræöir
stjórnmálaviðhorfið. Önnur mál.
Félagar fjölmenniö og takið meö ykkur
gesti.
Stjórnin.