Morgunblaðið - 19.01.1989, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1989
Kvikmyndun MEFFÍ hefst í maí:
Colombía leggur fram
100 milljónir króna
Eric Roberts meðal aðalleikara
SKÍFAN hf. hefur gert samning við bandaríska kvikmyndafyrirtæk-
ið Colombia Pictures um dreifíngu á kvikmyndinni MEFFÍ í kvik-
myndahús, sjónvarpsstöðvar og til myndbandafyrirtækja utan Banda-
ríkjanna og Kanada. Þessi samningur tryggir framleiðendum mynd-
arinnar tæpar 100 milljón króna lágmarkstekjur. Þessi samningur
mun vera sá stærsti sinnar tegundar sem gerður hefur verið um
norræna kvikmynd.
Jón Ólafsson forstjóri Skífunnar
segir að á sínum tíma hafi hann
náð samningum við Colombia um
dreifingu myndarinnar „Eins og
skepnan deyr“ á myndbönd og sé
þessi samningur nú eðlilegt fram-
hald þessa samstarfs. Tökur á
MEFFI hefjast nú í maí. Meðal leik-
ara í myndinni verður Eric Roberts
sem m.a. hefur leikið í myndunum
Runaway Train og Star 80.
Heildarkostnaður við mjrndina
er áætlaður um 200 milljónir króna.
Jón Ólafsson segir að hann hafi
haft samband við ríkisstjómina til
að kanna hvort hún væri til í að
leggja framtakinu lið. Um yrði að
ræða ríkisábyrgð fyrir allt að fjög-
urra milljóna dollara erlendu láni,
tæpum 200 milljónum íslenskra
króna, sem ætlað er að brúa bilið
milli framleiðslu og afhendingar
myndarinnar til sýningar. Þessi
ríkisábyrgð kæmi á móti þeim
samningum sem þegar hafa verið
gerðir. I þessu sambandi er rétt að
nefna að kanadískur aðili ætlaði að
fjármagna myndina að hluta en því
samkomulagi var rift í kjölfar
samningsins við Colombia þannig
að MEFFÍ verður alfarið í höndum
íslenskra aðila. Á fundinum kom
einnig fram að aðstandendur mynd-
arinnar hafa sótt aftur um til Kvik-
myndasjóðs en sjóðurinn afturkall-
aði 10 milljón króna styrk til mynd-
arinnar í fyrra sökum þess að hún
var ekki alfarið í höndum íslend-
inga.
Hilmar Oddsson leikstjóri mynd-
arinnar segir að hún verði að
stærstum hluta tekin hér á landi.
Það nýmæli verði tekið upp að
myndin verði gerð fyrir opnum
tjöldum. Sem dæmi um það má
nefna að gerð var grein fyrir sögu-
þráð myndarinnar á fundinum. Þá
mun verða stærri áhöfn við gerð
þessarar myndar en áður hefur
þekkst hérlendis, m.a. mikið af er-
lendu fagfólki sem Hilmar segir að
mikið megi læra af.
íslensku leikaramir sem fara
með stór hlutverk í myndinni eru
þau Helgi Bjömsson, Ylfa Edel-
stein, Þröstur Leó Gunnarsson og
Hjálmar Hjálmarsson. Sagan sem
MEFFÍ byggist á er samin af þeim
Hilmari, Jóhanni Sigurðssyni leik-
ara og bandaríska rithöfundinum
Michael Taav. Handritið er hinsveg-
ar gert af kanadamanninum Karl
Schiffmann.
MEFFÍ er spennumynd sem ger-
ist að mestu á íslandi. Sagan hefst
í Marseilles í Frakklandi. Eiturlyfja-
sending þaðan fer vegna misskiln-
ings til íslands. Þar blandast íslend-
ingar inn í mál erlendra bófaflokka.
Reiknað er með að frumsýning
myndarinnar erlendis verði í apríl
eða maí á næsta ári en sennilega
verður frumsýningin hérlendis eitt-
hvað fyrr.
Þrír af íslensku leikurunum í MEFFÍ þeir Hjálmar Hjálmarsson,
Helgi Björnsson og Þröstur Leó Gunnarsson.
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 19. JANÚAR
YFIRLIT í GÆR: Fyrir Norðaustan-land milli Islands og Jan Mayen
er 978 mb lægð sem hreyfist norðaustur og önnur á Grænlands-
hafi um 980 mb djúp sem fer heldur minnkandi og hreyfist lítið.
Veður fer hægt kólnandi og má búast við 5—7 stiga frosti víða um
land á morgun.
SPÁ: Suðvestan kaldi og él um sunnan- og vestan-vert landið en
heldur hægari suövestan átt og víða léttskýjað á Norður- og Aust-
urlandi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FÖSTUDAG: Sunnan átt, kaldi eða stinningskaldi Suð-
vestan-lands, en heldur hægari í öðrum landshlutum. Snjókoma á
Suður og Suðvestur-landi, en að mestu úrkomulaust annars stað-
ar. Frost 4—6 stig.
HORFUR Á LAUGARDAG: Norðaustan átt. Stinningskaldi eða all-
hvass á annesjum norðan og norðvestan-lands, en mun hægari
annars staðar. Snjókoma eöa ól noröan og norðvestan-lands, en
að mestu úrkomulaust annars staðar. Frost 2—3 stig._
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
a Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r t
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10° Hrtastig:
10 gráður á Celsíus
Y Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma httl veður Akureyri 1 skýjað Reykjavík 0.2 snjóél
Bergen 7 alskýjað
Helsinkl +0.5 skýjað
Kaupmannah. 7 skýjað
Narssarssuaq +12 léttskýjað
Nuuk +6 snjókoma
Osló 3 skýjað
Stokkhólmur 2 léttskýjað
Þórshöfn 9 rlgnlng
Algarve 15 heiðskfrt
Amsterdam 5 þoka
Barcelona 8 mistur
Berlfn 5 skýjað
Chlcago 2 heiðskfrt
Feneyjar 0.0 þoka
Frankfurt 4 þokumóða
Glasgow 7 alskýjað
Hamborg Las Paimas 5 skýjað vantar
London 4 mistur
Los Angoles 10 helðskfrt
Lúxemborg 2 þokumóða
Madrfd 10 léttskýjað
Malaga 14 þokumóða
Maliorca 13 alskýjað
Montreal +3 skýjað
New York 3 Wttskýjað
Ortando 12 þokumóða
Parfs 5 þokumóða
Róm 12 þokumóða
San Dlego 8 helðskfrt
Vfn 5 skýjað
Washlngton 0 léttskýjað
Wlnnipeg alskýjað
Borgarspítalinn:
Þrjátíu hjúkrunar-
fræðinga vantar
Slæmt ástand á geðdeildum,
skurðstofii og slysadeild
MIKILL hörgull er á hjúkrunarfræðingum til starfii viða um land.
Á Borgarspítalann einan vantar að minnsta kosti þijátíu hjúkruna-
rfræðinga til starfa á sex deildir sjúkrahússins, en þar hefúr þurft
að koma til töluverð fækkun rúma.
Sigríður Snæbjörnsdóttir hjúkr-
unarforstjóri á Borgarspítalanum
sagði í samtali við Morgunblaðið
að þetta væri svo sem engin stökk-
breyting frá því sem verið hefði
undanfarin ár. Sjúkrahúsin hefðu
ávallt búið við manneklu og væri
þessi tími engin undantekning frá
þeirri „reglu“.
Sigríður sagði að óvenjumargir
hjúkrunarfræðingar hefðu farið í
framhaldsnám að þessu sinni sem
Nýi hjúkrunarskólinn byði hjúkr-
unarfræðingum upp á. Um er að
ræða eins til tveggja ára sémám I
skurðstofunámi, stjómunamámi og
svæfingamámi. „í fyrra fóm mjög
fáir frá okkur í þetta nám en mun
fleiri frá Landspítalanum. Nú hefur
þetta hinsvegar snúist við og í haust
fóru alls 23 hjúkmnarfræðingar frá
okkur í þetta sémám. Þetta fólk
kemur að hluta tii í verknám í sum-
ar, en á meðan þurfum við að brúa
nokkurra mánaða tímabil sem mér
sýnist ætla að verða nokkuð erfitt.“
Borgarspítalinn hefur heimild
fyrir 220 hjúkmnarfræðinga.
Sigríður sagði að varla dytti úr
helgi án þess að ekki væri auglýst
eftir hjúkmnarfólki. Misjafnt væri
þó hverju sinni eftir hvaða starfs-
kröftum auglýst væri. „Að þessu
sinni er ástandið sérstaklega erfítt
á geðdeildunum, skurðstofunni og
slysadeildinni. Síðan vantar okkur
fólk á handlæknisdeildimar. Við
getum í raun og vem bætt við fólki
á allar deildir sjúkrahússins," sagði
Sigríður.
Þrotabú Verslunar Sigurðar Pálmasonar:
Tvö tveggja millj -
óna króna tilboð
„TVÖ TILBOÐ, bæði að fjárhæð tvær milljónir króna, hafa verið
gerð í verslunarhúsnæði Verslunar Sigurðar Pálmasonar á Brekku-
götu 2 á Hvammstanga. Sljórn verkalýðsfélagsins Hvatar á Hvamm-
stanga og Július Guðni Antonsson, framkvæmdastjóri Girðingaverks
sf. í Víðidal í Vestur-Húnavatnssýslu, buðu í húsnæðið. Verkalýðs-
félagið býður nánast staðgreiðslu en Júlíus Guðni býður bréf til
nokkurra ára,“ sagði Guðmundur Arnaldsson, skiptastjóri þrotabús-
ins, í samtali við Morgunblaðið.
„Ég ætla að leggja þessi tilboð
fyrir skiptafund 26. janúar næst-
komandi," sagði Guðmundur. „Það
er augljóst að tilboð verkalýðsfé-
lagsins er hagstæðara en tilboð
Júlíusar Guðna. Það er mín afstaða
að tilboð verkalýðsfélagsins sé vel
viðunandi fyrir þrotabúið, enda em
tvær milljónir króna nánast fast-
eignamatsverð á þessu húsnæði á
Brekkugötu 2 á árinu 1988. Tveir
aðrir aðilar sýndu áhuga á að gera
tilboð í Brekkugötu 2 en það kom
aldrei tilboð frá þeim," sagði Guð-
mundur Amaldsson.
„Stjóm Hvatar hefur ekki ákveð-
ið hvort þetta tilboð verður lagt
fyrir almennan félagsfund í verka-
lýðsfélaginu. Við höfum áhuga á
að nýta húsnæðið á Brekkugötu 2
undir skrifstofur og félagsstarf-
semi. Við höfum einungis 12 til 15
fermetra húsnæði í félagsheimilinu
þar sem við emm með skrifstofur.
Húsnæðið á Brekkugötu 2 er hins
vegar um 300 fermetrar," sagði Jón
Haukdal Kristjánsson gjaldkeri
Verkalýðsfélagsins Hvatar.